Morgunblaðið - 13.06.2003, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 13.06.2003, Qupperneq 24
LANDIÐ 24 FÖSTUDAGUR 13. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ undum króna lægra en tilboð MT- bíla. Þetta eru fyrstu bílarnir sem útbúnir eru sem sjúkraflutningabíl- ar hjá fyrirtækinu, en fram til þessa hefur fyrirtækið sérhæft sig í smíði slökkvibíla með góðum árangri. Sigurjón Magnússon segir að bíl- arnir komi með „boddýi“, en séu síðan innréttaðir sem sjúkrabílar, sett á þá ljós og allur búnaður sem hæfa þykir slíkum bifreiðum. Fyrsti sjúkrabíllinn verður afhentur 15. september næstkomandi, sá næsti mánuði síðar og sá þriðji 15. októ- ber. Þessa dagana er verið að ljúka smíði á slökkvibíl fyrir Slökkvilið Reykjavíkur, en það er seinni bíll- inn af tveimur sem um var samið. NÝLEGA var gengið frá samningi þess efnis að MT-bílar í Ólafsfirði smíði fimm sjúkrabíla fyrir Rauða kross Íslands. Þrír bílanna skulu af- hentir á næstu sex mánuðum, en alls er um að ræða verkefni upp á 30 milljónir króna. Sigurjón Magnússon, fram- kvæmdastjóri MT-bíla, segir að boðin hafi verið út smíði 8 bíla fyrir Rauða kross Íslands. Bílarnir voru flokkaðir í A, B og C, eftir því hvaða búnaður átti að fylgja þeim. MT-bílar áttu lægsta tilboðið í bíl- ana í A og C flokkum, en annar aðili fékk bíla í flokki B. Reyndar var til- boð þess aðila aðeins örfáum þús- Ólafsfjörður Morgunblaðið/Helgi Jónsson Slökkvibíl í smíðum hjá MT-bílum. MT-bílar smíða fimm sjúkrabíla fyrir RKÍ LÍFLEGT var á Laugum í Reykjadal þegar nokkrir krakkar úr leikskólan- um Krílabæ tóku fyrstu skóflustung- urnar að nýrri íbúðagötu sem verið er að hefja framkvæmdir við. Gatan er sunnan við núverandi þjónustukjarna við þjóðveg 1 á Laugum, en um er að ræða lóðir fyrir 6 einbýlishús, tvær lóðir fyrir parhús og eina fyrir raðhús. Talsverður áhugi er fyrir lóðunum og nú þegar liggja fyrir umsóknir um byggingu á fjórum íbúðum í tveimur húsum við götuna. Áætluð verklok eru 15. júní n.k. og er það verktaka- fyrirtækið Jarðverk sem sér um gatnagerðina. Áætlaður kostnaður við verkið er rúmlega 10 milljónir króna án yfirborðsfrágangs götunn- ar. Í Þingeyjarsveit ríkir bjartsýni og framkvæmdahugur er í mönnum en þar er einnig verið að hefja byggingu á nýrri sundlaug við Framhaldsskól- ann. Það þótti við hæfi að yngsta kyn- slóðin sem á framtíðina fyrir sér tæki fyrstu skóflustungurnar og hver veit nema að eitthvert þeirra eigi eftir að búa einmitt við þessa nýju götu sem verið er að gera. Skóflustungur teknar að nýrri íbúðabyggð Laxamýri Morgunblaðið/Atli Vigfússon Börnin í Krílabæ taka fyrstu skóflustungurnar. ÞAÐ var mikið um dýrðir síðasta skóladaginn í grunnskólanum á Hólmavík. Þá var að vanda haldinn svokallaður vordagur sem heppn- aðist í alla staði vel, þrátt fyrir vá- lynd veður. Margs konar skemmtun var í boði, en eins og undanfarin ár hafði spákonan mikið aðdráttarafl. Þá var boðið upp á víkingaspil að danskri fyrirmynd, andlitsmálun, sápukúlur, keiluspil, stultur og ýmsar þrautir og leiki fyrir yngstu börnin. Síðasti dagskrárliðurinn var árleg keppni um titilinn sterk- asti maður og sterkasta kona skól- ans. Að þessu sinni fóru þau Grétar Matthíasson og Aldís Ósk Böðv- arsdóttir í 9. bekk með sigur af hólmi í þeirri keppni. Að endingu voru grillaðar