Morgunblaðið - 13.06.2003, Side 46
ÍÞRÓTTIR
46 FÖSTUDAGUR 13. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Opið
kvennamót
sunnudaginn 15. júní
Verðlaun
1.-3. sæti með forgjöf
1.-3. sæti án forgjafar
Nándarverðlaun
á öllum par 3 holum vallarins.
Allir keppendur fá teiggjafir
Keppnisgjald kr. 2.000
Ræst út kl. 10:00 - 14:00
Skráning fer fram á www.golf.is og í síma 421 4100
LEK - golfmót
á Hólmsvelli í Leiru
Lek Golfmót verður á Hólmsvelli í Leiru laugardaginn 14. júní.
Keppt í flokkum karla 50-54 ára, 55 ára og eldri,
70 ára og eldri og í flokki kvenna 50 ára og eldri.
Þá er mótið jafnframt viðmiðunarmót til landsliðs karla 55 ára
og eldri og kvenna 50 ára og eldri.
Skráning á golf.is og í síma 431 2711.
ÚRSLIT
ÍSLENSKA landsliðið í knatt-
spyrnu hefur náð að snúa dæm-
inu við á stuttum tíma. Þó svo að
landsliðið hafi ekki verið að
leika neina stórleiki, þá hafa
leikmenn liðsins mætt til leiks
með réttu hugarfari í viður-
eignir gegn Færeyjum og Lithá-
en og fagnað sigri. Þeir hafa
mætt til leiks til að gefa allt sem
þeir eiga í leikina og náð að
leika sem liðsheild.
Landsliðsþjálfararnir Ásgeir
Sigurvinsson og Logi Ólafsson
gerðu leikmönnum sínum ljóst
að það væri undir þeim komið
hver árangurinn yrði. Það væru
leikmennirnir sjálfir sem lékju
leikina, engir aðrir. Svo einföld
voru skilaboðin – málið var ekki
gert flókið, þannig að leikmenn-
irnir gerðu sér fyllilega grein
fyrir til hvers þeir voru valdir til
að leika fyrir hönd Íslands.
Ég hef oft séð landsliðið leika
betur, en eins og staðan var á
þeirri stundu var það ekki
spurningin um það að vera með
einhverja sýningu í snilldar-
töktum heldur að leggja sig
fram við verkefnið af fullum
krafti og gefa ekkert eftir. Það
tókst og nú verða næstu skref
tekin – fram á við.
Landsliðsmennirnir hafa held-
ur betur verið í sviðsljósinu og
þeir stóðust prófið. Það hefur þó
átt sér stað vægast sagt furðuleg
uppákoma í fjölmiðlum að und-
anförnu í sambandi við fyrrver-
andi landsliðsþjálfara Íslands í
knattspyrnu.
Tvisvar sinnum á stuttum tíma
hefur Guðjón Þórðarson, fyrr-
verandi landsliðsþjálfari, verið í
sviðsljósinu í fjölmiðlum um leið
og landsliðið hefur verið að leika
landsleiki. Í fyrra skiptið til að
gagnrýna landsliðið og landsliðs-
þjálfara sem tók við hans starfi.
Í seinna skiptið tilkynnti Guðjón
að hann væri búinn að senda inn
atvinnuumsókn til KSÍ, um að
taka aftur við landsliðinu. Í sjón-
varpsviðtali og blaðaviðtali fór
fram ein mesta atvinnuumsókn
Íslandssögunnar.
Það efast enginn um að Guð-
jón sé fær þjálfari, en aftur á
móti er erfitt fyrir hann að snúa
Erfitt að snúa
klukkunni til baka
BJÖRGVIN Sigurbergsson lék á þremur höggum
yfir pari á þriðja og jafnframt lokakeppnisdegi
Euro-pro-mótaraðarinnar sem fram fer á Palm-
ares-vellinum í Algarve, Portúgal. Björgvin endaði
samanlagt 5 undir pari, 67-67-74, og varð sjötti af
alls 145 keppendum sem hófu leik. Sigurvegari
mótsins lék á 17 undir pari samanlagt og fékk í sinn
hlut um 12,3 milljónir ísl. kr. en Björgvin fékk 246
þúsund ísl. kr. í verðlaunafé fyrir árangur sinn.
