Morgunblaðið - 13.06.2003, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 13.06.2003, Qupperneq 22
AKUREYRI 22 FÖSTUDAGUR 13. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ 10 www.islandia.is/~heilsuhorn Kelp Fyrir húð, hár og neglur PÓSTSENDUM Glerártorgi, Akureyri, sími 462 1889 Fæst m.a. í Lífsins lind í Hagkaupum, Árnesapóteki, Selfossi og Yggdrasil, Kárastíg 1. Ein með öllu Multi-vítamin og steinefna- blanda ásamt spirulínu, lecithini, Aloe vera o.fl. fæðubótarefnum Rauðsmára- Phytoestrogen Fyrir konur á breytingarskeiðinu Fyrir vöðva og liðamót Glucosamine (870 mg Glucosamine í hverjum belg) ásamt engifer og turmeric 10 ára SUMAR 2003 Krónunni, 2. hæð, sími 462 3505, Hafnarstræti 97, 600 Akureyri. Verið velkomin  Rúskinnsjakkar  Stakir jakkar  Hörfatnaður  Kápur  Bolir Skráning í síma 462 2974 Coca Cola Open 14. og 15. júní á Jaðarsvelli Spilaðar verða 36 holur (punktamót m/forgjöf og höggleikur án forgjafar). Mótið er opið mót. Skemmtilegir vinningar í boði Vífilfells. Verðlaun fyrir 1.–3. sæti, með og án forgjafar. Nándarverðlaun á öllum par-3 holum. Dregið úr skorkortum. HOLA Í HÖGGI • óvæntur glaðningur! Keppt í flokkum: Karlar • Konur • Unglingar (0-14) Ræst verður út á 1. og 10. teig kl. 9:00 Mótsgjald: Kr. 3.000 fyrir 16 ára og eldri Kr. 1.800 fyrir 15 ára og yngri KYNNINGARFUNDUR um stefnumótum í ferðaþjónustu á vegum Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar og Iðntæknistofn- unar sem haldinn var í vikunni markaði þáttaskil í starfi AFE þar sem félagið leggur nú niður ferðamálasvið. Af því tilefni veitti AFE eina milljón króna til stuðnings verkefnum Markaðs- skrifstofu ferðamála á Norður- landi. Styrkurinn er háður því skilyrði að skrifstofan verði stofnuð innan 30 daga, annars verður hann ógildur. Ætlast er til að stuðningur AFE verði nýttur í markaðsátak erlendis í tengslum við kynningu á flugi til Akureyrar. Framtíðarsýn verkefnisins er að Eyjafjörður verði talinn framúrskarandi staður fyrir ferðamenn vegna góðrar þjón- ustu, sterkrar ímyndar og yfir- burða á landsvísu í afþreyingu, aðstöðu til útivistar og nálægðar við eftirsóttar náttúruperlur. Stefnu- mótun í ferða- þjónustu HÁSKÓLINN á Akureyri braut- skráir 203 kandidata á háskólahátíð sem haldin verður í Íþróttahöllinni á Akureyri á morgun, laugardag, kl. 10.30. Þar af eru fjórir sem hafa stundað fjarnám í leikskólafræði frá Sauðárkróki og eru það fyrstu fjar- nemarnir sem brautskrást í þeirri grein frá háskólanum. Háskólaárið 2002–2003 voru starf- ræktar fimm deildir við skólann: Heilbrigðisdeild með 214 nemendur, Kennaradeild með 438 nemendur, Rekstrar- og viðskiptadeild með 290 nemendur, Upplýsingatæknideild með 35 nemendur og Auðlindadeild með 83 nemendur, en í vetur var fyrsta starfsár deildarinnar sem er arftaki Sjávarútvegsdeildarinnar. Samtals stunduðu því 1.060 nemend- ur nám við skólann og hafa þeir aldr- ei verið fleiri. Í haust bætist enn við námsframboðið þegar fyrsta skólaár Félagsvísinda- og