Morgunblaðið - 13.06.2003, Qupperneq 56
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FÖSTUDAGUR 13. JÚNÍ 2003 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
VISTMAÐUR af sambýlinu Skálatúni í
Mosfellsbæ beið bana í gærkvöld þegar
hann varð fyrir bifreið á Vesturlandsvegi.
Slysið varð um klukkan 19 á móts við Skála-
tún og voru tildrög ekki fyllilega ljós í gær-
kvöld.
Liðsmenn tækni- og rannsóknardeildar
lögreglunnar voru kallaðir á vettvang, auk
slysarannsóknardeildar. Slökkvilið höfuð-
borgarsvæðisins sendi tækjabíl sinn á slys-
stað og sjúkrabíla en ekki þurfti að loka
Vesturlandsvegi lengi fyrir umferð á meðan
lögregla og slökkvilið unnu á vettvangi.
Ekki er unnt að greina frá nafni hins látna
að svo stöddu.
Slysið í gær er sjötta banaslysið í umferð-
inni á þessu ári.
Banaslys
á Vestur-
landsvegi
Í TILLÖGUM starfshóps sem
skipaður var til þess að gera til-
lögur vegna atvinnuvanda á Rauf-
arhöfn er m.a. lagt til að skoðaðir
verði möguleikar á því að stofn-
setja saltfiskvinnslu á Raufarhöfn,
en slík starfsemi aflagðist þar árið
1996. Valgerður Sverrisdóttir,
ráðherra byggðamála, og Sveinn
Þorgrímsson, deildarstjóri í ráðu-
neytinu, áttu í gær fund með
sveitarstjórn á Raufarhöfn þar
sem helstu tillögur nefndarinnar
voru kynntar.
Í tillögunum er einnig bent á
möguleika sem kunna að felast í
ferðamannaþjónustu á svæðinu
auk þess sem ráðgert er að tré- og
vélsmiðja á staðnum fái aðstoð til
að koma vörum sínum á framfæri
á stærri markaði.
Starfshópurinn er skipaður
fulltrúum viðskipta- og iðnaðar-
ráðuneytis, félagsmálaráðuneytis
og Byggðastofnunar. Stofnað var
til hópsins þegar stærsti atvinnu-
rekandinn á Raufarhöfn, Jökull
ehf., tilkynnti um skipulagsbreyt-
ingar og sagði öllum 50 starfs-
mönnum fyrirtækisins upp. Gert
er ráð fyrir að Jökull ehf. end-
urráði um tuttugu manns en áfall-
ið fyrir þetta tæplega þrjú hundr-
uð manna byggðarlag er þó slíkt
að nauðsynlegt þótti að ríkisvaldið
gripi til sérstakra aðgerða. Í til-
lögum starfshópsins er ekki gert
ráð fyrir sértækum aðgerðum
vegna Raufarhafnar heldur er not-
ast við þær stofnanir sem ráðu-
neytin hafa þegar yfir að ráða.
Guðný Hrund Karlsdóttir sveitar-
stjóri segist ánægð með fundinn í
gær og er bjartsýn á að betri tíð
sé í vændum fyrir atvinnulífið á
Raufarhöfn.
Tillögur starfshóps um atvinnuvanda Raufarhafnar á borð ríkisstjórnar
Hugmyndir um að hefja
saltfiskvinnslu á ný
Saltfiskur/6
„HÆ“, kalla Mollí og Olli hástöf-
um til þeirra sem leið eiga um
Framnesveginn og verða hálf-
móðguð ef vegfarendur taka ekki
undir kveðjuna. Svo þenja þau sig
heil ósköp þegar þau eru að viðra
sig úti í garði þannig að tilvist
þeirra fer tæpast framhjá nein-
um. Ef þau eru inni og heyra í
krökkum út kalla þau „krakkar“
og svo „hæ, Lotta“ ef þau sjá kisu,
enda er kisan Lotta heimilisföst á
sama stað og því hálfpartinn syst-
ir þeirra.
Páfagaukarnir Mollí og Olli lifa
sældarlífi hjá „foreldrum sínum“,
Gunnhildi Ásmundsdóttur og
Rúnari Guðjóni Einarssyni, og
eru aldrei lokuð inni í búri. Þeir
eiga sérherbergi niðri í kjallara
ásamt litlum gára sem er mikill
vinur þeirra. Gunnhildur segist
eiga góða nágranna sem taki fugl-
unum vel. „Mollí og Olli eru að
mörgu leyti eins og börn og þegar
þau eru orðin þreytt á kvöldin
hleypur svefngalsi í Mollí og hún
kjaftar út í eitt en það slaknar á
Olla og hann segir „Olli lúlla“.
