Morgunblaðið - 19.01.2004, Side 44
BORUN á nýrri holu á Reykjanesi, þeirri
fimmtu á vegum Hitaveitu Suðurnesja, er í
fullum gangi. Sjá Jarðboranir um þá fram-
kvæmd. Að sögn Júlíusar Jónssonar, for-
stjóra Hitaveitunnar, gengur verkið áætlega
og er borinn kominn niður á um 1.800 metra
dýpi. Júlíus segir mikinn hita vera í holunni
en finna þurfi góða sprungu til að flytja nægt
vatn að henni.
Júlíus segir undirbúning vegna virkjana
HS og Orkuveitu Reykjavíkur, vegna stækk-
unar Norðuráls á Grundartanga, ganga sam-
kvæmt áætlun. Framkvæmdir eru í kynn-
ingu á umhverfismati og leyfisferli.
Tilboð í gufuhverfla
Hitaveita Suðurnesja hefur sent útboðs-
gögn til sjö erlendra fyrirtækja þar sem ósk-
að er eftir tilboðum í gufuhverfla vegna fyr-
irhugaðrar virkjunar, sem á að geta framleitt
allt að 100 MW. Júlíus vonast eftir tilboðum
um miðjan febrúar en hann segir að til að
geta staðið við afhendingu á orku vorið 2006
verði gufuhverflarnir að vera komnir inn í
stöðvarhús undir lok næsta árs.
Fimmta hol-
an boruð á
Reykjanesi
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 MÁNUDAGUR 19. JANÚAR 2004 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
Áskriftarsími 881 2060
Í FORMI
LIFANDI
VÍSINDI
Áskriftarsími 881 4060
VETRARRÍKI er á virkjunarsvæð-
inu við Kárahnúka. Hefur töluverð-
ur tími farið í að halda leiðum á
vinnusvæðinu færum og eins Kára-
hnjúkaleið.
„Þeir gerðu sér alveg grein fyrir
því að það myndi verða vetrarríki
hér á hálendinu og um það hefur
verið töluvert rætt. Menn skynja þó
aldrei svona hluti alveg fyrr en
þeir upplifa þá sjálfir,“ sagði Leó
Sigurðsson, öryggis- og umhverf-
isstjóri hjá Impregilo, þegar hann
var spurður að því hvort aðstæður
væru erfiðari en stjórnendur á veg-
um fyrirtækisins hefðu búist við.
Mikill snjór er á virkjunarsvæð-
inu enda vetrarveður búið að vera í
marga daga. Verktakinn býr vel af
stórvirkum tækjum og hafa þau
verið notuð til að halda leiðum opn-
um þannig að starfsfólk hefur get-
að komist í og úr vinnu á öruggan
hátt. Hafa stjórnendur tækjanna
byrjað vinnudaginn snemma,
klukkan 5 og 6 á morgnana, til þess
að fólkið kæmist til vinnu klukkan
sjö. Þeir sem vinna á vöktum hafa
einnig séð til þess að félagar þeirra
kæmust til að leysa þá af.
Margir eru að vinna við jarð-
gangagerð og þurfa því ekki að
hafa áhyggjur af veðri og vindum
við vinnu sína og aðrir eru í nokkru
skjóli við stíflugerð niðri í Hafra-
hvammagljúfri. Vandræðin snúast
um að komast til og frá vinnu. „Það
verður allt erfiðara við svona að-
stæður,“ sagði Leó. Hann nefndi
það að einn daginn í síðustu viku
hefði verið brugðið á það ráð að
hætta vinnu fyrr um daginn en
venjulega og aka starfsfólkinu með
rútu til vinnubúðanna.
Í gær var bjart veður við Kára-
hnúka og Leó sagði að mannskap-
urinn hefði notað tækifærið til að
skreppa til Egilsstaða í sund. Vel
er þó fylgst með veðri og veð-
urspám og hafði Leó nokkrar
áhyggjur af því í gær að nýtt skot
væri að koma.
Ljósmynd/Carlo Mazzetti
Vinnubúðir Impregilo voru nánast komnar á kaf í bylnum í síðustu viku en
í gær, þegar þessi mynd var tekin, var búið að ryðja snjónum frá.
Allt erfiðara en venju-
lega við Kárahnjúka
NETNOTKUN landsmanna nú í jan-
úar er rúmlega 70% meiri en í janúar í
fyrra. Þetta kemur fram á heimasíðu
Modernus. Veðrið er sagður stór
áhrifaþáttur í netnotkun. Þannig hafi
heimasíða Vegagerðarinnar fengið
rúmlega fjórum sinnum fleiri fletting-
ar mánudaginn í síðustu viku en mánu-
daginn þar á undan.
