Morgunblaðið - 17.08.2003, Síða 10
10 B SUNNUDAGUR 17. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Tveir strákar vöfðu sér jónur rétt við Pusherstreet og höfðu ekkert á móti því að vera myndaðir.
Inngangurinn að Pusherstreet og sjást fremstu básarnir, en síðan tekur hver básinn við af öðrum beggja v
S
TUNDUM er hann
kallaður Frank
Sinatra Kristjaníu;
maðurinn sem rek-
ur djassklúbbinn í
Barnaleikhúsinu
tvö kvöld í viku og
situr núna fyrir
framan blaðamann
rauður og stokk-
bólginn á nefinu.
Jes Harpsø sól-
brann á nefinu
daginn áður og
fékk sýkingu um
nóttina. Það fer ekki á milli mála að hann er
hundveikur. Hann lætur sig samt hafa það að
sýna blaðamanni íbúðina, sem er á loftinu á stóru
húsi við hið alræmda Pusherstreet, þar sem hass-
salan fer fram í Kristjaníu. Það leynir sér ekki að
hann er stoltur af íbúðinni, þó að hann biðjist af-
sökunar á draslinu.
– Konan er nýflutt út, segir hann brosandi; viss
um að mæta skilningi hjá öðrum karlmanni.
Lagði milljónir í íbúðina
Jes hefur búið frá upphafi í Kristjaníu, en flutti
hingað á loftið fyrir um átján árum. Áður hafði
það ekki verið íbúðarhæft. Saga hans er svipuð og
margra annarra Kristjaníubúa að því leyti. Hann
byrjaði á því að einangra þakið og gerði það í
áföngum. Í fyrstu bjó hann í einu herbergi, sem
nú er hluti af stofunni. Smám saman gerði hann
aðra hluta hæðarinnar íveruhæfa og nú er þetta
orðin notaleg íbúð. Hérna hefur hann alið upp
börnin sín tvö, sem eru 14 ára og 17 ára, og lengst
af búið með barnsmóður sinni.
– Ég hef lagt [margar millj. ísl. kr.] í íbúðina.
Ljónahúsið þar sem Íslendingar bjuggu lengi vel og lögðu undir sig miðhæðina.