Morgunblaðið - 13.06.2003, Qupperneq 37
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. JÚNÍ 2003 37
okkar. Takk fyrir að „gefa“ okkur
strákana þína, Börk og Hlyn, sem
fengið hafa marga af þínum góðu
kostum í vöggugjöf.
Við kveðjum þig með söknuði.
Blessuð sé minning þín. Við lofum að
hugsa vel um unaðsreitinn þinn.
Megi guð gefa okkur öllum styrk til
að takast á við sorgina.
Þínar tengdadætur,
Hrafnhildur og Inga Huld.
Í dag kveðjum við í hinsta sinn
elskulegan tengdaföður minn Birgi
Antonsson. Leiðir okkar Birgis hafa
legið saman síðustu tólf ár og er
óhætt að segja að yndislegri maður
er vandfundinn. Mig langar í nokkr-
um orðum að rifja upp þær vörður
sem hann hefur skilið eftir sig í huga
mínum.
Birgir var mikill áhugamaður um
gamla bíla og flugvélar. Þannig verð-
ur vart fundinn sá maður sem hefur
meiri þekkingu á árgerðum og teg-
undum slíkra tækja. Þegar legið var
yfir bíómynd átti Birgir það til að
fræða mann um hvaða tæki bar fyrir
augun á skjánum, „Ford ’57,“ sagði
hann án þess að útskýra það nokkuð
frekar, þegar vel fægður Ford ’57
rúllaði yfir skjáinn.
Í starfi sínu hin seinni ár ferðaðist
Birgir mikið um landið og má meðal
annars sjá minnisvarða um hann við
þjóðveginn hringinn í kringum land-
ið í formi veðurathugunarstöðva og
umferðargreina. Hann lagði mikinn
metnað í starfið og var óþreytandi
við að sýna og útskýra hvernig
tækninni fleygði fram í þessum mál-
um. Segja má að Birgir hafi verið
heppinn að því leyti að geta samein-
að vinnu sína og áhugamál á þennan
hátt.
Fyrir um þremur árum festi Birg-
ir kaup á sumarbústað í Hvalfirði
ásamt systur sinni Valborgu sem
andaðist 13. mars 2001. Stundirnar
sem fjölskyldan hefur átt í Hvalfirð-
inum eru ómetanlegar og verða vel
geymdar í hugarfylgsnum mínum
um ókomin ár. Birgir lagði ósjaldan
leið sína í sumarbústaðinn og hugs-
aði vandlega um allan gróður ásamt
því að viðhaldið var í góðum höndum.
Birgi voru einnig vel lagðar hend-
ur þegar kom að því að snúast í
kringum afabarnið sitt, Hilmu Ösp,
og var óþreytandi við að leika sér við
hana og sinna henni á allan þann hátt
sem fjörugt barn krafðist.
Elsku Birgir, á þessum degi kveð
ég þig með söknuð í hjarta. Þakka
þér fyrir allar stundirnar sem við
áttum saman þótt við báðir hefðum
óskað þess að þær yrðu fleiri.
Tilvera okkar er undarlegt ferðalag.
Við erum gestir og hótel okkar er jörðin.
(Tómas Guðm.)
Áskell Þór Gíslason.
Við sjáum, að dýrð á djúpið slær,
þó degi sé tekið að halla.
Það er eins og festingin færist nær
og faðmi jörðina alla.
Svo djúp er þögnin við þína sæng,
að þar heyrast englar tala,
og einn þeirra blakar bleikum væng,
svo brjóstið þitt fái svala.
Ný strýkur hann barm þinn blítt og hljótt,
svo blaktir síðasti loginn.
En svo kemur dagur og sumarnótt
og svanur á bláan voginn.
(Davíð Stef.)
Elskulegur bróðir og góður vinur
hefur hlýtt kalli himnaföður. Það
kom snöggt, eins og alltaf, og í þessu
tilfelli líka ákaflega óvænt, því Birgir
hafði varla kennt sér nokkurs meins
fyrr en nokkrum klukkustundum
fyrir þetta sviplega, snögga kall. Það
voru erfið spor sem ég átti heim til
hans þetta kvöldið.
Birgir var sannkallaður stóri
bróðir minn og naut ég þess í ríkum
mæli alla tíð á allan hátt. Ætíð til
taks, ef á aðstoð þurfti að halda,
sama í hverju hún var fólgin, alltaf
hlýr og elskulegur í öllu sem að mér
og mínum sneri.
Elsku bróðir, margs er að minnast
og margt áttum við ógert, það bíður
síns tíma og verður í minningasjóðn-
um. Takk fyrir allt og allt, Guð geymi
þig og styrki börnin þín, barnabörn-
in og Jónu, sem öll kveðja þig með
söknuði.
Óli.
Fleiri minningargreinar
um Birgi Antonsson bíða birtingar
og munu birtast í blaðinu næstu
daga.
Hjartans þakkir fyrir samúð og hlýhug við and-
lát og útför föður okkar, tengdaföður, afa og
langafa,
HJÁLMARS GUÐMUNDSSONAR,
Vogatungu 41,
Kópavogi.
Gunnlaugur Hjálmarsson, Guðný Andrésdóttir,
Sjöfn Hjálmarsdóttir, Sigurjón Arnlaugsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Hjartans þakkir fyrir samúð og vinarhug við
fráfall ástkærrar móður okkar, tengda-
móður, ömmu og langömmu,
ÁSTU GUÐMUNDSDÓTTUR
frá Heiðardal,
Vestmannaeyjum.
Erna Hrólfsdóttir, Jón Örn Ámundason,
Birna Hrólfsdóttir, Einar Sveinsson,
Ásta Sigríður Hrólfsdóttir, Agnar Fr. Svanbjörnsson,
Hrefna Hrólfsdóttir, Hjörtur Örn Hjartarson,
barnabörn og barnabarnabörn.