lagadeildar hefst, en þar verður til að byrja með boðið upp á nám til BA-gráðu í fjölmiðla- fræði, lögfræði, samfélags- og hagþróunarfræði og sálarfræði. Háskólahátíð HA 203 kandid- atar braut- skráðir VEITINGAHÚSIÐ Pollurinn við Strandgötu hefur staðið autt í nokkrar vikur eftir að sal- an á því gekk til baka, en félagið Ós, sem rekur Oddvitann sem er örlítið neðar í götunni, var búið að kaupa staðinn af Lands- bankanum. Að sögn Sigurðar Sigurgeirssonar, svæðisstjóra Landsbankans á Akureyri, hafa nokkrir aðilar sýnt húsinu áhuga en ekkert fast kaup- eða leigutilboð hefur borist inn á borð til þeirra. „Við höfum áhuga á því að koma húsinu í einhvern rekstur sem hæfir því sem fyrst,“ sagði Sigurður. Salan á Pollinum gekk til baka FRAMKVÆMDIR við byggingu nýrra stúdentagarða Félagsstofn- unar stúdenta á Akureyri, FÉSTA, hófust í gær. Húsið verð- ur 9 hæðir og mun rísa við Trölla- gil. Alls verða 36 tveggja og þriggja herbergja íbúðir í húsinu og fjögurra deilda leikskóli. Þessar nýju íbúðir eru svar FÉSTA við mikilli eftirspurn stúdenta eftir hagstæðu leiguhúsnæði og stöðugt fjölgar nemendum við Háskólann á Akureyri. Framkvæmdum á að vera lokið 15. ágúst á næsta ári og þá mun FÉSTA hafa yfir um 120 íbúðaeiningum að ráða í bænum, frá einstaklingsherbergjum til þriggja herbergja íbúða. Heildar- kostnaður við framkvæmdina er rúmur hálfur milljarður króna. Árni Magnússon félagsmálaráð- herra og Kristján Þór Júlíusson bæjarstjóri tóku fyrstu skóflu- stungurnar, ásamt nokkrum börn- um á leikskólanum Kiðagili. Fulltrúar FÉSTA skrifuðu jafn- framt undir byggingasamning við P. Alfreðsson ehf., undir leigu- og þjónustusamning við Akureyrarbæ um húsnæði leikskólans og undir samning við Landsbanka Íslands, sem kemur að fjármögnun verk- efnisins ásamt Íbúðalánasjóði. Hönnun húsnæðisins er í höndun Teiknistofunnar Forms, VST og Raftákns. Bjarni Hjarðar, formaður stjórnar FÉSTA, sagði eftir undir- skrift samninganna að þessi fram- kvæmd myndi efla Akureyri enn frekar sem skólabæ. Kristján Þór Júlíusson bæjarstjóri sagði að Há- skólinn á Akureyri væri enn og aftur að staðfesta hversu mikla þýðingu hann hefði fyrir bæinn. Skólinn efldi samkeppnishæfni bæjarins gagnvart öðrum svæðum og gerði það enn frekar með þess- um nýju stúdentagörðum. Félags- málaráðherra tók undir með bæj- arstjóra og sagði að þessi framkvæmd væri stórt skref og hefði mikla þýðingu fyrir sam- félagið og skipti sköpum varðandi samkeppnishæfni sveitarfélagsins. Félagsmálaráðherra sagði jafn- framt að það þyrftu að vera nokkr- ir sterkir kjarnar í landinu og að Akureyri væri einn þeirra. Framkvæmdir hafnar við níu hæða stúdentagarða FÉSTA við Tröllagil 36 íbúðir og leikskóli í húsinu Morgunblaðið/Kristján Árni Magnússon félagsmálaráðherra og Baldur Bergsveinsson frá leikskólanum Kiðagili færa til þöku eftir skóflustungurnar, en þær tóku ráðherra og Kristján Þór Júlíusson bæjarstjóri ásamt börnum af Kiðagili.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.