Morgunblaðið - 19.01.2004, Side 29

Morgunblaðið - 19.01.2004, Side 29
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. JANÚAR 2004 29 RAÐAUGLÝSINGAR NAUÐUNGARSALA Uppboð Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum, sem hér segir: Hafnarstræti 1, Þingeyri, þingl. eig. Þórður Sigurðsson, gerðarbeið- andi Íbúðalánasjóður, föstudaginn 23. janúar 2004 kl. 14:30. Hlíðargata 42, Þingeyri, þingl. eig. Jónína Kristín Sigurðardóttir og Konráð Kristinn Konráðsson, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður, Ísafjarðarbær og Vátryggingafélag Íslands hf., föstudaginn 23. janúar 2004 kl. 14:45. Hlíðarvegur 12, Suðureyri, þingl. eig. Gunnhildur Hálfdánardóttir, gerðarbeiðendur Frjálsi fjárfestingarbankinn hf., Húsasmiðjan hf. og Lífeyrissjóður Vestfirðinga, föstudaginn 23. janúar 2004 kl. 16:30. Holtagata 5, Súðavík, þingl. eig. Guðrún Ingibjörg Halldórsdóttir og Jónas Ólafur Skúlason, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, föstu- daginn 23. janúar 2004 kl. 13:15. Pólgata 10, Ísafirði, þingl. eig. Ragnheiður Halldórsdóttir, gerðarbeið- andi Íbúðalánasjóður, föstudaginn 23. janúar 2004 kl. 10:45. Unnarstígur 8, Flateyri, ehl. gerðarþola, þingl. eig. Elinóra Guð- mundsdóttir, gerðarbeiðandi Ingvar Helgason hf., föstudaginn 23. janúar 2004 kl. 15:45. Urðarvegur 76, Ísafirði, þingl. eig. Auður Elísabet Ásbergsdóttir, gerðarbeiðendur Ísafjarðarbær, Íslandsbanki hf. og STEF, samb. tónskálda/eig. flutnr., föstudaginn 23. janúar 2004 kl. 11:30. Sýslumaðurinn á Ísafirði, 16. janúar 2004. Ólafur Hallgrímsson, fulltrúi. Uppboð Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á skrif- stofu embættisins í Hafnarstræti 1, Ísafirði, sem hér segir: Haukur ÍS-847, sk.skr.nr. 1265, þingl. eig. Torfnes ehf., gerðarbeið- endur Hafnarfjarðarhöfn, Hekla hf., Landssími Íslands hf., innheimta, Skipalyftan ehf. og Vélar ehf., föstudaginn 23. janúar 2004 kl. 9:30. Skutull ÍS-16, sk.skr.nr. 2304, þingl. eig. Togaraútgerð Ísafjarðar ehf., gerðarbeiðendur Byggðastofnun og Sparisjóður Bolungarvíkur, föstudaginn 23. janúar 2004 kl. 10:00. Stakkanes ÍS-848, sk.skr.nr. 1011, þingl. eig. Torfnes ehf., gerðar- beiðendur Friðrik A. Jónsson ehf., Grétar Mar Jónsson, Ríkisútvarpið og Þróunarsjóður sjávarútvegsins, föstudaginn 23. janúar 2004 kl. 9:45. Sýslumaðurinn á Ísafirði, 16. janúar 2004. Ólafur Hallgrímsson, fulltrúi.  GIMLI 6004011919 III HEKLA 6004011919 VI  MÍMIR 6004011919 I I.O.O.F. 10 1841198 Ei. I.O.O.F. 19  1841198  I* Nú þegar Hilmar, föðurbróður minn, hef- ur lokið lífsgöngu sinni langar mig að minnast hans með nokkrum orðum. Hann fæddist á Hjálmsstöðum í Laugardal og ólst þar upp í stórum hópi systkina og hálfsystkina og lærði eflaust fljótt að taka til hendinni eins og aðrir. Allir þurftu að leggja sitt af mörkum á þeim tíma. Það tókst giftusamlega hjá Páli og Rósu að ala upp stóran og heilbrigðan barnahóp og koma hon- um til góðs þroska. Á Snorrastöðum bjó Guðrún systir Rósu ásamt manni sínum og börnum. Það var mikill og góður samgangur milli þessara heim- ila og oft glatt á hjalla hjá frænd- systkinunum. Með þeim var góður vinskapur sem enn er til staðar og njótum við afkomendur góðs af því. Einn vetur tók Hilmar að sér gegn- ingar fyrir föður minn, meðan hann var á sjó, á fyrstu búskaparárum hans. Hilmar var gamansamur og barngóður og honum tókst að hæna mig svo að sér að mér fannst ég eiga hann að einhverju leyti. Eina minn- ingu á ég frá bernsku, sem stendur mér ljóslifandi fyrir sjónum. Von var á Hilmari austur með rútunni og eins og vanalega hljóp ég á móti honum og hann tók mér hið besta með bros á vör. Þá sá ég að hann var með hring – giftingarhring, mér