Þetta er besti árangur Björgvins á Euro-pro-
mótaröðinni til þessa og samanlagt hefur hann unn-
ið sér inn rúma hálfa milljón ísl. króna á mótaröð-
inni til þessa. Björgvin er í 26. sæti á peningalista
mótaraðarinnar þessa stundina en þá er ekki búið
að taka með í reikninginn árangur hans á Palmares
í Portúgal.
Ólafur Már Sigurðsson lék fyrsta keppnisdaginn
á mótinu en var dæmdur úr leik að þeim hring lokn-
um þar sem hann skrifaði ekki undir skorkort sitt.
Björgvin sjötti
í Palmares
GUÐNI Bergsson, sem lék sinn síð-
asta landsleik í fyrrakvöld, er kom-
inn í langþráð frí. Hann kvaddi ís-
lenska landsliðshópinn í Frankfurt á
leið liðsins heim til Íslands í gær og
hélt upp í flugvél til Mallorca. Þar
hittir Guðni fyrir fjölskyldu sína og
saman ætlar hún að slaka á í sólinni.
Tímabilið hefur verið langt og
strangt hjá Guðna. Leiktíðinni með
Bolton lauk hann í maí og síðan tók
við verkefnið með landsliðinu. Guðni
var ekki sá eini í landsliðinu sem ekki
skilaði sér heim til Íslands. Fé-
lagarnir í liði Lokeren, Arnar Þór
Viðarsson, Arnar Grétarsson, Rúnar
Kristinsson og Marel Baldvinsson, héldu til Belgíu en á
laugardaginn gengur Arnar Þór í það heilaga og verða fé-
lagar hans í liðinu viðstaddir brúðkaupið.
Guðni kominn
í langþráð frí
Guðni
KNATTSPYRNA
Bikarkeppni KSÍ
VISA-bikar karla, 32-liða úrslit:
Seyðisfjörður: Huginn – ÍA...................... 18
Kópavogsvöllur: HK – KR................... 19:15
Hlíðarendi: Númi – Valur .................... 19:15
Víkin: Deiglan – Víkingur R. ............... 19:15
Njarðvíkurv.: Njarðvík – Þróttur R. .. 19:15
Hásteinsvöllur: KFS – ÍBV................. 19:15
Selfossvöllur: Selfoss – KA.................. 19:15
Sauðárkrókur: Tindastóll – Keflavík.. 19:15
ÍR-völlur: ÍR – Fram ........................... 19:15
VISA-bikar kvenna, 2. umferð:
Fjölnisvöllur: Fjölnir – ÍR........................ 20
Í KVÖLD
KNATTSPYRNA
Bikarkeppni KSÍ
VISA-bikar kvenna, 2. umferð:
HK/Víkingur - Stjarnan ..........................0:3
Auður Skúladóttir, Lilja B. Valþórsdóttir,
Harpa Þorsteinsdóttir.
Stjarnan er komin í 8 liða úrslit.
1. deild kvenna B
Leiknir F. - Höttur....................................0:6
Staðan:
Höttur 3 3 0 0 12:1 9
Tindastóll 2 2 0 0 13:1 6
Fjarðabyggð 3 2 0 1 12:7 6
Sindri 2 1 0 1 5:6 3
Einherji 2 0 0 2 3:7 0
Leiftur/Dalvík 2 0 0 2 4:15 0
Leiknir F 2 0 0 2 1:13 0
Vináttulandsleikir
Ekvador - Perú ......................................... 2:2
Hondúras - Chile ...................................... 1:2
Svíþjóð
Öster - Elfsborg ........................................1:2
Staðan:
Hammarby 9 6 3 0 14:6 21
AIK 9 6 2 1 20:9 20
Djurgården 9 6 1 2 24:7 19
Örebro 9 5 1 3 15:12 16
Halmstad 9 4 2 3 14:12 14
Helsingborg 9 4 2 3 10:12 14
Malmö 9 3 3 3 13:11 12
Elfsborg 9 3 3 3 11:16 12
Gautaborg 9 2 3 4 13:12 9
Sundsvall 9 2 3 4 10:13 9
Landskrona 9 2 3 4 10:14 9
Örgryte 9 2 2 5 11:18 8
Öster 9 2 1 6 7:16 7
Enköping 9 1 1 7 8:22 4
KÖRFUKNATTLEIKUR
NBA-úrslit
New Jersey - San Antonio ...................77:76
Staðan er 2:2.
