Morgunblaðið - 19.01.2004, Síða 12
ERLENT
12 MÁNUDAGUR 19. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
KALEVI Sorsa, fyrrum forsætisráð-
herra Finnlands, lést á föstudag.
Hann var 73 ára gamall og hafði lengi
glímt við erfið
veikindi. Alls var
Sorsa forsætis-
ráðherra Finn-
lands í tíu ár á átt-
unda og níunda
áratug liðinnar
aldar. Hefur eng-
inn finnskur
stjórnmálamaður
gegnt því embætti
svo lengi. Sorsa, sem var jafnaðar-
maður, tók fyrst við embætti for-
sætisráðherra árið 1972. Hann fór
fyrir fjórum samsteypustjórnum mið-
og vinstriflokka í Finnlandi og gegndi
síðast embætti forsætisráðherra frá
1983 til 1987. Þá var hann þrívegis ut-
anríkisráðherra, forseti þingsins
1990–1991 og bankastjóri við Finn-
landsbanka til ársins 1996 þegar hann
settist í helgan stein.
Sorsa látinn
Kalevi Sorsa
Helsinki. AFP.
AÐ minnsta kosti tuttugu manns
biðu bana og 63 til viðbótar særðust
þegar afar öflug sprengja sprakk
fyrir framan höfuðstöðvar herstjórn-
ar Bandaríkjamanna í Bagdad
snemma í gærmorgun. Flestir hinna
látnu voru heimamenn sem biðu þess
að verða hleypt inn í höfuðstöðvarn-
ar en þó er talið að tveir Bandaríkja-
menn hafi verið í hópi fallinna.
Paul Bremer, bandaríski land-
stjórinn í Írak, fordæmdi árásina í
yfirlýsingu sem hann sendi frá sér í
gær. Sagði hann augljóst að þeir sem
bæru ábyrgð á þessum verknaði
vildu grafa undan frelsi, lýðræði og
framförum í Írak. „Þeim mun ekki
takast ætlunarverk sitt,“ sagði hann.
Árásin átti sér stað um kl. 8 að
staðartíma eða um kl. 5 í gærmorgun
að íslenskum tíma. Er talið að
Toyota-sendiferðabíl, hlöðnum
sprengiefni, hafi verið ekið að inn-
keyrslunni í höfuðstöðvar Banda-
ríkjahers í Bagdad og að ökumað-
urinn hafi þar sprengt sig í loft upp
með fyrrgreindum afleiðingum.
AFP-fréttastofan sagði fórnarlömb-
in 25 en Associated Press hafði eftir
bandarískum embættismanni í gær-
kvöldi að „um 20“ hefðu farist. Sagði
hann ekki hægt að gefa nákvæmari
tölu um fjölda fallinna, enda væru
mörg líkanna afar illa farin.
Sprengjan hálft tonn á þyngd
Sprengjan sprakk við innkeyrsl-
una að „græna svæðinu“ svokallaða
þar sem eru höfuðstöðvar Banda-
ríkjahers í Bagdad og aðsetur íraska
framkvæmdaráðsins en híbýlin voru
áður ein af forsetahöllum Saddams
Husseins. Er talið að sprengjan hafi
verið allt að hálft tonn á þyngd. Hún
var svo öflug að sprengingin heyrðist
um gervalla Bagdad.
Flestir hinna látnu fórust í miklum
eldsvoða sem kviknaði við spreng-
inguna og breiddist hratt út um nær-
stadda bíla. Sem fyrr segir voru flest
fórnarlambanna Írakar sem hugðust
leita eftir atvinnu hjá hernámsliðinu
og biðu þess að vera hleypt inn í höf-
uðstöðvarnar í upphafi venjulegs
vinnudags í borginni.
