Morgunblaðið - 23.12.2003, Blaðsíða 49
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. DESEMBER 2003 49
SVÖLURNAR, félag núverandi og fyrrverandi flug-
freyja, hafa gefið MS-félagi Íslands góðar gjafir.
Svölurnar gáfu tæki til sjúkraþjálfunar, til að styrkja
vöðva í fótum, þrekhjól og lyftara til að færa fólk úr
hjólastól. Sigurbjörg Ármannsdóttir, formaður MS-
félagsins, segir þessa gjöf rausnarlega, og að mikið
muni um hana. Svölurnar hafi stutt vel við félagið und-
anfarin ár.
Svölurnar styrkja MS-félagið
Morgunblaðið/Kristinn
HELGIN var annasöm hjá lögreglu,
mikið var um ölvun og þjófnaði.
Nokkuð var um ölvunarakstur og
mikið um árekstra. Alls
voru 11 ökumenn grun-
aðir um ölvunarakstur
og 17 fyrir hraðakstur.
58 umferðaróhöpp voru tilkynnt þar
sem eignatjón varð.
Um kl. 13.30 á föstudag var til-
kynnt um þjófnað á fimm kössum af
fiski úr togara. Stolið var rúmlega
100 kg af ýsu meðan starfsmenn
voru í hádegismat. Rétt fyrir kl. 18
var tilkynnt um ungling sem hafði
hrifsað veski af konu í Austurborg-
inni. Í veskinu voru skilríki, lyklar,
farsími og peningar. Málið er í rann-
sókn.
Um kl. 6 á laugardagsmorgun var
tilkynnt um handleggsbrotinn mann
eftir átök í miðborginni. Manninum
var ekið af lögreglu á slysadeild.
Rétt fyrir kl. 9.30 á laugardag var
tilkynnt um þjófnað í Hálsahverfi.
Farið hafði verið inn um glugga og
stolið ferðatölvu, myndbandstæki og
DVD-spilara. Um kl. 15 óskaði
starfsmaður verslunar aðstoðar lög-
reglu. Hann grunaði mann um þjófn-
að. Maðurinn var handsamaður
stuttu síðar með þrjú læri að verð-
mæti um 10 þúsund krónur.
Um kl. 21.30 var bifreið stöðvuð á
131 km/klst. þar sem leyfilegur há-
markshraði er 80 km/klst. Ökumað-
ur var tiltölulega nýlega búinn að fá
bílpróf og í bifreiðinni voru 11 og 12
ára gömul börn. Foreldrum öku-
manns var tilkynnt um málið. Um kl.
4 aðfaranótt sunnudags var tilkynnt
um innbrot við Snorrabraut. Þegar
eigandi hafði komið heim um nóttina
var útidyrahurð opin og búið að stela
sjónvörpum, DVD-spilara, mynd-
bandstæki, myndavél og fleiru. Mál-
ið er í rannsókn. Rétt fyrir kl. 5 var
tilkynnt um líkamsárás í miðborg-
inni. Maður var fluttur á slysadeild
með sjúkrabifreið, en sparkað hafði
verið í hann liggjandi og ekki vitað
hver þarna hafði verið að verki. Um
hálftíma síðar var óskað aðstoðar
lögreglu. Hafði fólk í Breiðholtinu
neitað að borga fyrir pizzu, haft var
samband við fólkið sem greiddi þá
fyrir matinn.
Úr dagbók lögreglunnar 19.–22. desember
Ölvun og þjófnaðir um helgina
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn