Morgunblaðið - 13.06.2003, Side 42
DAGBÓK
42 FÖSTUDAGUR 13. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM-
AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111.
Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug-
lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100
kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Í
dag eru væntanleg
Ronhald H. Brown,
rannsóknar- og eft-
irlitsskip og út fara
Berlin, La Fayette,
Mánafoss, Bremen,
Luetjens og Pamiut.
Mannamót
Aflagrandi 40. Bingó í
dag kl. 14.
Árskógar 4. Kl. 13–
16.30 opin smíða- og
handavinnustofan. Kl.
13.30 bingó..)
Bólstaðarhlíð 43. Kl.
8–16 hárgreiðsla, kl.
8.30–12.30 bað, kl. 9–16
handavinna, kl. 9–17
fótaaðgerð, kl. 13–16
spilað í sal.
Félagsstarfið, Dal-
braut 18–20. Kl. 9 bað,
og opin handa-
vinnustofa.
Félagsstarfið Dalbraut
27. Kl. 8–16 opin
handavinnustofan, kl.
9–12 applikering, kl.
10–13 opin verslunin.
Félagsstarfið Hæð-
argarði 31. Kl. 9.30
gönguhópur, allir vel-
komnir, kl. 9–12 bað, kl.
9–16 opin vinnustofa.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 8. bað, kl. 10
hárgreiðsla, kl. 10–12
verslunin opin, kl. 11
leikfimi, kl. 13 „opið
hús“ spilað á spil.
Félag eldri borgara í
Kópavogi. Félagsvist
spiluð í Fannborg 8
(Gjábakka) kl. 20.30.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Miðar á
dagsferð Reykjanes 18.
júní verða seldir í dag
kl. 13–15. Billjard kl.
13.30, brids kl. 13. Pútt-
æfingar á Hrafn-
istuvelli kl. 14–16.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði
Glæsibæ. S. 588 2111.
Dagsferð 24.júní:
Þjórsárdalur, Hóla-
skógur, Stöng, Hraun-
eyjar. Skoðunarferð
um Þjórsárdal og ná-
grenni. Kaffi og með-
læti í Hrauneyjum
Leiðsögn Tómas Ein-
arsson. Einnig minnum
við á fleiri ferðir sjá síð-
asta tímarit List-
arinnar að lifa. Uppl. á
skrifstofu FEB kl. 10–
16.
Gerðuberg, fé-
lagsstarf, sími
575 7720. Í dag kl. 9–
16.30 vinnustofur opn-
ar, m.a. bútasaumur og
föndur. Kl. 9.30 sund og
leikfimiæfingar í Breið-
holtslaug. Frá hádegi
spilasalur opinn.
Gjábakki, Fannborg 8.
Handavinnustofan op-
in, leiðbeinandi á staðn-
um kl. 9.30–16. Kl.
13.15 brids, kl. 20.30 fé-
lagsvist.
Gullsmári, Gullsmára
13. Opið frá kl. 9–17,
heitt á könnunni.
Hraunbær 105. Kl. 9
bað, hárgreiðsla, fóta-
aðgerð, leikfimi. Pútt
kl. 10–12. Miðvikudag-
inn 25. júní verður
Jónsmessuhátíð í
Skíðaskálanum undir
stjórn Óla B. Ólafs-
sonar. Ekið verður um
Heiðmörk og Vatns-
veitan heimsótt. Lagt
af stað frá Hraunbæ kl.
13. Skráning á skrif-
stofu eða í síma
587 2888.
Hvassaleiti 58–60.
Hársnyrting, fótaað-
gerðir.
Norðurbrún 1. Kl. 9–13
tréskurður, kl. 9–17,
hárgreiðsla, kl. 10–11
boccia.
Vesturgata 7. Kl. 9–16
fótaaðgerð og hár-
greiðsla, kl. 9.15–14.30
handavinna, kl. 10–11
kántrýdans, kl. 11–12
stepp, , kl. 13.30–14.30
Sungið við flygilinn, kl.
14.30–16 dansað í að-
alsal.
Vitatorg. Kl. 8.45
smíði, kl. 9 hárgreiðsla
og opin vinnustofa, kl.
9.30 bókband og morg-
unstund, kl. 10 fót-
aðgerð, kl. 12. 30 opin
vinnustofa, kl. 13.30
bingó.
FEBK. Brids spilað kl.
13.15 í Gjábakka.
Hana-nú, Kópavogi.
