Morgunblaðið - 13.06.2003, Page 8

Morgunblaðið - 13.06.2003, Page 8
FRÉTTIR 8 FÖSTUDAGUR 13. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ Skeifan 8 • Sími 568 2200 • www.babysam.is Verið velkomin í BabySam 17. Júní Það er að kom a VerðÞyngd 19.990 16.990 17. júní TILBOÐ 8 kg6 mán.-3 ára Ætluð fyrir Graco Voyager Plus Kerra með skerm, fimm punkta beisli og svunta. Góð fjöðrun. Flösku- haldari við stýrið. Áklæði á mynd Heatwave. Fæst í fleiri litum VerðÆtluð fyrir 8.9906 mán.-3 ára BabySam Silver Einföld og góð regnhlífakerra með skerm. Stillanlegt bak og fótaskemill. Góð fjöðrun. BabySam Lux Shopper Kerra með stillanlegu baki og handfangi. Skermur, loftdekk og innkaupagrind fylgja. Fæst einnig svört/grá. VerðÆtluð fyrir 15.9906 mán.-3 ára BabySam Silver Góð regn- hlífakerra með höggdeyfi. VerðÞyngd 4.9904,5 kg6 mán. -3 ára Ætluð fyrir Í BABYSAM FÁST KERRUR V IÐ ALLRA HÆF I , L I T LAR SEM STÓRAR . EF Þ IG VANTAR KERRU K ÍKTU ÞÁ Í BABYSAM ÞAR SEM ÚRVAL OG VERÐ FARA SAMAN. Gildir til 17. júní Fiskveiðiráðgjöfin hjá Hafró verður æ suðrænni, nánast orðin flugfiskar, hiti og næsleg heit. Bláskógablíða um helgina Örkin hans Nóa á hvolfi ÍBÚAR í Bláskóga-byggð bjóða til opinn-ar kynningar á sveit- arfélaginu undir yfir- skriftinni Bláskógablíða um helgina. Bláskóga- byggð varð til við samein- ingu Þingvallasveitar, Laugardals og Biskups- tungna í fyrra. Ragnar Sær Ragnars- son, sveitarstjóri Blá- skógabyggðar, er fram- kvæmdastjóri Bláskóga- blíðu. Hann segir að áhersla verði lögð á kosti búsetu á svæðinu. „Sveit- arfélagið stendur fyrir kynningu á íbúðar- og sumarhúsalóðum í Ara- tungu á milli kl. 13 og 18 á laugardag og sunnudag. Ekki má heldur gleyma því að boðið verður upp á lifandi tónlistarflutning í félagsheimilinu báða dagana. Laugaráskvartett- inn ætlar að hefja tónleikaferða- lag sitt um landið með tónleikum á laugardaginn kl. 16. Skálholtskór- inn og vinakór hans, Oktet Lesna Slovenj Gradec frá Slóveníu, halda svo sameiginlega tónleika kl. 16 á sunnudag. Oktet Lesna Slovenj Gradec heldur tónleika í Skálholtskirkju kl. 20.30 sama kvöld. Gaman er að segja frá því að Skálholtskórinn ætlar að endur- gjalda heimsókn kórsins til Ís- lands með tónleikaferð til Porto- roz í ágúst. Myndlistin verður ekki útund- an. Sýning á verkum Margrétar G. Brynjólfsdóttur verður opin í nýju galleríi á Laugarvatni alla helgina. Galleríið er í sama hús- næði og húsgagnaverkstæði og því skapast kjörið tækifæri til að kynnast starfsemi þess í leiðinni. – Og af því að við erum komin að Laugarvatni er auðvitað upp- lagt að bregða sér í ekta gufubað niðri við vatnið einhvern tíma á bilinu frá kl. 10 til kl. 21!