Morgunblaðið - 23.12.2003, Blaðsíða 10
FRÉTTIR
10 ÞRIÐJUDAGUR 23. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
GUÐMUNDUR Hauksson, spari-
sjóðsstjóri SPRON, segist sjá mörg
tækifæri til sóknar í kjölfar þess að
SPRON verður hluti af samstæðu
Kaupþings Búnaðarbanka. „Hag-
ræðingin af þessari sameiningu mun
því koma fram í auknum tekjum án
þess að útgjöld muni endilega fylgja
á eftir. Ljóst er jafnframt að ýmis
tækifæri myndast til að hagræða í
rekstrinum,“ segir Guðmundur.
Hann segir að ekki sé gert ráð
fyrir fækkun starfsfólks vegna hins
breytta eignarhalds. Ýmsar leiðir
verði hins vegar skoðaðar til hag-
ræðingar, svo sem með auknum um-
svifum án nýráðninga, hugsanlegum
tilfærslum á milli starfsstöðva og
starfssviða o.fl.
Guðmundur Hauksson,
sparisjóðsstjóri SPRON
Ýmis tæki-
færi til
sóknar
ÁGÚSTA Ástráðsdóttir, formaður
félags starfsmanna Sparisjóðs
Reykjavíkur og nágrennis, segir
starfsmenn taka almennt vel í þær
breytingar sem framundan eru hjá
SPRON. Um 160 starfsmenn eru í
starfsmannafélaginu. Stjórnendur
SPRON gerðu starfsmönnum
grein fyrir fyrirhuguðum kaupum
Kaupþings Búnaðarbanka á
SPRON á fundi snemma í gær-
morgun.
„Það átti að tilkynna okkur
þetta áður en þetta færi í fjöl-
miðla, en það er víst þannig að
þjóð veit er þrír vita,“ útskýrir
Ágústa. Hún segir að flestir hafi
því vitað tíðindin áður en á fund-
inn var komið. Hún ítrekar að við-
brögð starfsmannanna hafi al-
mennt verið jákvæð. Engar
uppsagnir hafi verið boðaðar en
einhverjir starfsmenn kynnu þó að
verða færðir til í starfi. „Það er
um að gera að vera jákvæður.
Þessar breytingar eiga sér stað
hvort sem okkur líkar betur eða
verr.“ Hún segir að málin hafi
verið mjög vel útskýrð á fundinum
og segir starfsmenn treysta
stjórnendum SPRON mjög vel.
„Starfsmennirnir eru einnig
fegnir því að stofnfjármálin séu
leyst. Það er kominn farsæll endir
á það hvernig hægt er að selja
bréfin og fá gott verð fyrir þau.“
Hún bætir því við að nú geti
starfsmennirnir farið að einblína á
viðskiptavinina og hvað best sé
fyrir þá.
Formaður starfsmanna-
félags SPRON
Starfsmenn
taka tíðind-
unum vel
BJARNI Ármannsson, forstjóri
Íslandsbanka, segir að það hafi
lengi verið skoðun Íslandsbanka
að bankakerfið hér á landi þurfi
hagræðingar við. Hann líti á þetta
sem fyrsta skrefið á lengriferli og
bankinn fagni þeirri þróun.
Hann segir áhrifin væntanlega
verða þau að einhverjir aðrir
sparisjóðir muni leita sömu leiða
og SPRON hafi ákveðið að fara.
Ef Fjármálaeftirlitið heimili þessa
eignatilfærslu sé líklegt að afleið-
ingarnar verði víðtækar.
Spurður að því hvort Íslands-
banki hafi átt í viðræðum við
sparisjóði um slík kaup, segir
Bjarni að bankanum hafi verið
boðið að skila inn hugmyndum til
SPRON um framtíðarrekstur
sparisjóðsins og bankinn hafi gert
það ásamt fleiri bönkum. Stjórn
sparisjóðsins hafi ákveðið að
ganga til samstarfs við Kaupþing
Búnaðarbanka og Íslandsbanki
hafi ekkert um það að segja annað
en að bankinn treysti því að það
sé vegna þess að Kaupþing Bún-
aðarbanki hafi boðið best.
Hann segir að viðbrögð Íslands-
banka verði fyrst og fremst að
nýta þau sóknarfæri sem þetta
skapar og bjóða nýja viðskiptavini
velkomna í hóp þeirra sem vilja
njóta þjónustu Íslandsbanka.
Spurður að því hvort Íslandsbanki
sé farinn að ræða við aðra spari-
sjóði um svipaða hluti segist
Bjarni ekki geta tjáð sig um það.
