Morgunblaðið - 19.01.2004, Page 26

Morgunblaðið - 19.01.2004, Page 26
MINNINGAR 26 MÁNUDAGUR 19. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Svafa Kristjáns-dóttir fæddist á Ytri-Tjörnum, Eyja- firði 26. maí 1910. Hún lést á dvalar- heimilinu Kjarna- lundi 12. janúar síð- astliðinn. Foreldrar hennar voru Kristján Helgi Benjamínsson, bóndi og hreppstjóri á Ytri-Tjörnum, f. 24. október 1866, d. 10. janúar 1956, og kona hans Fanney Frið- riksdóttir, frá Brekku í Kaupangs- sveit, f. 6. janúar 1881, d. 13. ágúst 1955. Svafa var sjötta í röð tólf systkina. Þau voru Laufey Sigríð- ur f. 2. nóv. 1899, d. 21. júní 1993; Benjamín f. 11. júní 1901, d. 3. apríl 1987; Inga f. 29. júlí 1903, d. 21. mars 1985; Auður, f. 14. des- ember 1905, d. 20 janúar 1976; Theodór, f. 12. mars 1908, d. 1. maí 1994, Baldur Helgi, f. 7. júní 1912, d. 25. nóvember 2003; Bjart- mar, f. 14. apríl 1915, d. 20. sept- ember 1990; Val- garður, f. 15. apríl 1917, d. 5. febrúar 1999; Hrund, f. 20. febrúar 1919, d. 26. mars 2003; Dagrún, f. 1. maí 1921, d. 10. desember 1997; og Friðrik, f. 29. maí 1926. Hinn 24. október 1950 giftist Svafa Tryggva Guðmunds- syni sjómanni á Ak- ureyri, f. á Austari- Krókum á Flateyjar- dalsheiði 19. mars 1913, d. 23. desember 1990. Hann var sonur hjónanna Guð- mundar Kristjánssonar og Rann- veigar Jónsdóttur frá Saurbrúar- gerði á Svalbarðsströnd. Svöfu og Tryggva varð ekki barna auðið. Þau bjuggu allan sinn búskap á Ránargötu 4 á Akureyri. Útför Svöfu verður gerð frá Akureyr- arkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Burtförin úr þessum heimi er fæð- ing inn í annan og bjartari heim – það hlýtur að vera mikill léttir og fögnuður að losna úr viðjum jarð- neskra fjötra, líkamlegara þjáninga og sjúkleika. Hún Svafa frænka okk- ar hefur fengið frelsið og er flogin á vit nýrra heimkynna á nítugasta og fjórða aldursári. Það er gleðiefni en ekki sorgar, þegar bundinn er endir á langan aðdraganda að þeim vista- skiptum. Alltaf mun þó verða sökn- uður þegar góðir vinir kveðja. Svafa var ein af þessum einstöku sálum sem hugsuðu meira um aðra en sjálfa sig og lagði sig fram við það. Þótt hún ynni láglaunavinnu alla sína tíð var hún ávallt aflögufær með sjóði og þrek til hjálpar og glaðnings handa ættingjum og vandamönnum. Hjónin voru samtaka á þessu sviði því Tryggvi var líka einstakur öð- lingur og góðmenni. Bæði létu þau þarfir sínar víkja fyrir aðstoð og greiðvikni við aðra. Svafa var systk- inabörnum sínum afskaplega góð og kærleiksrík og nutum við Ytri- Tjarnasystkinin þess ríkulega. Hún elskaði sveitina sína og æskustöðvar og hafði mikinn áhuga á búskapnum á Ytri-Tjörnum og tók framan af bú- skaparárum Baldurs og Þuríðar virkan þátt í bústörfum þeirra. Við minnumst hennar öll vinnandi rösk- lega með hrífu við hreinsun túna á vorin og við heyskap á sumrin, en þó ekki síst við kartöflupptökuna á haustin þar sem hún fór hamförum og fyllti fötur og poka hraðar en aðr- ir. Hún var afskaplega vinnusöm og áhugasöm og hreif okkur krakkana með sér og áfram við vinnuna. Hún sagði svo oft að hún hefði viljað stunda sveitabúskap – hann væri henni í blóð borinn. Meðan fjárbú- skapur var við lýði á Ytri-Tjörnum átti hún kindur sem hún hafði mikla unun af. Hún varð að vinna fyrir fóðrun á skjátunum