Morgunblaðið - 17.08.2003, Síða 14
14 B SUNNUDAGUR 17. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ
ferðalög
Ítalía
17.205kr.*
7 dagar miðað við flokk B
Innifalið ótakmarkaður akstur,
kaskó, þjófavörn, flugvallargjald
og skattur.
Flórída
18.837kr.*
7 dagar miðað við flokk A
Innifalið ótakmarkaður akstur,
kaskó, þjófavörn, flugvallargjald
og skattur.
Spánn Alicante
13.109kr.*
7 dagar miðað við flokk A
Innifalið ótakmarkaður akstur,
áfylling af bensíni, kaskó, ábyrgðar-
trygging, einn auka bílstjóri,
skattur og flugvallargjald.
Ætlarðu til Mombasa,
út á Dalvík, til New Orleans
eða upp á Brávallagötu?
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
H
ER
21
66
1
07
/2
00
3
Sími: . . . . . . . . . . . . . . . . 5050 600
Fax: . . . . . . . . . . . . . . . . 5050 650
Netfang: hertz@hertz.is
*Ekkert bókunargjald.
ÞAÐ er mismunandi kostnaður við
að skipta íslenskum krónum í gjald-
eyri þegar fólk er á ferð í útlönd-
um. Það er einnig margt sem þarf
að taka tillit til við skoðun á kostn-
aði eins og þóknanir, mismunandi
og síbreytilegt gengi banka og
kortafyrirtækja og vextir sem
verða þegar seðlar eru keyptir fyrir
brottför í stað þess að greiða
kreditkortareikninginn eftir á.
Að sögn Þórdísar Pálsdóttur,
sem starfar hjá útibúasviði Íslands-
banka, er langalgengast að fólk hafi
með sér lágmarksupphæð í gjald-
eyri en noti síðan kreditkort og
taki gjaldeyri jafn óðum út úr hrað-
banka. „Þó færist það í aukana að
nota debetkort erlendis. Fólk horfir
á þægindin við að nota hraðbank-
ana því afgreiðslur með korti í
verslunum og á veitingahúsum
taka oft langan tíma. Það er góð
regla að láta kortið aldrei fara úr
augsýn þear verið er að greiða með
því til að lágmarka áhættuna af því
að kortið verði misnotað. Ekki er
tekið við kortum í öllum verslunum
og þjónustufyrirtækjum og því get-
ur verið öruggara að vera með
reiðufé á sér og geta þá fylgst bet-
ur með eyðslunni.“
Þórdís segir að það heyri til
undantekninga ef fólk taki með sér
ferðatékka það sé helst ef það er
að ferðast til fjarlægra landa.
Algengast að fólk noti kortið í útlöndum
!"#$%&'(
)
*
!
+!
Þ
AÐ var óneitanlega gaman að
fá í eina kvöldstund að setja
sig í spor gesta skemmti-
ferðaskipsins Seven Seas
Navigator þegar það heimsótti
Reykjavík fyrir skömmu. Strax og
komið er inn í skipið á fimmta þilfari
fer ekkert á milli mála að þar fer
glæsifley. Stórir salir blasa við og
breiðir gangar svo og glæsilegar
glerlyftur sem flytja farþega milli
hæða. Ellefu þilför eru á skipinu og
allar vistarverur gesta eru ofansjáv-
ar og flestar með svölum.
Það er varla hægt að kalla her-
bergin káetur, því jafnvel ódýrustu
herbergin eru eins og svítur.
Í þeim er auk hjónarúms, marm-
araklætt baðherbergi með sturtu og
baði, lítið fataherbergi með öryggis-
hólfi, sófasett, sjónvarp, bar og borð
og stólar. Fersk blóm prýða borð og
ávextir og kampavín bíða gesta við
komu um borð. Skipt er þrisvar á dag
um handklæði og þjónn kemur að
morgni og kvöldi til að búa um rúmið.
Markaðsstjórinn Michael Baker
gekk um skipið með hópi fólks á veg-
um ferðaskrifstofunnar Emblu en
það fyrirtæki fékk nýlega einkaum-
boð fyrir ferðir með skipum félagsins
hér á landi. Hann sýndi okkur líka
flottustu svíturnar sem eru á við
meðalstóra íbúð að stærð. Þar eru
rókókóhúsgögn í rúmgóðri stofu og
borðstofu, hljómflutningstæki af fín-
ustu gerð, bar, tvö sjónvörp, mynd-
bandstæki, mjög stórt hjónarúm og
hægt er að stækka svítuna um eitt
svefnherbergi í viðbót. Þar er auðvit-
að rúmgott fataherbergi og baðher-
bergi, góð forstofa og einkaþjónn
ávallt reiðubúinn ef á hann er kallað
til að sinna þörfum gesta.
Michael upplýsir að margir kjósi
að fá morgunverðinn á svalirnar á
morgnana, sérstaklega þegar verið
er að sigla á hlýjum slóðum og þá
þurfi ekki einkaþjón til, slíka þjón-
ustu geti allir pantað. Þegar verið er
að horfa á sjónvarpið eða myndband
er hægt að hringja á þjón og biðja
hann um að koma með poppkorn eða
gosdrykki ef þá vantar á barinn.
Allur matur innifalinn
Þegar við gengum um skipið voru
fáir á ferli enda flestir gestanna í
Bláa lóninu eða að skoða Gullfoss og
Geysi. Í setustofu sátu þó nokkrir og
hlýddu á hörpuslátt fyrir matinn.
Fjórir veitingastaðir eru um borð.