Laugardagsgangan á
morgun. Lagt af stað
frá Gjábakka, kl. 10.
Gott fólk, gott rölt.
Gengið frá Gullsmára
13, kl. 10 á laug-
ardögum.
Félag einhleypra.
Fundur á morgun kl. 21
í Konnakoti Hverf-
isgötu 105. Nýir félagar
velkomnir. Munið
gönguna mánudaga og
fimmtudaga.
Brúðubíllinn
Brúðubíllinn verður í
dag, föstudaginn 13.
júní kl. 10 við Ljós-
heima.
Minningarkort
Minningarkort
Sjálfsbjargar, félags
fatlaðra á höfuðborg-
arsvæðinu, eru af-
greidd í síma 551 7868
á skrifstofutíma og í öll-
um helstu apótekum.
Gíró- og kreditkorta-
greiðslur.
Minningarkort
Foreldra- og vina-
félags Kópavogshælis
fást á skrifstofu end-
urhæfingardeildar
Landspítalans Kópa-
vogi (fyrrverandi
Kópavogshæli), í síma
560 2700 og á skrifstofu
Styrktarfélags vangef-
inna, s. 551 5941 gegn
heimsendingu gíróseð-
ils.
Í dag er föstudagur 13. júní, 164.
dagur ársins 2003. Orð dagsins:
Hví sér þú flísina í auga bróður
þíns, en tekur ekki eftir bjálk-
anum í auga þínu?
(Matt. 7, 3.)
Umræður um varn-armál eru nú nokkuð
fyrirferðarmiklar á vef-
svæðum um stjórnmál. Á
Kremlarvefnum ritar
Magnús Árni Magnússon
grein þar sem hann segir
m.a.: „Ef Íslendingar
telja að hér verði að vera
flugher til að tryggja
varnir landsins, en
Bandaríkjamenn telja að
meira gagn sé að flug-
hernum þeirra ann-
arsstaðar, þá endar það
auðvitað með því að hér
verður enginn flugher
svo lengi sem varnirnar
eru alfarið í höndum
Bandaríkjamanna. Ef við
teljum okkur þurfa flug-
her til að vernda landið,
þá er auðvitað sjálfgefið
að við, sem sjálfstæð
þjóð, höldum honum úti
sjálf. Hvers vegna? Jú,
því annars erum við ekki
„sjálfstæð“ þjóð í þess
orðs skilningi. Ef við get-
um ekki séð okkur fyrir
þeim lágmarksvörnum
sem við teljum að hér
þurfi að vera til staðar á
friðartímum, þá er sjálf-
stæði okkar orðin tóm.
En auðvitað er þettaekki svona einfalt.
Þetta er líka spurning
um peninga. Það er frek-
ar óraunhæft að íslenska
ríkið leggi að óbreyttu út
í þann kostnað sem er því
samfara að byggja upp
til viðbótar við þá land-
helgisgæslu sem þegar er
til staðar flugsveit með
fjórum orrustuþotum,
sem virðist vera sá lág-
marksviðbúnaður sem
menn telja að þurfi. Þó
er það ekki útilokað að
slíkt yrði mögulegt með
aðstoð Bandaríkjamanna,
sem sæju sér kannski
meiri hag í því að hjálpa
okkur til að sjá um eigin
varnir. Þetta er fyr-
irkomulag sem er Banda-
ríkjamönnum ekki
ókunnugt og má í því
sambandi nefna Ísrael,
sem þeir hafa stutt með
peningum, vopnum, ráð-
um og dáð. Það sama á
við um fleiri bandalags-
þjóðir Bandaríkjanna.
Slíkt samband, þar semvið nytum hernaðar-
aðstoðar Bandaríkja-
manna en sæjum sjálf um
varnirnar, væri auðvitað
eitthvað sem sjálfstæðu
smáríki væri fullur sómi
að. Auðvitað er það svo
að íslenskt varnarlið
myndi aldrei standast
innrás raunverulegs her-
afla margfalt stærri
tæknivæddrar þjóðar. Ef
til slíks kæmi myndum
við, eins og vel flestar
aðrar þjóðir þessa heims,
þurfa að kalla til banda-
menn okkar okkur til
fulltingis. Hins vegar
værum það við sjálf sem
hefðum eftirlit með ís-
lensku landi, miðum og
lofthelgi. Við sjálf
ákvæðum þann varn-
arviðbúnað sem hér
þyrfti að vera, t.a.m. til
að verjast hryðjuverkum
og ásælni í auðlindir okk-
ar. Íslendingar sæju sjálf-
ir um varnir Íslands. Við
erum rík, vel menntuð og
tæknivædd þjóð og höf-
um fulla burði til þess að
taka við þessu sjálfsagða
hlutverki fullvalda ríkis.“
STAKSTEINAR
Kreml og varnarmálin
Víkverji skrifar...