sagði hún. Vinnuframlagið var þó alltaf gott betur en það. Svafa og Tryggvi byggðu sér sumarbústaðinn Tryggvasel í skógarreitnum á Ytri- Tjörnum þar sem þau dvöldu oft á sumri sér til ánægju. Eftir að Tryggvi lést ánafnaði Svafa okkur systkinunum þennan sumarbústað. Svafa var mjög bókhneigð, víðles- in og margfróð. Hún átti mikið bóka- safn og kunni einkum vel að meta ís- lensku skáldin. Við minnumst Svöfu sem sérstak- lega elskulegrar frænku á Akureyri. Þegar farið var í bæinn var fastur liður að koma við hjá Svöfu og Tryggva í Ránargötuna. Þar voru ævinlega góðgerðir á borðum og vel tekið á móti öllum, ekki síst okkur krökkunum. Þar kynntumst við framandi bakkelsi og sælgæti sem Tryggvi hafði gjarnan heim með sér úr siglingum. Í Ránargötunni var af- skaplega gestkvæmt og mikil hjarta- hlýja. Flest systkini hennar áttu heima í Eyjafirðinum og áttu þau öll, ásamt fjölskyldum sínum, öruggt at- hvarf hjá þeim hjónum. Það var mikill missir fyrir Svöfu þegar Tryggvi lést fyrir rúmum 13 árum. Tryggvi átti við alvarleg veik- indi að stríða síðustu æviárin og snerist þá líf Svöfu að mestu um að hugsa um hann og gera honum lífið bærilegra. Eftir að Tryggvi féll frá fór að halla undan fæti hjá þessari duglegu konu – hlutverk hennar var allt í einu horfið og hún óvön því að hugsa bara um sjálfa sig. Síðustu ár- in dvaldi hún á dvalarheimilum fyrir aldraða, fyrst Skjaldarvík og síðan í Kjarnalundi. Við kveðjum Svöfu frænku okkar með miklu þakklæti og virðingu. Hún reyndist okkur, mökum okkar og börnum einstaklega kærleiksrík. Svafa er nú flutt yfir móðuna miklu og er orðin ung á ný. Við biðjum henni allrar blessunar um ókomna tíð. Fyrir hönd systkinanna á Ytri- Tjörnum, Kristján Baldursson. Fósturlandsins Freyja, fagra vanadís, móðir, kona, meyja, meðtak lof og prís. Blessað sé þitt blíða bros og gullið tár. Þú ert lands og lýða ljós í þúsund ár. (M. Joch.) Með þessum orðum kveð ég þig, Svafa frænka, svo og systur þínar allar sem farnar eru á undan þér. Mikið erum við rík, sem eftir lifum í stórfjölskyldunni sem gjarnan er kennd við Ytri-Tjarnir í Eyjafirði, að hafa átt ykkur, og bræður ykkar að, en nú er Friðrik einn eftir af þeim heiðursmönnunum sex. Við getum haldið áfram með alla þá fjársjóði í farteskinu, sem skyldleikinn og kynnin við ykkur, bæði í blíðu og stríðu, gáfu okkur. Mitt stolt er að vera frænka ykkar, ein af sex systr- um eins og þú, og gefast ekki upp frekar en þú, þrátt fyrir að stundum blási í fangið í henni veröld. Ég bið að heilsa „heim“ í Ytri-Tjarnir næsta heims. Vertu svo ævinlega blessuð. Þess óskar þín frænka Auður Theódórsdóttir. „Er þetta hann Baldur? Þú ert nú bara að verða næstum því eins fal- legur og Heimir frændi þinn.“ Þessi mannlýsing, sem er sennilega ekki sú lakasta sem ég hef hlotið um æv- ina, kemur fyrst upp í hugann þegar ég minnist Svöfu afasystur minnar, sem nú hefur kvatt jarðvistina eftir langa dvöl. Þá minnist ég og margra heimsókna til Svöfu og Tryggva í sumarbústaðinn Tryggvasel, sem þau reistu í skógarreit ömmu og afa heima á Tjörnum. Þangað var ætíð gott að koma og eigi skorti þar náungakærleikann. Svafa var sú manngerð sem hugs- aði fyrst um hag annarra en lét eigin þarfir mæta afgangi. Þeir voru víst ófáir sem hún skrifaði upp á fyrir, eða veitti