Áhugi sé fyrir hendi af hálfu Ís-
landsbanka.
Bjarni Ármannsson,
forstjóri Íslandsbanka
Fyrsta
skrefið á
lengra ferli
„ÞETTA mál er í raun ekki á mínu
borði, heldur eru þetta hlutir sem
eru að gerast úti á markaðinum.
Hins vegar get ég sagt að mér
finnst allt annar svipur á þessu
heldur en var í fyrrasumar. Þarna
virðist vera samvinna um málið á
milli Kaupþings Búnaðarbnaka og
SPRON og ekki annað að sjá en
það sé samstaða hjá stjórn SPRON
að vilja láta þetta ganga eftir. Það
finnst mér vera mikið atriði,“ segir
Valgerður Sverrisdóttir iðnaðar- og
viðskiptaráðherra.
Hún segir það hafa verið viðbúið
að dregið gæti til tíðinda í mál-
efnum sparisjóðanna í kjölfar
breytinga á lögum um þá. „Eftir að
Fjármálaeftirlitið gaf þann úrskurð
að það væri heimilt að selja stofn-
fjárbréf á yfirverði þá var nokkuð
ljóst að það gæti dregið til tíðinda.
Þótt sú lagasetning sem átti sér
stað í fyrra, hafi gengið nokkuð
langt í að „verja“ sparisjóðina, ef
svo má segja, þá verður það auðvit-
að ekki tryggt af hálfu löggjafans
hvað varðar rekstrarform og rekst-
ur ef stofnfjáreigendur eru sam-
mála um að vilja breytingar. Eins
þegar lögin voru sett um að heimila
hlutafjárvæðingu þá er þar gefin
ákveðin leið til þess að breyta
sparisjóðunum,“ segir Valgerður
Sverrisdóttir.
Valgerður Sverrisdóttir,
viðskiptaráðherra
Allt annar
svipur á
þessu
samstarfi
ÁFORM um að SPRON verði hluti
af samstæðu Kaupþings Bún-
aðarbanka eru í samræmi við þá
stefnu sem mörkuð var við samein-
ingu Kaupþings og Búnaðarbanka,
að sögn Hreiðars Más Sigurðssonar,
forstjóra bankans. Hann segir að þá
hafi því verið lýst yfir að ætlunin
væri að efla viðskiptabankaþáttinn í
starfsemi hins sameinaða banka.
Kaupþing Búnaðarbanki sé minnst-
ur viðskiptabankanna þriggja í ein-
staklingsviðskiptum en bankinn efl-
ist töluvert með því að SPRON verði
hluti af samstæðu bankans.
„Nákvæm útfærsla á sameining-
unni liggur ekki fyrir, en ekki er
gert ráð fyrir því að breytingar verði
í starfsmannahaldi Kaupþings Bún-
aðarbanka í kjölfar þessa.“
Spurður hvort Kaupþing Bún-
aðarbanki sé að kaupa SPRON fyrir
of hátt verð í ljósi þess að tilboð
bankans hafi verið umtalsvert hærra
en tilboð Landsbanka og Íslands-
banka segist Hreiðar Már telja verð-
ið töluvert hátt. „Það er hins vegar
vel réttlætanlegt miðað við þau sam-
legðaráhrif sem hægt er að ná út úr
rekstrinum. Stjórnendur Kaupþings
Búnaðarbanka eru því ánægðir með
verðið,“ segir Hreiðar Már.
Hreiðar Már Sigurðs-
son, forstjóri Kaupþings
Búnaðarbanka
Samlegðar-
áhrif rétt-
læta hátt
verð
ÆSKILEGT hefði verið að gefa
aukinn tíma til að fjalla um sam-
starf við SPRON að mati Halldórs
J. Kristjánssonar, annars banka-
stjóra Landsbanka Íslands.
„Aðdragandi að svona málum
þarf að vera töluverður. Hins vegar
er það mál stjórnar að taka ákvörð-
un um málsmeðferð. Samskipti við
stjórnendur SPRON út af þessu
máli hafa í sjálfu sér verið ágæt en
okkur fannst tíminn nokkuð naum-
ur.
Við í Landsbankanum erum mjög
ánægð að sjá aukinn vilja hjá
stjórnendum sparisjóða að breyta
sjóðunum í hlutafélög og gera þeim
kleift að taka þátt í hagræðingu á
fjármálamarkaði með því að taka
upp samstarf við viðskiptabanka.
