Morgunblaðið - 23.11.2003, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. NÓVEMBER 2003 B 5
F
í
t
o
n
F
I
0
0
8
3
0
5 Starf textasmiðs á Fíton er fjölþætt. Viðkomandi þarf að hafa áhuga
á FLESTU SEM TIL ER og geta hugsað sér að skrifa texta um allt, frá
smurolíum og verðbréfaviðskiptum til dýrindis krása, ef svo ber undir.
Gott vald á íslensku máli er að sjálfsögðu skilyrði ásamt því að geta
prófarkalesið skammlaust. Starfið reynir á hæfileika til samstarfs við
aðra og því er sá eiginleiki mikils metinn á Fíton. Reynsla af textaskrifum
eða blaðamennsku æskileg ásamt haldgóðri menntun, t.d. í íslenskum
fræðum.
Hafir þú höfuðið fullt af ferskum hugmyndum og hæfileikann til að
koma þeim frá þér á blað ertu eindregið hvattur/hvött til að sækja um
starfið.
Vanur textasmiður óskast á Fíton!
Þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Fíton ehf. – hönnun og auglýsingar · Garðastræti 37 · 101 Reykjavík · Sími 595 3600 · www.fiton.is
Anna Sigríður á Fíton veitir nánari upplýsingar ef þörf krefur.
Vinsamlegast sendið umsókn fyrir föstudaginn 28. nóvember,
gjarna með mynd, til:
Fíton, Garðastræti 37, 101 Reykjavík, merkt Texti!