Morgunblaðið - 23.11.2003, Page 26
26 | 23.11.2003
Kínverskur faxhundur
flaðrar upp um eiganda
sinn í von um góðgæti.
Hundurinn er kallaður
Beckham og dregur nafn
sitt af hártoppnum.
Basenji-hundar eru
óvenjulegir í útliti og at-
gervi. Þeir gelta aldrei,
en gefa frá sér hávært
og einkennilegt jóðl. Þó
þeir séu heldur smá-
vaxnir er töggur í þeim,
enda talsvert skyldir afr-
ískum villihundum.
Minnsti hundur
heims, chiuhuahua,
mesíkóskur smáhundur.
SAGA HUNDANNA ER RAKIN ÓRALANGT AFTUR Í TÍMANN.
OKKUR ER SAGT AÐ FYRIR UM 60 MILLJÓNUM ÁRA HAFI
LÍTIÐ SPENDÝR LIFAÐ Í VILLTUM SKÓGUM ÞESS TÍMA, LÍKT
HREYSIKETTI EÐA DÝRI AF MARÐARTEGUND. ÞAÐ BER
NAFNIÐ MIACIS OG VAR SPENDÝR MEÐ FLATAR ILJAR Á
FÓTUM, EN JAFNFRAMT ÞÓFA OG KLÆR, OG GAT HLAUPIÐ
OG KLIFRAÐ EITTHVAÐ LÍKT OG KETTIR NÚTÍMANS. FRÁ
MIACIS EIGA AÐ HAFA ÞRÓAST HUNDAR, ÚLFAR, SJAKALAR,
REFIR OG LÍKLEGA FLESTAR KJÖTÆTUR Í HÓPI SPENDÝRA.
ÚR HUNDABÓKINNI OKKAR. MUNINN BÓKAÚTGÁFA 2000.
Stórir verðlaunagripir
fyrir pínulitla hunda.