Við erum þeirrar skoðunar að það
muni tryggja best hagsmuni við-
skiptavina, stofnfjáreigenda og
starfsfólks sparisjóðanna að breyta
félagaforminu og taka upp eigna-
legt samstarf við eða sameinast við-
skiptabanka.“
Halldór telur að möguleikar séu á
samstarfi fleiri sparisjóða við ein-
hverja af viðskiptabönkunum. „Það
er hægt að styrkja forsendur spari-
sjóðanna svæðisbundið. Við höfum
þegar lýst yfir áhuga af hálfu
Landsbankans á að taka þátt í slíku
samstarfi, í samræmi við aðstæður
á hverjum stað. Við rituðum öllum
sparisjóðum landsins bréf sumarið
2002 og óskuðum eftir auknu sam-
starfi en við lögðum áherslu á að
fyrst þyrftu stjórnir þeirra að móta
stefnu varðandi félagaform og sam-
starf sem getur verið mismunandi
eftir aðstæðum á hverjum stað.“
Hann segir viðbótarskref hafa
verið stigið í samstarfi bankans við
sparisjóði haustið 2002 með kaupum
Landsbankans á helmingshlut í SP
fjármögnun.
„Landsbankinn rekur SP fjár-
mögnun í góðu samstarfi við hóp
sparisjóða. Það er mjög góð reynsla
af því samstarfi og við teljum að
það megi meðal annars byggja á því
í framhaldinu. Ég tel að með sam-
starfi við viðskiptabankana sé fram-
tíðargrundvöllur sparisjóðanna best
tryggður. Í því felast tækifæri bæði
fyrir sparisjóðina og fyrir viðskipta-
bankana. Landsbankinn er reiðubú-
inn til þátttöku í slíku samstarfi í
góðri sátt við stofnfjáreigendur,
starfsfólk og viðskiptavini á hverj-
um stað,“ segir Halldór J. Krist-
jánsson.
Halldór J. Kristjánsson, bankastjóri Landsbankans
Tíminn nokkuð
naumur til viðræðna
JÓN G. Tómasson, formaður stjórn-
ar SPRON, segir að í kjölfar nýrra
laga um hlutafélagavæðingu spari-
sjóða, sem tóku gildi um síðustu ára-
mót, hafi skapast grundvöllurinn að
því að þau viðskipti yrðu að veru-
leika sem stjórn SPRON og Kaup-
þing Búnaðarbanki hafi orðið ásáttir
um.
Hann segir að Fjármálaeftirlitið
hafi á síðasta ári úrskurðað að
hvorki Búnaðarbanki Íslands né
starfsmannasjóður SPRON væru
hæfir til að fara með virkan eign-
arhlut í stofnfé SPRON, eins og tal-
að hafi verið um á síðasta ári. Þegar
tilboð hafi borist í stofnfé sparisjóðs-
ins hafi stjórnin hætt við þau áform
að breyta SPRON í hlutafélag. Það
sem gerst hafi síðan í kjölfar nýrra
laga um hlutafélagavæðingu spari-
sjóða, hafi verið það að endurmeta
skuli stofnfé sparisjóðs ef honum er
breytt í hlutafélag. Það skyldi gert
þannig, samkvæmt hinum nýju lög-
um, að í stað þess að vera nákvæmt
hlutfall gagngjalds, eins og stofnféð
hafi verið í sparisjóðnum, skuli ann-
ars vegar miða við mismuninn á
arðsvon hlutabréfa og stofnfjárbréf-
anna, og áhættu hins vegar.
„Þar sem SPRON hefur hagnast
svo vel er þetta hlutfall hátt hjá okk-
ur,“ segir Jón. „Þetta breytir þeirri
stöðu að stofnfjáreigendur fá veru-
lega hærri hlutdeild í heildarverði
sparisjóðsins, þegar hann er metinn
með tilliti til breytingarinnar yfir í
hlutafélag. Því þarf fyrst að breyta
SPRON yfir í hlutafélag og bæði
stofnfjáreigendur og SPRON-
sjóðurinn fá hlutafé í SPRON hf. Þá
verður ekki lengur talað um að verið
sé að versla með stofnfjárbréf held-
ur með hlutabréf. Og verslun með
hlutabréf er að sjálfsögðu frjáls. Í
þessu liggur munurinn sem skýrir af
hverju þessi viðskipti eru fram-
kvæmanleg nú en voru það ekki í
fyrra.“
Jón G. Tómasson, formaður stjórnar SPRON
Aukinn hlutur
stofnfjáreigenda í
kjölfar nýrra laga