brá og fannst einhvern veginn að nú væri ég að tapa honum burt sem væri ekki gott. En seinna kom hann svo með Svövu sína, glæsilega konu sem mér fór auðvitað að þykja vænt um líka. Þeg- ar við Gunna systir fengum að fara til Reykjavíkur og vera nokkra daga, þá fannst okkur nauðsynlegt að heim- sækja frændfólkið. Alltaf var farið til Hilmars og Svövu, fyrst þar sem þau HILMAR PÁLSSON ✝ Hilmar Pálssonfæddist á Hjálmsstöðum í Laugardal 8. maí 1922. Hann lést á Hrafnistu mánudag- inn 5. janúar síðast- liðinn og var útför hans gerð frá Dóm- kirkjunni 16. janúar. bjuggu á Njálsgötunni og seinna í nýju íbúðina á Laugarnesveginum, sem var bæði stór og björt og þar bjuggu þau þar til síðastliðið sum- ar. Alltaf var vel tekið á móti okkur með góðu spjalli og hlöðnu veislu- borði hjá Svövu. Hilm- ar vann mest við versl- unar- og skrifstofustörf hjá KRON og seinna í blikksmiðjunni Vogi, öruggur og góður starfsmaður ef ég hef þekkt hann rétt. Hilm- ar var vel hagmæltur og ræktaði þann hæfileika með sér með árunum. Ég hef séð og heyrt margar góðar vísur og kvæði eftir hann. Hann var í kvæðamannafélagi og fór stundum í ferðir um landið í sambandi við það, stundum var Andrés tekinn með og hafði mjög gaman af. Hilmar og Svava komu oft austur og voru alltaf hluta úr sumarfríinu þar. Vel man ég hvað við urðum ánægð, ef mikið lá fyrir í heyskap og snúa þurfti stórum stykkjum með hrífu, að sjá þau birtast með hrífur og slást í hópinn. Fyrir 25–30 árum komu þau sér upp sumarhúsi á Hjálmsstöðum og gátu þá farið að vera meira fyrir austan. Þar bjuggu þau vel um sig og þangað var líka gott og skemmtilegt að koma. Þar voru gróðursett blóm og tré sem nú eru orðin nokkurra metra há, sum hver. Eitt vil ég nefna hér og það er hve gaman var að hitta Hilmar og systk- ini hans saman, ef þau fóru að tala um gömlu dagana og fólkið sem þau þekktu sem börn, mér finnst ég næstum hafa þekkt sumt af þessu fólki líka. Einnig barst ættfræði stundum í tal og ég hef oft orðið undrandi á því sem þau hafa heyrt eða lesið og muna alveg og vita um fjarskylda ættingja víðsvegar um landið. Fyrir tæpum þremur árum var ég beðin að taka sæti í umsjón- arnefnd Húnbogalundar á Laugar- vatni með Hilmari og fleirum. Ég hafði ekki fyrr unnið svona með honum og þótti vænt um þetta tækifæri. Hann var búinn að vera í þessu í mörg ár með góðum félögum, og þeir voru búnir að girða, planta og hlúa að gróðrinum svo nú eru þarna stór tré. Þegar ég kom að þessu var lítið eftir annað en koma minnisvarða fyrir í lundinum. Þarna var Hilmar fylginn sér, dreif allt áfram svo steinninn komst á sinn stað í ágúst 2002, með aðstoð gröfu og góðra manna. Nú þurfum við bara að koma þarna fyrir borði og bekkjum svo hægt verði að tylla sér í lundinn, og veit ég að þar á ég oft eftir að hugsa til Hilmars. Hann var myndarlegur maður, hár og grannur og beinn í baki. Þessu hélt hann alla tíð. Þegar ég kom til þeirra hjóna síðastliðið haust var hann orðinn veikur, en sama hlýj- an og ljúfmennskan var til staðar. Það fylgir því söknuður að kveðja. Ég þakka allar góðu minningarnar og bið Guð að gefa Svövu og fjöl- skyldunni allri styrk og kraft. Far þú í friði, frændi minn. Berglind Pálmadóttir. Til foldar er borinn einn af okkar merkustu mektarmönnum. Það álít- um við að allir geti verið sammála um sem til Hilmars Pálssonar þekktu. Hann var greindur vel, húmoristi, sögumaður mikill og leikandi hag- mæltur. Þetta eru eiginleikar sem allir vildu haft hafa og ósanngjarnt væri að krefjast meira. Við hjónin höfum haft þau forréttindi að hafa hann og þau hjónin í næsta nágrenni öll okkar hjúskaparár og þökkum fyrir það. Það hafa verið ófáar heim- sóknirnar