“ – Þú nefndir húsgagnaverk- stæði. Verður ekki opið hús á fleiri stöðum? „Jú, skemmst er frá því að segja að opið hús verður um alla sveitina um helgina og auðvelt að nálgast frekari upplýsingar um dagskrána á heimasíðu sveitarfé- lagsins, www.blaskogabyggd.is. Af einstökum liðum má nefna að hægt verður að kynnast starf- semi reykhússins Úteyjar við Laugarvatn. Gestum verður boðið að smakka silunginn og taka með sér uppskriftir heim. Fyrirtækið býður gestum upp á leiðsögn í veiði í Hólsá og Laugarvatni og verður hægt að fá veiðileyfi gegn hóflegu gjaldi. Áhugi á lífrænt ræktuðu græn- meti fer sífellt vaxandi. Ekki er því ólíklegt að vinsælt verði að koma við í garðyrkjustöðinni Akri í því skyni að festa kaup á fyrsta flokks lífrænt ræktuðu íslensku grænmeti eins og freistandi kirsu- berjatómötum, salati, kryddjurt- um og öðru slíku. Blómaáhugamenn eru velkomnir á kynn- ingu á ræktun afskor- inna blóma í garð- yrkjustöðinni Espiflöt á laugardaginn.“ – Hvað verður um að vera í Skálholti ? „Fjölskyldufólk hefur sérstak- lega verið haft í huga við skipu- lagningu dagskrár í Skálholti eftir hádegi á laugardag. Landslið fornleifafræðinga ætlar að að- stoða unga fólkið við að beita að- ferðum fornleifafræðinga við að grafa upp gamla mynt á milli kl. 15 og 17. Á meðan er tilvalið fyrir fullorðna fólkið að taka þátt í stað- arskoðun undir leiðsögn sr. Sig- urðar Sigurðarsonar vígslubisk- ups kl. 15. Orgelleikur verður í kirkjunni frá kl. 16.30. Ef við höldum okkur við fjöl- skyldufólkið er óhætt að minna á að dýragarðurinn í Slakka verður opinn alla helgina frá 10 til 18. Fólk á öllum aldri ætti ekki síður að hafa gaman af því að skoða „öðruvísi“ einbýlishús í Reykholti á milli kl. 14 og 16 á laugardag- inn.“ – Hvað áttu við með „öðruvísi“ einbýlishús? „Nú, setur þú mig í klípu. Arki- tektinn vill helst útskýra sjálfur út á hvað hugmyndin gengur. Við höfum þó leyft okkur að tala um Örkina hans Nóa á hvolfi.“ – Hvert er markmiðið með Blá- skógablíðunni? „Markmiðið er að gefa fólki tækifæri á að skoða og kynnast Bláskógabyggð. Við viljum vekja athygli á kostum sveitarfélagsins í því skyni að laða að okkur fleira fólk til að standa undir þjónust- unni. Eins og svo glöggt kom fram á málþingi í tengslum við Bláskóga- blíðuna eru íbúar í Bláskóga- byggð ákaflega ánægðir með nábýlið við náttúruna þótt ná- lægðin við höfuðborgarsvæðið sé ótvíræður kostur. Við sjáum fyrir okkur að nýir íbúar geti ýmist ekið héðan til vinnu í aðra byggðarkjarna eða skapað sér sín eigin tækifæri hér. Eitt af markmiðunum með Bláskógabyggð er einmitt að fá hingað nýtt fólk með nýjar hug- myndir til að auka enn við fjöl- breytni sveitarfélagsins og svo er Bláskógablíða óneitanlega einn liður í því að draga úr hrepparíg og þjappa betur saman íbúum þessa nýja sveitarfélags.“ Ragnar Sær Ragnarsson  Ragnar Sær Ragnarsson, sveitarstjóri Bláskógabyggðar, fæddist 3. ágúst árið 1961 í Reykjavík. Ragnar Sær lauk leikskólakennaranámi frá Fóst- urskóla Íslands árið 1986. Hann lauk rekstrar- og viðskiptanámi frá Endurmenntunarstofnun HÍ árið 1998 og námi í opinberri stjórnsýslu og stjórnun frá sömu stofnun árið 2000. Hann rak skóladagheimili í miðbæ Reykja- víkur frá 1988 til 1998 og var sveitarstjóri Biskupstungna- hrepps frá 1998 til 2002 þegar hann tók við starfi sveitarstjóra Bláskógabyggðar. Eiginkona Ragnars Sæs er Unnur Ágústa Sigurjónsdóttir hjúkrunarfræð- ingur og eiga þau tvö börn. „Áhugi á líf- rænt ræktuðu grænmeti fer vaxandi“ ÁSKRIFTARDEILD netfang: askrift@mbl.is, sími 569 1122

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.