Morgunblaðið - 19.01.2004, Qupperneq 40
40 MÁNUDAGUR 19. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
EPÓ
Kvikmyndir.com
Roger Ebert
AE. Dv
Skonrokk
FM909
Sýnd kl. 10.30.
B.i. 16. Enskur textiSýnd kl. 8. B.i. 16.
Tilnefnd til 5 Golden Globe verðlauna
meðal annars besta
mynd ársins
Kvikmyndir.is
GH. Kvikmyndir.com
HJ.MBL
HJ. MBL
Sýnd kl. 6, 8 og 10.10.
Sýnd kl. 5.45.
The Rolling Stone
SV. Mbl
Sýnd kl. 6 og 9.
„Fantavel leikin
eðalmynd“
ÞÞ Fréttablaðið
ÓHT. Rás2
Magnþrungin erótísk
spennumynd með
Meg Ryan eins og þið
hafið aldrei
séð hana áður.
Tónlist myndarinnar er eftir
Hilmar Örn Hilmarsson
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20. B.i. 16 ára.
VG DV
Sjáið eina athyglisverðustu
og mest sláandi mynd ársins.
MEG RYAN
MARK RUFFALO
JENNIFER JASON LEIGH
Nýjasta mynd leikstjóra „THE PIANO“
a film by JANE CAMPION
Sýnd kl. 6 og 9.
Sannkölluð stórmynd sem hlotið hefur frábæra
dóma og viðtökur um allan heim.
Tom Cruise hefur aldrei verið betri!
Besti aðalleikari
Tom Cruise
Besti leikari í
aukahlutverki
Ken Watanabe
Besta frumsamda
tónlistin
Hans Zimmer
3
Tilnefningar til Golden Globe verðlauna
Hreyfir við áhorfandanum og skilur eitthvað eftir sig. Samleikur
systkinanna er með ólíkindum. Hér leikur allt í höndunum á
Hilmari, börn, fullorðnir, tónlist og myndmál”
- ÞÞ Fréttablaðið
15.000 MANNS Á TVEIMUR VIKUM!
Næstbesta opnun íslenskrar kvikmyndar frá upphafi!
KRINGLAN
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.
Frá framleiðendum Four Weddings,
Bridget Jones & Notting Hill
Sjáið eina athyglisverðustu
og mest sláandi mynd ársins.
Magnþrungin erótísk
spennumynd með
Meg Ryan eins og þið
hafið aldrei
séð hana áður.
Sannkölluð stórmynd
sem hlotið hefur
frábæra dóma og
viðtökur um allan
heim.
Tom Cruise hefur
aldrei verið betri!
Besti aðalleikari
Tom Cruise
Besti leikari í
aukahlutverki
Ken Watanabe
Besta frumsamda
tónlistin
Hans Zimmer
3
Tilnefningar til Golden Globe verðlauna
EINNIG SÝND Í LÚXUS VIP Í ÁLFABAKKA KL. 4 OG 8.
JÓN Sigurðsson og Anna Katrín Guðbrands-
dóttir voru meðal þeirra þriggja keppenda sem
komust í úrslit Idol-stjörnuleitar sem fram fóru
síðastliðið föstudagskvöld, en sigurvegari
keppninnar var sem kunnugt er Karl Bjarni
Guðmundsson. Jón, 26 ára starfsmaður Sím-
ans, hlaut 32% atkvæða en Anna Katrín, 17 ára
menntaskólanemi 19%.
Þegar úrslitin fóru fram komu stuðnings-
menn Jóns Sigurðssonar saman á NASA við
Austurvöll og stuðningsmenn Önnu Katrínar
fylltu Sjallann á Akureyri.
Jón og Anna Katrín
urðu í 2. og 3. sæti
Morgunblaðið/Árni Torfason
Anna Katrín og Jón Sigurðsson stóðu sig bæði með mikilli prýði í Idol-stjörnuleit.
Idol-stjörnuleit
JÓN var glaður í bragði þegar Morgunblaðið
hafði samband við hann og sagðist vera ánægður
með eigin frammistöðu í keppninni.
„Þetta er búið að vera frábært frá A til Ö. Ferð
mín í Idol-stjörnuleit er búin að vera hálfgerð
rússíbanaferð, mikið um hæðir og lægðir. Ég er
himinlifandi með árangur minn í keppninni og er
fyrst núna að átta mig á þessu,“ sagði Jón.
Hann segist hafa farið í þessa keppni til gamans
og með það að markmiði að fá að syngja fyrir
dómnefndina. „Þetta vatt allt upp á sig og undir
lokin fór maður allt í einu að trúa því að það væri
nú sennilega eitthvað í mann spunnið.“
Ætlar sér að gefa út plötu
Jón segir keppnina ekki hafa breytt sér sem
persónu, hann sé enn jafnjarðbundin og rólegur
sem endranær. Aftur á móti hefur þetta eflt trú
hans á sjálfum sér. „Minn helsti löstur hefur ávallt
verið að ég hef átt erfitt með að taka hóli. Ég hef
átt betra með að taka gagnrýni. Þessi keppni hef-
ur einhvern veginn fengið mig til þess að trúa því
að eitthvað sé í mig spunnið. Keppnin varð í raun
til þess að ég er farinn að trúa á sjálfan mig, sem
er nauðsynlegt.“
Jón segir að það sé ýmislegt í spilunum. Hann
er þó staðráðinn í því að gefa út plötu. „Ég hef
litla reynslu á þessu sviði og veit í raun lítið um
það hvernig slíkt gengur fyrir sig. Ég á að öllum
líkindum eftir að fara til einhvers til þess að fá
ráðleggingar,“ segir Jón. „Stefnan er sú að gefa út
lag í vor. Ég á fínt efni á eina plötu og langar til að
koma því frá mér. Það verður gaman að sjá hvern-
ig markaðurinn tekur við henni. Ef viðbrögðin
verða jákvæð er aldrei að vita hvað gerist. Ég get
ekki farið sáttur í gröfina nema láta á það reyna.“
Í góðu glensi
Jón segir að það muni að öllum líkindum ekki
líða á löngu þar til hann kemur aftur fram. „Það
má ekki vera of langt í það að ég komi aftur fram
og ekki of stutt. Þjóðin er búin að sjá mikið af okk-
ur sem komumst í úrslit og því tilvalið að byggja
upp smáeftirvæntingu.“ Jón ítrekar þó að það sé
ekki of langt í það að hann komi aftur fram og seg-
ist eflaust eiga eftir að dúkka upp einhvers staðar
í góðu glensi.
