Morgunblaðið - 19.01.2004, Side 38
38 MÁNUDAGUR 19. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Sýnd kl. 8. B.i. 12.Sýnd kl. 5.50 og 8.
Frábær rómantísk
gamanmynd með
ótrúlegum
leikkonum
EPÓ kvikmyndir.com
„Besta ævintýramynd allra
tíma.“
ÞÞ FBL
„VÁ. Stórfengleg
mynd.“
„Besta mynd ársins.“
SV MBL
HJ MBL
VG. DV
Yfir 80.000 gestir
Sýnd kl. 6 og 10.10. Stranglega bönnuð yngri en 16 ára.
HUGSAÐU STÓRTMiðasala opnar kl. 15.30
Sýnd kl. 4. Með ísl. tali.
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. B.i. 12.
kl. 6 og 10.
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS
EPÓ kvikmyndir.com
„Besta ævintýramynd allra
tíma.“
HJ MBL
ÞÞ FBL
„VÁ. Stórfengleg
mynd.“
„Besta mynd ársins.“
SV MBL
Yfir 80.000 gestir
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30.
VG. DV
Frábær rómantísk
gamanmyndmeð
ótrúlegumleikkonum
Sýnd kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.15.
Stórskemmtileg gamanmynd með Brittany
Murphy (8 Mile og Just Married) sem fer að
passa ríka litla stelpu eftir að hún stendur
uppi peningalaus.
Með hinni frábæru Dakotu Fanning.
Kvikmyndir.com
HIN SÍVINSÆLA hljómsveit
Ný dönsk lék fyrir dansi á
skemmtistaðnum NASA síð-
astliðið föstudagskvöld, en
langt er um liðið frá síðustu
tónleikum sveitarinnar.
Á NASA var margt um
manninn og kunnu tónleika-
gestir vel að meta það sem í
boði var.
Björn Jörundur baðaði sig í ljósunum á Nasa og söng hvern slagarann á
fætur öðrum.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Tónleikagestir voru að vonum ánægðir með framgöngu sveitarinnar.
Ný dönsk
á NASA
STAÐFEST hefur verið að Silvio Berlusconi fór í lýtaað-
gerð og líklega einnig í megrun. Ítalski lýtaskurðlækn-
irinn Angelo Villa staðfesti að forsætisráðherra Ítalíu,
Silvio Berlusconi, hefði fengið andlitslyftingu hjá sér. Að-
gerðin hefði tekið eina klukkustund og hann væri mjög
ánægður með árangurinn. Læknirinn virðist nokkuð sátt-
ur við sjálfan sig og sagði í viðtali við ítalska dagblaðið La
Repubblica að andlitið væri hverjum stjórnmálamanni
ómetanlegt. Þegar slíkur tæki ákvörðun um að bæta útlit
sitt væri mikilvægast af öllu að velja besta lýtalækninn.
„Ég er einn af þeim bestu,“ klykkti Villa út en hann er
vinur Marinu, dóttur Berlusconi forsætisráðherra.
Angelo Villa neitaði að segja hvort aðgerðin hefði farið
fram á stofu hans í Mílanó eða í öðru landi eins og dag-
blaðið Libero hélt fram á föstudag. En eins og segir í leið-
ara dagblaðsins Corriere della Sera á laugardag er málið
enn óleyst að því leyti að enn hefur forsætisráðherrann
ekki komið fram opinberlega og sýnt alþjóð hina end-
urgerðu ásjónu sína.
Berlusconi stjórnaði fundi ríkisstjórnarinnar ítölsku á
föstudag, þeim fyrsta frá því fyrir jól. Um helgina
greindu ítalskir fjölmiðlar frá því að forsætisráðherrann
hefði spurt ónafngreinda manneskju að því hvort henni
fyndist hann ekki myndarlegur. Svarið fylgdi ekki með
og enn bíður ítalska þjóðin þess að Silvio Berlusconi sýni
landsmönnum og öðrum sitt rétta andlit.
La Repubblica hefur eftir forsætisráðherranum að hann hafi sagst svangur eftir að hafa misst
10 kíló í megrunarkúr. Hann hafi varað aðra ráðherra við að koma of nálægt sér, „ég gæti fengið
mér bita af þér“.
ReutersBerlusconi fyrir andlitslyftingu: Ætli nefið sé of langt?
Breyttur maður?
Reuters
Berlusconi fyrir andlitslyftingu:
Skyldi ég vera of fýldur?
FÉLAGAR Arsenalklúbbs-
ins á Íslandi áttu ekki erfitt
val þegar kosið var um leik-
mann liðsins síðasta keppn-
istímabils 2002/3.
Thierry Henry hlaut yf-
irburðakosningu að þessu
sinni, eins og árið áður.
Varaformaður klúbbsins,
Jóhann Freyr Ragnarsson
úr Vestmannaeyjum, hitti
Henry eftir sigurleik Arsen-
al gegn Blackburn í desem-
ber sl. og afhenti honum
veglega viðurkenningu frá
klúbbnum. Að þessu sinni
var ákveðið að veita Henry
eigulegan grip og var leitað
til listakonunnar Jónínu
Hjörleifsdóttur í Vest-
mannaeyjum og hannaði
hún fallega leirskál. Að auki
var Henry leystur út með
bókagjöfum; hinni glæsilegu
Arsenalbók, bókinni um
Arsenal og Arsenalklúbbinn
í 20 ár, ásamt fræðslubók
umVestmannaeyjar á
frönsku.
Töframennirnir
Potter og Henry
Við afhendinguna sagði Jóhann m.a. að á
Bretlandseyjum þætti Harry Potter vera
mikill töframaður en uppi á Íslandi þætti
Henry vera mesti töframaðurinn, ummæli
sem lögðust vel í franska knattspyrnumann-
inn sem á dögunum var bæði valinn næst-
besti leikmaður í heimi og í Evrópu.
Thierry Henry þakkaði fyrir sig og sagði
þennan verðlaunagrip vera með þeim fal-
legri sem hann hefði móttekið um langa tíð
og að eiginkonan væri hrifnust af gripum
sem hægt væri að nota inni á heimilinu.
Sjálfur ætti hann óteljandi viðurkenning-
arskjöl innrömmuð sem því miður, vegna
skorts á veggplássi, væru oftast sett ofan í
kassa og út í bílskúr. Bað hann fyrir bestu
kveðjur til allra stuðningsmanna Arsenal á
Íslandi og að hann vonaðist til að koma í
heimsókn í framtíðinni.
Henry heiðraður
af íslenska
Arsenalklúbbnum
Heimasíða íslenska Arsenalklúbbsins er
www.arsenal.is
Heiðraður á Highbury: Thierry Henry tekur við leirskálinni
eftir Jónínu Hjörleifsdóttur úr höndum Jóhanns Freys Ragn-
arssonar, varaformanns Arsenalklúbbsins.