Morgunblaðið - 19.01.2004, Side 28

Morgunblaðið - 19.01.2004, Side 28
MINNINGAR 28 MÁNUDAGUR 19. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ Guðmundur var í stórum systkina- hópi 14 systkina eins og gerðist á tuttugustu öldinni. Hann fór ungur að heiman til venjulegrar vinnu, sem var eðlilegt þá, til sjómennsku á ver- tíð í Vestmannaeyjum og frá Reykja- vík. Í seinni heimsstyrjöldinni sigldi hann á Rifsnesinu til Bretlands margar ferðir. Var þar skipstjóri Ingvar Pálmason og sagði hann mér margar sögur af því. Einnig var hann á síldveiðum á sama skipi. Með- al háseta þar var Pálmi Ingvarsson, sonur Ingvars skipstjóra. Hann sagði mér að sá ósérhlífnasti maður sem hann hefði verið með á sjó hefði verið Guðmundur Auðunsson. Þeir voru á línuveiðum og trolli, en pabba fannst alltaf skemmtilegast við veið- GUÐMUNDUR AUÐUNSSON ✝ Guðmundur Auð-unsson fæddist á Svínahaga á Rangár- völlum 4. febrúar 1914. Hann lést á Landspítala í Foss- vogi 12. febrúar síð- astliðinn. Foreldrar hans voru Jóhanna Katrín Helgadóttir og Auðunn Jónsson. Guðmundur kvæntist Sigurborgu Helgadóttur. Þau eignuðust Ragnar, Auðun og Hafþór. Þau slitu samvistum. Fyrstu bú- skaparár Sigurborgar og Guð- mundar bjuggu þau í Efstasundi 70, síðan Akurgerði 17, Skóla- gerði 6 og Langagerði 48. Útför Guðmundar verður gerð frá Bústaðakirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. ar þegar veitt var í snurvoð. Árið 1948 réð Guð- mundur sig til Eim- skipafélags Íslands og var þar á Goðafossi til 1953. Það má lesa í bók Péturs skipsfélaga pabba „Krappur lífs- dans“, um svaðilfarir um borð í Goðafossi. Eftir veru sína á Goða- fossi hóf Guðmundur störf hjá S. Árnason & Co sem lager- og út- keyrslumaður. Það fyr- irtæki var síðan sam- starfsfyrirtæki Ólafs Þorsteinssonar & Co. Einnig var hann vaktmaður um nætur í Öskju og Kötlu, skipum Eimskipafélags Reykjavíkur, og starfaði hann þar það sem eftir var starfsævinnar. Mér er margt minnisstætt sem sá gamli sagði mér, t.d. þegar hann tók bílpróf í Vestmannaeyjum. Hann keyrði vörubíl af bryggjunni upp að lögreglustöðinni og það var nóg. Þar fékk hann afhent ökuleyfið. Þetta var bara eðlilegt þá, og ökuleyfið gilti til dauðadags. Við ætlum að kveðja föður okkar með þessum fátæklegu orðum. Megi góður Guð geyma hann og vernda. Ragnar og Hafþór. Nú er hann afi okkar dáinn og við söknum hans sárt. Þó við vitum að hann er kominn á stað þar sem honum líður vel, er alltaf sorglegt að þurfa að kveðja. Við höfum síðustu daga verið að rifja upp atvik þar sem afi spilaði stórt hlutverk. Það sem stendur uppúr var hvað hann var skemmtilegur og góður og gerði ýmsar stuttar ferðir t.d. í búðina að ævintýrum. Í mörg ár héldum við að hann væri leynilögga, en hann var þá að vinna sem kokkur á Litla-Hrauni. Þar klæddist hann ljósblárri skyrtu, ekki ólíkri lögguskyrtu, og þegar við spurðum hann að því af hverju hann væri ekki með löggumerki á skyrt- unni þá svaraði hann að leynilöggur væru aldrei með löggumerki og það fannst okkur mjög trúlegt. Oft héld- um við að við værum í leynileiðöngr- um þegar við vorum í raun bara að fara í búðina eða á ruslahauginn. Hann hafði einstakt lag á að gera hlutina skemmtilega. Við fengum líka oft að leika okkur með sag og spæni í bílskúrnum í Smáratúninu, sem okkur þótti afar spennandi. Afi var alltaf eitthvað að smíða enda komu margir fallegir gripir frá honum, þar á meðal var sumarbústaðurinn, Hálsakot, þar sem amma og afi eyddu stórum hluta af árinu. Bæði afi og amma voru alltaf að bæta og gera meira fyrir bústaðinn. Við eigum myndir af okkur með ömmu og afa frá því við vorum pínu peð í tjaldi að fylgjast með fullorðna fólkinu að koma bú- SIGURÐUR INGI- MUNDARSON ✝ Sigurður Ingi-mundarson fæddist á