Vísir - 20.01.1981, Qupperneq 19
■
..Gefid
Cliff Richard er nú fert-
ugur og á meiri velgengni
að fagna en nokkru sinni
fyrr.
Ummæli söngvarans
Cliff Richard um kynvillu i
viðtali við breskt blað nú
nýverið hefur vakið tals-
verða athygli þar í landi og
þykir söngvarinn vera
venju fremur opinskár og
fjalla um málefnið af
meiri hreinskilni en menn
hafa átt að venjast af hon-
um fram til þessa.
Er þetta þeim mun athyglis-
veröara, þar sem Cliff hefur
byggt frama sinn á þvi að vera
imynd hins vammlausa manns i
huga almennings og lagt áherslu
á að forðast neikvætt umtal. Hins
vegar hefur ekki farið hjá þvi að
lengi hefur orðrómur veriö á
kreiki um aö Cliff sé og hafi lengi
verið „hýr” eins og það er nú
kallað.
Cliff er þekktur fyrir áhuga
sinn á trúmálum og kristindómi
og ósjaldan hefur hann haldið
hljómleika til stuönings kristinni
kirkju og hann hefur lengi haft
góða samvinnu við prédikarann
Billy Graham i þeim efnum. Það
aftrar honum þó ekki frá þvi að
gagnrýna kirkjuna vegna afstöðu
hennar til kynvillu og i áöur-
greindu viötali segir Cliff m.a.:
— „Ég held aö hin neikvæða af-
staða kirkjunnar til kynvillu þjóni
engum tilgangi og sé röng. Að
minum dómi á kirkjan að reyna
að skilja þetta vandamál og jafn-
vel viðurkenna kyn-
villu”, — segir Cliff. — „Það er
jú staðreynd að kynvillingar eru
um allan heim og kirkjan á ekki
aö loka dyrum sinum fyrir þess-
um mönnum”.
I viðtalinu er ekki farið inn á
persónuleg mál söngvarans i
þessum efnum og hann hvorki
viöurkennir né ber á móti þeim
orörómi aö hann sjálfur sé „hýr”.
Hins vegar leggur hann mikla
áherslu á, aö menn almennt liti
meö skilningi á vandamál kyn-
villinga og samkvæmt skilningi
Cliffsá notkun orðsins „kynvilla”
ekki við i þessu sambandi.
Cliff, sem nú stendur á fertugu,
á meiri velgengni að fagna en
nokkru sinni fyrr. Hann hefur nú
loksins brotið sér leið inn á
Bandarikjamarkað, meö hjálp
vinkonu sinnar Olaviu Newton-
John. Hann virðist i góður likam-
legu og andlegu jafnvægi og litur
út fyrir að vera mun yngri en
hann er. Um ástæðuna fyrir þessu
segir Cliff m.a.:
„Ég hef aldrei notað fikniefni,
áfengi eða tóbak til að krydda til-
veru mina. Ef þú stendur með
lappirnar á jörðinni þarft þú ekki
á þess konar meðulum aö halda.
Ef til vill hefur kirkjan og trúar-
brögöin komið i staðinn fyrir
þetta hjá mér. Ég hef lika passaö
mig á að taka mig ekki of hátið-
lega og reynt að lifa eðlilegu lifi.
Um aldurinn getég sagt þaö, aö
aldur er aðeins spurning um
hugarfar. Ég var 39 ára gamall
þegar ég sendi frá mér mitt vin-
sælasta lag til þessa „We Don’t
Talk Any More” og náði viður-
kenningu i Ameriku. Mér datt
aldrei i hug að ég ætti annaö eins
, eftir”.
Aðspurður hvort hann gæti
hugsað sér að setjast að i Banda-
rikjunum svaraði hann: — „Ég
efast um það. I augnablikinu
stefnir hugur minn að þvi að gera
góða rokkóperu og setja hana á
svið i West End i London. Ég er
orðinn of rótgróinn i Englandi til
að breyta til”.
'Mritrhstfí
tækiffæri”
segir Cliff
Richard, sem
gagnrynir
kirkjuna
fyrir
þröng-
Varúö
Pað eru fleiri sem
stunda tennis en
Karólina prinsessa i
hinum hringnum. Hér
er ameriska tennisleik-
konan Betty Ann Stuart
á fullu i Wimbledon
keppninni frægu. Hún
hefur látió prenta
varnaðarorð á buxur
sinar aftanverðar og
stendur þar,, Watch
it” sem gæti út- ,
lagst: ..Passið
vkkur....”
syni
,/Kirkjan á að reyna að
skilja þessa menn og jafn-
vel viðurkenna homosexu-
alisma", — segir Cliff i
viðtalinu.
hommum