„Eftir sprenginguna ríkti algert
öngþveiti. Bandarískir hermenn
tóku að skjóta af byssum sínum. Ég
veit ekki hvernig mér tókst það en ég
náði að komast út úr bílnum mínum
sem var orðinn eins og bræðsluofn,“
sagði leigubílstjórinn Jalal Adwan
sem varð vitni að sprengingunni.
Mannskæðasta árásin
Um er að ræða mannskæðustu
árásina frá því að Saddam Hussein,
fyrrverandi forseti Íraks, var hand-
samaður í Írak 13. desember sl. en
sautján féllu í sjálfsmorðssprengju-
árás í Khaldiyah, vestur af Bagdad,
daginn eftir handtöku Saddams.
Raunar hafa ekki jafn margir farist í
einni og sömu árásinni í Bagdad frá
því að beinum stríðsátökum lauk í
fyrravor en tuttugu og tveir fórust í
árásinni á höfuðstöðvar Sameinuðu
þjóðanna 19. ágúst sl.
Í fyrradag höfðu fimm bandarískir
hermenn farist í sprengjutilræði
norður af Bagdad. Hafa þá meira en
500 Bandaríkjamenn fallið síðan ráð-
ist var inn í Írak í mars á síðasta ári.
Þar af hafa 230 fallið í árásum eftir
að George W. Bush Bandaríkjafor-
seti lýsti því yfir 1. maí 2003 að meiri
háttar hernaðaraðgerðum væri lok-
ið. Á sama tíma hafa að minnsta kosti
280 Írakar, þ.e. óbreyttir borgarar,
beðið bana í árásum sveita hliðhollra
Saddam.
Meira en 20 manns biðu
bana í tilræði í Bagdad
AP
Bandarískir hermenn rannsaka staðinn þar sem sprengjan sprakk í miðborg Bagdad í gærmorgun.
Tveir menn bera slasaðan mann á
brott eftir sprengjutilræðið í gær.
Bagdad. AFP, AP.
Sprengingin var
svo öflug að hún
heyrðist um
gervalla borgina
ARIEL Sharon, forsætisráðherra
Ísraels, hrósaði í gær Zvi Mazel,
sendiherra Ísraels í Svíþjóð, sem á
föstudag var skipað að yfirgefa
sænska þjóðminjasafnið í Stokk-
hólmi eftir að hann hafði valdið
skemmdum á listaverki í forgarði
safnsins.
Um er að ræða svokallaða inn-
setningu hjónanna Dror og Gunn-
illu Feiler en Dror Feiler er fæddur
og uppalinn í Ísrael. Flýtur lítill bát-
ur í laug af blóðrauðu vatni og á
hann er fest ljósmynd af Hanadi
Jaradat, palestínskri konu sem
sprengdi sig í loft upp í Haifa í októ-
ber sl. og drap um leið 21 Ísraela.
Tók Mazel sig til er hann sá lista-
verkið og reif ljóskastara úr sam-
bandi, kastaði honum í laugina og
skemmdi þannig verkið.
Sharon sagðist á vikulegum fundi
ísraelsku ríkisstjórnarinnar í gær
hafa hringt í Mazel og þakkað hon-
um fyrir að hafa brugðist þannig
við þessu nýjasta dæmi um vaxandi
gyðingahatur í heiminum. „Og ég
sagði honum að hann hefði fullan
stuðning ríkisstjórnarinnar,“ sagði
Sharon. „Mazel sendiherra hegðaði
sér nákvæmlega eins og hann þurfti
að gera,“ sagði Sharon enn fremur.
Málfrelsið fótum troðið?
Búið er að gera við innsetningu
Feiler-hjónanna en hún nefnist
„Mjallhvít og geðveiki sannleik-
ans“. Ísraelar hafa hins vegar kraf-
ist þess að verkið verði fjarlægt,
enda sé það til þess fallið að æsa
upp hatur á gyðingum.