Strönd á Stokkseyri 4. desem- ber 1918. Hann lést á Landakotsspítala í Reykjavík 4. janúar síðastliðinn og var útför hans gerð frá Fossvogskirkju 13. janúar. staðnum upp. Þegar amma og afi fluttu frá Selfossi í Kópavog stoppaði smí- ðaáhugi afa ekki. Áfram hélt hann smíðamennskunni og yfirleitt þegar við kom- um var afi að dunda sér úti í bílskúr. Samband afa og ömmu var alveg ein- stakt og það var ótrú- legt hvað hún hugsaði vel um hann, sérstak- lega í veikindunum. Og það var mjög gaman að sjá að eftir 55 ára hjónaband voru þau ennþá svo hamingjusöm saman og mjög samrýnd. Við kveðjum þig hér, elsku afi okkar, og minning þín lifir í hjörtum okkar. Elsku amma, við biðjum Guð um að styrkja þig í söknuðinum. Bára Hlín og Svava Huld. Elsku afi, við kveðjum þig með þessu ljóði: Ég fel í forsjá þína, Guð faðir, sálu mína, því nú er komin nótt. Um ljósið lát mig dreyma og ljúfa engla geyma öll börnin þín, svo blundi rótt. (Matthías Jochumsson.) Hvíl í friði og þökk fyrir allt. Birna og Harpa. Fallinn er nú frá einn af bestu fé- lagsmálamönnum Selfossbæjar til margra ára. Þegar ég sest niður og rifja upp nokkrar minningar um minn bjarta og lífsglaða vin, Sigurð Ingimund- arson, setur mig hljóðan, því erfitt er að sætta sig við að hann sé horfinn okkur, þó vitað hafi verið að hverju stefndi. Hann og konan hans, Svava Sigurðar, voru meðal traustustu vina okkar Dagnýjar sem við kynnt- umst þegar við fluttum á Selfoss árið 1960. Eftir rúmlega 40 ára einlæga og mikla vináttu leitar hugurinn á vit minninganna og er eins og öll árin líði hjá sem örskotsstund þegar litið er til baka. Félagsmálastarf hans við upp- byggingu Ungmennafélags Selfoss tengdi okkur sterkt saman og var hann þar hinn staðfasti dugnaðar- maður sem sá fyrir sér félagið vaxa og dafna í sérgreinadeildir. Hann var söngelskur með afbrigðum og beitti kröftum sínum mjög á þeim vettvangi. Sigurður var hrókur alls fagnaðar hvar sem hann kom. Sameiginleg ferðalög okkar og fjölskyldna um uppsveitir Árnessýslu og hringinn í kringum landið eru mér ofarlega í minni. Samverustundir okkar á fundum, skemmtunum og í heimahúsum öll þessi ár voru alltaf ánægjulegar fyr- ir það hversu glaðvær og hnyttinn Sigurður var í tilsvörum og ekki skemmdi hinn ljóðræni húmor hans. Hann átti auðvelt með að setja sam- an vísur og kviðlinga sem glöddu alla. Smiður var hann hinn ágætasti og eru til margir fagrir smíðisgripir eftir hann. Við vorum heimagangar hvor hjá öðrum og gagnkvæmar heimsóknir Svövu og hans og okkar Dagnýjar voru kærkomnar og lýstu best því einlæga vináttusambandi sem ríkti milli heimila okkar. Eitt lít- ið dæmi var þegar Hekla gaus í maí árið 1970. Við Siggi vorum á stjórn- arfundi í Umf. Selfoss fram yfir mið- nætti og rukum heim, vöktum konur okkar og ókum saman austur í Þjórsárdal til að virða fyrir okkur Heklugos. Ég vil því gera orð Guð- mundar Böðvarssonar að mínum, þar sem hann segir: Gott er að koma að garði þeim sem góðir vinir byggja þá er meir en hálfnað heim hvert sem leiðir liggja. Elsku Svava og synir. Ég sendi ykkur mínar einlægustu samúðar- kveðjur og bið guð að styrkja ykkur og fjölskyldur í sorg ykkar. Ég syrgi og sakna míns besta vinar um árabil. Hörður S. Óskarsson. Það er nýliðin hátíð ljóss og friðar, eitt ár runnið út í tímans haf, og þar með nýtt gengið í garð, ár fyrirheita og vona, um birtu og gleði sem sér- hver maður óskar sér. Á fyrstu dögum hins nýja árs barst okkur til eyrna á öldum ljós- vakans, lát samferðamanns, Sigurð- ar Ingimundarsonar. Sigurður var einn af stofnendum Samkórs Selfoss og starfaði í honum meðan hann bjó á Selfossi, eða þar til hann flutti í Kópavoginn. Hann var heiðursfélagi Samkórsins hin síðari ár. Sigurður starfaði af lífi og sál í þessum