Sama dag var sett nýtt Íslandsmet í
gestafjölda á vef Morgunblaðsins,
mbl.is. Alls skoðuðu 75.484 gestir vef-
inn, en gamla metið, sem reyndar var
sett viku áður, var 68.000 gestir á dag.
Fleiri skoða
Netið í
vondu veðri
FYRIRHUGAÐAR aðgerðir á
Landspítala – háskólasjúkrahúsi
draga úr þjónustu og gæðum hennar
og bitna á sjúklingum, að mati Sig-
urðar Guðmundssonar landlæknis.
Hann gagnrýnir ýmsa þætti aðgerð-
anna en telur aðra til bóta.
Landlæknir sendi heilbrigðisráð-
herra og forstjóra Landspítala – há-
skólasjúkrahúss athugasemdir við
fyrirhugaðar samdráttaraðgerðir
eftir að yfirstjórn spítalans lagði
fram hugmyndir sínar. „Ekki er
hægt að komast hjá því að jafn viða-
miklar aðgerðir muni breyta og að
einhverju leyti draga úr þjónustu við
sjúklinga, jafnvel þótt það sé mikið
reynt af hálfu þeirra sem þurfa að
takast á við þetta lítið öfundsverða
hlutverk að minnka það eins og þeir
geta,“ sagði Sigurður í gær, þegar
leitað var álits hans á aðgerðunum.
Hann sagðist hafa mestar áhyggj-
ur af samdrætti í stoðþjónustu og
miklum samdrætti í kennslu og
rannsóknum. Varðandi fyrra atriðið
sagði hann að stoðþjónusta, til dæm-
is félagsráðgjöf, væri mikilvæg fyrir
ýmsa hópa sjúklinga, ekki síst á geð-
deildum. Hann sagði að mikill nið-
urskurður á sviði kennslu og rann-
sókna í klínískri læknisfræði gæti
sett uppbyggingu mikilvægrar starf-
semi í uppnám og bitnaði að lokum á
þjónustu við sjúklinga.
Aðgerðir til að efla spítalann
Aftur á móti fagnaði hann öðrum
aðgerðum sem hann taldi til bóta,
eins og til dæmis fækkun starfsfólks
í rekstri og umsýslu enda væri það í
samræmi við niðurstöður í nýlegri
skýrslu Ríkisendurskoðunar.
Sigurður sagði að allir væru sam-
mála um að fjölga þyrfti hjúkrunar-
rýmum og efla heilsugæslu, heima-
þjónustu og sjúkrastofnanir í
nágrannahéruðum höfuðborgarinn-
ar til að draga úr álagi á LHS. Mik-
ilvægt væri að þróa klínískar leið-
beiningar og skilgreina verkferla til
að draga úr kostnaði.
Segir aðgerðir
bitna á sjúkum
Dregur úr þjónustu/6
Landlæknir gerir athugasemdir við
fyrirhugaðan samdrátt á Landspítala
LÖGREGLAN í Reykjavík handtók tvo karl-
menn og eina konu í gærkvöldi vegna stórfellds
innbrots í ljósmyndastofu í miðbænum í gær-
morgun.
Við handtökuna lagði lögreglan einnig hald á
þýfi að verðmæti um 3 milljónir króna. Ekki lá
fyllilega ljóst fyrir hvort það tengdist öðrum
innbrotum sem framin hafa verið að undan-
förnu.
Hin handteknu eru á þrítugs- og fertugsaldri
og hafa komið við sögu lögreglunnar áður.
Þegar innbrotið uppgötvaðist var þegar í stað
hafin rannsókn á málinu, enda um stórfellt brot
að ræða. Fljótlega beindist grunur að
ákveðnum aðilum og húsi í miðborg Reykjavík-
ur og að lokinni nánari eftirgrennslan fannst
þýfið samdægurs. Um er að ræða dýran ljós-
myndabúnað, en innbrotsþjófarnir höfðu á brott
með sér stóran hluta af búnaði ljósmyndastof-
unnar. Málið verður rannsakað frekar af auðg-
unarbrotadeild lögreglunnar.
Milljónaþýfi endurheimt
eftir innbrot í gærmorgun
Morgunblaðið/Júlíus
Lögreglumenn almennrar deildar og tæknideildar færa þýfið yfir í lögreglubifreið sem flutti það síðan á lögreglustöðina við Hlemm. Þýfið og hinn
handtekni fundust í húsi í miðborg Reykjavíkur. Miklar annir hafa verið hjá lögreglu undanfarið við að rannsaka innbrot og þjófnaði.