Morgunblaðið - 19.01.2004, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 19.01.2004, Qupperneq 2
FRÉTTIR 2 MÁNUDAGUR 19. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ Alltaf ód‡rast á netinu Breytanlegur farseðill! Verð á mann frá 19.500 kr. ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S IC E 22 35 0 10 /2 00 3 TILRÆÐI Í BAGDAD Að minnsta kosti tuttugu biðu bana í sprengjutilræði í Bagdad í Írak í gær og meira en sextíu særð- ust. Flestir hinna látnu voru Írakar. Bifreið, sem hlaðin var sprengiefni, var ekið að höfuðstöðvum Banda- ríkjahers í borginni og þar sprengdi bílstjórinn sig og bifreiðina í loft upp með fyrrgreindum afleiðingum. Um er að ræða eitt mannskæðasta til- ræðið í Bagdad frá lokum stríðsins í Írak sl. vor. Aldraðir á Vatnsenda Kópavogsbær hefur tekið frá lóð í Vatnsendalandi fyrir öldrunarþorp á vegum Hrafnistu. Sótt hefur verið um leyfi heilbrigðisráðherra til að byggja þar 60 til 90 rýma hjúkr- unarheimili fyrir aldraða með fullum stuðningi bæjarráðs Kópavogs en hugmyndin er að bjóða upp á ýmsa valmöguleika fyrir eldra fólk, svo sem íbúðir í fjölbýlishúsum, litlar íbúðir í einbýlishúsum og raðhúsum og fjölbreytta þjónustu. Tjón vegna flogakasts Ökumaður jeppa fékk flogakast undir stýri þegar hann var á leið yfir gatnamót Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar á laugardagskvöld. Missti hann stjórn á jeppanum með þeim afleiðingum að umtalsvert tjón hlaust af. Ekki urðu slys á fólki en sjö kyrrstæðar bifreiðir skemmdust á bifreiðastæði við Stigahlíð þar sem jeppinn stöðvaðist. Demókratar velja Fyrstu forkosningar demókrata vegna forsetakosninganna í Banda- ríkjunum í haust fara fram í Iowa í dag. Kannanir sýna að öldungadeild- arþingmaðurinn John Kerry hefur nú tekið forystu en aðrir, sem gætu blandað sér í baráttuna í Iowa, eru Howard Dean, fyrrverandi rík- isstjóri í Vermont, öldungadeild- arþingmaðurinn John Edwards og fulltrúadeildarþingmaðurinn Rich- ard Gephardt. Aðgerðir bitna á sjúklingum Fyrirhugaðar aðgerðir á Land- spítala – háskólasjúkrahúsi draga úr þjónustu og gæðum hennar og bitna á sjúklingum, að mati Sigurðar Guð- mundssonar landlæknis. Hann gagnrýnir ýmsa þætti aðgerðanna og telur aðra til bóta en segist hafa mestar áhyggjur af samdrætti í stoðþjónustu og miklum samdrætti í kennslu og rannsóknum. Y f i r l i t Í dag Sigmund 8 Myndasögur 32 Vesturland 11 Dagbók 34/35 Erlent 12 Kirkjustarf 35 Listir 14/16 Þjónusta 35 Daglegt líf 17 Leikhús 36 Umræðan 18/21 Fólk 36/41 Forystugrein 22 Bíó 38/41 Minningar 24/29 Ljósvakar 42 Bréf 32 Veður 43 * * * Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri, asv@- mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, fréttastjóri guna@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Listir menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi, orri@- mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport- @mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Fólk í fréttum Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Andrea Guðmundsdóttir, andrea@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is LÖGREGLAN í Reykjavík hefur tekið til rannsóknar tildrög slyss við Stigahlíð á laugardagskvöld þegar ökumaður jeppa fékk flogakast und- ir stýri. Missti hann stjórn á jepp- anum með þeim afleiðingum að um- talsvert tjón hlaust af. Ekki urðu slys á fólki en sjö kyrrstæðar bifreið- ir skemmdust á bifreiðastæði við Stigahlíð þar sem jeppinn stöðvaðist. Óhappið varð um klukkan 19, öku- maðurinn var á leið yfir gatnamót Kringlumýrarbrautar og Miklu- brautar þegar hann fékk skyndilega flog. Fór jeppinn í gegnum vegrið á umferðareyju á Miklubraut, yfir syðri akreinar Miklubrautar upp á grasblett. Þaðan fór jeppinn yfir gangstétt, lenti á fjórum trjám og endaði för sína að lokum á bílastæði við Stigahlíð 34–36 þar sem hann hafnaði að lokum á sjö kyrrstæðum bifreiðum. Bílstjórinn var fluttur á slysadeild en bifreið hans var dregin á brott með dráttarbíl. Mikil mildi þykir að ekki hlaust af slys á fólki. Geir Jón Þórisson yfirlögreglu- þjónn segir mál af þessu tagi mjög fátíð en lögreglan hafi nú tekið til rannsóknar umrætt atvik. Að fengnu læknisfræðiáliti verði