Morgunblaðið - 23.12.2003, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. DESEMBER 2003 53
DAGBÓK
Hverafold 1-3
Torgið Grafarvogi
Sími 577 4949
Opið í dag frá kl. 11-23
Aðfangadag frá kl. 10-12
Opnunartími fyrir jólin
Tilvalið
í jólapakkann
Jólastemmning
í miðborginni
Opið til
kl. 22
í kvöld
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
STEINGEIT
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert góður mannþekkjari
og býrð yfir útsjónarsemi,
velvild og rósemi. Gerðu ráð
fyrir jákvæðum breytingum
í lífi þínu á komandi ári.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Gefðu þér tíma til þess í dag
að hugsa um það hvert þú
stefnir. Hugsaðu um það
hvar þú vilt verða eftir tíu ár
og hvað þú getur gert til þess
að komast þangað.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Skilningur þinn á heiminum
er það sem gerir þér kleift að
halda áfram að læra og
þroskast. Þú ættir að kynna
þér hugmyndir í heimspeki.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Leitaðu sanngjörnustu leið-
arinnar til að deila eignum og
ágóða með öðrum. Viðraðu
hugmyndir þínar við aðra.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Afstaða hins nýja tungls ger-
ir þetta að hentugum tíma til
að bæta samskipti. Notaðu
tækifærið og reyndu að bæta
samband þitt við þína nán-
ustu.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú ættir að velta því fyrir þér
hvað þú getur gert til að bæta
heilsu þína. Þótt þú upprætir
ekki nema einn slæman
ávana þá er það strax til bóta.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Gerðu ekki lítið úr mikilvægi
þess að veita listrænum hæfi-
leikum þínum útrás. Þú þarft
ekki að selja það sem þú
framleiðir því það er sköp-
unarferlið sem skiptir máli.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Settu þig í samband við fjöl-
skylduna. Það er mikilvægt
að halda sambandi við fólk úr
fortíðinni. Það veitir okkur
yfirsýn yfir líf okkar.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Veittu því athygli hvað góð-
vild fólksins í kringum þig
skiptir þig miklu máli. Gættu
þess að taka hana ekki sem
sjálfsagðan hlut. Sýndu öðr-
um að þeir skipti þig máli.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þú ættir að nota daginn til að
velta fyrir þér sambandi þínu
við eigur þínar. Hvort ert það
þú sem átt eigur þínar eða
þær sem eiga þig?
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Nýja tunglið er í merkinu
þínu. Leitaðu leiða til að bæta
útlit þitt og framkomu. Nýtt
tungl er besti tíminn til um-
bóta.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þú þarft á aukinni einveru að
halda til að hugsa um lífið og
tilveruna og til að ná áttum.
Láttu ekki aðra hafa of mikil
áhrif á þig. Það er þitt að
verjast óæskilegum áhrifum.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Gefðu þér tíma til að hugsa
um það í dag hversu mikils
virði vináttan er þér. Það er
engin manneskja eyland.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Í ÞRIÐJA slag uppljúkast
allar dyr og spil andstæðing-
anna blasa við sagnhafa. En
hann þarf að vinna rétt úr
því sem hann sér.
Austur gefur; allir á
hættu.
Norður
♠ ÁK82
♥ D86
♦ ÁK83
♣75
Vestur Austur
♠ DG73 ♠ 1064
♥ 103 ♥ ÁKG954
♦ 652 ♦ D7
♣DG83 ♣42
Suður
♠ 95
♥ 72
♦ G1094
♣ÁK1096
Vestur Norður Austur Suður
-- -- 2 hjörtu Pass
Pass Dobl Pass 3 lauf
Pass 3 hjörtu * Pass 4 tíglar
Pass 5 tíglar Allir pass
Austur vekur á veikum
tveimur og norður doblar til
úttektar. Svarið á þremur
laufum sýnir jákvæð spil
(tvö grönd hefði verið af-
melding) og því heldur norð-
ur áfram og keyrir í geim.
Vestur kemur út með
hjartatíu og austur tekur
þar tvo slagi og spilar þriðja
hjartanu. Suður trompar
með gosa og býst við því að
vestur yfirtrompi, en þvert á
móti – eftir langa umhugs-
un, þá UNDIRtrompar vest-
ur! Það er ekkert annað.
Hvernig á að spila?
Þetta er góð vörn, því ef
vestur hendir svörtu spili
verður hægur vandi fyrir
sagnhafa að fría þann lit. En
sagnhafi sér hver vandi vest-
urs er og spilar í samræmi
við það. Hann tekur ÁK í
spaða og trompar spaða.
