Morgunblaðið - 07.09.2003, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 07.09.2003, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. SEPTEMBER 2003 B 17 bíó Frönskunámskeið hefjast 15. september innritun 1. til 13. september Námskeið fyrir byrjendur og lengra komna. Taltímar og einkatímar. Námskeið fyrir börn. Kennum í fyrirtækjum. Viðskiptafranska. Lagafranska. Nýtt heimilisfang Tryggvagata 8, 101 Reykjavík, fax 562 3820. Veffang: http://af.ismennt.is Netfang: af@ismennt.is Innritun í síma 552 3870 Rannsóknasjóður Umsóknarfrestur 1. nóvember 2003 Rannís Rannsóknamiðstöð Íslands Laugavegi 13, 101 Reykjavík www.rannis.is Vísindasjóður og Tæknisjóður hafa verið sameinaðir undir nafninu Rannsóknasjóður sem verður í umsýslu Rannís, Rannsóknamiðstöðvar Íslands. Hlutverk Rannsóknasjóðs er að styrkja grunnrannsóknir og hagnýtar rannsóknir á Íslandi. Í þeim tilgangi styrkir sjóðurinn skilgreind rannsóknarverkefni einstaklinga, rannsóknarhópa, háskóla, rannsóknastofnana og fyrirtækja. Rannsóknasjóður veitir styrki samkvæmt almennum áherslum Vísinda- og tækniráðs og á grundvelli fag- legs mats á gæðum rannsóknarverkefna, færni þeirra einstaklinga sem stunda rannsóknirnar og aðstöðu þeirra til að sinna verkefninu. Umsóknarfrestur í Rannsóknasjóð verður 1. nóvember 2003. Auglýstir verða til umsóknar þrjár gerðir styrkja. a) Öndvegisstyrkir b) Verkefnisstyrkir c) Rannsóknarstöðustyrkir Ítarlegri upplýsingar um styrkina og umsóknareyðublöð munu liggja frammi á skrifstofu Rannís og vefsetri um miðjan september. SUMUM finnst Donald Sutherland dálítiðófrýnilegur í framan, en ég veit til þessað ýmsum konum, sem nú eru á miðjum aldri, þótti hann á sínum tíma með kynþokka- fyllstu mönnum og löðuðust að honum eins og syndarar að djöflinum. Hann var langur og grannur með ljóshærðan hestshaus, dálítið glaseygður og svolalegur, og þegar hann brosti var eins og að rýtingur birtist undan ermi. En það var og er enn eitthvert heillandi, ískyggilegt blik í bláum augunum. Því var ekki að furða að leikferill hans í bíómynd- unum hæfist í hrollvekjum, nánar tiltekið hinni ítölsku Il Castello dei Morti Vivi (1964) eða Kastali hinna lifandi dauðu; þar gerði hann sér lítið fyrir og lék tvö gjörólík hlut- verk, ungan hermann og gamla kerlingu! Slík- ur leikari hlaut að eiga framtíðina fyrir sér, enda hefur hann bætt við hátt í 130 hlut- verkum á þeim tæpu 40 árum sem liðin eru. Þótt næstu hlutverk yrðu flest í billegum hrollvekjum á borð við Dr. Terror’s House Of Horror og Die! Die! My Darling (báðar 1965) hóf Sutherland ferilinn í gamanleik sem liðs- maður grínistaflokks í Toronto þar sem hann stundaði háskólanám í verkfræði. Hann er Kanadamaður að uppruna, uppalinn á Nova Scotia, og varð snemma upptekinn af skemmtanabransanum. Hann gerðist plötu- snúður á útvarpsstöð aðeins 14 ára að aldri og fyrsta fasta launastaðan var við frétta- mennsku á slíkri stöð. Kynnin af grínleiknum í háskólanum gerðu Sutherland afhuga verk- fræðinni og hann reyndi að komast til náms við tónlistar- og leiklistarakademíu Lundúna (LAMDA) en var hafnað