einhvers konar fyrir- greiðslu. Sjálf átti hún ekki samstæð bollapör, svoleiðis munað var ekki verið að eyða í. Lengi fram eftir ævi var Svafa ódeig við að koma heim í sveitina til ömmu og afa og hjálpa til á álagstímum, við kartöfluupptöku, heyskap og ýmis bústörf önnur. Dró hún þá hvergi af sér. Er mér tjáð að svo hafi einnig verið á uppvaxtarár- um hennar heima á Tjörnum, á tíma- bili stóðu þau systkinin, hún og Bald- ur afi minn, mikið til fyrir búinu og voru samhent við það. Talsvert er farið að kvarnast úr systkinahópnum frá Tjörnum, Svafa er sú ellefta af tólf systkinum að leggja upp í sína hinstu för. Það var einatt glatt á hjalla er þau komu saman í stofunni heima á Tjörnum. Var þá farið vítt yfir sviðið í um- ræðum, allt frá ástandinu í heims- málunum yfir í trúmál, spíritisma og lífið eftir dauðann. Man ég sérstak- lega eftir því, að þeir prestlærðu af bræðrunum voru einatt krafðir svara um hvernig umhorfs væri á æðri tilverustigum og hvað við tæki eftir að jarðvistinni lyki. Var þeim nokkur vandi á höndum með að kveða upp úr með það. Nú nýlega fékk ég í hendur mynd- band sem sveitungi minn, Hjörleifur Tryggvason, tók í 85 ára afmæli Theodórs, bróður Svöfu, árið 1993. Þar eru systkinin saman komin og svífur gleðin yfir vötnunum, þar sem „guðaveigar lífga sálaryl“. Allt er þar með hefðbundnu sniði, Baldur afi, Svafa og Hrund leika á als oddi, Dagrún málar tilveruna hins vegar heldur sterkum litum. Theodór held- ur sig mest til hlés, það er þó ekki laust við að hann lumi á einu eða tveimur gullkornum í myndskeiðinu. Ég hitti Svöfu síðast í mars sl. en þá heimsótti ég hana með Þuríði ömmu minni. Þennan dag hefði Tryggvi eiginmaður Svöfu orðið ní- ræður en hann er nú látinn fyrir rúmum áratug. Svafa var þá orðin nokkuð hnigin af aldri en þó ágæt- lega með á nótunum. „Hvað ertu nú orðinn gamall?“ Ég sagðist vera nær þrítugu, „og ertu þá ekki búinn að ná þér í konu?“ Ekki bjó ég nú svo vel, það væri þó vissulega á stefnu- skránni. Eins og áður segir þóttu þau systkinin Svafa og Baldur afi mjög samrýnd. Það var líka stutt á milli þess að þau hyrfu úr þessum heimi, einungis hálfur annar mánuður. Verða nú eflaust fagnaðarfundir hin- um megin, eins og forðum daga. Ég óska Svöfu frænku velfarnaðar á nýrri vegferð, megi hún hvíla í friði. Baldur Helgi Benjamínsson. Nú er fallin frá Svafa föðursystir okkar á 94. aldursári. Það var heldur skammt á milli þeirra Baldurs bróð- ur hennar sem féll frá í lok nóvember sl. Tólf voru þau Ytri-Tjarnasystkin, sex systur og sex bræður og er nú öll farin nema Friðrik sá yngsti. Það hlýtur að teljast merkilegt hjá svo stórum systkinahópi að öll kom- SVAFA KRISTJÁNSDÓTTIR Elsku afi minn, nú sit ég hér uppi í risi á Kambsveginum og læt hugann reika til baka til þeirra fjölmörgu stunda sem við áttum saman bæði þegar ég var krakki og nú þessi síðastliðnu ár. Það er svo margt sem þú sagðir og kenndir mér, sumt kunni maður ekki að meta þá en þegar maður hugsar til baka þá skil- ur maður hvað þú áttir við. Þú kennd- ir mér svo margt varðandi listina að lifa. Ég hef reynt að tileinka mér þá lífsleikni sem þú skapaðir þér en í þín fótspor verður ekki fetað. Ferðirnar upp í Norðurá eru ógleymanlegar, bæði vinnu- og veiði- ferðir. Ég man eins og það hafi gerst í gær