Morgunblaðið - 13.06.2003, Qupperneq 41

Morgunblaðið - 13.06.2003, Qupperneq 41
m TÍMARIT UM MAT & VÍN27062003 Hafðu samband við auglýsingadeild Morgunblaðsins í síma 569 1111 eða á augl@mbl.is Auglýsendur! Næsta tölublað af tímaritinu m sem fjallar um mat og vín, kemur út föstudaginn 27. júni næstkomandi. Tímaritið fylgir Morgunblaðinu í 55.000 eintökum til allra kaupenda blaðsins um land allt. Matur og vín eru orðin stór hluti af lífi landsmanna og margir sem hafa það sem sérstakt áhugamál. Tímaritinu er ætlað að endurspegla þennan nýja lífsstíl landsmanna á lifandi og áhugaverðan hátt. Stærð tímaritsins er 25x36 sm og er það skorið og heftað. Pantanafrestur auglýsinga er til mánudagsins 23. júní kl. 16:00 FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. JÚNÍ 2003 41 Boðunarkirkjan, Hlíðarsmára 9. Samkomur alla laugardaga kl. 11:00. Bænastund alla þriðjudaga kl. 20:00. Biblíufræðsla allan sólar- hringinn á Útvarpi Boðun FM 105,5. Allir alltaf velkomnir. Hvítasunnukirkjan á Akureyri. Eng- in unglingasamkoma í kvöld vegna 17. júní-móts í Kirkjulækjarkoti. Hjálpræðisherinn á Akureyri. Flóa- markaður frá kl. 10–18 í dag. Kirkja sjöunda dags aðventista. Samkomur laugardag: Aðventkirkjan Ingólfsstræti 19. Biblíufræðsla kl. 10. Guðsþjónusta kl. 11. Ræðumaður Björgvin Snorra- son. Loftsalurinn, Hólshrauni 3, Hafnar- firði. Biblíufræðsla/guðsþjónusta kl. 11. Ræðumaður Guðný Krist- jánsdóttir. Safnaðarheimili aðventista, Blika- braut 2, Keflavík: Biblíufræðsla kl. 10.15. Guðsþjónusta kl. 11. Um- sjón: Unga fólkið. Þorlákskirkja, Þorlákshöfn. Biblíu- fræðsla kl. 10. Barnaguðsþjónusta kl. 11. Aðventkirkjan, Brekastíg 17, Vest- mannaeyjum. Biblíufræðsla/guðs- þjónusta kl. 10.30. Biblíurannsókn og bænastund á sunnudögum kl. 13. Safnaðarstarf KIRKJUSTARF Nýjar vörur Hallveigarstíg 1 588 4848 SEGLAGERÐIN Ægir heldur upp á 90 ára afmæli sitt um þessar mundir. Um helgina verður haldin afmælishátíð við Eyjarslóð 7 þar sem fyrirtækið hefur verið með starfsemi sína síðustu misserin. Á svæðinu verða til sýnis og sölu tjaldvagnar, fellihýsi og sumarbú- staðir, auk fylgihluta. Í fréttatil- kynningu segir að sérstök hátíð- artilboð verði á nokkrum gerðum vagna í tilefni tímamótanna. Hoppkastalar, leiktæki og blöðrur verða fyrir börn á öllum aldri. Af- mælishátíðin stendur yfir á laug- ardag frá kl. 12–16 og á sunnudag frá kl. 13–17. Guðmundur Ingólfsson sjómað- ur stofnaði Seglagerðina Ægi og rak hana einn fyrstu árin en síðar keypti Sigurður Gunnlaugsson skipstjóri sig inn í reksturinn. Þeir félagar stýrðu síðan Segla- gerðinni saman allt þar til Guð- mundur lést árið 1951. Þáverandi starfsmaður Seglagerðarinnar, Óli S. Barðdal, keypti þá hlut Guð- mundar heitins og eftir fráfall Sig- urðar, árið 1960, keypti Óli einnig hans hlut og fyrirtækið hefur ver- ið í eigu fjölskyldunnar allar götur síðan. Árið 1977 var Seglagerðin gerð að einkahlutafélagi og árið 1995 var fyrirtækið gert að