Morgunblaðið - 19.01.2004, Side 37

Morgunblaðið - 19.01.2004, Side 37
FÓLK Í FRÉTTUM MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. JANÚAR 2004 37 Höf›abakka 9 • Sími 517 3990 Skipholti 19 • Sími 552 2211 N O N N I O G M A N N I • 1 1 1 3 6 • s ia .i s *meðan birgðir endast Næstu daga fá heppnir gestir miða* á stórmyndina The Last Samurai, sem sýnd er í Sambíóunum og Háskólabíói. Börnin, Prince Michael, sex ára, og París, fimm ára, búa með föður sínum í Beverly Hills, en Þjóð ísl- ams hefur annast öryggisgæslu við heimili hans. Þá er þriðja barn Jacksons, sem heitir Prince Michael II, einnig búsett á heimili hans í Beverly Hills. Ekki er vitað hver er móðir þriðja barnsins. DEBBIE Rowe, barnsmóðir tveggja barna söngvarans Mich- aels Jackson, hefur áhyggjur af því að Þjóð íslams, sem hefur haft afskipti af málefnum Jacksons, geri tilraun til þess að snúa söngv- aranum og börnunum til íslams. Rowe, sem er gyðingur, hefur sagt vinum sínum að hún vilji ekki að Þjóð íslams komi nálægt börn- unum tveimur, að sögn Fox News. Barnsmóðir Michaels Jacksons Hefur áhyggjur af Þjóð íslams Reuters Michael Jackson og seinni eigin- konan og barnsmóðirin Deborah Rowe. Þau eru skilin. Ógleymanleg reynsla (A Walk to Remember) Drama Bandaríkin 2002. Myndform. VHS (100 mín.) Öllum leyfð. Leikstjóri: Adam Shankman. Aðalleikarar: Mandy Moore, Shane West, Daryl Hannah, Peter Coyote. LANDON (West), er fjallbrattur og vinsæll menntskælingur í smábæ í Norður-Karólínufylki. Kvöld eitt lendir hann í at- burðarás sem á eft- ir að marka spor sín í allt hans líf. Verður þess valdandi að skóla- bróðir hans slasast og er Landon skip- að að leika í skóla- leikritinu í refsing- arskyni. Þar kynnist hann Jamie (Moore), dóttur prestsins (Coyote), og er hálfgert að- hlátursefni í augum vinahóps töffar- ans Landons. Hún fengi þar seint inngöngu, hæglát, hlédræg, trúuð og með allt önnur áhugamál en að vera efst á vinsældalistanum í félaga- hópnum. Málin þróast á þann veg að þau Landon verða ástfangin eins og lög gera ráð fyrir en Jamie lúrir á ör- lagaríku leyndarmáli sem á eftir að draga dilk á eftir sér. Rómantískar myndir af gamla skólanum, eru ekki á hverju strái, Ógleymanleg reynsla fjallar ekki síst um það hvernig ástin getur unnið kraftaverk á mannskepnunni. Hún breytir hrokagikknum Landon í hugsandi mann, leysir úr læðingi hans bestu hliðar fyrir tilstilli óvæntra kynna hans af prestsdótt- urinni hjartahreinu. Þó að sam- bandið taki óvænta og sorglega stefnu, gjörbreytir það öllum lífsvið- horfum Landons og hvetur til dáða. Klútamyndir eru afar fátíðar en ein og ein inni á milli gerir flestum gott eitt. Viðkvæmt efnið fær rétt viðunandi meðferð, enginn afgangur af því. Góður leikur West og Moore bjargar því sem bjargað verður, forðar henni frá þeirri fyrirsjáanlegu vellu sem efnið getur sannarlega boðið upp á. ½ Sæbjörn Valdimarsson Myndbönd Seint fyrnast fornar ástir Skítverk (Dirty Deeds) Glæpamynd Ástralía 2002. Myndform. VHS (110 mín.) Bönnuð yngri en 16 ára. Leikstjóri: David Caesar. Aðalleikarar: Bryan Brown, Toni Collette, John Goodman, Sam Neill. ÞAÐ er farið að líða á 7. áratug- inn. Stríðið í Víetnam í algleymingi og bandarískir mafósar hugsa sér gott til glóðarinnar hvað snertir landvinninga í Austurlöndum. Darcy (Worthington), er ungur Ástrali sem hefur lokið herþjónustu í Víetnam og fær vinnu hjá Barry (Brown), sem rek- ur spilavíti í Sydn- ey í skjóli lög- reglustjórans (Neill). Einn góð- an veðurdag er friðurinn úti, Mafían sendir Tony (Goodman), er- indreka sinn ásamt morðingjanum Sal (Williamson), til að ná fótfestu í spilavítum í Sydney. En mæta mun öflugri mótspyrnu en þeir reiknuðu með. Barry leiðir þá í gildru úti í strjálbýlinu og vinnur fyrstu lotuna. Ósköp venjuleg hasarmynd í flesta staði en bakgrunnurinn, land- nám mafíunnar í Ástralíu, er vissu- lega forvitnilegur þáttur en illa unnið úr honum. Nokkrir gæðaleik- arar koma við sögu en hafa ekki er- indi sem erfiði aðrir en Brown sem er virkilega ónotalegur fantur. Upp úr stendur vandvirknisleg sviðs- mynd og búningar sem laða fram andrúm þess sjöunda með sitt túb- eraða hár, sjálflýsandi varalit, barta, minipils og útvíðar buxur.  Sæbjörn Valdimarsson Mafíu- innrás í Ástralíu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.