Morgunblaðið - 13.06.2003, Side 34

Morgunblaðið - 13.06.2003, Side 34
MINNINGAR 34 FÖSTUDAGUR 13. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Berta Guðjóns-dóttir Hall fæddist í Stykkis- hólmi 15. apríl 1914 og ólst upp á Hofs- stöðum í Helgafells- sveit á Snæfellsnesi. Hún lést á Landspít- alanum 2. júní síð- astliðinn. Foreldrar hennar voru Guðjón Jóhannsson, f. 4. júní 1886 á Skildi í Helgafellssveit, skipstjóri í Stykkis- hólmi og bóndi lengst af á Hofs- stöðum, d. 5. okt. 1973, og Jónína Þorbjörg Árnadóttir, f. 23. mars 1891 í Miklaholti í Miklaholts- hreppi, d. 7. júní 1980, húsmóðir á Hofsstöðum. Systkini Bertu eru: 1) Gunnar, f. 19. ágúst 1915, bóndi á Hofsstöðum, kvæntur Laufeyju Guðmundsdóttur, f. 14. júní 1922. Þau eru nú búsett í Stykkishólmi. Þau eiga fimm börn, eitt þeirra er látið. 2) Anna, f. 22. ágúst 1917, d. 29. apríl 1986, húsfreyja, var gift Stein- dóri Steindórssyni, f. 3. mars 1917, d. 13. febrúar 1989. Þau skildu. Þau eignuðust fjóra syni, tveir eru látnir. 3) Árni, f. 4. júlí 1919, búsettur í Hveragerði, starfaði þar við garðyrkju. 4) Kristrún, f. 8. janúar 1924, hús- freyja, búsett í Hveragerði. Melkorku, barnsmóðir er Arna Kristjánsdóttir. b) Ragnar Darri, f. 13. apríl 1967, kona hans er Svandís B. Harðardóttir, f. 10. nóv. 1968, börn þeirra eru Sigrún Gígja og Logi Bjarnar. 2) Íris Jónína Hall, f. 20. janúar 1942, húsfreyja og flokksstjóri, gift Heiðari Steinþóri Valdimarssyni, f. 18. ágúst 1939, trésmíðameist- ara og verkstjóra. Börn þeirra eru: a) Íris Hlín Heiðarsdóttir, f. 11. sept. 1962, gift Sævari Líndal Haukssyni, f. 21. jan.1960, synir þeirra eru Freyr Líndal, Hlynur Daði og Arnar Heiðar. b) Agnes Lind, f. 11. júlí 1964. c) Berta Björk, f. 29. des. 1967, maður hennar er Ólafur Hjalti Erlings- son, f. 10. ágúst 1965, börn þeirra eru Stefán Snorri, Harpa Lind og Arnþór Nói. d) Valdimar Fjörnir, f. 19. mars 1969, kona hans er Jó- hanna Helgadóttir, f. 13. apríl 1977, barn þeirra er Helgi Gnýr. 3) Ragna Jóna Hall, f. 3. feb. 1945, húsfreyja, gift Eggerti Ósk- arssyni, f. 1. ágúst 1943, héraðs- dómara í Reykjavík. Börn þeirra eru: a) Ragnar Þór, f. 13. ágúst 1966. b) Nanna Hrund, f. 11. nóv. 1972, sambýlismaður hennar er Atli Gunnarsson, f. 13. feb. 1966. c) Sigríður Elísa, f. 17. júlí 1984. 4) Þórður Hall, f. 8. okt. 1949, myndlistamaður og kennari, kvæntur Þorbjörgu Þórðardóttur f. 1. júlí 1949, veflistakonu og kennara. Synir þeirra eru: a) Sölvi, f. 28. sept. 1974, kona hans Guðríður Kristín Þórðardóttir, f. 26. des. 1977. Barn þeirra er Bjarki. b) Daði, f. 3. sept. 1979. c) Arnaldur, f. 30. mars 1982. Útför Bertu verður gerð frá Bústaðakirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 10.30. Hennar maður var Jóhannes Heiðar Lár- usson, f. 31. ágúst 1935, d. 11. febrúar 1999. Kristrún á eina dóttur. Tvö yngstu systkinin voru Rut, f. 29. júní 1926, d. sama dag, og Einar, f. 6. ágúst 1931, d. sama dag. Uppeldissystir þeirra er Sólveig Ei- ríksdóttir, f. 28. ágúst 1930, húsfreyja í Kópavogi, hennar maður er Þorbjörn Tómasson, f. 23. október 1931, þau eiga tvo syni. Berta giftist 8. júlí 1938 Ragn- ari Hall málara, f. 1. sept. 1905 á Þingeyri við Dýrafjörð, d. 20. okt. 1989. Hann var sonur Jón- asar Thorsteinsson Hall