hluta- félagi sem það er í dag. Óli féll frá árið 1983 en Seglagerðinni stýra í dag sonarsynir hans, Björgvin og Arnar Barðdal. Afmælishátíð hjá Seglagerðinni Ekkert verk unnið í granít Ranglega var sagt í umsögn í blaðinu í gær um sýningu Arnar Þor- steinssonar á Kjarvalsstöðum að þar væri m.a. að finna verk unnin í gran- ít. Staðreynd málsins er sú að öll stærri verkin á sýningunni eru unnin úr grágrýti úr Skagafirði og ekkert verkanna er úr graníti. Minni verkin á sýningunni sem unnin eru úr grá- grýti eru fengin úr Öskjuhlíðinni. Beðist er velvirðingar á þessu. LEIÐRÉTT Er vinningur í lokinu? Utanlandsferðir • siglingar • sjónvörp reiðhjól • myndavélar • gasgrill kælibox í bíla • línuskautar hlaupahjól og margt, margt fleira! Glæsilegir vinningar HEKLA hf. kynnir nú í vikunni Volkswagen Tour- an, nýjan sjö manna bíl frá Volkswagen. Touran er hlaðinn öryggis- og þæg- indabúnaði, þar á meðal sex öryggis- loftpúðum, ESP stöðugleikabúnaði, hemlahjálp og út- varpi með geisla- spilara. Touran kemur á markað hér á landi með nýrri FSI-vél og sex gíra gírkassa. Vélina er einnig hægt að fá með sex þrepa sjálf- skiptingu og verður sá búnaður í boði frá miðju sumri. Meðal þeirra atriða sem vekja at- hygli er fjölhæf nýting innanrýmis og mikið pláss. Lipurð og öryggi í akstri við allar aðstæður er ekki síst að þakka nýhönnuðum hjóla- búnaði, með McPherson-gorma- fjöðrun að framan og nýrri fjög- urra liða fjöðrun að aftan. Diskahemlar á öllum hjólum (með kældum diskum að framan) ásamt ESP með hemlahjálp og ABS- hemlalæsivörn eru staðalbúnaður. Touran kemur búinn sjö sætum en hægt er að panta bílinn í fimm sæta útgáfu. Sætin tvö í þriðju sætaröðinni er hægt að fella niður í gólfið. Í fimm sæta uppröðun er pláss fyrir 695 lítra af farangri, en þessi tala hækkar í 1.989 lítra þeg- ar aftursætin eru tekin í burtu. Heildarburðargetan er meira en 660 kíló. Grunnverð Volkswagen Touran er 2.250.000 krónur, segir í fréttatilkynningu. Hekla kynnir Volkswagen Touran Lýst eftir vitnum LÖGREGLAN í Reykjavík lýsir eftir vitnum að ákeyrslu á kyrr- stæða bifreið í bifreiðastæði við Tryggagötu 6 aðfaranótt 9. júní. Ekið var á fólksbifreið af gerð- inni Lancia með skrásetningar- númerinu MD-258 og hún stór- skemmd. Ökumaður yfirgaf vettvang án þess að tilkynna tjón- ið. Talið er að atvikið hafi orðið eftir klukkan þrjú þá um nóttina. Er ökumaðurinn beðinn að gefa sig fram við umferðardeild lög- reglunnar í Reykjavík svo og vitni að atburðinum. DHL flytur til og frá Írak ÍSLENSKIR ættingjar og vinir fólks sem býr eða dvelur um þess- ar mundir í Írak geta nú reitt sig á alhliða flutninga frá alþjóðlega flutningafyrirtækinu DHL. Þetta var tilkynnt í höfuðstöðvum DHL um leið og ljóst var að Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hefði aflétt viðskiptaþvingunum á landið. DHL er fyrsta og eina flutningafyrir- tækið sem er með starfsemi í Írak, jafnt sem í öðrum 220 löndum heimsins, segir