Vísir - 20.01.1981, Page 17
Þí48ju‘dargruff 201.- ja'nu&Ý;’í 98l.
51. þáttur. Umsjón:
Háitdán Helgason.
HeímsÞing
frímerkiasafnara
Svo sem fram kom hér i þætt-
inum fyrr i vetur varhaldið þing
Alþjóðasamtaka frimerkjasafn-
ara (FIP) i Essen i Vestur-
býskalandi. Þing þetta, sem var
hið 49. i röðinni, var allfjöl-
mennt en alls sóttu það fulltrúar
frá 53aðildarþjóðum. Af íslands
hálfu sátu þingið þeir Sigurður
R. Pétursson, formaður Land-
sambands islenskra frimerkja-
safnara og Sigurður H. Þor-
steinsson, en hann var formaður
L.I.F. um margra ára skeið og
kunnugur þingum sem þessu.
Á þinginu voru málefni sam-
takanna tekin til gagngerrar
endurskoðunar og m.a. var til-
laga samþykkt eftir langar um-
ræður sem lögð var fram af full-
trúum hollenska landsam-
bandsins, en hún fól i sér veru-
legar breytingar á uppbyggingu
stjórnarinnar.
A þinginu var kjörinn nýr for-
seti samtakanna. Ladislav
Dvoracek frá Tékkóslóvakiu en
hann hafði verið varaforseti allt
frá árinu 1971. Auk þess hefur
hann verið dómari á mörgum
alþjóðlegum sýningum og fram-
kvæmdarstjóri var hann fyrir
alþjóðasýninguna PRAGA 68,
sem haldin var i Tékkóslóvakiu
árið 1968. Norðurlöndin eiga nú
einn af þremur varaforsetum
FIP, þvi á þinginu i Essen var
George B. Lindberg, forseti
sænska landsambandsins, val-
inn til þess embættis auk þeirra
J. D.Voss frá Bandarikjunum
og S. Ichida frá Japan. A þing-
inu var einnig ákveðið að aðal-
skrifstofur samtakanna verði
framvegis I Sviss og i stað
frönsku verði ensk tunga hið
opinbera mál samtakanna.
Innan vébanda Alþjóðasam-
taka frimerkjasafnara eru
starfandi allmargar nefndir,
reyndar eru þær 10 talsins og
sinnir hver sinu ákveðna sér-
Fulltrúar tslands á þinginu I Essen. Sigurður Pétursson, formaður
LtF og Sigurður Þorsteinsson fyrrverandi formaður.
sviði. Þar er m.a. nefnd um
hefðbundna söfnun, nefnd um
mótifsöfnun, póstsögu einnig
unglinganefnd og bókmennta-
nefnd svo eitthvað sé nefnt.
Þessar nefndir starfa allar
mjög mikið og má segja að i
þeim fari fram það starf sem
snýr að söfnurum.
Á þinginu hlutu aðild að sam-
tökunum 6 þjóðlönd en þau eru:
Saudi Arabia, Zaire, Siam,
Malasia, Perú og Nýja Sjáland
en ákvarðanatöku varðandi að-
ild Ástraliu var frestað til þings-
ins, sem haldið verður i Vinar-
borg nú i sumar. Hins vegar
óskaði Guatemala að ganga úr
samtökunum af ástæðum, sem
mér eru ekki kunnar. Sam-
kvæmt þessu ættu þvi 60 þjóðir
að vera aðilar að samtökunum.
Fram hefur komið hjá full-
trúum þeim, sem þingið sátu af
Islands hálfu, að framkvæmd
öll og skipulag varðandi þingið
hafi verið óaðfinnanlegt en þau
mál voru i höndum
vestur-þýska landsambands-
ins sem naut stuönings póst-
stjórnarinnar i ýmsum málum.
Vestur-þýska landsambandið
bar einnig allan kostnað af þing-
haldinu, sem trúlega vex mönn-
um hér nokkuð i augum en hann
er sagður hafa numið 500000
mörkum eða 1,5 milljónum ný-
króna. Kostnaður þessi var tek-
inn úr sjóði, sem er til styrktar
starfsemi frimerkjasafnara og
færaðaltekjur sinar af umfram-
burðargjaldi þeirra frimerkja,
sem gefin eru út á Degi fri-
merkisins i Þýskalandi. Mun
þar vera um svipað fyrirkomu-
lag að ræða og við þekkjum frá
Sviþjóð og fyrirfinnst reyndar i
fleiri löndum. Það eru sem sé
fyrst og fremst safnararnir
sjálfir sem styrkja sin eigin
samtök og um leið fá póst-
stjórnir ómældan hagnað i sinn
hlut.
Smælki
Eitthvað hafa þeir i smárik-
inu Andorra undarlegar hug-
myndir um sumarólympiuleik-
ana þvi á siðastliðnu sumri gáfu
þeir út frimerki i tilefni af
Moskvuleikunum og var mynd-
in af skiðamanni. Ef mér skjátl-
ast ekki er þar á ferðinni brun-
meistari mikill en hvort hann
hefur haft erindi sem erfiði á
leikunum er mér ekki kunnugt
um. Nú, þetta rifjar upp að i til-
efni af sumarólympiuleikunum i
Montreal i Kanada árið 1976
gáfu þeir i Andorra út tvö merki
og sýndi annað þeirra skiða-
mann. Nú biður maður bara
eftir þvi að fá frá þeim frimerki
með stangarstökkvara þegar
næstu vetrarólympiuleikar
verða haldnir.
Þann 10. október s.l. gáfu
Bretar út fjögur iþróttafrimerki
i verögildunum 12,13.5 15 og 17.5
pence. Sýna þáU öll nema eitt
(hlauparar) iþróttir sem flest-
um íslendingum eru allsendis
ókunnar en þær eru rugby-
knattleikur, hnefaleikar og
krikket. Og frá Finnlandi berast
þær fréttir að 2. janúar hafi
komið út bréfspjald með
áprentuðu verðgildi 1.00 marks i
tilefni af væntanlegri norrænni
sýningu i Helsingfors. Hefur sú
sýning hlotið nafnið NORDIA
1981 og hefur litillega verið
minnst á hana hér i þættinum en
verður væntanlega meira siðar.
iwmi i«M(i«n«f •••!•••• • «|
; ■ MOSCU 1980
co
: y
CORRFl K
PRINCIPAT D'ANDORRA \
litnaioauRfi
Frímerki
íslensk og erlend,
notuð, ónotuð og umslög
Albúm, tcuigir, stœkkunar-
gler o.fl. ávallt fyrirliggjandi.
Póstsendum.
FRUÍERIOAIilÐtTOÐIN
SKÓLAVÖROUSTÍG 21A, PÓSTHÓLF 78, 121 RVK. SfMI 21170