á þriðja hundrað pylsur, en auk starfsfólks og nem- enda grunnskólans tóku leik- skólabörn og starfsfólk leikskólans þátt í vordeginum. Vordagur í grunn- skólanum Hólmavík Morgunblaðið/Kristín Sigurrós Herdís Huld Henrysdóttir dregur bifreið smíðakennarans. Keppt var um sterkasta mann skólans. SUÐURNES UMHVERFISRÁÐHERRA skoð- aði í fyrradag þau svæði á Reykja- nesskaganum sem lagt er til í drög- um að náttúruverndaráætlun að verði friðuð. Hyggst ráðherrann skoða í sumar öll þau 77 svæði sem náttúruverndaráætlunin tekur til. Drög að fyrstu náttúruverndar- áætlun landsins liggja fyrir hjá Umhverfisstofnun og hefur sveit- arfélögum landsins og öðrum hags- munaaðilum verið gefinn kostur á að koma með athugasemdir. Í áætl- uninni er gert ráð fyrir friðlýsingu á 77 svæðum til viðbótar þeim 90 sem þegar eru friðlýst en 8 af þess- um 77 svæðum hafa ekki verið á náttúruminjaskrá. Hægt er að nálg- ast drögin á vef Umhverfisstofn- unar, www.umhverfisstofnun.is. Þegar Umhverfisstofnun hefur lokið yfirferð athugasemda verða drögin formlega afhent umhverfis- ráðherra sem leggur tillögur sínar fyrir umhverfisþing í haust og síðan þingsályktunartillögu um náttúru- verndaráætlun til fimm ára fyrir Alþingi. Andstaða byggist á misskilningi Siv Friðleifsdóttir umhverfisráð- herra segir að sú stefnumörkun sem felist í gerð fyrstu náttúru- verndaráætlunarinnar sé mikilvæg. Þar sé heildstætt yfirlit yfir þau svæði sem vilji sé til að vernda og það sé mikilvægt gagn fyrir stjórn- völd og almenning í framtíðinni. Síðan sé gert ráð fyrir að áætlunin verði endurskoðuð reglulega. Siv undirbýr umfjöllun sína um tillögur Umhverfisstofnunar með því að fara um og skoða öll nýju svæðin. Hún segist vera byrjuð að fá athugasemdir beint til sín og segir ljóst að andstaða sé við sum atriði áætlunarinnar. „Ég tel þó að eitthvað af andstöðunni byggist á misskilingi. Fólk heldur að með friðlýsingu sé verið að útiloka nýt- ingu og þróun á viðkomandi svæði. Þetta er ekki þannig því til eru mis- munandi stig friðlýsingar. Náttúru- verndaráætlunin er stefnuyfirlýsing um það hvaða svæði sé mikilvægt að friða og síðan hefst vinna við friðlýsingu hvers og eins svæðis. Þá þarf að semja við landeigendur og ákveða skilyrði friðlýsingarinnar, meðal annars um mögulega nýtingu svæðisins,“ segir umhverfisráð- herra og lætur þess getið sem dæmi að við friðlýsingu Þjórsárvera hafi verið gert ráð fyrir stíflu á Norðlingaöldu með ákveðnum skil- yrðum. Siv gerir einnig ráð fyrir að tog- streita kunni að verða milli hags- muna orkunýtingar og náttúru- verndar á ákveðnum svæðum. Það gæti einmitt átt við um sum jarð- hitasvæðanna á Reykjanesskagan- um sem umhverfisráðherra skoðaði í vikunni. Hún fór til að mynda í fjögurra klukkustunda gönguferð um Brennisteinsfjöll þar sem Hita- veita Suðurnesja og Orkuveita Reykjavíkur hafa sótt um að bora rannsóknarholur en skiptar skoð- anir eru um mikilvægi verndunar svæðisins. Reykjanes og Eldvörp eru í áætluninni en þar er fyrir iðn- aðarsvæði og stór virkjun fyrirhug- uð. Siv leggur á það áherslu að í drögunum sé ekkert kveðið á um nýtingu svæðanna, hvert svæði verði skoðað sérstaklega með tilliti til þess þegar komi að því að frið- lýsa þau. Síðar í sumar fer umhverfisráð- herra á hin svæðin sem nefnd eru í áætluninni. Hún segist