NÚ ER brostin á grilltíð, eða tímiglóðarsteikingar, eins og glöggt
má sjá af auglýsingum um grilltæki
og grillmat. Blámóðu leggur yfir bæ-
inn á góðviðrisdögum og ilmurinn
kitlar nefið. Víkverji dagsins kann
vel að meta glóðarsteiktan mat, sé
hann almennilega grillaður, vel að
merkja.
Grillarar skiptast í grófum drátt-
um í tvo hópa, kolagrillara og gas-
grillara. Víkverji tilheyrir fyrrnefnda
hópnum, sem virðist vera í minni-
hluta hér á landi ef marka má laus-
lega könnun á því hvernig grillbún-
aður er algengastur við híbýli. Svo
virðist sem Íslendingar hafi ánetjast
gasgrillunum svo gjörsamlega að ko-
lagrillararnir eru jafnvel litnir vor-
kunnaraugum. Á sama hátt líta
margir forfallnir kolagrillarar á gas-
liðið sem viðvaninga!
En hvers vegna kolagrill? Vík-
verja þykir bragðið einfaldlega
betra. Vandkvæðin sem sumum
þykja fylgja kolunum verða léttvæg
séu notaðar almennilegar græjur.
Fyrir mörgum árum áskotnaðist
Víkverja amerískt kolagrill, mikill
ketill með loki. Leyndardómur hans
felst í því að maturinn er eldaður
með lokið á katlinum. Það hefur
þann kost að hitinn dreifist jafnt um
ketilinn sem gefur betri árangur við
eldunina. Glóðin í lokuðum katlinum
er betur varin fyrir vindblæstri en í
opnu grilli eða gasgrilli. Lokaði ket-
illinn lengir því töluvert þann tíma
ársins sem hægt er að grilla hér á
landi með góðu móti.
Auk þess að krydda matinn og
marínera er hægt er að bragðbæta
hann enn frekar með því að setja
deigan reykspæni eða viðarkubba á
glóðina. Með þessari aðferð finnst
Víkverja grillbragðið verða ósvikið.
Annar kostur við lokaða kolagrillið
þykir Víkverja ekki síðri. Það er
nógu rúmgott til að hægt sé að nota
svokallaða „óbeina“ eldun. Þá er
glóðunum sópað út í hliðarnar og því
ekki beint undir matnum. Þegar
vænu lambakjöti er brugðið á grillið
og fitan fer að drjúpa fellur hún því
ekki á kolin. Þótt það gerist er lítil
hætta á ferðum því í lokuðum katl-
inum er ekki nóg súrefni til að fitan
logi. Þannig má losna við bókstaflega
eldsteikingu, sem hvorki er kræsileg
né heilsusamleg.
x x x
MÖGULEIKAR kolagrillsins erunær endalausir. Víkverji las um
dönsk hjón sem elda helst á grilli,
það er kolagrilli með loki. Þau eiga
útieldhús þar sem eru mörg grill af
ýmsum stærðum. Grillin nota þau
ekki einungis til að steikja kjöt og
fisk yfir sumartímann heldur er glóð-
að allt árið og eldaður matur af öllu
tagi. Þau baka rúgbrauð, eplakökur
og já kransakökur á grillunum. Auk
þess eru grillaðir ávextir gjarnan
notaðir í eftirrétti. Um jólin fer svo
„flæskesteg“ á grillið. Þessi ágætu
hjón hafa skrifað matreiðslubækur
um eldun á grilli allan ársins hring
og hvernig best er að bera sig að.
Samkvæmt þeim kokkabókum á Vík-
verji margt ólært í grillfræðum.
Vandræði
með leikskóla
BARNIÐ mitt er að hætta á
leikskóla um miðjan júní og
fara á annan í byrjun ágúst.
Áður en ég fékk úthlutað
plássi fékk ég rukkun fyrir
báða leikskólana.