faktors á Flateyri og Ísafirði, síðar versl- unarstjóra á Þingeyri, f. í Rvk. 2. des. 1856, d. 17. maí 1946, og Jónu Ingibjargar Örnólfsdóttur húsfreyju frá Ísafirði, f. 25. júní 1864, d. 18. ágúst 1944. Börn Bertu og Ragnars eru: 1) Örn- ólfur Hall, f. 1. des. 1936, arki- tekt, kvæntur Ásthildi Kjartans- dóttur, f. 14. mars 1940, kennara, synir þeirra eru a) Helgi Frið- jónsson, f. 1. sept. 1959, kona hans er Sif Ægisdóttir, f. 9. maí 1965, þeirra börn eru Hekla og Nökkvi. Fyrir á Helgi dótturina Tengdamóðir mín, Berta G. Hall, lést á Landspítalanum 2. júní sl. eftir skamma sjúkdómslegu, 89 ára að aldri. Hún var búin að vera nokkrar vikur til rannsóknar á spítalanum þegar hún veiktist hastarlega og óvænt á uppstigningardag og í ljós kom að hún ætti ekki langt eftir. Allt fram að þeim degi hafði hún verið andlega hress og gat rætt um menn og málefni, en þrátt fyrir háan aldur fylgdist hún vel með því sem var að gerast í þjóðfélaginu og heimsfrétt- unum einnig, hún var vel með á nót- unum og hafði sínar skoðanir á hlut- unum. Þótt sárt væri og erfitt að sætta sig við að hún væri á förum þá var sjúkdómslega hennar stutt og hún yfirgaf þetta líf eftir langa og góða ævi. Berta bjó öll sín hjúskaparár í Reykjavík. Hún var heimavinnandi húsmóðir alla tíð og fjölskylda henn- ar var ávallt í fyrirrúmi. Hún og Ragnar Hall, eiginmaður hennar, sem lést árið 1989, voru mjög sam- rýnd hjón og börnin þeirra fjögur ól- ust upp við ástríki og samheldni fjöl- skyldunnar. Hefur það veganesti án efa átt sinn þátt í því hve samheldni stórfjölskyldunnar síðar meir hefur verið mikil og ánægjuleg, eftir að barnabörnin og barnabarnabörnin komu til sögunnar. Berta hefur hin síðari ár verið sú kjölfesta ættarinn- ar, sem hefur haldið henni saman, og átt sinn þátt í því að stórsamkomur og ættarmót hafa verið haldin. Hún hafði mikið yndi af því að hitta sitt fólk og lét ekkert tækifæri ónotað sem til þess bauðst. Sjálf var hún mjög gestrisin og naut þess að vera innan um fólk. Bjartsýni og jákvæðni voru áberandi þættir í lyndiseinkunn hennar. Hún var einstaklega góð amma og langamma og ömmubörn- unum bregður nú við og þau eiga um sárt að binda þegar hennar nýtur ekki lengur við. Berta var í Kven- félagi Bústaðasóknar í áratugi og tók virkan þátt í starfsemi félagsins. Mikill listrænn bragur var yfir heimilinu á Réttarholtsveginum, enda foreldrar og börnin öll gædd listrænum hæfileikum. Allt lék í höndunum á Bertu, saumaskapur og hannyrðir, en hún lagði gjörva hönd á margt. Það var þó ekki fyrr en á efri árum, sem Berta vakti sérstaka at- hygli fyrir einstakar myndir sem hún gerði úr rennilásum. Þær vöktu svo mikla athygli að hún komst í sjón- varpið þegar hún var sótt heim í þættinum Ísland í dag á Stöð 2. Þess- ar myndir eru mjög vel gerðar og fal- legar, fyrirmyndirnar eru gjarnan úr náttúrunni, svo sem blóm og fuglar. Þessi sjónvarpsþáttur varð til þess að fjölmargir hringdu í hana og vildu kaupa af henni myndir, en hún vildi ekki selja myndir sínar. Hins vegar hefur hún gefið myndir eftir sig. Þá mun hafa verið leitað eftir því við hana að hún héldi námskeið og kenndi hvernig svona myndir væru gerðar. Til þess kom þó ekki. Berta fæddist í Stykkishólmi og var uppalin á Hofstöðum í