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Mollí og Olli tala, hlæja og dansa
Daglegt líf/6
arssonar, fulltrúa ríkislögreglu-
stjóra, gaf Friðþjófur þá skýringu að
hann væri að taka myndir af fuglum
við Kárahnjúka en hann sagði að
ekki væri hægt að taka þessar mynd-
ir aðra daga. Samkvæmt lögum um
meðferð opinberra mála er mönnum
skylt að bera vitni fyrir dómi. Helgi
sagði að vissulega vonaðist hann til
þess að ekki þurfi að handtaka Frið-
þjóf og sé tryggt að hann muni mæta
fyrir dóm verði það ekki gert.
DÓMSTJÓRI Héraðsdóms Vest-
fjarða gaf í gær út handtökuskipun á
hendur Friðþjófi Helgasyni mynda-
tökumanni, að kröfu fulltrúa ríkis-
lögreglustjóra, en hann mætti ekki
fyrir dóm í gær þrátt fyrir að hafa
tekið við skriflegri boðun og án þess
að boða lögmæt forföll. Friðþjófur
átti að gefa skýrslu í máli ríkislög-
reglustjóra gegn skipstjóra Bjarma
BA sem sakaður er um brottkast.
Að sögn Helga Magnúsar Gunn-
Skipstjóri Bjarma er ákærður fyr-
ir brot gegn lögum um nytjastofna
sjávar með því að kasta „að minnsta
kosti 53 þorskum“ í sjóinn í tveimur
veiðiferðum í byrjun nóvember 2001.
Friðþjófur tók myndir af brott-
kastinu og í kjölfarið fylgdi áköf um-
ræða um brottkast á Íslandsmiðum
og kosti og galla kvótakerfisins.
Skipstjórinn sagði að fiskurinn hafi
allur verið ónýtur vegna hringorms.
Ekki tóku allir skipverjar undir það
og sögðu fisknum hafa verið hent
fyrir borð þar sem hann þótti of lítill
og ekki fengist nægilega mikið fyrir
aflann. Aðalmeðferð í málinu gegn
skipstjóranum hófst í gær og átti að
ljúka í dag en var frestað vegna fjar-
veru myndatökumannsins. Fallið
hefur verið frá ákæru á hendur út-
gerðarfélagi bátsins enda hefur það
verið úrskurðað gjaldþrota.
Handtökuskipun gefin út á
hendur myndatökumanni
Skipstjóri/4
NÝ KYNSLÓÐ verslunareigenda er að
koma fram á sjónarsviðið í höfuðborginni
og með henni gætu verslunarhættir
smám saman tekið breytingum. Nýverið
hafa til dæmis ver-
ið opnaðar, við
Skólavörðustíg og
Laugaveg, þrjár
verslanir sem eiga
það sameiginlegt
að aðstandendur
þeirra eru allir
menntaðir í mynd-
list og hönnun – en
ekki í rekstrar-
fræðum. Verslan-
irnar eiga það svo
sammerkt að ein-
kennast af
skemmtilegheitum
og hugrekki. Eig-
endur þeirra
leggja áherslu á íslenska frumsköpun og í
fæstum tilvikum eru söluvörurnar fjölda-
framleiddar í hefðbundnum skilningi.
Sköpunargleðin er höfð ofar gróðavon-
inni. Ein búðanna er umboðsverslun fyrir
„allt sem er að gerast í grasrótinni“ eins
og eigendur segja, önnur er sölugallerí
„þar sem sköpunargleðin ræður ríkjum“
og hin þriðja er „hluti af myndlistarferli“
eigandans. Verslanirnar spretta upp á
svæði þar sem fyrir eru hárgreiðslustof-
ur, handverksbúðir og kaffihús í eigu
ungs fólks sem vill veg miðborgarinnar
sem mestan.
Í verslun
eftir
listnám
Daglegt líf/4
Íslensk hönnun.
Armbönd í Verk-
smiðjunni.
MIKIL ásókn var í miða á
söngleikinn Grease þegar
miðasala hófst klukkan 10 í
gærmorgun. Bjarni Haukur
Þórsson, framleiðandi sýning-
arinnar, segir að 100 miðar hafi
selst á fyrstu 25 mínútunum en
alls seldust tæplega 1.100 mið-
ar í gær.
Söngleikurinn verður frum-
sýndur í Borgarleikhúsinu 26.
júní.
Örtröð
á Grease
Yfir/50
♦ ♦ ♦