FRJÁLSÍÞRÓTTIR
Miðnæturmót ÍR
Laugardalsvöllur í Reykjavík, 12. júní:
KARLAR
200 m hlaup:
Bjarni Þór Traustason, FH..................22,94
Sigurkarl Gústafsson, UMSB ..............23,05
Andri Karlsson, Breiðablik ..................23,13
800 m hlaup:
Björn Margeirsson, Breiðabl. ...........1.54,59
Stefán Már Ágústsson, UMSS..........1.58,94
Burkni Helgason, ÍR..........................2.00,84
5000 m hlaup:
Sigurbj. Árni Arngrímss, UMSS ....15.39,28
Stefán Guðmundsson, Breiðabl. .....16.44,86
Sveinn Ernstsson, ÍR.......................16.50,86
400 m grindahlaup:
Björgvin Víkingsson, FH .....................54,16
Unnsteinn Grétarsson, ÍR....................55,83
4x100 m boðhlaup:
Breiðablik...............................................44,57
FH...........................................................44,65
Kringlukast:
Jón Bjarni Bragason, Breiðabl. ...........47,24
Stefán Ragnar Jónsson, Breiðabl. .......43,34
Magnús Björnsson, USAH...................35,94
KONUR:
200 m hlaup:
Sunna Gestsdóttir, UMSS....................24,99
Hildur Kristín Stefánsdóttir, ÍR..........26,41
Sigurbjörg Ólafsdóttir, Breiðabl. ........26,98
1500 m hlaup:
Fríða Rún Þórðardóttir, ÍR...............4.45,24
Marta Ernstdóttir, ÍR .......................4.48,88
Herdís Helga Arnalds, Breiðabl. ......5.16,06
400 m grindahlaup:
Þóra Kristín Pálsdóttir, ÍR ..................67,85
4x100 m boðhlaup:
Breiðablik...............................................49,06
Meyjasveit ÍR........................................51,86
Fjölnir.....................................................53,22
Stangarstökk:
Fanney Björk Tryggvadóttir, ÍR ..........3,40
Aðalheiður Vigfúsdóttir, Breiðablik......3,20
Kringlukast:
Ásdís Hjálmsdóttir, Ármann................41,56
Hallbera Eiríksdóttir, UMSB..............36,40
Jóhanna Sigmundsdóttir, ÍR ...............19,10
Spjótkast:
Vigdís Guðjónsdóttir, HSK ..................48,60
Sigrún Fjeldsted Sveinsdóttir, FH .....46,53
Ásdís Hjálmsdóttir, Ármann................46,46
GOLF
Opna bandaríska meistaramótið
Staða efstu manna kl. 23.00 í gær:
Brett Quigley .......................................65 (-5)
Justin Leonard ....................................66 (-4)
Jay Don Blake......................................66 (-4)
Stephen Leaney...................................67 (-3)
Tom Gillis .............................................68 (-2)
Ian Legatt ............................................68 (-2)
Mark Calcavecchia ..............................68 (-2)
Hidemichi Tanaka ...............................69 (-1)
Cliff Kresge..........................................69 (-1)
Tom Byrum..........................................69 (-1)
Ernie Els ..............................................69 (-1)
Loren Roberts .....................................69 (-1)
Billy Mayfair ........................................69 (-1)
Padraig Harrington ............................69 (-1)
Colin Montgomerie .............................69 (-1)
Jonathan Byrd .....................................69 (-1)
Timothy Clark .....................................69 (-1)
Robert Damron ...................................69 (-1)
Chad Campbell ...........................................70
Tiger Woods...............................................70
Vijay Singh..................................................70
Bernhard Langer .......................................70
Charles Howell ...........................................70
Bob Estes....................................................70
Justin Rose .................................................70
Samningur þeirra Ásgeirs ogLoga við KSÍ er þess eðlis að
báðir geta þeir hætt fyrirvaralaust
og knattspyrnusambandið er sömu-
leiðis ekki með neinar skuldbinding-
ar gagnvart þeim. Eggert Magnús-
son, formaður KSÍ, lýsti því yfir í
samtali við Morgunblaðið eftir sig-
urinn glæsilega í Kaunas í Litháen í
fyrrakvöld að hann væri afar ánægð-
ur með framlag þjálfaranna og hann
vonaðist til að þeir kláruðu í það
minnsta Evrópukeppnina en þrír
síðustu leikir íslenska liðsins eru á
móti Færeyingum í Þórshöfn 20.
