Morgunblaðið - 23.12.2003, Blaðsíða 64
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 ÞRIÐJUDAGUR 23. DESEMBER 2003 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
LÍKUR eru á því að jólasnjórinn falli í kvöld
eða nótt, aðfaranótt aðfangadags. Veður-
fræðingur á Veðurstofu Íslands segir útlit
fyrir að jörð verði hvít um mestallt eða allt
land á aðfangadagskvöld og jóladag, það sé
helst suðvestanlands sem snjó kunni að taka
upp.
Veðurstofan spáir frekar leiðinlegu veðri í
dag, Þorláksmessu, hvassviðri og rigningu
eða slyddu um allt land og að heldur bæti í
vindinn í kvöld. Þorsteinn Jónsson veður-
fræðingur reiknar með að jörð verði hvít um
allt land á aðfangadagsmorgun eftir slyddu
og él og jafnvel snjókomu á norðanverðu
landinu. Þokkalega hlýtt verður við suður-
ströndina en veður fer síðan kólnandi. Á
jóladag og annan í jólum verður nokkuð kalt
í veðri og spáð éljum um norðanvert landið
og víðar.
Morgunblaðið/Jim Smart
Jólasnjórinn
gæti fallið í nótt
RÚMLEGA
fimm þúsund
miðar hafa verið
seldir í forsölu
fyrir kvikmynd-
ina Hilmir snýr
aftur, lokamynd-
ina í Hringa-
dróttinssögu-þríleiknum.
Þegar er uppselt á myndina í lúx-
ussal Smárabíós á flestar sýningar
fram í miðjan janúarmánuð. Myndin
verður sýnd í sjö kvikmyndahúsum á
landinu, í tíu sýningarsölum.
Rúmlega
5.000 miðar
þegar seldir
Hilmir/59
EFTIR stutt frí
mætir mynda-
söguhetjan Ferd-
inand aftur í
vinnuna á síðum
Morgunblaðsins í
dag. Að þessu
sinni birtist Ferdinand á nýjum stað,
á dagbókarsíðunni þar sem jafn-
framt er að finna Velvakanda, Vík-
verja og Staksteina.
Eftir breytingu á myndasögum
Morgunblaðsins var augljóst af við-
brögðum lesenda, sérstaklega þeirra
sem fylgst hafa lengi með Ferdin-
and, að hans var sárt saknað. Hann
fær því áfram sinn daglega sess í
blaðinu. Af myndasögum, sem áður
birtust í blaðinu, halda Smáfólk og
Grettir jafnframt áfram göngu sinni,
þótt ekki verði það daglega.
Ferdinand
á nýjum stað
Ferdinand/52
KONA á tíræðisaldri lést á sunnudag af völdum
mikilla brunasára sem hún hlaut þegar kviknaði
í fötum hennar í reykherbergi á hjúkrunarheim-
ili fyrir eldri borgara á miðvikudag.
Konan átti við heilabilun að stríða og var í
hjólastól, og hafði hún verið keyrð í reykher-
bergið í hjólastólnum og skilin eftir með logandi
sígarettu. Starfsfólk sem fylgdist með konunni
frá dyrum reykherbergisins, sá skyndilega eld
loga í fötum hennar. Hún fékk mikil brunasár á
lærin og niður á ökkla og var flutt á gjörgæslu,
en lést á sunnudag af völdum sáranna.
Lögregla var strax kölluð til og rannsakar
hún slysið, en vill ekki gefa frekari upplýsingar
að svo komnu máli.
Dóttir konunnar segir að varhugavert sé að
skilja gamalt heilabilað fólk eitt eftir með log-
andi sígarettu. Hún segir að móðir sín hafi auk
þess séð mjög illa. Hún fékk ekki að hafa eldfæri
en einhverjir íbúar fengu það, og svo geti það
vil bara reyna að koma í veg fyrir að þetta komi
fyrir annað gamalt fólk.“
Forsvarsmenn hjúkrunarheimilisins þar sem
óhappið varð segja það mjög miður að svona
skyldi fara. Farið hefur verið yfir atburðarásina
og talið að viðbrögð og vinnulag hafi verið rétt
svo hér sé um ófyrirsjáanlegt óhapp að ræða.