Helgafells- sveit. Hún hafði sterkar taugar til sveitarinnar og var mikill náttúru- unnandi. Hún hafði yndi af ferðalög- um og fór víða. Utanlandsferðirnar urðu þrjár, en það voru fyrst og fremst ferðalög innanlands, sem áttu hug hennar allan. Nánast á hverju sumri hefur hún farið með okkur í ferðalög, lengri eða skemmri ferðir, þ.m.t. hringferðir um landið. Úr þeim ferðum er margs að minnast. Hin síð- ari ár höfum við margsinnis farið vestur í Dali, á Fellsströnd, og oft var á leiðinni suður komið við á Hofsstöð- um í Helgafellssveit hjá Gunnari bróður hennar og Laufeyju konu hans. Síðustu ferðina vestur fór hún með okkur í júlí á sl. sumri og þá var m.a. áð í Haukadal og merkar minjar á Eiríksstöðum skoðaðar. Að leiðarlokum minnist ég tengda- móður minnar með miklu þakklæti og kveð hana með söknuði. Blessuð sé minning hennar. Eggert Óskarsson. Sumarið var komið, óvenju snemma, og skartaði sínu fegursta þegar hún Berta tengdamóðir mín kvaddi þennan heim. Minningarnar hrannast upp og allar eru þær ljúfar og góðar. Berta var mjög félagslynd kona og bjó yfir ákveðinni ró og yf- irvegun sem hafði góð áhrif á aðra. Það var alltaf eins og hún hefði næg- an tíma fyrir alla. Hún hélt vel utan um fjölskylduna og var sérlega frændrækin, við fengum fréttir af frændfólki frá henni, það má segja að hún hafi verið nokkurs konar skipti- stöð. Berta var mikil hannyrðakona og eru ófáar peysurnar og sokka- plöggin sem hún prjónaði á barna- börnin. Á efri árum hóf hún einnig að föndra myndir úr rennilásum svo eft- ir var tekið og fyrir nokkrum árum hélt hún einkasýningu á slíkum myndum í félagsheimili aldraðra við Hæðargarð. Berta og Ragnar fóru í sína fyrstu utanlandsferð þegar þau heimsóttu okkur Þórð til Svíþjóðar meðan við vorum í námi. Þessi ferð varð eftir- minnileg fyrir þau bæði og vitnuðu þau oft til hennar með mikilli gleði, síðar áttu þau eftir að ferðast víðar utanlands. En Ísland var landið og ís- lensk náttúra heillaði mest enda ferð- uðust Berta og Ragnar meðan hann lifði vítt og breitt um landið. Það var ekki aðeins landslagið sem töfraði Bertu heldur einnig steinar og plöntur sem hún nýtti sér í alls konar skreytingar enda var hún með græna fingur. Snæfellsnesið, þó sérstaklega hennar bernskuslóðir, Helgafells- sveitin, var henni afar hugleikið, það gladdi hana því mjög mikið að við fjölskyldan skyldum velja land for- feðranna undir sumarhús. Hún fylgdist vel með framvindu þeirrar framkvæmdar full tilhlökkunar, en því miður fær hún ekki aðnjóta þess með okkur. En við trúum því að hún fylgist með okkur núna létt á fæti. Það er með söknuði og trega sem ég kveð elskulega tengdamóður mína en eftir standa minningarnar sem ég geymi. Þorbjörg. Á björtum sumardegi kvaddi Berta G. Hall jarðneska vist sína. Ekki er hægt að segja annað en að það myndist eyða í tilveruna þar sem Berta var. Hún hafði gaman af að vera með í fjölskylduboðum af ýmsu tagi, og lét sig aldrei vanta þar. Alltaf var tengdamóðir mín til í að koma með okkur hjónunum í langar og stuttar ferðir út fyrir borgina. Stundum var það með nokkurra mínútna fyrirvara og þegar við kom- um til hennar var hún alltaf tilbúin með kaffi og meðlæti og sjaldan gleymdist dósin með brjóstsykurs- molunum. Hún var með afbrigðum