Ég hringdi í bankann og
var sagt að tala við Leik-
skóla Reykjavíkur, sem ég
og gerði. Var mér þá sagt að
henda kvittuninni, ég fengi
nýja. 15. maí sl. fékk ég
ítrekun frá bankanum, ég
hringdi í Leikskóla Reykja-
víkur og talaði við yfirleik-
skólakennarann í nýja leik-
skólanum. 6. júní sl. fékk ég
aftur ítrekun frá bankanum.
Ég á ekki að þurfa að
borga pláss fyrr en í ágúst,
þ.e. eftir þennan júnímánuð.
Ég vil koma þessu á fram-
færi svo að þetta verði lag-
að.
Sigurlína.
Varðandi
misferli
VEGNA umræðu um mis-
ferli hjá starfsmanni Sölu-
nefndarinnar í sambandi við
viðskipti við herinn vaknar
sú spurning hvort þarna sé
eingöngu við undirmenn að
sakast.
Ég vil spyrja hvaða ráð-
herra er það sem ber
ábyrgð á þessari starfsemi?
Þetta er búið að ganga í ára-
tugi, upp úr miðri seinni
heimsstyrjöldinni, og þessi
rannsókn hlýtur að þurfa að
ganga lengra aftur í tímann
og ekki einangrast við mál
innkaupastjórans sem var
látinn hætta fyrir stuttu.
Ráðherraábyrgð hlýtur
að vera þarna fyrir aftan.
Þessir menn hljóta að starfa
undir einhverju ráðuneyti.
Það er líkt og það tíðkist hér
að menn séu án allrar
ábyrgðar.
Einar Vilhjálmsson.
Góð þjónusta
hjá Steinari Waage
ÁNÆGÐUR viðskiptavinur
hafði samband við Velvak-
anda og vildi koma á fram-
færi þakklæti fyrir góða
þjónustu hjá Steinari
Waage í Kringlunni.
Vandlátur
viðskiptavinur.
Tapað/fundið
Bensínlok
tapaðist
HINN 10.6. sl. tapaðist lok
af bensíntanki við bensín-
stöð sunnan Miklubrautar
þar sem nú er Orkan. Sími
553 5194 eða 865 4302.
Fundarlaun í boði.
Smábarnaskór
týndist
HVÍTUR Nikeplay-smá-
barnaskór týndist um hvíta-
sunnuhelgina. Hann hefur
sennilega dottið úr bíl ein-
hvers staðar á leiðinni frá
Reykjavík að Flúðum.
Finnandi er vinsamlegast
beðinn að hafa samband við
Unni í síma 586 1580.
Dýrahald
Fimm hálfir persar
fást gefins
VIÐ erum fimm hálfir pers-
ar. Mamma er vel ættuð,
með ættartölu, en pabbi al-
þýðuköttur, svo að við kost-
um ekkert.
Við viljum heimili þar sem
við komumst út og inn, njót-
um almennra kattaréttinda
og umhyggju fram í háa elli.
Þeir sem hafa áhuga á
okkur eru beðnir að hringja í
síma 552 7836 eftir kl. 17.
Kettlingur
fæst gefins
NÍU VIKNA gamall kett-
lingur er í leit að góðu heim-
ili. Hann prýðir allt sem
prýtt getur góðan kettling;
er fallegur, skemmtilegur og
kassavanur.
Þeir sem hafa áhuga á að
bjóða honum inn á sitt heim-
ili geta haft samband í síma
565 3422.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is
Morgunblaðið/Kristinn
Hlaupið til móts við gangbrautarkarlinn.
LÁRÉTT
1 bauka, 4 ólundin,
7 næða, 8 byggð, 9 víð,
11 titra, 13 verma,
14 lagvopn, 15 klína,
17 grófur, 20 ílát, 22 eldi-
viðurinn, 23 tóbaki,
24 ferma, 25 flot.
LÓÐRÉTT
1 hjálpar, 2 tanginn,
3 mjög, 4 lögun, 5 með-
vindur, 6 gista,
10 úthlaup, 12 keyra,
13 vöflur, 15 stór,
16 höfuðs, 18 skin,
19 heift, 20 ilma,
21 skrokkur.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 kollóttur, 8 kofar, 9 illur, 10 kát, 11 trana,
13 innan, 15 hjóms, 18 strák, 21 tin, 22 grófu, 23 örðug,
24 fagurgali.
Lóðrétt: 2 offra, 3 lurka, 4 teiti, 5 ullin, 6 skot, 7 grín,
12 nam, 14 not, 15 hagl, 16 ósóma, 17 stunu, 18 snögg,
19 riðil, 20 kugg.
Krossgáta
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16