þegar við stóðum úti á túni við veiðihúsið og þú kenndir mér að kasta flugu. „Ekki of langt aftur með stöngina,“ sagðir þú, alltaf jafn þol- inmóður. Ekki fannst mér það síðra þegar vaða átti út í Laxfoss og græja teljarann, það átti að haldast í hend- ur, horfa á botninn og vara sig á rennunum á fossbrúninni. Þessar vinnuferðir og síðan veiðiferðir eru ógleymanlegar, ekki bara það að njóta útiverunnar á þessum fallega GUNNAR PETERSEN ✝ Gunnar Petersenfæddist í Reykja- vík 11. október 1923. Hann lést á Land- spítalanum – há- skólasjúkrahúsi 4. janúar síðastliðinn og var útför hans gerð frá Áskirkju 13. janúar. stað heldur líka það að fá að vera með þér og þínum vinum, spila yatzy, fara með vísur og hlusta á veiðisögur. Ferðirnar með þér og ömmu upp í Brekku- kot á sumrin voru alltaf skemmtilegar. Þar gát- um við systkinin leikið okkur í krokket, gúmmíbátsferðum á lóninu eða bara reynt að gera eitthvað gagn eins og að dæla úr brunninum, planta trjám eða kveikja upp í arninum. Heimsóknirnar á Kambsveginn voru alltaf skemmtilegar, alltaf vor- um við að spila hvor við annan, hvort sem það var billjard, skák eða leik- urinn með kúlunum sem ég veit ekki hvað heitir. Ef það var ekki verið að spila þá var verið að kenna mér að boxa eða gera leikfimiæfingar, ekki vantaði mann athygli þegar maður kom í heimsókn á Kambsveginn. Elsku afi, mér finnst við eiginlega hafa kynnst best á tveimur tímabil- um, á því tímabili sem ég talaði um áðan og síðan þegar ég og Elva vor- um svo heppin að fá að kaupa risið á Kambsveginum fyrir tveimur árum. Eftir að við fluttum á Kambsveginn þá fannst okkur það forréttindi að fá að kynnast ykkur ömmu svona vel. Það er svo margt sem við lærðum af ykkur hjónunum, hvernig við komum fram hvert við annað og hvert við stefnum saman í lífinu. Þú og amma voruð sem eitt, þið voruð einstaklega samrýnd og ástfangin upp fyrir haus eftir meira en 50 ár saman. Samband eins og þið áttuð er eitthvað sem allir þrá en fáir njóta. Síðustu minningar sem ég hef um þig, elsku afi minn, eru hér á Kambs- veginum með Önnu Alexöndru í fanginu. Hún var svo hrifin af þér, hljóp alltaf til þín hvar sem þú varst og þú tókst á móti henni brosandi, þetta eru góðar minningar. Elsku afi, ég þakka fyrir það sem þú hefur gefið og kennt okkur krökk- unum í gegnum tíðina, við erum betri manneskjur fyrir vikið. Ég skila kærri kveðju frá Birnu og Evu Hrönn, mín orð eru sem þeirra. Meg- ir þú hvíla í friði. Gunnar Már, Elva og Anna Alexandra. Hann var vörpulegur á velli, ákveðinn og kappsfullur. Greinilega lét honum betur að vera sigurvegari í leiknum. Þannig kom mér Gunnar Petersen fyrir sjónir er ég sá hann fyrst á haustdögum 1949 í íþróttahúsi Melaskólans. Þar þreytti hann keppni við félaga sína í badminton. Síðar átti ég eftir að kynnast honum betur og þeim eiginleikum sem hann bjó yfir. Þeir sem þekktu Gunnar Petersen vita að ekkert væri honum fjær skapi en að um hann látinn væri skrifuð einhver hástemmd lofgjörðarræða. Slíkt væri þó auðvelt án þess að sann- leikanum væri misboðið. Ég mun því til að þóknast vini mínum leitast við að stilla máli mínu í hóf og spara stóru lýsingarorðin eins og ég framast get. Við nánari kynni komst ég að raun um að hann bar með sér sterkan persónuleika og hafði fast- mótaðar