Fylgst var með konunni allan tímann í gegnum
gler í hurðinni á reykherberginu, að sögn for-
svarsmanna heimilisins. Svo virðist sem glóð
hafi fallið á læri konunnar og kviknað hafi strax
í. Óvenjulegt er að kvikni svo hratt í sem raunin
varð, en starfsfólk varð eldsins vart strax og
slökkti hann. Í reykherberginu eru eldvarnar-
svuntur sem reynt er að nota, en forsvarsmaður
heimilisins segir að oft sé erfitt að fá fólk til að
hafa þær. Hann segir að vinnulagi verði ekki
breytt í kjölfar óhappsins, enda líti menn svo á
að allt hafi verið gert rétt í þessu tilviki og að um
hörmulegt óhapp hafi verið að ræða.
komið fyrir að einhver skilji eftir eldspýtur í
reykherberginu.
Vill benda á þessa hættu
„Eini tilgangur minn með því að tala um þetta
mál er að koma á framfæri þessari aðvörun.
Þarna er hætta þegar heilabilað og jafnvel hálf-
blint fólk eins og mamma gamla er sett eitt fram
á reykstofu til að reykja. Þarna er verið að fara
með eld, og hún var missandi sígarettuna í tíma
og ótíma, sem sást á brunablettum á fötunum
hennar.
Ég vil benda á að það er hættulegt að hafa
fólk í svona ástandi eitt á reykstofu og umhugs-
unarvert í hvernig fötum fólkið er. Einnig er
umhugsunarefni hvort ekki ætti að nota meira
eldvarnarsvuntur sem ættu að vera til staðar í
reykherberginu,“ segir dóttir konunnar.
Hún vill þó taka fram að hún áfellist engan
vegna þessa slyss, þetta hafi verið óhapp. „Ég
Kviknaði í fötum konu í reykherbergi á hjúkrunarheimili
Lést af völdum brunasára
JÓLATRÉ eru orðin torfundin á höfuðborgar-
svæðinu, enda er framboðið mun minna í ár en í
fyrra þegar offramboð var af jólatrjám. Nokkrir
markaðir voru enn að selja jólatré í gærkvöldi
þótt úrvalið af jólatrjám væri orðið nokkru minna
en gott þætti.
Á Landakotstúni er að finna jólatréssöluna
Landakot, sem selur jólatré til styrktar krabba-
meinssjúkum börnum. Þar var í gærkvöldi að
finna ágætis úrval af fallegum jólatrjám.
Þau Soffía Pálsdóttir sálfræðinemi, Sigurður
Veigar Bjarnason hjá Iceland Refund og dóttir
þeirra Þórdís Halldóra voru að kaupa sér jólatré
þegar blaðamann bar að garði og sögðu það ekki
seinna vænna, enda hefðu þau heyrt í fréttum að
jólatré væru að verða uppseld á höfuðborgar-
svæðinu. Fjölskyldan ætlaði að skreyta jólatréð í
gærkvöldi og setja hangiketið í pottinn á morgun.
„Við vorum samt orðin frekar stressuð,“ segir Sig-
urður, „það var svo mikið til í fyrra að maður bjóst
ekki við því að það myndi verða skortur á trjám í
ár.“ Soffía er sammála. „Við vorum bara heppin
að leggja af stað núna, maður veit ekki hvort það
verður nokkuð eftir á morgun.“
Morgunblaðið/Þorkell
Jólatrén víða að seljast upp
UMTALSVERT vatnstjón varð í gærkvöldi í
nýjum húsakynnum Orkuveitu Reykjavíkur
við Bæjarháls þegar neysluvatnslögn í lagna-
stokki fór að leka með þeim afleiðingum að
kalt vatn flæddi um matsal á jarðhæð hússins.
