Morgunblaðið - 23.12.2003, Síða 1
Íhaldssemin
lifir
Margir halda fast í gamlar hefðir á
jólunum | Daglegt líf
STOFNAÐ 1913 348. TBL. 91. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 23. DESEMBER 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Bækur
Saga af sjálfstæði Súperamma
fer á flug Ljós í dagsins önn
Lífsháski, kærleikur og ljóð
Breytir
ímynd sinni
Gaddafi Líbýuleiðtogi kemur
enn og aftur á óvart | Erlent
HANDTAKA Saddams Husseins
hefur lítil sem engin áhrif haft á vin-
sældir George W. Bush Bandaríkja-
forseta meðal landa hans, en þær eru
nú með minnsta móti frá því hann
tók við embætti í janúar 2001.
Kemur þetta fram í niðurstöðum
nýrrar viðhorfskönnunar, sem gerð
var af The Harris Poll bæði fyrir og
eftir að tilkynnt var um handtöku
Saddams 14. desember. Eina breyt-
ingin sem varð á afstöðu fólks til
frammistöðu Bush í embætti var sú
að fyrir handtökuna, dagana 10.–13.
desember, sögðust 48% aðspurðra
hafa jákvætt mat á verkum forset-
ans, en 51% neikvætt. Eftir handtök-
una, dagana 14.–16. desember, sögð-
ust hins vegar 50% hafa jákvæða
afstöðu en 49% neikvæða. Á þeim
þremur árum sem Bush hefur gegnt
embætti hefur hlutfall þeirra sem
hafa neikvætt mat á frammistöðu
hans aldrei mælzt hærra.
Handtaka Saddams virðist aftur á
móti hafa breytt töluverðu um mat
bandarískra kjósenda á varnarmála-
ráðherranum Donald Rumsfeld og
dómsmálaráðherranum John Ash-
croft. Hlutfall þeirra sem kváðust
hafa jákvæða afstöðu til Rumsfelds
hækkaði úr 47% í 57% og Ashcrofts
úr 41% í 51%. Vikmörk eru 3%.
Óbreytt álit á Bush
New York. AFP.
KÍNVERSK stjórnvöld boðuðu í gær
breytingar á stjórnarskrá Alþýðulýðveld-
isins, sem meðal annars fela í sér að vernd
einkaeignarréttar verði stjórnarskrár-
bundin. Þar með stígur Kínastjórn stórt
skref í þá átt að lög-
binda helztu hornsteina
hins kapítalíska mark-
aðshagkerfis sem
grundvöll fyrir hag-
kerfi stærsta kommún-
istaríkis heims.
Stjórnarskrárbreyt-
ingatillögurnar, sem
áður höfðu verið sam-
þykktar af flokksstjórn
Kommúnistaflokksins,
voru í gær lagðar fyrir
kínverska þjóðþingið, en samþykkt þeirra
þar má heita að sé lítið annað en forms-
atriði.
Forystumenn Kommúnistaflokksins
hafa þegar sagt að nauðsynlegt sé að
tryggja einkaeignarréttinn til að skjóta
frekari stoðum undir þær efnahagslegu
umbætur sem stjórnvöld hafa verið að
vinna að á síðustu árum og stuðlað hafa að
því að milljónum Kínverja hefur tekizt að
vinna sig upp úr örbirgð í álnir.
Flokksforystan lagði ennfremur fyrir
þingið tillögu um að í stjórnarskrána verði
bundnar kenningar Jiangs Zemin, fyrrver-
andi flokksleiðtoga, um að kapítalistar séu
velkomnir til liðs við Kommúnistaflokkinn.
Slíkar breytingar á grundvallarlöggjöf
Kína munu laga hana að þeim markaðs-
vædda raunveruleika sem við blasir í land-
inu eftir umbætur síðustu ára.
Einkaeign
í stjórnar-
skrá Kína
Peking. AP, AFP.
Wen Jiabao
forsætisráðherra
TVEIR menn létu lífið og þess þriðja var
saknað þegar hús í bænum Paso Robles í
Mið-Kaliforníu hrundi í sterkum jarð-
skjálfta í gær. Mældist skjálftinn 6,5 stig á
Richters-kvarða og er sá sterkasti sem
mælzt hefur á svæðinu í mörg ár.
Húsið sem hrundi var tveggja hæða og
hýsti skartgripaverzlun í miðbæ Paso
Robles, en skjálftamiðjan var í um 57 km
fjarlægð þaðan. Skjálftans varð vart víða,
eða allt til Los Angeles í suðri og San
Francisco í norðri, en um 250 km eru til
beggja borga frá upptökum hans.
Jarðskjálfti
í Kaliforníu
Los Angeles, Cambria. AP, AFP.