fé- lagsskap, allt sem hann tók að sér var gert af skörungsskap og brenn- andi áhuga. Sigurður var kosinn í fyrstu ritnefnd Samkórsblaðsins sem gefið hefur verið út síðastliðin tuttugu ár. Hann var einn af þeim sem mótuðu blaðið í upphafi sem lít- ið hefur breyst í áranna rás.Við minnumst Sigurðar sem hins trausta og starfsglaða félaga, og þökkum hvert hans framlag til heilla því sem unnið var hverju sinni, bæði í starfi og leik. Við minnumst ferðalaga ut- anlands og innan þar sem hann ásamt konu sinni Svövu, voru lífið og sálin, að gera ferðirnar sem eftir- minnilegastar. Við flytjum Svövu og fjölskyld- unni okkar innilegustu samúðar- kveðjur, og óskum þess að hækkandi sól megi lýsa upp dagana sem eru framundan. Félagar í Samkór Selfoss. Látinn er mikill sómamaður og góður samferðamaður, Sigurður Ingimundarson, eða Siggi Ingi- mundar eins og hann var kallaður hér á Selfossi. Mig langar með ör- fáum orðum að minnast þessa góða manns sem ég fékk tækifæri á að kynnast þegar hann bjó á Selfossi. Árið 1970 var Siggi Ingimundar kjörinn í stjórn UMF. Selfoss sem ritari, það var mikill fengur fyrir félagið að fá til starfa jafn áhuga- saman og mikinn félagsmálamann og hann var. Það var mikill styrkur fyrir okkur yngri strákana að hafa mann á borð við Sigga sem var ávallt tilbúinn að aðstoða og leið- beina ef með þurfti. Ég man vel þegar við sátum saman á félags- málanámskeiði í Sundhallarkjallar- anum, sem hann og Hörður S. Ósk- arsson, vinur hans og formaður félagsins, undirbjuggu, hvað Siggi naut þess að vera með okkur yngri strákunum glaður og hress og ekki hægt að merkja að um aldursmun væri að ræða. Þegar ungmennafélagið beitti sér fyrir því að fá að innrétta Sund- hallarkjallarann sem félagsmiðstöð fyrir unglinga kom þekking og áhugi Sigga sér vel við þá fram- kvæmd. Þegar ungmennafélaginu var deildarskipt á miklum átaka- fundi, tók Siggi afstöðu með okkur knattspyrnumönnum og öðrum um að félagið væri betur komið deild- arskipt og sjálfstæði íþróttagrein- anna þar með tryggt. Að morgni 4. janúar þegar sonur Sigurðar segir mér frá andláti föð- ur síns var ég og kona mín að koma kvöldinu áður af fjörutíu ára af- mæli Hjónaklúbbs Selfoss. Ástæð- an fyrir því að ég segi frá því er að Siggi var einn af stofnfélögum Hjónalkúbbs Selfoss, sem hefur starfað hér í bæ af miklum dug all- ar götur síðan. Það var einnig skemmtileg tilviljun fyrir mig að fyrir rúmum tuttugu árum var okk- ur Sigga falið það hlutverk að yf- irfara lög Hjónaklúbbsins og koma með tillögu að nýjum sem enn er stuðst við. Það var ánægjuleg stund og gefandi að vinna með Sigga að þessu verkefni. Það var mér mikill heiður sem formaður UMF. Selfoss að útnefna Sigurð Ingimundarson sem heið- ursfélaga UMF. Selfoss á sjötíu ára afmæli hans fyrir fimmtán ár- um. Ég vil að lokum þakka Sigurði öll þau störf sem hann vann í þágu samfélagsins hér á Selfossi, það var mikill styrkur af því að hafa hann hér. Að lokum þakka ég Sigurði góð kynni og gott samstarf og þakka fyrir margar ánægjulegar stundir sem við áttum. Ég votta öllum aðstandendum innilegrar samúðar og veit að minningin um þennan góða mann mun lifa með okkur áfram. Guð varðveiti ykkur öll á þessari stundu. Björn Ingi Gíslason. Elsku amma. Ég man þegar við komum til þín á Bauganesið. Ég man hvað það var mikið ævintýri. Ég man eftir kjall- aranum sem var heill heimur af spennandi hlutum. Ég man þegar ég hjálpaði þér að reyta arfa í garðinum. Ég man þegar við horfðum á „Sound of music“ oft og mörgum sinnum. Ég man þegar ég smakkaði kaffi í fyrsta sinn hjá þér þegar ég var sjö ára. Ég man þegar þú prjónaðir handa mér peysu, húfu og vettlinga, sem ég var alltaf í. Ég man þegar við horfðum á Ná- granna saman og við vissum nöfnin