Morgunblaðið - 19.01.2004, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. JANÚAR 2004 39
www.laugarasbio.is
Will Ferrell
Kvikmyndir.com
EPÓ kvikmyndir.com
„Besta ævintýramynd allra
tíma.“
HJ MBL ÞÞ FBL
„VÁ. Stórfengleg
mynd.“
„Besta mynd ársins.“
SV MBL
Yfir 80.000 gestir
VG. DV
Sýnd kl. 5, 8 og 9. Sýnd Kl. 6. Með ensku tali og íslenskum texta.
Stórskemmtileg gamanmynd
með Brittany Murphy (8 Mile
og Just Married) sem fer að
passa ríka litla stelpu
eftir að hún
stendur uppi
peningalaus.
Með hinni
frábæru
Dakotu
Fanning.
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
„ATH!SÝND MEÐENSKU TALI OGÍSL. TEXTA“
Nýr og betriHverfisgötu 551 9000
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. Sýnd kl. 8.30. B.i. 12.
www .regnboginn.is
EPÓ kvikmyndir.com
„Besta ævintýramynd allra
tíma.“
HJ MBL
ÞÞ FBL
„VÁ. Stórfengleg
mynd.“
„Besta mynd ársins.“
SV MBL
Yfir 80.000 gestir
Frábær rómantísk
gamanmynd með ótrúlegum
leikkonum
VG. DV
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.10. B.i. 16.
Sýnd kl. 5.20, 8 og 10.40.
B.i. 10 ára.
Besta myndin Besti aðalleikari
Russell Crowe
Besti leikstjóri
Peter Weir
3
Tilnefningar til
Golden Globe verðlauna
Á LAUGARDAGINN var mikið um dýrðir í Smáralind þar
sem Síminn stóð fyrir hinum ýmsu uppákomum.
Fjölmenni var í Vetrargarðinum þar sem fram fór
söngvakeppni meðal barna, svokallað „Barna-Idol“. Fjöldi
barna steig á stokk í þeirri keppni við góðar undirtektir
viðstaddra. Simmi og Jói voru kynnar keppninnar og
dómnefnd skipuðu Karl Bjarni, Jón Sigurðsson, Anna
Katrín og Ardís Ólöf, en þau lentu sem kunnugt er í fjór-
um efstu sætum Idol-stjörnuleitar sem lauk síðastliðið
föstudagskvöld.
Hinir fjörugu umsjónarmenn þáttarins 70 mínútna,
Sveppi og Auddi, voru staddir í Smáralind og kynntu þeir
nýjan liðsmann til leiks, Pétur Jóhann Sigfússon. Þeir pilt-
ar slógu á létta strengi við gesti og gangandi og buðu
meðal annars upp á hinn margfræga ógeðisdrykk.
Morgunblaðið/Jim SmartÞau Ardís Ólöf, Anna Katrín, Jón Sigurðsson og Karl Bjarni skipuðu dómnefnd keppninnar.
Mikið um dýrðir í Smáralind
Símalestin keyrði um ganga Smáralindar og gefnir
voru bolir og blöðrur með hinu nýja merki Símans.
Ef til vill er hér á ferðinni upprennandi Idol-stjarna.
Þeir Pétur
Jóhann,
Auddi og
Sveppi
buðu upp
á ógeðis-
drykk.
Hvað ertu að hlusta
á um þessar mund-
ir?
Um þessar mundir
er ég að hlusta á
nýju Íslensku útgáf-
una. Hef eiginlega
verið fastur yfir fjórum plötum; Bubba
Morthens, Siggu Beinteins, Björgvini
Halldórs og Heru. Er rosalega hrifinn af
því hvernig Bubbi nálgast lífið í gegnum
tónlistina og hann er alltaf jafnsannur
sjálfum sér, lifir í núinu alveg eins og
hann gerði á Utangarðsmanna-
tímabilinu. Sigga er með sína fyrstu
sólóplötu í 6 ár og hún hefur greinilega
valið hvert lag af mikilli kostgæfni. Svo
er líka eitt lag eftir hana sjálfa á plöt-
unni sem er merkilegur áfangi fyrir
hana. Plata Björgvins heillar fyrst og
fremst þar sem hann syngur með nokkr-
um af vinsælustu söngvurum landsins
enda ber hún nafnið Duet og þar á með-
al er lag með ítölskum kappa sem heitir
Tinganelli og Hera hefur ótrúlega þrosk-
aðan tónlistarsmekk miðað við aldur og
henni ferst það vel úr hendi að syngja
lög meistaranna á plötunni (Bubba,
Megasar og K.K.).
Uppáhaldsplata allra tíma?
Á kannski mjög erfitt með að velja eina
plötu en samt situr í minningunni mjög
sterkt plata með rokksveitinni 10cc sem
kom út 1974 og innihélt lagið „The Wall
Street Shuffle“. Kannski ekki endilega
besta plata allra tíma í mínum huga en
sennilega sú sem hefur haft einna mest
áhrif á mig. Annars sem unglingur hlust-
aði ég á mjög blandaða tónlist eins og
Slade, Smokie, Deep Purple, Michael
Jackson, Boston, Human League og
svona mætti lengi telja.
Hvaða plötu setur þú á á laugardags-
kvöldi?
Þessi spurning er frábær, því Sálin hans
Jóns míns er yfirleitt sú plata sem ég
set á fóninn ef ég vil komast í gott
skap, það má segja að tvöfalda safn-
plata strákanna sé eins konar gleðipilla
fyrir mig og er hún því alltaf geymd á vís-
um stað til að grípa til.
Hvaða plötu setur þú á á sunnudags-
morgni?
Tónlist er eitthvað sem ég nenni ekki að
hlusta á sunnudagsmorgnum, ann-
aðhvort reyni ég að sofa þá morgna eða
sæki í talað mál. Man vel eftir því þegar
börnin voru yngri að ég fór oft í bíltúr
með þau á sunnudagsmorgnum og
hlustaði á Svavar Gests á ríkisútvarpinu.
Hver er fyrsta platan sem þú keyptir
þér?
Fyrsta platan sem ég keypti var smá-
skífa eða 7" eins og það var kallað með
laginu „Upside Down“ með Díönu Ross.
Notaði hana síðan mikið sem plötusnúð-
ur í félagsmiðstöðinni Fellahelli þá 13
ára gamall en þar byrjaði þessi áhugi á
plötum og síðar útvarpi.
Þetta vil ég
heyra
Ívar Guðmundsson
útvarpsmaður á Bylgjunni