Allur matur er innifalinn í verði ferð-
arinnar og einnig léttvín með mat og
allir óáfengir drykkir í ferðinni. Gest-
ir geta valið sér tvær flöskur af
sterku áfengi en síðan þurfa þeir að
greiða fyrir áfengi umfram það.
Stærsti veitingasalurinn er á fimmta
þilfari skipsins þar sem gengið er um
borð. Þar eru dúkuð borð og þjónað
til borðs og gestir velja matinn af
matseðli og geta þess vegna borðað
átta- eða tíuréttað. Síðan er hægt að
velja léttara fæði eða sérhæfðara eft-
ir óskum hvers og eins og um borð í
þessu skipi sérhæfir eitt veitingahús-
ið sig í Cordon Bleu-matargerð.
Það þarf enginn að láta sér leiðast
um borð því þar er tennisvöllur, æf-
ingasvæði fyrir golfara, næturklúbb-
ur, leikhús þar sem troðið er upp að
minnsta kosti þrisvar í viku, tölvu-
herbergi þar sem hægt er að komast
á Netið, bókasafn og myndbanda-
safn, sundlaug, heitir pottar, tvær
verslanir, leikfimisalur, tækjasalur,
gufubað, snyrtistofa, nuddstofa og
svo framvegis. Meira að segja eru á
sumum göngunum borð með risa-
stórum púsluspilum sem fólk getur
gripið í ef því líst svo á.
Starfsfólkið talar á fjórða tug
tungumála og ég var ekki búin að
ganga lengi um skipið þegar ég
heyrði eina þernuna tala íslensku.
Hún heitir Karolina Johanson og er
sænsk en hafði verið tvö ár á Íslandi
að passa börn.
Langi gesti til að sinna hússtörfum
eru þvottavélar, þurrkarar og strau-
járn á hverri hæð en Michael segir að
margir kjósi líka að láta þvottahús
skipsins sjá um slíkt fyrir sig.
Hann bendir á að gestir þurfi að
velja af kostgæfni herbergi þegar
þeir panta ferð með skemmtiferða-
skipi. „Það getur skipt sköpum hvoru
megin herbergin eru í skipinu upp á
útsýnið á leiðinni,“ segir hann. Um
leið verður mér einmitt litið út um
gluggann og Esjan í öllu sínu veldi
blasir við. Ég sé fyrir mér að þeir
sem séu hinum megin sjái bara
Sundahöfnina úr sínum glugga.
Íslenskir tónlistarmenn um borð
En eru það aðallega ellilífeyrisþeg-
ar sem ferðast með svona skipum?
„Nei síður en svo,“ segir Ingiveig
Gunnarsdóttir framkvæmdastjóri
ferðaskrifstofunnar Emblu. „Hér um
borð eru t.d. allir aldurshópar meðal
gesta. Það er auðvitað aðeins mis-
munandi eftir skipum hvað stendur
til boða í afþreyingu og síðan skiptir
líka máli hvaða áfangastaði á að
skoða á leiðinni en skipafélagið hefur
lagt sig fram um að velja spennandi
og ævintýralega staði til að skoða.
Skipafélagið rekur sjö skip sem taka
frá 180 manns upp í 700 manns og
sigla um öll heimsins höf. Á næsta ári
verða t.d. í boði ýmsar þemaferðir
þar sem kastljósi er t.d. beint að Bítl-
unum, vínsmökkun, matargerð og
fleiru. Þá munu ýmsir þekktir lista-
menn troða upp í skipunum og m.a.
íslenskir tónlistarmenn í einni ferð-
inni með þessu skipi sem verður með
þemað Norræn tónskáld.“
Þegar hún er spurð hvort það sé á
færi almennings að ferðast á 6
stjörnu skemmtiferðaskipi vegna
kostnaðarins segir hún að þetta sé
mun ódýrara en margir haldi.
„Það er til dæmis hægt að fara í
vikusiglingu um Karíbahaf í svítu
með öllu inniföldu frá 130.000 ís-
lenskum krónum. Svo er líka hægt að
komast í 56 daga ævintýrasiglingu
hringinn í kringum Suður-Ameríku
fyrir 1.275.000 krónur og þá með
flugi á fyrsta farrými og öllu inni-
földu.
Um borð í sex stjörnu skemmtiferðaskipinu Seven Seas Navigator
Enginn þarf að láta sér leiðast um borð
Það er skipt um handklæði hjá
gestum þrisvar á dag og búið
um rúmin morgna og kvölds.
Guðbjörg R. Guðmundsdóttir
skoðaði sex stjörnu skemmti-
ferðaskip sem lagðist fyrir
skömmu að bryggju í Sunda-
höfn.
Skipafélagið Radisson Seven
Seas cruises
Vefslóð: www.rssc.com
Ferðaskrifstofan Embla
Vefslóð: www.embla.is
Sími: 511 4080
gudbjorg@mbl.is
Gestir geta fundið sér ýmislegt til dundurs, spilað golf, tennis, farið í leikfimi,
skroppið í nudd eða sund, farið á Netið eða litið í bók, hlustað á fyrirlestra eða
farið í spilavítið.
Stærstu og íburðarmestu svíturnar eru á við meðalstóra íbúð að stærð og
þeim fylgir einkaþjónn ef vill.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Gestir geta valið úr fjórum veitingahúsum til að snæða á en allur matur er inni-
falinn í verði ferðarinnar, þjórfé einnig svo og allt léttvín, óáfengir drykkir og
sterk vín upp að vissu marki.
Minnstu vistarverurnar eru einnig huggulegar og öllum herbergjum fylgir sér
baðherbergi og fataherbergi.