LEIKFÖNG eru ofarlega á óskalist-
um flestra ef ekki allra barna fyrir
jólin. Það skiptir engu máli hvort
börnin búa á slóðum jólasveinsins
við Norðurpól eða á eyju við mið-
baug, allir hlakka mikið til jólanna
og vona að jólasveinninn, eða pabbi
og mamma, uppfylli óskir þeirra.
Í Garðheimum er jólalegt um að
litast á þessum árstíma og þar
brunar lest, sem er mjög raunveru-
leg í augum barnanna, hring eftir
hring. Það er auðvelt að gleyma
sér, horfa á lestina og láta sig
dreyma um eina slíka í jólapakk-
ann. Það er líka sjálfur sveinki sem
stýrir lestinni og hver veit nema
hann aki henni beinustu leið undir
jólatréð hjá einhverju barninu.Morgunblaðið/Eggert
Jóla-
sveinn-
inn ræð-
ur för
JÓN G. Tómasson, formaður
stjórnar Sparisjóðs Reykjavíkur
og nágrennis, segir að samkvæmt
áformum um kaup Kaupþings
Búnaðarbanka á SPRON bjóðist
stofnfjáreigendum að selja hluti
sína á ívið hærra gengi en reynt
var í stofnfjárviðskiptunum sumar-
ið 2002. Þegar yfir lauk það sum-
arið höfðu fimmmenningarnir á
vegum Búnaðarbankans annars
vegar og Starfsmannasjóður
SPRON hins vegar gert stofnfjár-
eigendum tilboð um að kaupa bréf
þeirra á genginu 5,5. Kaupþing
Búnaðarbanki hyggst hins vegar
bjóða þeim að kaupa hlutabréf
þeirra í SPRON hf. á gengi sem
samsvarar 5,54 á fjárhæð stofn-
fjárbréfa. Eru það samtals tæp-
lega þrír milljarðar að sögn Jóns.
Verði SPRON breytt í hluta-
félag munu allir stofnfjáreigendur
SPRON, sem eru um 1.100, skipa
fulltrúaráð sjálfseignarstofnunar-
sjóðs sem verður til við breyt-
inguna, skv. ákvæðum laga um
fjármálafyrirtæki. Þeir hafa rétt á
því að vera í fulltrúaráðinu til ævi-
loka. Verðmæti sjóðsins er um sex
milljarðar. Verður sjóðurinn þriðji
stærsti hluthafinn í Kaupþingi
Búnaðarbanka, gangi áætlanir eft-
ir, og þar með á hann rétt á einum
manni í stjórn bankans. Kom fram
á blaðamannafundi SPRON í gær
að áætlað væri að á annað hundrað
milljónum króna yrði varið árlega
úr sjóðnum til menningar- og líkn-
armála.
Bjarni Ármannsson, forstjóri Ís-
landsbanka, segir að viðbrögð
bankans við kaupum Kaupþings
Búnaðarbanka á SPRON verði
fyrst og fremst að nýta þau sókn-
arfæri sem þetta skapar. Spurður
hvort Íslandsbanki sé farinn að
ræða við aðra sparisjóði um svipaða
hluti segist Bjarni ekki geta tjáð sig
um það en áhugi sé fyrir hendi af
hálfu Íslandsbanka.
„Við í Landsbankanum erum
mjög ánægð með að sjá aukinn vilja
hjá stjórnendum sparisjóða til að
breyta sjóðunum í hlutafélög og
gera þeim kleift að taka þátt í hag-
ræðingu á fjármálamarkaði með því
að taka upp samstarf við viðskipta-
banka,“ segir Halldór J. Kristjáns-
son, bankastjóri Landsbanka Ís-
lands. „Við erum þeirrar skoðunar
að það muni tryggja best hagsmuni
viðskiptavina, stofnfjáreigenda og
starfsfólks sparisjóðanna að breyta
félagaforminu og taka upp eigna-
legt samstarf við eða sameinast við-
skiptabanka.“
Halldór telur að möguleikar séu
á samstarfi fleiri sparisjóða við ein-
hverja af viðskiptabönkunum.
Hægt sé að styrkja forsendur
sparisjóðanna svæðisbundið og
Landsbankinn hafi lýst yfir áhuga á
að taka þátt í slíku samstarfi í góðri
sátt við stofnfjáreigendur, starfs-
fólk og viðskiptavini á hverjum
stað.
Stofnfjáreigendum SPRON
boðið hærra verð en í fyrra
!
" #
$
%
&'()*&+
,')&+-
'-+),(*
*--),&(
.
!
/
0!
.
!
*(1)&2,
,')&,-
'&3)1*-
,1()''*
+&')+&-
*+)-(1
'2()-3&
*,')(3(
+*)*3+
*)22(
,()32*
*+)&'+
4
5 67
Salan á SPRON/10/11/12/32
Leiðari/12
♦ ♦ ♦