Vísir - 01.11.1980, Blaðsíða 1
STÚRKOSTLEG GETRAUN Á 70 ÁRA AFMÆU VISIS:
Sumarbi ústaöur og tveir bílar
eru vini lingar í getraun Vísis
• Verðmæti vinninga um 25 miilj. kr.
Visir hleypir i dag af stokkunum glæsiiegri getraun fyrir áskrif-
I endur sina, sem allir núverandi og nýir áskrifendur geta tekiö þátt I
■ —og taka vonandi þátt i, þvi aö til mikils er aö vinna. Tilefniö er 70
ára afmæli blaösins I desembermánuöi nk.
Jafnframt vill Visir nota þetta tækifæri til þess aö kynna stærra
■ og betra blað fyrir sem flestum nýjum lesendum, en eins og lesend-
um blaðsins er kunnugt, er nýbúiö aö stækka blaðið og gera efnis-
valið fjölbreyttara.
Vinningarnir I „afmælisgetraun Visis” eru þrlr, hver öörum álit-
legri: bill af geröinni Mitsubishi Colt, annar japanskur smábíll, sem
■ ekki er enn kominn á markaö hér á landi, og loks 40 ferm. sumarbú-
staður. Samtals er verömæti vinninganna um 25 milljónir króna og
I er vist óhætt aö fullyrða, aö hér er á ferðinni glæsilegasti getrauna-
leikur, sem nokkurt blaö hér á landi hefur efnt til fyrir lesendur
5 sina.
Fyrirkomulagið
Afmælisgetrauninni veröur
hagað þannig, að einn get-
raunarseðill verður i blaðinu i
hverjum mánuði frá nóvember
' fram i mai, og er fyrsti
getraunaseðillinn á bls. 2 i þess-
um hluta blaðsins i dag.
Getraununum verður þannig
háttað, að þær verða auðveldar
úrlausnar fyrir alla lesendur
Visis. I fyrsta skipti verður svo
dregið 30. janúar. Þá verður
dregið úr réttum getraunarseðl-
um fyrir nóvember og desem-
ber og janúar, þannig að allir
núverandi áskrifendur og þeir,
sem nú gerast áskrifendur geta,
átt þrjá seðla i pottinum. Næst
verður svo dregið 31. mars nk.,
og þá verður dregið úr öllum
réttum úrlausnum, sem þá hafa
borist, það er að segja frá
nóvember-mars, svo að þá get-
ur hver áskrifandi átt 5 seðla i
pottinum. Siðasti vinningurinn
verður svo dreginn út 29. mai
n.k. Þá verður dregið úr réttum
úrlausnum frá nóvember til
mai. Það þýðir að þá geta veriö
7 seðlar i pottinum frá þeim
áskrifendum, sem áhugasam-
astir eru og hafa verið þátttak-
endur frá byrjun.
Hverjir geta tekið
þátt?
Þátttakendur i getrauninni
geta verið allir áskrifendur VIs-
is, eins og áður sagði, bæði nú-
verandi áskrifendur og eins nýir
áskrifendur, og það skilyrði eitt
er sett, að áskrifendur séu
skuldlausir, þegar útdráttur
vinninga fer fram. Vinnings-
möguleikarnir eru þeim mun
meiri, sem menn taka lengur
þátt i afmælisgetrauninni, þar
sem I hvert skipti er dregið úr
öllum réttum svarseðlum sem
komnir eru fram að þvi. Það er
þvi um að gera fyrir þá, sem
ekki eru þegar áskrifendur að
Visi, að gerast það sem fyrst.
Askriftarsiminn er 86611.
Starfsmenn Visis og nánasta
skyldulið þeirra hefur ekki rétt
til þátttöku i getrauninni.
Vinningarnir
Mitsubishi Colt frá Heklu hf.
verður dreginn út 30. janúar.
Þetta er einn vinsælasti billinn
hér á landi i dag. Rúmgóður 5
manna bill, lipur i akstri, fram-
hjóladrifinn og sparneytinn á
eldsneyti. Vinningsbillinn er 5
dyra og þessi gerð af Colt kostar
6.6 millj. kr.
Nýr japanskur smábill verður
dreginn út 31. mars. Enn hvilir
dálitil leynd yfir þessum vinn-
ingi, þvi að billinn hefur ekki
enn verið kynntur á islenskum
markaði, en hulunni verður
svipt af honum á næstunni. ,, Sá
nýjasti, sá ódýrasti og sá spar-
neytnasti frá Japan”, segir
islenski innflytjandinn um
þennan bil.
Sumarbústaöur frá Húsa-
smiðjunni hf. verður svo dreg-
inn út 29. mai nk., og er þetta
stærsti vinningurinn, að verð-
mæti 13 milljónir króna.
Bústaðurinn verður með eld-
húsinnréttingu og uppsettur,
þar á landinu sem óskað verður
en landið undir hann leggur
vinningshafinn til sjálfur. Þetta
er stór og rúmgóður bústaður,
40 ferm., stofa, tvö herbergi,
eldhús, baðherbergi og
geymsla, allur panelklæddur að
innan.
Af þessu ætti að sjást, að til
mikils er að vinna i þessari
glæsilegu afmælisgetraun fyrir
áskrifendur Visis.
r
i
i
i
i
i
i
■ Nóvemberseðill áskrifenda-
■ getraunar Visis er birtur I
| þessu blaöi, nánar tiltekiö á
I
blaösiöu tvö. Þetta er fyrsti
J hluti getraunarinnar og eins
J og kemur fram I kynningunni
J hér á siöunni eru vinningslik-
J urnar mestar ef menn eru
J þátttakendur frá byrjun.
I Þeir lesendur, sem ekki eru
mm mm mm tmmmm m—mmmm mm mm mm mm mm m
þegar áskrifendur aö blaöinu
geta annaö hvort krossaö i
sérstakan reit á seölinum og
óskaö þannig eftir áskrift eöa
hringt strax I sima 86611.
Nánari skýringar og get-
raunaseöiilinn munu birtast
ykkur ef þiö flettiö yfir á næstu
siöu.
Vinningur30. janúar: Mitsubishi Colt, að verðmæti 6.6 milljónir króna.
Vinningur 31. mars: Nýr japanskur smábíll, sem enn er ekki kominn hér á markað.
Vinningur29. maí: Sumarbústaður frá Húsasmiðjunni h.f.
aðverðmæti 13 milljónir króna.
*
í