vegna þess hversu stór hann var og skrýtinn í útliti! Þetta lét hann auðvitað ekki bjóða sér og þrjóskaðist við, sótti um og fékk smáhlutverk hjá enskum leikhópum og í sjónvarpssyrpum á borð við The Saint eða Dýrlinginn. Það var þó ekki fyrr en 1967 að Robert Ald- rich nýtti Sutherland skynsamlega í hlutverki illa bilaðs drápsmanns í hasarmyndinni vin- sælu The Dirty Dozen eða Tólf ruddum að ferillinn tók verðskuldaðan kipp. Og enn stærra stökk tók hann 1970 þegar Robert Alt- man fékk Sutherland til að leika þann kostulega herskurðlækni Hawkeye Pierce í stríðssat- írunni MASH, en sú mynd gerði stjörnur úr þeim báðum, honum og Elliott Gould og dugði þeim næsta áratuginn eða svo. Sutherland inn- siglaði stöðu sína árið eftir þegar hann lék tit- ilhlutverkið í spennutrylli Alans Pakula Klute á móti Jane Fonda. Þau Fonda framleiddu, sömdu og leikstýrðu svo saman 1972 harðri ádeilu- mynd á stríðsrekstur Bandaríkjamanna í Ví- etnam, F.T.A., en á þessum árum varð Suther- land eins konar táknmynd nýrrar kynslóðar í Hollywood, hippalegur og róttækur í stjórn- málum og lífsstíl. Hann notfærði sér nýfengna stjörnustöðu til að leika til skiptis í afþreying- armyndum sem líklegar þóttu til vinsælda, t.d. öðrum stríðshasar, Kelly’s Heroes, og svo áhættumeiri verkefnum, eins og Fellini-æfingu Pauls Mazurski Alex in Wonderland, þar sem hann lék kvikmyndaleikstjóra í sköpunar- kreppu, en báðar eru frá árinu 1970. Næstu árin var Sutherland á miklu flugi og lék í allt að sex myndum á ári, en margar fóru nú fyrir lítið. Þær helstu eru: Don’t Look Now (1973), sálfræðileg eða yf- irnáttúruleg - eftir því hvernig á það er litið - spennumynd Nicolas Roeg, þar sem Sutherland og Julie Christie léku í sögufrægri samfarasenu. Þessi mynd er fyrir löngu orðin sígild. Day Of the Locust (1975), Hollywoodádeila Johns Schlesinger eftir sögu Nathanaels West þar sem Sutherland fór á kostum í illmennsku. Árið 1976 lék hann í myndum tveggja ítalskra meistara, 1900 eftir Bernardo Bertolucci og titilhlutverkið í Casanova eftir Federico Fell- ini. Uppúr þessu fer Donald Sutherland smám saman að þokast út í misjafnlega vel valin skapgerðarhlutverk, þar sem hann hefur að mestu starfað síðan. Þar er undanskilinn afar vandaður og óvenju lágstemmdur leikur hans sem faðir og eiginmaður í drama Roberts Red- ford Ordinary People (1980). Þótt oftar en ekki sé myndarprýði af Donald Sutherland er ekki hægt að segja að hann hafi verið sérlega eftirminnilegur lengi. Hann var einna skemmtilegastur í ellismellagríni Clints Eastwood Space Cowboys (2000) og leikur nú einn ellismellinn til viðbótar sem gamall krimmi í hópi fífldjarfra gullræningja í The Italian Job, endurgerð samnefndrar myndar frá 1969. Sutherland er væntanlegur í fjölda mynda á næstunni og hefur nóg að gera. Þannig vill hann hafa það. „Ég vinn mikið því það er nauðsynlegt til að viðhalda lífsneist- anum, rétt eins og að stunda kynlíf,“ segir kappinn í nýlegu viðtali. „Ég ætla því að reyna að vinna fram í andlátið. Þetta er in- dælt líf.