ágúst, gegn Þjóðverjum á Laugar-
dalsvelli 6. september og lokaleikur-
in er við Þjóðverja ytra 11. október.
Eggert fékk sem kunnugt er um-
boð frá stjórn KSÍ til að leita erlend-
is að nýjum þjálfara. Formaðurinn
hefur farið sér afar hægt í þeim mál-
um og ekki er loku fyrir það skotið að
hann leggi til við stjórnina að þeir
Ásgeir og Logi verði ráðnir til fram-
búðar enda mikil ánægja með þá í
röðum KSÍ og meðal leikmanna
landsliðsins.
Morgunblaðið/Arnaldur
Landsliðsþjálfararnir Ásgeir Sigurvinsson og Logi Ólafsson.
Ásgeir og Logi
verða út
EM-keppnina
AÐ öllu óbreyttu munu þeir Ásgeir Sigurvinsson og Logi Ólafsson
stýra íslenska landsliðinu í knattspyrnu í leikjunum þremur sem
það á eftir að leika í undankeppni EM. Þeir félagar voru ráðnir tíma-
bundið til starfa eftir að Atli Eðvaldsson ákvað segja starfi sínu
lausu og hefur íslenska landsliðið unnið báða leikina undir þeirra
stjórn, gegn Færeyingum og Litháum.
KARLALANDSLIÐ Íslands í
tennis vann Möltu í gær, 3:0, í viður-
eign liðanna í Davis-bikarkeppninni
sem fram fer í San Marínó. Íslenska
liðið vann Kenýa, 3:0, í fyrstu við-
ureign sinni á mótinu og leikur því
um sæti í 3. deild á laugardag en í
dag á liðið frí frá keppninni.
RAJ Bonifacius vann sinn and-
stæðing, 6:4, 2:6, 6:4. Arnar Sigurðs-
son vann sinn leik, 6:1, 6:0 og Arnar
lék með Davíð Halldórssyni í tvíliða-
leik þar sem þeir unnu, 6:1 og 6:1.
STEFÁN Arnaldsson og Gunnar
Viðarsson, milliríkjadómarar í hand-
knattleik, hafa verið valdir til að
dæma seinni leik Krótatíu og Hvíta-
Rússlands í undankeppni EM í Slóv-
eníu 2004. Leikurinn fer fram í Zagr-
eb laugardaginn 21. júní. Þeir Stefán
og Gunnar dæmdu um síðustu helgi
á París Bercy mótinu í Frakklandi.
Þar dæmdu þeir leiki Alsírs við
Frakkland og Ungverjaland.
NIKOS Dabizas, varnarmaður
gríska landsliðsins í knattspyrnu
sem til skamms tíma lék með New-
castle, handleggsbrotnaði í bílslysi
snemma í gærmorgun. Dabizas tók í
fyrrakvöld þátt í mikilvægum sigri
Grikkja á Úkraínu, 1:0, í undan-
keppni EM.
DABIZAS missti stjórn á bifreið
sinni og keyrði á vegrið. Hann
gekkst undir aðgerð á handleggnum
í dag en varð einnig fyrir minni hátt-
ar meiðslum í andliti. Dabizas var
leystur undan samningi sínum við
Newcastle í síðastliðinni viku og er á
lausu þessa dagana.
FÓLK