Morgunblaðið - 13.06.2003, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 13.06.2003, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. JÚNÍ 2003 29 féllust á Hamas Leiðtog- sagt síð- sér ekki ngar fari líta svo á við her- nig Ísrael. dinni um urlöndum skir emb- eta skorið hreyfing- a þess að ggisstofn- gt er þó Vegvísin- m „viðvar- gursríkar ínumanna a herská- ð þreytu- s virðast kki finna ýstingi til Ísraela – að flestir haron vilji ernám og la ðið dulbúnir aumuðust sraels og aginn var nnum að u felldir. a var í sá þriðji í sjálfs. as blaða- áskorun því jafn- yndi ekki nar valdi það geti Ísraelar em merki að berjast gegn hreyfingunum, annars myndi árásunum aldrei linna. Palestínumenn, þeirra á meðal Abbas, líta hins vegar á árásir Ísr- aela sem hryðjuverk, ekki síður en sprengjutilræði herskáu hreyfing- anna, vegna þess að þær kosta oft saklausa Palestínumenn lífið. Fimm óbreyttir borgarar biðu bana í árás Ísraelshers á Gaza- svæðinu á miðvikudag og daginn áður reyndi hann að bana Abdel Aziz al-Rantissi, helsta leiðtoga Hamas, með flugskeytaárás á bif- reið hans í Gaza-borg. Rantissi særðist en lífvörður hans og óbreyttur borgari féllu og þrír sak- lausir Palestínumenn létu lífið síð- ar á þriðjudag þegar Ísraelar svör- uðu flugskeytaárás frá Gaza-svæðinu. Umdeilanlegt er hvort slík bana- tilræði við forystumenn palest- ínsku hreyfinganna samræmast Vegvísinum þar sem orðalagið á textanum er óljóst af ásettu ráði í erfiðum málum. Ísraelar eru þar hvattir til að grípa ekki til „neinna aðgerða, sem grafa undan trausti, meðal annars brottvísana og árása á óbreytta borgara“. Ekki er þó lagt blátt bann við banatilræðun- um. Ekki er heldur mikil andstaða við tilræðin meðal almennings í Ísrael. Skoðanakönnun, sem dag- blaðið Maariv birti á miðvikudag, bendir til þess að 56% Ísraela telji að ekkert sé athugavert við tíma- setningu árásarinnar á Rantissi en 33% séu þeirrar skoðunar að Ísr- aelar „hafi átt að bíða“. Vikmörkin voru 4,5 prósentustig. Ummæli Bush gagnrýnd Bush Bandaríkjaforseti kvaðst vera „mjög áhyggjufullur“ vegna banatilræðisins á þriðjudag og telja að það yki ekki öryggi ísr- aelskra borgara, heldur græfi það undan „tilraunum palestínskra yf- irvalda og annarra til að binda enda á árásir hryðjuverkamanna“. Stuðningsmenn Ísraelsstjórnar á Bandaríkjaþingi gagnrýndu þessi ummæli forsetans og sögðu að Ísr- aelar gerðu árásirnar til að verja sig, rétt eins og Bandaríkjamenn hefðu gert. Einn þingmannanna, Gary L. Ackerman, demókrati frá New York í fulltrúadeildinni, sakaði Bush um „hræsni“ og skírskotaði til þess að Bandaríkjamenn hafa sjálfir elt uppi menn sem þeir telja hryðjuverkamenn og skotið á þá flugskeytum, til að mynda liðs- menn al-Qaeda í Jemen í nóvem- ber. „Hvers vegna getum við gripið til ákveðinna aðgerða til að bregð- ast við hryðjuverkastarfsemi og síðan sagt öðrum, þegar þeir gera nákvæmlega það sama, að það sé ekki gagnlegt?“ sagði hann. Los Angeles Times hafði eftir heimildarmönnum sínum í Wash- ington að á leiðtogafundinum í Jórdaníu hefðu Bush og embætt- ismenn hans talið sig hafa náð samkomulagi við Sharon um að Ísraelar gripu ekki til slíkra hern- aðaraðgerða nema þeir hefðu vissu fyrir því að hryðjuverk væru yf- irvofandi og þeir þyrftu að bregð- ast strax við hættunni. Orðalagið hefði hins vegar verið svo óljóst að Sharon hefði túlkað það á annan hátt. Að sögn Los Angeles Times kann þetta að vera til marks um al- varlegan galla á niðurstöðu leið- togafundarins í Jórdaníu. Blaðið hafði eftir sérfræðingum í málefn- um Mið-Austurlanda að til að tryggja að samkomulag næðist milli leiðtoga Ísraela og Palestínu- manna hefði Bandaríkjastjórn samið um málamiðlanir sem væru svo óljósar að samkomulagið hefði brostið nær samstundis. orðalag inum? Reuters u í amas. til töðu að n er ð hétu ði til IÐNAÐARMENN og starfs-fólk eru í óða önn aðganga frá öllum lausumendum í frágangi nýja hót- elsins á Búðum. „Það er ekki laust við að það sé svolítill fiðr- ingur í okkur,“ segir Guðveig Eyglóardóttir, bústýra á Hótel Búðum. „Við erum ofsalega spennt, enda búin að vera að byggja hótel frá grunni. Maður fylgist með hverjum einasta vegg koma upp. Öll smáatriði í upp- setningu hótelsins eru á okkar könnu, frá klósettpappírshöld- urum að málverkunum á veggj- unum og allt þar á milli.