Lekinn uppgötvaðist tiltölulega fljótt og var
skjótt brugðist við. Slökkvilið höfuðborgar-
svæðisins fór á vettvang með sérhæfðan búnað
til að hreinsa upp vatnið og tók um klukku-
stund að ljúka aðgerðum. Á parketlögðu gólfi
matsalarins náði vatnshæðin einum senti-
metra og var óttast um dýr listaverk í matsaln-
um.
Tjónið hefur ekki verið metið að fullu en
ljóst þykir að það sé umtalsvert.
Vatnstjón í
húsakynnum OR
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
LJÓST er að samheldni og samfélagsleg
ábyrgð nokkurra borgara í Vesturbæ urðu til
þess að tæplega tvítugur piltur komst í
hendur lögreglu eftir að hann gerði fólsku-
lega tilraun til ráns í gærkvöldi. Hann réðst
til atlögu við konu á áttræðisaldri við Mela-
búðina og reyndi að hrifsa af henni veskið.
Konan lét sig ekki en þá greip pilturinn til
þess ráðs að slá hana. Fólk sem var nærstatt
tók sig til og handtók piltinn að borgaraleg-
um hætti og gætti þess að hann slyppi ekki á
meðan lögreglan var á leiðinni. Var piltinum
stungið í fangageymslu fyrir tilraun til ráns.
Þá henti öllu alvarlegra atvik aðra aldraða
konu á Suðurgötu í gær, þegar afturhluti
strætisvagns rakst í hana og ýtti henni út í
skurð þegar hann tók beygju rétt eftir að
hún hafði farið út úr vagninum. Hún var flutt
á slysadeild með sjúkrabifreið með rifbeins-
brot.
Reyndi að ræna
aldraða konu
MARKAÐSVIRÐI Pharmaco hf.
jókst um 9,3 milljarða króna í gær
og er nú 118,6 milljarðar króna.
Markaðsvirði Pharmaco um síð-
ustu áramót nam 41,9 milljörðum
króna og hefur því aukist um
183,1% á árinu. Hlutdeild félags-
ins af heildarmarkaðsvirði fyrir-
tækja á Aðallista Kauphallar Ís-
lands er 21,2% og hefur ríflega
tvöfaldast frá áramótum.
Gengi bréfa félagsins hækkaði
um 8,55% í 62 viðskiptum í gær.
Verð bréfanna fór úr 38,6 krónum
núna orðið rúmar 200 milljónir að
nafnvirði í okkur sjálfum sem er í
kringum 7 prósent. Við höfum
sagt að við viljum eiga þessi bréf
þegar við förum á markað í Lond-
on til að geta fjölgað þeim bréfum
sem við ætlum að bjóða á mark-
aðnum þar,“ sagði Róbert í sam-
tali við Morgunblaðið í gær.
Nafnvirði hlutabréfanna sem
viðskipti voru með í gær nemur
42,5 milljónum króna og markaðs-
virði ríflega 1.767 milljónum
króna.
á hlut við lok viðskipta á föstudag í
41,9 krónur á hlut við lokun mark-
aða í gær. Viðskipti með bréf
Pharmaco námu rúmlega 15% við-
skipta í Kauphöll Íslands í gær.
Eigin bréf keypt
Að sögn Róberts Wessmann,
forstjóra Pharmaco, eru kaup
Pharmaco á eigin bréfum stærst-
ur hluti viðskipta gærdagsins.
„Við keyptum líklega í kringum
1,5 prósent í félaginu. Við höfum
verið að kaupa eigin bréf og eigum
Verðmætið hefur nær
þrefaldast á árinu
Markaðsvirði Pharmaco jókst um 9,3 milljarða í gær
♦ ♦ ♦