og röltið á milli húsanna þessi 30 ár og gjarnan legið eftir vísubrot á bekknum um athafnir líð- andi stundar. Svo margs er að minn- ast þó ekki sé nema við að lesa vísu- brotin. Það sem meira er að með tækni nútímans er mögulegt að renna yfir gamlar myndspólur sem gera menn eilíflega í mannlegum skilningi. Renndum við hjónin gegn- um eina dæmigerða myndspólu þar sem Hilmar lýsir á sinn einstaka hátt samskiptum þeim sem verða við Lykla-Pétur áður en í himnaríki er farið. Þar segir Hilmar orðrétt: „Hugsið ykkur þegar maður hittir Drottin allsherjar og kemur að Gullna hliðinu þá er þar lífshlaupið á myndsegulbandi og rennur fyrir aug- um manns á tveim sekúndum, og viti menn, þú verður að viðurkenna allar þínar syndir, ekkert dregið undan. Þetta er nú ekki akkúrat það sem maður ætlaðist til að uppljóstra, svona smásyndum, sem maður var svo gersamlega sannfærður um að enginn vissi. Það var ýmist í myrkri eða undir teppi, allt kemur þetta fram.“ Þessi orð voru töluð fyrir u.þ.b. 17. árum og mikið vatn runnið til sjávar síðan og þú, Hilmar, trúlega búinn að ganga þessa þrautagöngu við Gullna hliðið. Síðar á þessu sama mynd- bandi segir hann okkur frá óförum Lykla-Péturs er heimsþekkt leik- kona fór í gegnum hliðið en sú saga verður ekki skráð hér. Allar þær minningar sem ég, Reynir, á um föð- urbróður minn frá bernsku til full- orðins ára og ég, Eygló, um frábær- an nágranna og vin frá fyrstu tíð eftir að ég kom inn í þessa stórfjölskyldu verður sett í handbók minninganna. Það að skrifa um svona merkan mann er örðugt, hvergi hægt að byrja og hvergi hægt að enda. Takk fyrir að hafa átt samleið með ykkur báðum í gegnum lífið. Elsku Svava mín. Guð veri með þér og hjálpi þér yfir þá miklu breytingu sem í vænd- um er að hafa ekki Hilmar þér við hlið. Eins sendum við ykkur systkinun- um og fjölskyldum ykkar okkar inni- legustu samúðarkveðjur. Það er svo sárt að eiga ekki lengur pabba. Guð veri með ykkur öllum, þetta er víst lífið. Eygló og Reynir. Við afi gátum setið löngum stund- um og talað um íslenskt mál og mál- far og jesúsað okkur yfir því í hvað stefndi – hlæjandi. Það vorum við. Ég bar gæfu til að vera elsta (og eina í þónokkurn tíma) barnabarnið. Því fylgdu mikil forréttindi og aðeins barn að aldri trúði ég því að Grettir sterki væri svo náskyldur mér að ég hlyti að geta nánast hvað sem var. Afi kynnti mig fyrir helstu hetjum, og ómennum, Íslendingasagnanna sem og mestu skáldum þjóðarinnar. Fyrir það fæ ég aldrei fullþakkað. Þegar menntaskóla lauk var það lítill efi í huga mér að ég vildi leggja stund á íslensku í Háskóla Íslands, sem ég og gerði. Mörg voru þá sím- tölin og heimsóknirnar til afa þar sem hann þurfti að aðstoða eða út- skýra fyrir mér hina ýmsu hluti, heiti, kenningar og vísur sem ég ekki kunni skil á. Eftir að ég útskrifaðist og fór að kenna íslensku var eins og ég hefði aðstoðarkennara sem alltaf var hægt að ná í, lifandi orðabók, og ég fíflaðist með það að þegar hans dagar væru taldir yrði ég að hætta að kenna. Þá hló hann og sagði: „Hva, ætlarðu að verða eilífðarstúdent hjá mér, stelpa? Ég hef ekkert BA-próf!“ Vonandi hef ég nú fengið það vega- nesti sem tryggir mér áframhaldandi starf. Það er óþarft að telja upp eða segja frá öllum þeim yndislegu stundum sem við áttum saman – ég veit að afi hafði óbeit á mærðarlegum minningargreinum og ætla ég ekki að falla í þann fúla pytt að skrifa eina slíka. Það er þó vissulega skarð fyrir skildi þar sem þessa stóra persónu- leika nýtur ekki lengur við og ég veit að hann hefur sett mark sitt á fleiri en mig. Hann kallaði það „kennimark Kölska“ – og við hlógum. Það vorum við. Svafa. Ég vil minnast elsku- legrar