Morgunblaðið - 19.01.2004, Side 11

Morgunblaðið - 19.01.2004, Side 11
MINNSTAÐUR | VESTURLAND MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. JANÚAR 2004 11 Innritun stendur nú yfir í símum 588-3630 og 588-3730, eða í skólanum að Síðumúla 17, tölvupóstur: ol-gaukur@islandia.is Í boði er fjölbreytt nám með vönduðu námsefni fyrir alla aldursflokka, bæði byrjendur og þá sem kunna eitthvað fyrir sér. Nánari upplýsingar um skólann og námsleiðir er að fá á heimasíðunni: www.gitarskoli-olgauks.is eða í skól- anum á innritunartíma, en innritað er alla virka daga kl. 14:00 til 17:00. Einnig sendum við upplýsingabækling þeim sem þess óska. INNRITUN DAGLEGA KL. 14-17 Hægt að fá leigða HEIMAGÍTARA kr. 3000 á önn 588-3630 588-3730 ww w.g itar sko li-o lga uks .is Sendum vandaðan upplýsingabækling Heimasíða: www.gitarskoli-olgauks.is SÍÐASTA vika er gott dæmi um mikla sveiflu í atvinnuástandinu á Akranesi. Frá mánudegi til föstu- dags fjölgaði atvinnulausum á svæðinu úr 120 í 139. „Ég er hrædd um að ástandið sé að versna þó- nokkuð þessa dagana,“ segir Rakel Óskarsdóttir. „Nú er að koma á skrá fólk sem hefur verið í stöðugri vinnu hjá stöðugum fyrirtækjum sem ákveðið hafa að hagræða í rekstri. En ein leiðin sem notuð er til þess er einmitt að segja upp fólki.“ Mest atvinnuleysi er hjá fólki á aldrinum 20–30 ára. Alls voru 77 karlar og 62 konur atvinnulaus í lok síðustu viku á Akranesi, eða sam- tals 139, á meðan 224 voru án at- vinnu á öllu Vesturlandi. Tekið á með Svæðisvinnumiðlun „Okkur leist ekkert á blikuna í fyrra þegar atvinnulausir voru orðnir 150 talsins. Þá var ákveðið að taka höndum saman með Svæð- isvinnumiðlun á Vesturlandi, sem hefur staðið fyrir sérstökum átaks- verkefnum í mörg ár, og hrinda af stað verkefninu Átak 50. Markmiðið með því var að finna vinnu fyrir 50 manns og fækka á listanum niður í 100 manns. Gengið var til samstarfs við 25 fyrirtæki og 25 stofnanir á Akranesi og fór lengd verkefnisins eftir verkefnum. Átakið byggðist á því að tryggja fólki af atvinnuleysisskrá atvinnu og fengu fyrirtækin og stofn- anirnar endurgreiddan kostnað úr atvinnuleysissjóði, sem jafnframt þurfti að samþykkja ráðninguna. Sett var skilyrði að hér væri ekki um venjulegar sumarafleysingar að ræða. Þær væru alveg fyrir utan verkefnið. Óhætt er að segja að verkefnið hafi tekist mjög vel.“ Rakel segir að yfirleitt sé stærsti hópur atvinnulausra ungt fólk á aldrinum 20–24 ára. Mest sé um ófaglært fólk og einnig séu margar ungar mæður atvinnulausar. Síð- astliðið haust var gerð tilraun með Menntasmiðju unga fólksins fyrir fólk innan við tvítugt, sem hvorki var í skóla né hafði atvinnu. Rakel segir þá tilraun hafa gengið mjög vel og hafi eflaust virkað hvetjandi á þá sem tóku þátt í henni. „Nú hefur Akraneskaupstaður ákveðið að breyta vinnuskólanum fyrir næsta sumar þannig að ald- urshámarkið er hækkað upp í 17 ár. Þá hefur verið í gangi sérstakt átaksverkefni fyrir fólk á aldrinum 17–20 ára á sumrin. Við hvetjum