skoðanir sem ekki varð hróflað við. Hann var vinur vina sinna og talaði aldrei illa um nokkurn mann. Meira en hægt er að segja um marga aðra. Gunnar var hófsamur í daglegu lífi, fór vel með peninga þótt hann skorti þá ekki á síðari hluta æv- innar en fátækt hafði hann kynnst í æsku. Hann var nokkuð íhaldssamur í viðhorfi til þjóðmála og hefði talið farsælt að Sjálfstæðisflokkurinn færi með völd bæði hjá borg og ríki. Póli- tískt þras var honum ekki að skapi og skoðunum sínum reyndi hann ekki að þröngva upp á aðra. Að minni hyggju var hann þegn sem hvert þjóðfélag getur verið stolt af að hafa í sínum röðum. Skyndilegt fráfall góðs vinar og samferðamanns á lífsleiðinni í meira en hálfa öld hlýtur að leiða til þess að hugurinn leiti til baka. Horft sé yfir sviðið og staldrað við viss kennileiti sem skýrari verða í minningunni en önnur. Þannig er mér einmitt farið núna. Þegar ég lít til baka finnst mér að við Gunnar Petersen höfum átt svo óvenjulega mikið saman að sælda á lífsleiðinni þótt ólíkir værum á marg- an hátt. Nægir þar að nefna badmintonið sem við iðkuðum ásamt félögum okk- ar í 50 ár, oft tvisvar í viku yfir vetr- artímann, einnig samkomurnar hjá Tennis- og badmintonfélaginu og litla hópnum okkar sem við kölluðum „Fugla“. Þessar samkomur voru gjarnan haldnar á Kambsveginum á heimili Gunnars og Mundu. Á slíkum samfundum voru húsráðendur í ess- inu sínu ef svo má segja og gestrisnin í hávegum. Þá tókum við upp á því, komnir á miðjan aldur, að hefja skíðaiðkun ásamt konum okkar. Byrjað var á gönguskíðum en síðan haldið í brekkurnar. Fyrst voru það Bláfjöll. En síðan lá leiðin til Akureyrar, Austurríkis og Sviss í nokkur ár. Öll nutum við þess- ara ferða þótt skíðafærnin væri kannski ekki sem fullkomnust. Þá voru það sumarferðirnar hér innan- lands á Hondajeppanum hans Gunn- ars. Landið var skoðað og gjarnan stansað við heimreið að bóndabæ þar sem Gunnar hafði verið í sveit sem unglingur eða kaupmaður á fullorð- insárum. Oft kom það fyrir í þessum ferðum að Gunnar vildi stoppa við árbakka og líta á hylinn og rifja upp gamlar viðureignir við árbúa. Stundum fékk sá sem hér stýrir penna að njóta reynslu hans á þeim vettvangi. Margar ánægjustundir áttum við hjónin við spilaborðið með þeim hjón- um Gunnari og Mundu. Fyrir kom á slíkum kvöldum að Gunnar rifjaði upp gamlar stökur en létt átti hann með að koma hugsun sinni í bundið mál. Hér verður ekki minnst á þátt Gunnars í atvinnulífinu en þar var hann umsvifamikill í útflutningi sjáv- arafurða og stýrði fyrirtæki fjöl- skyldunnar í áratugi. Ekki verður skilist svo við þennan pistil að hennar Mundu sé ekki getið sérstaklega. Hjónaband þeirra Gunnars var til fyrirmyndar í flest- um greinum. Segja má að þau hafi bætt hvort annað upp. Í veikindum Gunnars sýndi hún honum mikla þolinmæði og elsku þótt hún sjálf gengi ekki heil til skóg- ar. Fyrir alla þá umönnun veit ég að Gunnar var henni mjög þakklátur þótt hann hefði ekki mörg orð þar um. Það var hans stíll. Á góðri stund í stofunni heima á Kambsveginum settist Gunnar gjarnan við píanóið og spilaði af fingrum fram gömlu góðu slagarana. Þannig vil ég muna hann. Við Svana vottum Mundu og fjöl- skyldunni okkar dýpstu samúð. Kristján Benediktsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.