Morgunblaðið - 13.06.2003, Síða 19
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. JÚNÍ 2003 19
Afgreiðslutími
allra verslana Hörpu Sjafnar!
Alla virka daga kl. 8–18 og
laugardaga kl. 11–15.
Helgarvakt
í Skeifunni 4.
Opið laugardaga kl. 11–18
og sunnudaga kl. 13–18.
Skeifan 4
Reykjavík
Sími 568 7878
Snorrabraut 56
Reykjavík
Sími 561 6132
Stórhöfði 44
Reykjavík
Sími 567 4400
Austursíða 2
Akureyri
Sími 461 3100
Hafnargata 90
Keflavík
Sími 421 4790
Dalshraun 13
Hafnarfirði
Sími 544 4414
Austurvegur 69
Selfossi
Sími 482 3767
Bæjarlind 6
Kópavogi
Sími 544 4411
599kr.lítrinnm.v.10 lítra dós
672kr
.
lítrinn
789 kr.lítrinn
399kr.lítrinn
Stórafsláttur af útimálningu og viðarvörn
SUMARTILBOÐ
Mörkinni 6 - Sími 588 5518
Síðar
heilsárs-
kápur
kr. 29.900
WHO, Alþjóðaheilbrigðismála-
stofnunin, tilkynnti í gær að nú
hyllti undir lok bráðalungna-
bólgufaraldursins, HABL. Þó
varaði Gro
Harlem
Brundtland,
yfirmaður
stofnunar-
innar, við
því að þjóðir
heims sofn-
uðu á verð-
inum. „Þrátt
fyrir að
fjöldi tilfella
fari fækkandi með degi hverj-
um þá höfum við mörg dæmi
þess að tíðni [sjúkdómsins] hafi
minnkað skömmu áður en ný
bylgja ríður yfir,“ sagði hún.
Í gær tilkynntu kínversk yf-
irvöld að einn maður hefði látist
af völdum sjúkdómsins í Pek-
ing en ekki um nein ný tilfelli. Í
Taívan var tilkynnt um tvö ný
tilvik en ekkert dauðsfall af
völdum HABL, en í Hong Kong
var hvorki tilkynnt um ný til-
felli sjúkdómsins né dauðsföll
af hans völdum.
Hóta refsi-
aðgerðum
BANDARÍSKA utanríkisráðu-
neytið tilkynnti í gær um 15
þjóðir, þar á meðal Nato-ríkin
Grikkland og Tyrkland, sem
hafa látið hjá líða að berjast
gegn mansali. Ríkin sem eiga í
hlut geta átt von á refsiaðgerð-
um af hálfu Bandaríkjastjórn-
ar. Þetta kom fram í árlegri
skýrslu ráðuneytisins um man-
sal. „Viðkomandi þjóðir geta
komist hjá refsiaðgerðum með
því að sýna samstarfsvilja og
gera strax umbætur á stefnu
sinni og aðgerðum [gegn man-
sali],“ sagði Colin Powell, utan-
ríkisráðherra Bandaríkjanna,
er hann kynnti skýrsluna.
Árás ekki
útilokuð
BANDARÍKJAMENN ættu
ekki að útiloka árás á kjarn-
orkuvinnslustöðina í Yongbyon
í Norður-Kóreu til að koma í
veg fyrir að þarlend stjórnvöld
hefji sölu á kjarnavopnum.
Þetta hefur fréttastofa Reuters
eftir Richard Perle, háttsettum
ráðgjafa Donalds Rumsfelds,
varnarmálaráðherra Banda-
ríkjanna. „Ég held að það sé
ekki hægt að útiloka árás í lík-
ingu við þá sem gerð var árið
1981,“ sagði Perle og vísaði þar
með í óvænta loftárás Ísraela á
kjarnorkuvinnslustöð í grennd
við Bagdad 7. júní 1981.
David Brinkl-
ey látinn
HINN þekkti bandaríski sjón-
varpsfréttamaður, David
Brinkley, lést á miðvikudag 82
ára að aldri.
Brinkley
starfaði sem
fréttamaður
bandarísku
sjónvarps-
stöðvarinn-
ar NBC í
hálfa öld og
fékk á ferl-
inum fjölda
verðlauna og viðurkenninga
fyrir störf sín. Hann vann til að
mynda til 10 Emmy-verðlauna.
STUTT
HABL að
fjara út
Gro Harlem
Brundtland
Brinkley
ÆÐSTI leiðtogi Írans, ajatolla Ali
Khamenei, sakaði í gær Banda-
ríkjamenn um að hvetja til vand-
ræða í Íran í kjölfar þess að and-
stæðingar klerkastjórnarinnar
mótmæltu á götum úti í fyrra-
kvöld, annað kvöldið í röð. Sagði
Khamenei að Bandaríkjamönnum
væri orðið ljóst að þeir gætu ekki
velt írönsku stjórninni úr sessi
með hervaldi og gerðu því allt sem
þeir gætu til að valda uppþotum í
landinu og skapa klofning milli
stjórnvalda og almennings.
„Fjórir menn hækka róminn á
götuhorni og Bandaríkjamenn til-
kynna þegar að þeir styðji þá,“
sagði Khamenei m.a. í ræðu sem
send var út í íranska ríkissjón-
varpinu í gær, nokkrum klukku-
stundum eftir að þúsundir mót-
mælenda flykktust út á götur
Teheran í fyrrakvöld og hrópuðu
slagorð gegn klerkastjórninni.
Margir mótmælendanna voru
námsmenn.
Khamenei sagði að óeirðaseggj-
um yrði engin miskunn sýnd. Enn-
fremur gagnrýndi hann þá menn
sem með „orðum sínum og athöfn-
um“ ykju á „örvæntingu og blekk-
ingu“ almennings, og skírskotaði
þar til umbótasinnaðra þingmanna
og annarra frjálslyndra manna
sem hafa krafist þess af honum að
hann taki af skarið í pólitísku þrá-
tefli íhaldssamra stjórnarsinna og
umbótasinnaðra stuðningsmanna
Mohammads Khatamis forseta.
Segir Bandaríkjamenn
hvetja til óeirða í Íran
Teheran. AFP.
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111