at- vinnulaust ungt fólk til að skrá sig á atvinnuleysisskrá ef það hefur ekki fengið vinnu fyrir sumarið. Átaksverkefnið hefst svo ekki fyrr en í júlí, enda hefur komið í ljós að oft fækkar á listanum alveg fram að þeim tíma. Þá er reynt að útvega þeim sem enn eru atvinnulausir vinnu sem hefur gengið mjög vel. Öll þessi átaksverkefni eru auðvit- að kostnaðarsöm fyrir bæj- arfélagið, en svo sannarlega verðug verkefni,“ segir Rakel. Í nýlegri könnun um notkun Hvalfjarðarganga kom í ljós að fimmti hver bíll sem fór í gegnum göngin var af Skaganum. Rakel segir marga Skagamenn leita sér að vinnu í Reykjavík og einnig sæki margir þaðan skóla á höfuðborg- arsvæðinu. „Göngin eru að vissu leyti flösku- háls og er mikill áhugi á að leitað verði leiða til að lækka verðið í göngunum. Mikið er um að fólk hópi sig saman í bíla vegna þess hve rútuferðir eru stopular og tíma- setning þeirra hentar ekki öllum. Það er því líklegt að mun stærra hlutfall af þeim sem nota göngin séu frá Akranesi.“ Uppbygging á mörgum sviðum Rakel segir að þrátt fyrir að þessa stundina sé atvinnuástand á Akranesi ekki með besta móti sé engin ástæða til svartsýni. „Fólk hafði áhyggjur af því hvort sjáv- arútvegsfyrirtækið Haraldur Böðv- arsson yrði selt burt, en það fór sem betur fer vel. Ég vona svo sann- arlega að staðið verði við gefin lof- orð og að fyrirtækið muni áfram starfa á Akranesi. Margt fólk vinn- ur hjá fyrirtækinu og annað er í störfum því tengd. Það eykur auðvitað ástæðu til bjartsýni að fólki fjölgar í bænum og víða er verið að byggja upp, bæði íbúðarhúsnæði, leikskóla og íþróttaaðstöðu svo eitthvað sé nefnt. Það kom í ljós á atvinnuvega- sýningunni í haust að hér eru mörg og fjölbreytt fyrirtæki starfandi, alls 200 þótt ekki hafi öll tekið þátt í sýningunni, og það kom meira að segja bæjarbúum sjálfum á óvart. Sýningin var mikil lyftistöng og eftir hana hefur orðið vart við meiri samkennd og samstaða skapaðist um að gera betur til dæmis í sam- keppninni við höfuðborgarsvæðið. Við þurfum auðvitað alltaf að vera vakandi í sambandi við atvinnu- málin og halda áfram að hrinda af stað átaksverkefnum til að bæta ástandið þegar svo ber undir. Einnig þurfum við að benda fyr- irtækjum á möguleikana á að taka þátt í sérstökum verkefnum. Núna eru 24 í svokölluðum sérstökum verkefnum og 3 í starfsþjálfun, alls 27 manns sem njóta sérstakra úr- ræða.“ Sveiflukennt atvinnuástand á Akranesi en uppbygging á mörgum sviðum Engin ástæða til svartsýni Morgunblaðið/Ásdís Morgunblaðið/Ásdís Haraldsdóttir Rakel Óskarsdóttir asdish@mbl.is Atvinnuástand á Akra- nesi hefur verið mjög sveiflukennt á síðustu árum. Þrátt fyrir það ríkir bjartsýni hjá Skagamönnum. Ásdís Haraldsdóttir ræddi við Rakel Óskarsdóttur, markaðs- og atvinnu- fulltrúa Akraneskaup- staðar. Borgarnes | Sigurður Guðni Sig- urðsson á Akranesi er Vestlend- ingur ársins 2003. Sigurður er framkvæmdastjóri Skagans og formaður markaðsráðs Akraness en á báðum stöðum voru mikil umsvif á síðasta ári sem