tengdamóður minnar með nokkrum orðum, það er komið hátt í þrjá áratugi sem leiðir lágu saman. Lífsins starfi er lokið en eftir liggja ótal handtök, hörkuvinna og sú elja sem þessi kynslóð þurfti að inna af hendi til að komast af – í gleði og sorg. Þau Ella og Bjarni gerðu þetta vel, hæversk en með miklum myndarskap og búnaðist vel. Hún var mér alltaf einstaklega góð og sýndi mér það mest og best þegar móðir mín fell frá. Þeirri elsku gleymi ég aldrei. Hún sýndi mér líka og sagði ýmislegt sem ég held að fáir aðrir hafi fengið að heyra. Hún var ekki allra en hún var mín. Ég veit að hún var hvíldinni fegin, nú hvíla þau Bjarni aftur saman hlið við hlið. Ég kveð þig, hugann heillar minning blíð. Hjartans þakkir fyrir liðna tíð. Lifðu sæl á ljóssins friðarströnd, ELÍNBORG SIGURÐARDÓTTIR ✝ Elínborg Sigurð-ardóttir var fædd á Skammbeins- stöðum í Holtum í Rangárvallasýslu 20. maí 1909. Hún and- aðist á Dvalarheim- ilinu Lundi 19. des- ember síðastliðinn og var útför hennar gerð frá Árbæjar- kirkju í Holtum 3. janúar. leiði sjálfur Drottinn þig við hönd. (Guðrún Jóhannsdóttir.) Ólöf H. Ásgrímsdóttir. Mig langar í örfáum orðum að minnast ömmu minnar sem lést 19. desember síðastlið- inn. Amma Ella var af þeirri kynslóð sem var sístarfandi og þannig man ég hana. Af nógu var að taka því oft voru margir í heimili á sumr- in þegar við barnabörnin komum til lengri eða skemmri dvalar. Þótt mik- ið væri að gera við bústörfin þá hafði hún alltaf tíma fyrir okkur krakkana og var þá oftar en ekki gripið í spil eða gert eitthvað skemmtilegt. Eftir að aldurinn færðist yfir og amma og afi hættu búskap, fluttust þau hingað á Hellu. Þótt störfin yrðu smærri í sniðum, var það alltaf sama natnin og hugurinn um að vinna verkin vel sem einkenndi þau. Þegar við Rósa svo eignuðumst okkar dætur, voru það einnig þær sem nutu hlýju og góðvildar lang- ömmu sinnar og langafa. Ég held að það hafi verið þeim til gleði að passa þær og þau verið þakklát fyrir þess- ar stundir sem og við. Alla afmæl- isdaga mundi amma og fylgdist vel með merkisviðburðum í lífi fjölskyld- unnar. Í minningum mínum mun ég ávallt muna ömmu sem glaðlynda og skemmtilega konu. Alltaf var stutt í glettnina og grínaðist hún oft, ekki síst við börnin. Að leiðarlokum vil ég þakka fyrir allt það sem amma og afi voru mér. Það er ómögulegt að ætla að minnast ömmu minnar án þess að hugsa til afa. Þau voru samhent hjón sem lifðu saman í leik og starfi í nær 70 ár og minningin um þau er sem ein. Við Rósa, Sunna Björg, Birna Borg, Birta Huld og fjölskylda kveðjum þig með þakklæti fyrir að hafa átt þig að. Blessuð sé minning ömmu minnar og afa. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibj. Sig) Bjarni Jóhannsson. Afmælis- og minningargreinum má skila í tölvupósti (netfangið er minning@mbl.is, svar er sent sjálfkrafa um leið og grein hefur borist) eða á disklingi. Ef greinin er á disklingi þarf út- prentun að fylgja. Nauðsynlegt er að tilgreina símanúmer höfundar og/eða sendanda (vinnu- síma og heimasíma). Þar sem pláss er takmarkað getur þurft að fresta birtingu greina, enda þótt þær berist innan hins tiltekna frests. Nánari upplýsingar eru á mbl.is. Um hvern látinn einstakling birtist formáli og ein aðalgrein af hæfilegri lengd á útfarardegi, en aðrar greinar skulu ekki vera lengri en 300 orð, u.þ.b. 1.500 slög (með bilum) eða um 50 línur í blaðinu (17 dálksentimetrar). Tilvitnanir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til þrjú erindi. Einnig er hægt að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5–15 línur, og votta virðingu án þess að það sé gert með langri grein. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.