í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu. „Meðal þeirrar þjónustu sem DHL býður upp á í Írak eru hrað- flutningar, auk fraktflutninga flug- leiðis sem sjóleiðis. Ákvörðun DHL um að hefja starfsemi í Írak var tekin um klukkustund eftir að Öryggisráð SÞ hefði aflétt við- skiptaþvingunum. Til að byrja með mun DHL hafa sjö manns í vinnu, þar af fjóra Íraka, og flogið verður þrisvar sinnum í viku frá Bahrain til Bag- dad. Þá mun DHL einnig bjóða upp á landflutninga um tvær leið- ir,“ segir í tilkynningunni. MORGUNBLAÐINU hefur borist ályktun frá Heimi, félagi ungra sjálfstæðismanna í Reykjanesbæ, um veru Varnarliðsins: „Heimir, félag ungra sjálfstæð- ismanna í Reykjanesbæ, skorar á ríkisstjórn Davíðs Oddssonar að beita sér af fullum þunga fyrir póli- tískri lausn í viðræðunum um veru Varnarliðsins hér á landi. Sé ákvörðun um brottflutning Varn- arliðsins tekin með skömmum fyr- irvara mun slíkt valda upplausn í atvinnumálum á Suðurnesjum sem erfitt er að bregðast við. Brottflutn- ingur flughersins gæti einnig grafið undan stuðningi almennings á Ís- landi við utanríkisstefnu Banda- ríkjamanna. Þá er ljóst að varnir landsins skerðast verulega og póli- tísk samskipti ríkjanna geta borið skaða af. Staða heimsmálanna breytist ört og óljóst er hvert mik- ilvægi Íslands verður í framtíðinni. Vera Varnarliðsins með óbreyttum hætti er því mikilvæg fyrir sameig- inlega hagsmuni ríkjanna tveggja.“ Áskorun til stjórnvalda Málþing um kynþáttafordóma og þjóðernishyggju Afríka 20:20, Mannfræðifélag Íslands og Heims- þorp í samvinnu við AUS standa fyrir málþingi um kynþátta- fordóma og þjóðernishyggju í Norræna húsinu á morgun, laug- ardaginn 14. júní, kl. 14–17. Er- indi halda: Hallfríður Þórarins- dóttir mannfræðingur, Árni Helgason sagnfræðingur, Kristín Loftsdóttir mannfræðingur, Pétur Waldorff háskólanemi, Samuel Richard Oppong (Akeem) með- ferðarráðgjafi og Melkorka Ósk- arsdóttir, formaður Heimsþorps. Fundarstjóri: Gerður Gestsdóttir, verkefnisstjóri fræðsludeildar Al- þjóðahússins. Fyrirlestrarnir fara fram á íslensku en enskumælandi fólki stendur túlkun til boða. Þá fara umræður fram bæði á ís- lensku og ensku. Fjölskylduganga á Ingólfsfjall HSK og Alviðra, umhverf- isfræðslusetur Landverndar, standa fyrir fjölskyldugöngu á Ingólfsfjall á morgun, laugardag- inn 14. júní, kl. 14. Gangan er hluti af verkefni sem UMFÍ stendur fyrir í ár og nefnist ,,Fjöl- skyldan á fjallið“. Þátttakendur komi að Alviðru undir Ingólfsfjalli við Sog, gegnt Þrastarlundi í Grímsnesi. Þaðan er merkt göngu- leið á fjallið. Eftir gönguna verður boðið upp á veitingar í Alviðru. Göngustjóri verður Hjördís B. Ás- geirsdóttir, staðarhaldari í Al- viðru. Allir velkomnir. Komið verður fyrir dagbók/ gestabók á þau fjöll sem tilnefnd verða í verkefninu ,,Fjölskyldan á fjallið“. Í lok ágúst verða dregnir út nokkrir einstaklingar sem fá verðlaun. Á MORGUN

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.