skiluðu góðum árangri. Það réð öðru fremur úrslitum í valinu að þessu sinni. Héraðsblaðið Skessuhorn stendur fyrir vali á Vestlendingi ársins og er tilgangurinn að vekja athygli á því sem vel er gert á Vesturlandi og sýna virð- ingarvott þeim sem skarað hafa fram úr með einum eða öðrum hætti á liðnu ári. Þetta var í sjötta sinn og líkt og á síðasta ári var óskað var eftir tilnefningum frá lesendum Skessuhorns. Síðan fékk sérstök dómnefnd það hlut- verk að velja úr tilnefningum þá tíu aðila sem að hennar mati væru best að heiðrinum komnir. Valið úr 10 manna hópi Úr þessum tíu manna hópi valdi dómnefndin síðan þrjá verð- launahafa og raðaði þeim í sæti. Í öðru sæti að þessu sinni varð Jón Oddur Halldórsson, ungur frjálsíþróttamaður frá Hellis- sandi. Jón Oddur var, ásamt Kristínu Rós Hákonardóttur, val- inn íþróttamaður ársins úr röðum fatlaðra. Hann sigraði í 100 og 200 metra hlaupi, bæði á Evr- ópumeistaramóti fatlaðra í frjáls- um íþróttum og á opna breska meistaramótinu. Þá sigraði hann í þeim greinum sem hann keppti í á Íslandsmóti ÍF innanhúss. Í þriðja sæti varð Magnús B. Jónsson rektor Landbúnaðarhá- skólans á Hvanneyri. Stöðug upp- bygging hefur verið á Hvanneyri undanfarin ár undir stjórn Magn- úsar. Nýjar háskóladeildir hafa skilað auknum fjölda nemenda og hvergi á Vesturlandi hefur verið jafnstöðug fjölgun íbúa síðustu árin og á Hvanneyri. Þá stendur nú yfir bygging nýs kennslufjóss á Hvanneyri, auk nemendagarða og einnig er unnið að því að auka og efla rannsóknarstarf við skól- ann. Eins og staðan er í dag lítur því út fyrir að skólinn og stað- urinn í heild eigi enn eftir að efl- ast á næstu árum. Aðrir af tíu efstu í valinu að þessu sinni voru, í stafrófsröð: Björg Ágústsdóttir, bæjarstjóri Grundarfjarðar sem verið hefur í framlínunni í undirbúningi að stofnun Fjölbrautaskóla á Snæ- fellsnesi. Flosi Ólafsson, Borg- arfirði, leikari og metsöluhöf- ufundur m.m. Garðar Gunnlaugsson, knattspyrnumaður með ÍA, og herra Ísland 2003. Guðsteinn Einarsson, kaupfélags- stjóri KB. Kolbrún Ýr Kristjáns- dóttir, sundkona á Akranesi. Þor- grímur Guðbjartsson, bóndi og mjólkurfræðingur á Erpsstöðum. Þórarinn Ingi Tómasson, nemi á Akranesi, sem bjargaði ungu barni frá drukknun í Eyjafirð- inum í desember. Morgunblaðið/Guðrún Vala Sigurður Guðni Sigurðsson, Vest- lendingur ársins 2003. Framkvæmdastjóri Skagans valinn maður ársins Búðardalur | Sú nýjung hefur ver- ið tekin upp á Hjúkrunarheim- ilinu Fellsenda að vera með leik- fimitíma fyrir heimilismenn, sem eru 17 talsins, einu sinni í viku. Kunna heimilismenn vel að meta þessa nýbreytni og bíða spenntir eftir hverjum tíma sem íþrótta- kennarinn í Búðardal Einar Jón Geirsson sem sér um. Hjúkr- unarheimilið hefur verið starf- andi frá 1967 og telst til fjöl- mennari vinnustaða í Dalabyggð en alls vinna þar 18 manns. Hjúkrunarforstjóri á Fellsenda er Helga Guðnadóttir. Morgunblaðið/Helga Ágústsdóttir Á Fellsenda

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.