raunar hafa skoðað sum þeirra áður en vilji fara skipulega yfir þau nú. Fólk getur fylgst með ferðum ráðherrans um svæðin í máli og myndum á heima- síðu hennar, www.siv.is. GERT er ráð fyrir friðlýsingu fimm nýrra svæða á Reykjanes- skaganum í drögum að nátt- úruverndaráætlun. Gert er ráð fyrir að öll verði þau friðuð sem náttúruvætti. Rauðimelur er eina svæðið sem ekki er á nátt- úruminjaskrá. Rauðimelur Rauðimelur er malaralda við Grindavíkurveg. Efnistaka hef- ur rofið innviði malarrifsins og þannig skapað einstakar opnur sem hafa mikið fræðslu- og rannsóknargildi. Þar má meðal annars sjá breytingar í jarðsögu landsins frá jökulskeiði ísaldar. Reykjanes, Eldvörp, Hafnarberg Fyrirhugað friðlýsingarsvæði á Reykjanesi nær einnig yfir Eldvörp og Hafnarberg, austur til Þorbjarnarfells og Stapafells, alls 113 ferkílómetra lands. Í forsendum fyrir verndun er þess getið að Mið-Atlantshafs- hryggurinn, sem klýfur Atlants- hafið í tvær úthafsplötur, komi á land á Reykjanesi. Hvergi annars staðar séu jafn glögg merki um jarðhræringar í jarð- skorpu og þar. Getið er um dyngjur og gígaraðir, jarð- hitasvæði, fjölskrúðugt fuglalíf og stórbrotið landslag. Tekið er fram að iðnaðarsvæðið þar sem saltverksmiðjan er teljist ekki til fyrirhugaðs verndarsvæðis. Hraunsvík, Festarfjall Í drögum að friðlýsingu Hraunsvíkur og Festarfjalls austan Grindavíkur er sagt að Festarfjall sé brimsorfin eldstöð þar sem um helmingur mó- bergsfjallsins sé horfinn. Mikið sé um hnyðlinga í hrauninu og einnig megi sjá merki kviku- blöndunar í berginu. Þá sé þarna nokkurt fuglalíf. Þess má geta að hnyðlingur er bergmoli sem brotnað hefur úr vegg gos- rásar djúpt í jörðu og borist upp með bergkvikunni. Ögmundarhraun, Selatangar Fjórða svæðið sem lagt er til að verði friðlýst á Suðurnesjum er Ögmundarhraun og Sela- tangar, á milli Krýsuvíkur og Grindavíkur. Landslag er sagt stórbrotið og þar er mikið af hrauntjörnum og hellum. Á Selatöngum eru minjar um sjó- sókn fyrri alda. Í Húshólma eru merkar minjar um búsetu áður en Ögmundarhraun rann, „ein- stakt að sjá mannvistarleifar svo greinilega yfirbugaðar af eldvirkni landsins“. Brennisteinsfjöll, Herdísarvík Gert er ráð fyrir að Brenni- steinsfjöll og Herdísarvík, alls tæplega 200 ferkílómetra svæði, verði friðuð sem náttúruvætti og friðland. Í lýsingu svæðisins í náttúruverndaráætlun kemur fram að þar séu nánast ósnortn- ar merkar gosminjar, til dæmis gígar, hraun, sprungur og hell- ar. Í Brennisteinsfjöllum er nán- ast ósnortið háhitasvæði. Á svæðinu má rekja opnar jarð- skjálftasprungur og misgengi, svo dæmi sé tekið. Í Herdís- arvíkurhrauni er birkiskógur fyrir opnu Atlantshafi og þar talið eitt heilsteyptasta kjarrið sem eftir er á Reykjanesskaga. Tillaga um friðlýsingu Nýting ekki útilokuð Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Kristján Geirsson hjá Umhverfisstofnun skýrir út einhver atriði í skýrslu um umhverfisverndaráætlun fyrir Siv Frið- leifsdóttur umhverfisráðherra þegar hópurinn er staddur úti á Reykjanesi og Sveinn Gauti Einarsson, Einar Svein- björnsson, aðstoðarmaður ráðherra, og Sigurður Þráinsson, sérfræðingur í umhverfisráðuneyti, fylgjast með. Umhverfisráðherra skoðar öll nýju friðlýsingarsvæðin Reykjanesskaginn

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.