málið skoðað út frá umferðarlögum og réttar- farslögum og metið hvort um veik- indi eða gáleysi hafi verið að ræða. Ökuréttindin voru í lagi Samkvæmt 44. grein umferðar- laga skal ökumaður vera líkamlega og andlega fær um að stjórna öku- tæki því, sem hann fer með og má enginn stjórna ökutæki ef hann er ófær um það m.a. vegna veikinda. Meðal þeirra skilyrða sem sett eru fyrir veitingu ökuréttinda er lækn- isvottorð sem segir til um hvort við- komandi sé hæfur til að aksturs. Þess skal getið að lögreglan hefur staðfest við Morgunblaðið að öku- maður jeppans í umrætt sinn var með ökuréttindi í lagi. Mildi þykir að ekki hlutust af alvarleg slys er ökumaður fékk flogakast Jeppinn sést lengst til hægri ásamt fimm af sjö bílum sem urðu á vegi hans áður en ökuferðinni lauk. Skemmdi sjö kyrrstæða bíla og ók niður tré                                      HJÁLMAR Vilhjálmsson, fiskifræð- ingur hjá Hafrannsóknastofnun, segir að ekki sé víst að sterk og þétt loðnuganga sé út af austanverðu Norðurlandi, þó að vart hafi orðið við töluvert af loðnu á svæðinu, en finn- ist nóg af henni geri hann tillögu um að veiðibanninu verði aflétt. Í liðinni viku ákvað sjávarútvegs- ráðherra að tillögu Hafrannsókna- stofnunar að loðnuveiðar yrðu stöðv- aðar í tvær vikur eða þangað til stærð stofnsins hefði verið mæld á ný. Að frumkvæði LÍÚ fengu 16 loðnuskip leyfi til að halda áfram leitinni í fjórum hópum og um helgina fann fyrsti hópurinn, Guð- mundur Ólafur ÓF, Hákon ÞH, Baldvin Þorsteinsson EA, og Svanur RE, eitthvað af loðnu út af Norð- austurlandi. Annar leitarhópurinn, Grindvíkingur GK, Faxi RE, Þor- steinn EA og Vilhelm Þorsteinsson EA, ætlaði út í gærkvöldi og Hjálm- ar gerir ráð fyrir að vera kominn á svæðið á hafrannsóknaskipinu Árna Friðrikssyni um hádegið í dag. Stefna fyrir Langanes „Við stefnum fyrir Langanes, byrjum þar og vinnum vestur eftir,“ segir Hjálmar. „Það virðist vera eitt- hvað af loðnu þarna á töluvert löngu stykki út af austanverðu Norður- landi, en ég veit ekki hvað er mikið þarna fyrr en ég hef skoðað það.“ Veiðibannið var sett á til 29. jan- úar. Hjálmar segir að finnist ekki loðna umfram þau 400.000 tonn sem veiðireglan segi að eigi að skilja eftir verði gerð tillaga um áframhaldandi veiðibann. „Ef við mælum eitthvað meira og helst eitthvað verulega meira þá verður veiðibannið bara fellt úr gildi,“ segir hann. Aflétta veiði- banni strax finn- ist næg loðna DANSKI herinn tilkynnti í gær að sprengikúlurnar, sem danskir og ís- lenskir vopnasérfræðingar fundu í Suður-Írak fyrir rúmri viku, hefðu ekki innihaldið eiturefni. Þetta er niðurstaða rannsókna sem gerðar voru á sprengikúlunum á rannsókn- arstofnun í Idaho-ríki í Bandaríkj- unum. Staðfesta þær niðurstöðu bandarískra vopnasérfræðinga í Írak sem rannsökuðu sprengikúl- urnar snemma í síðustu viku. Ekki liggur fyrir hvers vegna vettvangskönnun á sprengikúlunum 36, sem Íslendingarnir Adrian King og Jónas Þorvaldsson fundu 9. jan- úar sl., gaf upphaflega til kynna að þær innihéldu sinnepsgas, að því er fram kom í yfirlýsingu danska hers- ins. Engin eiturefni í sprengikúlunum Kaupmannahöfn. AP. AUKNING varð í allri verslun í desember síðastliðnum, miðað við desember 2002, samkvæmt upp- lýsingum sem Samtök verslunar og þjónustu (SVÞ) hafa sent frá sér. SVÞ og IMG gefa út smásölu- vísitölu sem reiknuð er út eftir upplýsingum sem berast frá smá- sölum og ÁTVR. Salan er reiknuð á föstu verðlagi þannig að verð- lagsbreytingar eiga ekki að raska samanburði. Sýnir smásöluvísitalan að sala á dagvöru hefur verið 4,85% meiri í nýliðnum desembermánuði en í sama mánuði á síðasta ári. Sala á áfengi jókst einnig, um tæp 3,1%, og sala lyfjaverslana um 9,2%. Eftir 6. desember, þegar marg- ar verslanir nýttu sér heimildir til að hefja nýtt greiðslukortatíma- bil, komst skriður á jólaversl- unina, samkvæmt upplýsingum SVÞ sem segir að jólainnkaup hafi dreifst meira en áður hafi þekkst. Veruleg aukning hafi verið í veltu síðustu þrjá mánuði ársins. Þrjá mánuðina þar á undan hafi hins vegar verið lítil aukning í dagvöru og samdráttur í sölu á áfengi og lyfjum. Aukning varð í allri verslun í desember

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.