Toppar svo tígulinn (auðvit-
að) og spilar trompunum:
Norður
♠ 8
♥ --
♦ 8
♣75
Vestur Austur
♠ D ♠ --
♥ -- ♥ G9
♦ -- ♦ --
♣DG8 ♣42
Suður
♠ --
♥ --
♦ --
♣ÁK109
Þegar síðasta tíglinum er
spilað úr blindum neyðist
vestur til að henda laufi og
þá koma litlu hjónin undir
ÁK og lauftían verður ellefti
slagurinn.
Góð vörn og gott svar
sagnhafa.
BRIDS
Guðmundur Páll
Arnarson
JÓL
III
Ó, blessuð jólin,
hver bið mér sveið.
Í klæðunum nýju
ég kveldsins beið.
Það skyggði aldrei,
hvert skot var ljóst.
Ég fylltist gleði,
er fólkið bjóst.
Að sjöttu stundu
um síðir dró.
Kveldið var heilagt,
er klukkan sló.
– – –
Stefán Sigurðsson frá Hvítadal
LJÓÐABROT
ÁRNAÐ HEILLA
1. e4 g6 2. d4 Bg7 3. Rf3 c5
4. Rc3 cxd4 5. Rxd4 Rc6 6.
Rb3 Rf6 7. Be2 d6 8. O-O
O-O 9. f4 Bd7 10. Be3 a6 11.
Bf3 Hc8 12. a4 b6 13. De2
a5 14. Rd5 Rxd5 15. exd5
Rb8 16. Rd4 Dc7 17. c3 Dc4
18. Df2 e5 19. dxe6 fxe6 20.
Be2 Dc7 21. Dh4 Rc6 22.
Rb5 Db8 23. Had1 d5 24.
Hf3 Bf6 25. Dh6 Re7 26.
Bd3 Hf7 27. Hdf1 Bxb5 28.
axb5 Rf5 29. Bxf5 exf5 30.
Hd1 Dd6 31. h4 He8 32. Bd4
Bxd4+ 33. Hxd4 He1+ 34.
Kh2 He4 35. h5 Hxd4 36.
cxd4 Df6 37. hxg6 hxg6 38.
Hg3
Hin síðustu misseri hefur
samfélag skák-
manna á Netinu
dafnað og vaxið.
Þetta hefur m.a.
þýtt að íslenskir
skákmenn búsett-
ir erlendis hafa
getað tekið virkan
þátt í íslensku
skáklífi. Einn af-
kastamesti penni
Skákhornsins er
Hrannar Bald-
ursson (2126) sem
hefur búið í
Mexíkó í nokkur
ár. Hann tekur
einnig virkan þátt
í skáklífinu ytra
og fyrir skömmu var hann á
meðal keppenda á minning-
armóti Carlosar Torres. Í
skák sinni við skákkonuna
Yadira Hernandez (2250)
átti hann framan átt í vök
að verjast en gat nú snúið
taflinu sér í vil. 38... Hg7??
38... Hh7! hefði unnið þar
sem eftir 39. Hxg6+ Dxg6
verður svartur drottningu
yfir. Eftir textaleikinn er
staða svörts töpuð. 39. Hc3
Kf7 40. Dh8 De7 41. b3 g5
42. Dh5+ Hg6 43. Hc6 og
svartur gafst upp.
SKÁK
Helgi Áss
Grétarsson
Svartur á leik.
Ljósmynd/Sigga Dóra
BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 28. júní sl. í Akureyrar-
kirkju af sr. Svavari Jónssyni þau Jóhanna Elín Halldórs-
dóttir og Karl Róbert Þórhallsson.
Ljósmynd/Sigga Dóra
BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 2. ágúst sl. í Dómkirkjunni
af sr. Jakobi Hjálmarssyni þau Margrét Kristín Guðjóns-
dóttir og Per Christian Johansson.
MORGUNBLAÐIÐ
birtir tilkynningar um
afmæli, brúðkaup,
ættarmót og fleira les-
endum sínum að
kostnaðarlausu. Til-
kynningar þurfa að
berast með tveggja
daga fyrirvara virka
daga og þriggja daga
fyrirvara fyrir sunnu-
dagsblað. Samþykki
afmælisbarns þarf að
fylgja afmælistilkynn-
ingum og/eða nafn
ábyrgðarmanns og
símanúmer. Fólk get-
ur hringt í síma 569-
1100, sent í bréfsíma
569-1329, eða sent á
netfangið ritstj
@mbl.is.
Einnig er hægt að
skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1, 103
Reykjavík
FRÉTTIR
ATLANTSSKIP gáfu Krabba-
meinsfélagi Íslands 100.000 kr. í
stað þess að senda jólakort til við-
skiptavina sinna.
Valgerður Jóhannesdóttir fjár-
málastjóri Krabbameinsfélagsins
tók við framlaginu frá Birgi Erni
Birgissyni markaðsstjóra.
Styðja Krabbameinsfélagið