frænd- rækin og þegar við ókum um sveit- irnar heyrði maður hana segja: Hér býr eða bjó frænka eða frændi minn. Ef farið var á Snæfellsnesið ók mað- ur varla framhjá bæ að hún þekkti ekki einhvern þar. Hún naut þess að fara um sína heimasveit, Helgafellssveitina, og að Hofsstöðum. Hún hvatti skyldfólk sitt oft til að halda ættarmót og henni til mikillar ánægju tókst það mjög vel. Eitt sinn hringdi hún í ættingja sína og boðaði þá 8. janúar 2000 á ættarmót í Ás- garð í Glæsibæ, salinn var hún búin að panta sjálf og fékk síðan börn og tengdabörn sér til aðstoðar. Þar var lesið upp ættartal, rabbað saman, ávörp flutt og sungið, þá var kátt í höllinni hjá Bertu. Berta var listhneigð og fór óhefð- bundnar leiðir í listsköpun sinni og vöktu rennilásamyndir hennar verð- skuldaða athygli og hún var með myndirnar á sýningu í safnaðarheim- ili Bústaðakirkju. Við munum sakna hennar og eins og fyrr er nefnt myndast skarð sem erfitt er að fylla upp í. Guð blessi minningu hennar og njóti hún Guðs blessunar á því til- verustigi sem hún flutti til. Heiðar S. Valdimarsson. Margar góðar minningar koma upp í hugann þegar við hugsum um ömmu og meðal þeirra eru heimsókn- irnar til hennar á Réttarholtsveginn. Þegar við vorum yngri var fátt meira spennandi en að uppgötva ýmis æv- intýri heima hjá ömmu og afa, hvort sem þau leyndust í snyrtiborðinu hennar ömmu eða fataskápnum uppi á lofti, niðri í kjallara þar sem afi geymdi málningaráhöldin sín eða úti í garði, sem í minningunni var svo ótrúlega stór og fullur af litríkum blómum og rabarbara. Eins var mjög eftirminnilegt að sitja með ömmu inni í eldhúsi og hlusta á hana segja svo skemmtilega frá því þegar hún og afi bjuggu niðri í miðbæ og börnin voru lítil. Myndirnar sem hún dró upp af tíðarandanum, litríkum per- sónum og umhverfinu birtust manni ljóslifandi og voru einstök upplifun. Amma var mjög handlagin og hug- myndarík sem sást glöggt á ýmsu handverki sem hún hafði unnið í gegnum tíðina. Þá naut frumleiki hennar sín sérstaklega vel í myndum úr gömlum rennilásum sem hún vann mikið að síðustu árin. Það var aðdá- unarvert að fylgjast með því hvað amma var alltaf jákvæð gagnvart því að sjá og prófa eitthvað nýtt. Sem dæmi var hún alltaf tilbúin að skreppa í bíltúra, ferðalög eða heim- sóknir og lét það ekki aftra sér þótt síðustu árin ætti hún stundum erfitt með gang. Amma var mjög fé- lagslynd og hafði gaman af því að hafa fólk í kringum sig. Þá hafði hún sérstaklega gaman af því að heyra um hvað „unga fólkið“ var að gera eins og hún komst sjálf að orði og fylgjast með því. Amma lét sér mjög annt um fjölskylduna og var sann- kölluð ættmóðir. Við kveðjum ömmu nú með söknuði, minningin um hana lifir alltaf með okkur. Nanna Hrund Eggertsdóttir, Sigríður Elísa Eggertsdóttir. Þótt nú sé bjartasti tími ársins er dimmt yfir vegna þess að amma er dáin eftir erfiða sjúkdómslegu. Það er erfitt að sætta sig við og trúa því að hún sé farin frá okkur. Amma var vel ern og fylgdist vel með öllu fram að síðustu dögunum. Ótal minningar koma upp í hugann um liðna tíma. Minningar frá jólum, hátíðum og ferðalögum í gegnum árin. Minnis- stæð er dvöl með stórfjölskyldunni á Arnarstapa sumarið 1999, þar sem hún naut sín vel í umhverfi sem hún þekkti undir