Morgunblaðið - 23.12.2003, Blaðsíða 48
FRÉTTIR
48 ÞRIÐJUDAGUR 23. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Gátlisti fyrir fjallafer›ir fylgir
Jólagjöf jeppamannsins
Dreifing. Hönnun og umbrot • S. 577 1888
Fæst í næstu bókabú›
Jólagjafir
Náttföt
Náttkjólar
Sloppar
Undirfatasett
- Gjafakort -
undirfataverslun
Síðumúla 3, sími 553 7355
þorláksmessa opið kl. 11-23.
Aðfangadagur opið kl. 10-13.
RAUÐARÁRSTÍG 14-16, SÍMI 551 0400 • KRINGLUNNI, SÍMI 568 0400 • www.myndlist.isTryggvi Ólafsson
HAUSTÖNN Iðnskólans í Reykja-
vík var slitið föstudaginn 19. des-
ember sl. með útskriftarathöfn í
Hallgrímskirkju. Útskrifaðir voru
126 nemendur af 6 námssviðum
skólans. Á haustönn stunduðu lið-
lega 2.000 nemendur nám við skól-
ann, þar af 1.550 í dagskóla, 350 í
kvöldskóla og um 100 í fjarnámi.
Að auki voru haldin kvöldnámskeið
í skólanum þar sem um 500 nem-
endur stunduðu nám.
Í ræðu sem Baldur Gíslason
skólameistari hélt við athöfnina
kom fram að þrátt fyrir að nám fæl-
ist vissulega í samskiptum væri
tækninni svo fyrir að þakka að um-
hverfi skólans væri að breytast og
þeir möguleikar sem gæfust væru
að verða fjölbreyttari:
„Iðnskólinn í Reykjavík mun þó
þrátt fyrir það sem að framan er
sagt halda áfram að auka við
tæknina. Við viljum bregðast við
þörf markaðarins fyrir menntun
meðal annars með því að auka við
fjarnám. Viðtökur við fjarnáminu á
síðasta ári voru góðar og langt
fram yfir væntingar.
Við munum t.d. fljótlega verða
með allt meistaranámið í fjarnámi
og gæti það verið góður kostur fyr-
ir einhverja sem hér eru að útskrif-
ast í dag og vilja ná sér í meist-
araréttindi.“
Við útskriftina fengu nokkrir
nemendur verðlaun, ýmist frá skól-
anum, minningarsjóðum eða sam-
tökum og fyrirtækjum. Skólinn
verðlaunaði fyrir bestan árangur
innan hvers sviðs auk verðlauna
fyrir besta og næstbesta heildar-
árangur.
Hópur nemenda Iðnskólans var verðlaunaður fyrir framúrskarandi námsárangur. Með hópnum á myndinni eru
Guðmundur Páll Ásgeirsson (t.v.) námsstjóri og Baldur Gíslason skólameistari (t.h.).
Braut-
skráning
frá Iðnskól-
anum í
Reykjavík
APÓTEKARINN, sem er keðja
fjögurra lyfjaverslana í Reykjavík og
á Akureyri, færði Mæðrastyrks-
nefnd Reykjavíkur nýlega 150 ávís-
anir að upphæð 1.500 kr. hver sem
skjólstæðingar nefndarinnar geta
nýtt sér.
Á myndinni eru frá vinstri: Unnur
Jónasdóttir, fyrrverandi formaður
Mæðrastyrksnefndar, Ingólfur
Garðarsson, talsmaður Apótekarans
og Hildur G. Eyþórsdóttir, formaður
Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur.
Apótek-
arinn gaf
ávísanir
NÝLEGA opnaði Tómstundahúsið
netverslun, www.tomstundahusid.is,
sem er í raun tölvuvædd útgáfa af
verslun Tómstundahússins að Net-
hyl 2 í Reykjavík. Þar er úrval af
plastmódelum, trémódelum, fjar-
stýrðum bílum, flugvélum, bátum,
ritföngum, leikföngum o.fl. tóm-
stundavörum. Á síðunni eru ekki all-
ar vörur sem boðið er upp á en nýjar
vörur eru settar inn daglega. Pant-
anir eru afgreiddar samdægurs, seg-
ir í fréttatilkynningu.
Tómstunda-
húsið opnar
netverslun
Síðumúla 34 - sími 568 6076
Pelskápur • Pelsjakkar
HerðaskinnAUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111