“ Og megi hann lifa, vinna og stunda kynlíf sem lengst. Með blik í auga Árni Þórarinsson SVIPMYND Fyrir kvikmyndaáhugafólk af yngri kynslóð er Don- ald Sutherland kannski þekktastur fyrir að vera pabbi Kiefers; það er ekki svo slæmt eins og sá pilt- ur hefur þroskast sem leikari. En fyrir þá eldri er Donald Sutherland einn allra svipsterkasti, hæfi- leikamesti og sérkennilegasti leikari sem náði að verða stjarna á Hollywoodfestingunni þegar andófið gegn stjörnuglansinum réð þar ríkjum á 7. og 8. áratugnum. Og þótt þessi tæplega sjötugi silfur- refur hafi nú vikið á ný fyrir glansinum á miðjunni er yfirleitt gaman að sjá hann leika sér á hliðarlín- unni. Það má gera í spennumyndinni The Italian Job, sem frumsýnd er hérlendis um helgina. hefur leikið hátt í annað hundrað hlutverk en hefur einnig hafnað mörgum tilboðum. Hann iðrast t.d. þess að hafa ekki þegið tilboð Johns Boorman um að leika í sí- gildum óbyggðatrylli hans Deliver- ance og Sams Peckinpah um að leika í hinni umdeildu Straw Dogs. Síðan hefur hann yfirleitt sagt já – til að vera viss um að gera engin mistök. Og einmitt þannig hefur hann gert slatta af mistökum. Reuters Donald Sutherland  SKÁLDSAGAN The Alchemist eða Gullgerð- armaðurinn eftir brasilíska rithöfundinn Paulo Coelho verður nú kvikmynduð undir stjórn Laurence Fishburne, bandaríska leikarans (The Matrix) sem semur hand- ritið og leikstýrir sjálfum sér í aðalhlutverkinu. Coelho hefur staðfest að hann hafi samþykkt handrit Fish- burnes, en í áratug hefur hann hafnað fjölmörgum öðrum atrennum að verkefninu. „Í fyrsta sinn líkaði mér það sem ég las,“ segir hann. Skáldsagan hefur selst í 27 millj- ónum eintaka um heim allan. Ráðgert er að tökur hefjist í árslok í Jórdaníu og auk leikstjórans verða í aðalhlutverkum Jeremy Irons og Madonna, sem verður að teljast djarft val eins og leikafrekum hennar hefur verið tekið undanfarin ár. Fishburne finnur gull Fishburne: Leikstýrir, semur og leikur.  MONTY Python- liðsmaðurinn Terry Gilli- am komst í hóp athyglis- verðustu samtímaleik- stjóra með Brazil, The Fisher King og fleiri frum- legum verkum. Í seinni tíð hefur gengið á afturfót- unum hjá honum og lang- þráð bíótúlkun hans á Don Quixote strandaði í miðjum klíðum, m.a. vegna fjárskorts. Núna er Gilliam kominn á kreik á nýjan leik og er í Prag við tökur á The Brothers Grimm. Ekki er við því að búast að Gilliam geri hefðbundna ævisögu þessara ævintýrahöfunda, sem Matt Damon og Heath Ledger leika, enda er myndinni lýst sem „sögulegri fantasíu“ þar sem þeir bræður eru í álögum. Grimmsbræður í höndum Gilliams Terry Gilliam: Aftur á kreik.  NÓG er að gera hjá Richard Gere. Hann leikur í róm- antísku gamanmyndinni Shall We Dance? undir stjórn breska leikstjórans Peters Chelsom og verður þar ást- fanginn af Jennifer Lopez - eins og fleiri. Eftir það leikur hann titilhlutverkið í sann- sögulegri epískri ævintýra- mynd, Emperor Zehnder, sem fjallar um ljósmyndarann og mörgæsafræðinginn Bruno Zehnder sem frægur er fyrir störf á suðurskautinu. Leikstjóri verður Gregory Hoblit. Gere gerir það gott Richard Gere: Upptekinn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.