Krister Berg, safnstjóri í Þjóð-
minjasafninu, segir þetta hins vegar
ekki koma til greina. „Á mánudag
munum við hins vegar senda ísr-
aelska sendiherranum boð um að
koma og taka þátt í opnum um-
ræðum um þetta listaverk, um
framferði hans, um listina og um
frelsi manna til athafna,“ sagði
Berg. Lét hann þess aðspurður get-
ið að ekki hefði verið haft samband
við hann af hálfu sænskra stjórn-
valda. Sagði hann ráðamenn í Sví-
þjóð nógu skynsama til að átta sig á
því að þeir gætu ekki sagt sjálfstætt
rekinni menningarstofnun fyrir
verkum.
„Þú getur haft sjálfstæða skoðun
á þessu listaverki en það er aldrei,
aldrei hægt að sætta sig við að
menn beiti ofbeldi og það má aldrei
una tilraunum til að þagga niður í
listamönnum,“ sagði Berg. Dror
Feiler hefur fyrir sitt leyti kallað
Mazel „dverg að gáfnafari“, að því
er fram kemur á fréttasíðu BBC, og
segir að Mazel hafi reynt að „troða
á málfrelsinu og réttinum til list-
rænnar sköpunar“.
Fram hefur komið að embætt-
ismenn í sænska utanríkisráðuneyt-
inu hyggjast boða Mazel sendiherra
á sinn fund í dag og fá hann til að
útskýra gjörðir sínar, sem sagðar
voru „óviðunandi“ með öllu.
Listaverk Feiler-hjóna er hluti af
sýningu er tengist ráðstefnu um
þjóðarmorð sem halda á í Stokk-
hólmi 26.–28. janúar nk. og sænskir
fjölmiðlar fullyrða að Ísraelar hafi
hótað því að hætta við þátttöku á
ráðstefnunni vegna atviksins á
föstudag. „Þetta er ekki list, þetta
er hryllileg lofgjörð um sjálfs-
morðssprengjumenn og hvetur til
þjóðarmorðs á Ísraelum,“ sagði
Mazel sjálfur í viðtali á laugardag.
Sharon sáttur við
hegðun sendiherrans
Stokkhólmi. AFP.
Scanpix
Zvi Mazel (t.v.) og listamaðurinn Dror Feiler (t.h.) sjást hér deila hart sl.
föstudag eftir að sendiherrann hafði valdið spjöllum á listaverki Feilers.
Segir Zvi Mazel hafa brugðist alveg
rétt við er hann eyðilagði listaverk í
forgarði sænska þjóðminjasafnsins
AP
Gunnilla og Dror Feiler við verk sitt
í forgarði sænska þjóðminjasafnsins.
BRESKU milljarðamæringarnir
David og Frederick Barclay tilkynntu
í gær að þeir hygðust kaupa hlut fjöl-
miðlakóngsins Conrads Black í Holl-
inger-blaðasamsteypunni sem m.a.
gefur út dagblöðin The Daily Tele-
graph í London,
Chicago Sun-Tim-
es og The Jerusal-
em Post.
Í yfirlýsingu frá
Press Holdings,
fyrirtæki Barclay-
bræðra, sagði að
samkomulag væri
um kaup á 78%
eignarhlut í Holl-
inger við fyrirtækið Ravelston, sem
er í eigu Blacks.
Á laugardag hafði sérstök stjórn-
arnefnd hjá Hollinger sett Black af
sem stjórnarformann, en áður hafði
hann sjálfur sagt af sér fyrir nokkrum
mánuðum, sem aðalforstjóri fyrir-
tækisins. Jafnframt hefur Hollinger
tilkynnt að það muni lögsækja Black
til endurgreiðslu á 200 milljónum doll-
ara en um er að ræða fjármuni sem
Black og samstarfsmaður hans, Dav-
id Radler, eru sagðir hafa fengið
greidda frá fyrirtækinu án heimildar.
Black selur
í Hollinger
London, New York. AFP, AP.
Conrad Black
♦♦♦