Í þessari viku byrjar Jón í barneignarfríi og
pabbahlutverkið er það næsta sem hann tekur sér
fyrir hendur. „Það er kjörið að fá smáfrí og skoða
sín mál,“ segir Jón að lokum.
Frábært
frá A til Ö
Jón Sigurðsson
ANNA Katrín Guðbrandsdóttir var komin á kaf í
lestur skólabóka þegar Morgunblaðið hafði sam-
band við hana. Hún segist vera reynslunni ríkari
eftir að hafa tekið þátt í Idol-stjörnuleit.
Spurð að því hvað taki við segir Anna Katrín
að lærdómur sé efst á baugi. „Nú eru það prófin
sem taka við,“ segir Anna Katrín. „Læra og læra
og standa sig vel í prófunum. Ég ætla að einbeita
mér að skólanum í augnablikinu og síðan sé ég
til.“
Stolt af sjálfri sér
Anna Katrín var að vonum ánægð með
frammistöðu sína í keppninni. „Ég er mjög
ánægð og ótrúlega stolt af sjálfri mér að hafa
komist í þriggja manna úrslitin á mínum eigin
verðleikum. Ég held að allir þátttakendur séu
stoltir. Ég hefði verið stolt jafnvel þótt ég hefði
ekki komist í Smáralind eða 32 manna úrslit.
Það að koma þarna og taka þátt sýnir að maður
hefur mikið hugrekki til að bera. Það þarf hug-
rekki til þess að mæta á staðinn og syngja fyrir
fólk,“ segir Anna Katrín.
Anna Katrín mun eflaust láta til sín taka á
tónlistarsviðinu en segir þau mál í ákveðinni bið-
stöðu. Nú sé það námið sem eigi hug hennar all-
an.
Reynslunni
ríkari
Anna Katrín Guðbrandsdóttir
LÍFVERÐIR á
vegum Puff
Daddy og Jenni-
fer Lopez gengu
hart fram á dög-
unum er þeir tóku
myndavél af pari
og sökuðu það um
að hafa verið að
taka myndir af stjörnunum. Parið,
sem í sakleysi sínu var að fagna af-
mæli stúlkunnar, átti sér einskis ills
von þegar hinir tröllvöxnu lífverðir
ruddust að þeim og fjarlægðu mynda-
vélina. Stúlkan, Jaqueline Thomas
Bishop, segir að hún og unnusti sinn
hafi einungis verið að mynda hvort
annað. „Þeir ruddust að okkur um
leið og þeir komu auga á myndavél-
ina,“ sagði Jaqueline. Lífverðirnir
létu þau fá myndavélina aftur, en
fjarlægðu minniskortið úr henni en á
því voru yfir 100 myndir úr sum-
arleyfi þeirra. Lífvörðurinn neitar
staðfastlega að afhenda þeim minn-
iskortið á ný.
Á meðan á öllu þessu stóð neitaði Puff
Daddy því að hann væri að reyna að
heilla fyrrverandi kærustu sína. „Ég
er ekki með henni. Það vildi bara svo
skemmtilega til að við vorum á sama
stað á sama tíma. Þetta var bara til-
viljun.“ ... Hinn 25 ára gamli leikari
Ashton Kutcher
segist njóta þess
að líta eftir dætr-
um kærustu sinn-
ar, Demi Moore,
og segir að þær
séu fjölskylda sín.
Kutcher, sem er
15 árum yngri en
Moore, segir að hann gegni mik-
ilvægu hlutverki í lífi þriggja dætra
hennar, þrátt fyrir að hafa nýlega
gefið það út að þau muni ekki ganga í
hjónaband á næstunni. „Mér finnst
sem ég sé nú þegar orðinn fjöl-
skyldumaður og mér þykir mjög
vænt um fjölskylduna mína. Okkur
kemur vel saman og ég reyni eftir
fremsta megni að vera stúlkunum
innan handar,“ sagði Kutcher. Hann
neitar þó að viðurkenna að hann sé
föðurímynd stúlknanna, en faðir
þeirra er harðjaxlinn Bruce Willis.
„Það er erfitt og með öllu óþarft að
skilgreina hlutverk mitt. Það eina
sem ég get sagt er að þær færa mér
mikla gleði.“ ... Rapphundurinn
Mystikal, sem hvað þekktastur er
fyrir lagið Shake Ya Ass, hefur verið
dæmdur til sex ára fangelsisvistar
fyrir að hafa misnotað hárgreiðslu-
meistara sinn, fertugan kvenmann.
Mystikal, sem hefur verið tilnefndur
til Grammy-verðlauna, var fundinn
sekur um að hafa ráðist að konunni
ásamt lífvörðum sínum og beitt hana
kynferðisofbeldi. Dómarinn í málinu,
Tony Marabella, sagði að það lægi í
augum uppi að sakborningurinn héldi
sig vera hafinn yfir lögin.
FÓLK Ífréttum