á persónunum. Ég man þegar þú hélst á Anítu í fyrsta skiptið. Ég man þegar þú safnaðir saman úrklippunum fyrir mig í vor. Ég man. Amma mín, ég er stolt af því að bera fallega nafnið þitt og ég veit að þú varst stolt af mér. Ég er svo ánægð að þú hafir kynnst Anítu dóttur minni og að þú hafir komið í fyrsta afmælið hennar í haust. REGÍNA BENEDIKTSDÓTTIR ✝ Regína Bene-diktsdóttir fædd- ist á Ísafirði 14. mars 1917. Hún lést á Landspítalanum 29. desember síðastlið- inn og var útför hennar gerð frá Nes- kirkju 13. janúar. Þú varst alltaf svo dugleg og lést ekkert stöðva þig. Takk fyrir að vera engillinn sem þú ert. Ég trúi á ljós, sem lýsi mér, á líf og kærleika, á sigur þess, sem sannast er, og sættir mannanna. Á afl sem stendur ætíð vörð um allt, sem fagurt er, á Guð á himni, Guð á jörð og Guð í sjálfum mér. (Ólafur Gaukur.) Þín nafna, Regína Ósk. Hún amma mín er dáin. Það er erfitt að skilja, en samt ekki, því þegar ég sat hjá henni síðasta dag- inn hennar var mikil friðsæld og ró yfir henni og hún var sátt. Hvers vegna er ég það þá ekki? „Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkert bresta.“ Þetta er erfiðara fyrir okk- ur sem eftir erum, þar sem sökn- uðurinn lætur okkur gleyma stund og stað og minningar streyma fram. Þeir sem þekktu ömmu Gínu vita að það var alltaf gott að vera nálægt henni. Hún gat einhvern veginn alltaf látið manni líða vel. Ég gleymi því aldrei þegar ég var lítil úti í garði og sandur kom í augað og amma sleikti sandinn burt. Það var frábær tilfinning, en ekki veit ég hvernig hún fór að þessu, ég hef aldrei getað gert þetta við mín börn. Að sofa hjá ömmu og afa á Bauganesinu var yndislegt. Maður svaf í rúmi undir súðinni inni hjá þeim og það var aðalmálið, að fá að sofa inni hjá þeim. Amma tók alltaf til morgunverð sem ég hef hvergi annars staðar kynnst, te og alls konar brauð, ostar sem voru bragð- miklir og sterkir og ýmislegt fleira góðgæti. Ef elda á góðan mat þá er það fyrsta sem maður gjörir að hringja í ömmu Gínu, en hvað nú? Í eldhúsinu naut amma sín vel og ég elskaði þegar ég var lítil að sitja í eldhúsinu á Bauganesinu og horfa á hana framkalla stærðarinnar hnallþórur, jólakökur, kleinur í massavís og auðvitað fékk maður að sleikja á milli þess sem rædd voru heimsmálin af mikilli alvöru. Fyrir fjórum árum, þegar strák- arnir mínir voru 2 ára og 3 mánaða, kom ég illa sofin til ömmu, búin að vaka mikið yfir þeim yngri sem var með exem. Ég gat varla meir. Sá yngri sofnaði í stólnum sínum og ég líka þar sem ég sat. Um tveimur tímum síðar vaknaði ég með and- fælum, en þá hafði 82 ára konan haft ofan af tveggja ára syni mínum eins og ekkert væri. Þetta var amma. Hvergi hefði ég getað sofnað svona, en hjá henni var það hægt, manni leið alltaf svo vel hjá henni. Ástarfaðir himinhæða, heyr þú barna þinna kvak, enn í dag og alla daga í þinn náðarfaðm mig tak. Náð þín sólin er mér eina, orð þín döggin himni frá, er mig hressir, elur, nærir, eins og foldarblómin smá. (Steingrímur Thorsteinsson.) Elsku amma Gína. Þakka þér fyrir að auðga líf mitt og gera mig að betri manneskju. Ég veit þú ert á góðum stað og að þér líður vel. Guð geymi þig. Með saknaðar- kveðju, þín dótturdóttir, Guðrún Sigríður Sigurðardóttir. Afmælis- og minningargreinum má skila í tölvupósti eða á disklingi (netfangið er minning@mbl.is, svar er sent sjálfkrafa um leið og grein hefur borist). Ef greinin er á disklingi þarf útprentun að fylgja. Nauð- synlegt er að símanúmer höfundar og/eða sendanda (vinnusími og heimasími) fylgi með. Þar sem pláss er takmarkað getur þurft að fresta birtingu greina, enda þótt þær berist innan hins tiltekna frests. Nán- ari upplýsingar eru á mbl.is.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.