“ Búðir er sögufrægur staður og gamla hótelið á sér ríkulega sögu sem snertir fjölmarga Íslendinga. „Sagan er okkur afar mikilvæg. Við höldum mikið upp á fortíðina og margar myndir eru á veggj- unum sem endurspegla fortíð Búða, ferðalanga og landkönnuða fyrr á tímum.“ Ný hönnun í gömlum anda Upprunalega hótelið að Búðum eyðilagðist í eldsvoða árið 2000, þegar til stóð að gera það upp. Þá ákvað Viktor Sveinsson hót- elstjóri að byggja nýtt hótel í anda þess gamla. Guðveig segir að þrátt fyrir að húsið sé nýtt, sé byggt á gömlum hefðum. „Búða- stemningin er enn til staðar og ný orka fylgir nýju húsi og einnig nýir möguleikar. Þannig vísar morgunverðarsalurinn mót sól- arupprásinni, en veitingasalurinn vísar að sólarlaginu.“ Hótelið hefur verið nokkuð nú- tímavætt til að standast kröfur nútímans og býður það nú upp á þráðlaust internet um öll húsa- kynni. Guðveig bætir hlæjandi við að þeir sem eiga leið hjá og vant- ar að komast á Netið séu velkom- ir að renna í hlað og nýta sér bandvídd hússins. Pétur Þórðarson, kokkur stað- arins, segir að matargerðin muni fylgja hinni sígildu hefð sjáv- arfangs og ferskleika. Þorskur, silungur og ýmiss konar skel- fiskur eru ofarlega á forgangs- lista kokksins. Pétur hefur auk þess ráðið sér til halds og trausts Gunnhildi Emilsdóttur, sem sér- hæfir sig í grænmetismatargerð. „Þannig getum við haft fjöl- breytnina að leiðarljósi um leið og við höldum í gamla hefð.“ Landslagið að Búðum er sann- arlega margbrotið. Friðlýst hraunið myndar sérstakan samhljóm við sand- fjöruna og Búðaós. Þarna var áður blómlegur versl- unarstaður og mik- ið mannlíf. Ung kona sem er gest- komandi að Búðum segist ekki hafa komið þangað áð- ur, en víst sé að hún muni koma þangað aftur, slík sé stemningin og náttúrufegurðin. „Fólk einblínir dá- lítið á jökulinn, en ég held að sjarmi staðarins felist ekki eingöngu í honum, heldur einnig í fjöllunum, strönd- inni, hrauninu og hafinu og því magnaða samhengi sem staðurinn myndar. Hérna koma saman öll helstu einkenni íslensks landslags á einum stað.“ Eftir dálitla um- ræðu um stemningu staðarins ná viðmælendur að smætta hana nið- ur í öflugt tvíeyki: „Ástir og glæsileiki.“ Möguleikar þjóðgarðsins Búðir njóta mikillar nálægðar við Snæfellsjökulsþjóðgarð. Enn er þó óreynt hvaða áhrif það hef- ur á gestagang á Búðum. Þó tel- ur Guðveig líklegt að þegar stefnumótun og skipulag þjóð- garðsins komast á lokastig muni það hafa í för með sér mjög já- kvæð áhrif. „Það eru miklir möguleikar í þessum þjóðgarði og um að gera að nýta sér þá.“ Ungt snjóbrettafólk í Evrópu hef- ur lýst yfir miklum áhuga á að koma til Snæfellsness og prófa að renna sér á jöklinum í miðnæt- ursólinni. Þetta segir Guðveig vera áhugaverða hugmynd. „Það er yndislegt að vera úti í sum- arsólinni og mér finnst þetta frá- bært og nýtt innlegg í ferðaþjón- ustu á Snæfellsnesi. Ég hlakka til að fá tækifæri til að taka á móti fólki sem gerir svona spennandi og ævintýralega hluti. Því fylgir mikill og jákvæður kraftur.“ Hótel Búðir opnaðar á morgun eftir endurbyggingu eftir eldsvoða Morgunblaðið/Golli Guðveig Eyglóardóttir, bústýra á Búðum, fyrir utan hótelið í gær. Búðir eru sögufrægur staður og í anddyri hótelsins blasir við fjöldi mynda er endurspegla söguna. „Ástir og glæsileiki“ Á Búðum á Snæfellsnesi er handagang- ur í öskjunni þegar Svavar Knút Krist- insson og Kjartan Þorbjörnsson ber að garði. Unnið er af kappi til að allt verði klappað og klárt fyrir opnunarhóf nýja hótelsins á laugardag. Pétur Þórðarson kokkur og Gunnhildur Emilsdóttir, hans hægri hönd, hlakka til þess að gæla við bragðlauka Búðagesta. Herbergin í nýja hótelinu eru í takt við breytta tíma. Morgunblaðið/Golli Óli Dimmalimmson staðarhaldari er hvers manns hugljúfi og fylgist með að allt fari vel fram.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.