Jökli. Ég veit að henni líður vel núna á öðru tilverustigi þar sem við munum öll hittast aftur í fyllingu tímans. Ég er þakklátur fyrir að hafa haft ömmu svona lengi á meðal okkar. Guð geymi þig, elsku amma. Ragnar Þór Eggertsson. Elsku Berta amma. Mikið eigum við eftir að sakna þín. Í huga okkar varst þú ættmóðirin, sem fylgdist grannt með öllu sínu fólki. Vildir öll- um svo vel, tengill fjölskyldunnar. Í gegnum þig bárust fréttir af frænd- fólkinu, nærskyldum sem fjarskyld- um. Og þú varst stolt af þínu fólki. Það verður skrítið að hafa þig ekki lengur hjá okkur. Laga handa okkur gott uppáhellt kaffi inni á Réttó. Spá síðan í bollana og sjá alltaf bara lukk- ustólpa eða eitthvað annað gott í þeim … eða hlusta þegar þið mæðg- ur, allar andlega sinnaðar, voruð að tala um merka menn eins og Þorleif heitinn í Bjarnarhöfn … eða þegar þú varst að segja frá lífinu á Klapp- arstígnum, þegar þið afi bjugguð þar. Yndislegar sögur af mannlífinu í Reykjavík fyrir rúmum 50 árum. Þar hefur þú haft í nógu að snúast með fjögur fjörug börn og fullt hús af gestum. Það er einhver ævintýra- ljómi yfir þessum sögum, þar sem fléttast saman frænkur og frændur, spákonur, kynlegir kvistir (skyldir sem óskyldir) og verur af öðrum heimi. Eða hvað Réttarholtsvegur 29 var ein undraveröld fyrir okkur barnabörnin. Lyktin af olíumálning- unni hans afa í kjallaranum, kaffi og ilmandi bökunarlykt af kleinum og randalín úr eldhúsinu … og garður- inn líktist aldingarði, þar sem mátti finna ýmsar blómategundir, jarðar- ber og radísur. Já, þær eru svo margar minning- arnar og allar svo góðar, sem koma upp í hugann. Elsku amma, við kveðj- um þig með söknuði og þökkum fyrir alla þína umhyggju og hjartahlýju. Íris Hlín, Agnes Lind, Berta Björk og Valdimar Fjörnir. Elsku amma/langamma Berta. Við viljum kveðja þig með örfáum orðum. Þú hefur alltaf verið fastur punkt- ur í lífi okkar og gátum við vitað með vissu að hjá þér yrði tekið á móti okk- ur með hlýhug og oftar en ekki með gómsætum kræsingum. Við minn- umst þín sem góðrar ömmu sem sýndi því alltaf áhuga hvað við vær- um að gera og hvernig okkur reiddi af. Þú varst mjög ættrækin og þig vantaði nær aldrei í fjölskylduvið- burði, þrátt fyrir misgóða heilsu. Þú miklaðir það aldrei fyrir þér að fara út úr húsi, hvernig sem viðraði. Þú varst mjög félagslynd og naust þess að vera innan um vini og ættingja. Þú vissir allt um alla, gleymdir engu og sást til þess að fréttir bærust milli manna. Við munum trausta geymslu hjól- anna okkar þegar við vorum í Rétt- arholtsskóla, eggin og beikonið sem steikt var ofan í okkur í hádegismat, Ninja-lopalambhúshetturnar sem voru prjónaðar úr svörtum íslensk- um lopa, heimabakaða brauðið og hangikjötið á aðfangadag, rennilá- samyndirnar, kossana á höndina á Bjarka, sögur um fornar vættir og margt fleira sem lifir í huga okkar. Það verður skrítið að hafa þig ekki með okkur í komandi fjölskylduvið- burðum, en þó sérstaklega á jóla- dagskvöld þar sem þig hefur aldrei vantað. Það er sérstaklega á þeim stundum sem við munum minnast þín og sakna. Hvíl í friði, elsku amma, takk fyrir allt. Sölvi Hall, Daði Hall, Arnaldur Hall, Guðríður og Bjarki Hall. BERTA GUÐJÓNSDÓTTIR HALL

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.