Morgunblaðið - 01.02.2004, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 01.02.2004, Blaðsíða 20
HÉR á eftir fer yfirlit yfir helstu atburði á dag- skrá afmælisárs heimastjórnarinnar og Stjórnarráðs Íslands. 1. febrúar, sunnudagur kl. 13.30. Útgáfu- dag ur stjórnarráðsbókarinnar. Athöfn í Þjóðmenningarhúsinu. 1. febrúar, sunnudagur kl. 15.00. Forsætis- ráðherra, Davíð Oddsson, leggur blóm- sveig á leiði Hannesar og Ragnheiðar Hafstein í kirkjugarðinum við Suður- götu. 1. febrúar, sunnudagur kl. 20.00. Hátíð- ardagskrá í Þjóðmenningarhúsinu. Dav- íð Oddsson, forsætisráðherra, flytur ræðu um stofnun Stjórnarráðs Íslands og heimastjórnina. Dagskráin stendur í tæpa klukkustund og er í beinni útsend- ingu Ríkisútvarps, sjónvarps. 3. febrúar, þriðjudagur kl. 15.00. Sýningin „Heimastjórn 1904“. Á sýningunni er dregin upp mynd af þeim framförum og stórhug sem einkenndi líf þjóðarinnar á fyrsta áratug 20. aldar. Forsætisráðherra, Davíð Oddsson, mun opna sýninguna. 5. febrúar, fimmtudagur kl. 16.00. Sýning í Landsbókasafni Íslands þar sem dregin verður upp mynd af ráðherratíð Hann- esar Hafstein með áherslu á þátt hans í félagslegum umbótum. 6. febrúar, föstudagur kl. 13.30. Málþing, „Hvar liggur valdið?“ í hátíðarsal Háskóla Íslands um heimastjórn og þingræðið. Samstarfsverkefni forsætisráðuneytisins og Háskóla Íslands. 14. febrúar, laugardagur kl. 13.30. Málþing í Möðruvallakirkju. Þrír fyrirlesarar flytja erindi um heimastjórn og þær breytingar sem fylgdu í kjölfarið. Umræður verða á milli erinda. 15. febrúar, sunnudagur kl. 14.00. Sýning opnuð á Ísafirði í Safnahúsinu. Skjöl og munir frá sýslumannstíð Hannesar Haf- steins á Ísafirði. 4. mars, fimmtudagur kl. 16.00. Sýning opnuð í Jónshúsi, Kaupmannahöfn á vegum Alþingis. Umsjón sýningar Björn Björnsson. 5. mars, föstudagur kl. 10.00. Ráðstefna í Kaupamannahöfn um samskipti Íslands og Danmerkur í 100 ár. Forsætisráð- herrar ríkjanna flytja erindi. Utanríkis- ráðherrar ríkjanna í pallborðsumræðum og forsetar þjóðþinga beggja landanna munu stjórna ráðstefnunni. Ráðstefnan fer fram í hinu nýja húsnæði Íslands, Grænlands og Færeyja við Strandgötu. 17. mars, miðvikudagur kl. 13.30. Málþing í Salnum í Kópavogi. Réttindabarátta kvenna á heimastjórnarárunum. Mál- þingið er samstarfsverkefni forsætis- ráðuneytisins, Háskóla Íslands og Kven- réttindafélags Íslands. 18. mars, fimmtudagur kl. 16.00. Sýning í Amtsbókasafninu á Akureyri á munum og skjölum sem tengjast heimastjórnar- árunum. Um kvöldið verður tónlistar- og ljóðakvöld þar sem lesið verður úr ljóð- um Hannesar Hafstein og tónlist flutt. 4. apríl, sunnudagur kl. 14.00. Málþing á Akureyri, Amtbókasafninu. 20. apríl, þriðjudagur kl. 13.30. Málþing í Þjóðmenningarhúsi. Atvinnubylting á heimastjórnarárum. Málþingið er sam- starfsverkefni forsætisráðuneytisins og Háskóla Íslands. 15. maí, laugardagur kl. 14.00. Ritgerða- samkeppni framhaldsskóla. Úrslit kynnt og verðlaun afhent við athöfn í Þjóð- menningarhúsinu. 5. júní, laugardagur kl. 14.00. Sýning og málþing um símann. Málþingið verður í Safnahúsinu á Seyðisfirði. 17. júní, fimmtudagur kl. 10.00. 60 ára lýð- veldisafmæli. Morgunstundin verður til- einkuð 100 ára afmæli heimastjórnar- innar. 19. júní, laugardagur kl. 13.30. Málþing á Ísafirði um heimastjórn og áhrif hennar á þjóðlífið. 15. september, miðvikudagur kl. 16.00. Út- gáfudagur rits um forsætisráðherra Ís- lands í 100 ár. 4. desember, miðvikudagur kl. 17.30. Skáldið Hannes Hafstein. Dagskrá í Þjóðmenningarhúsi allan desem- bermánuð. Dagskrá afmælisárs heimastjórnar 20 B | Morgunblaðið | Heimastjórn 100 ára V iðburðir í tengslum við 100 ára afmæli heimastjórnar á Ís- landi og Stjórnar- ráðs Íslands verða alls á þriðja tug á árinu en hápunktur hátíðarhald- anna er á morgun, sunnudag 1. febrúar þegar 100 ár eru liðin frá því Íslendingar fengu heima- stjórn, þingræði var fest í sessi, Stjórnarráð Íslands stofnað og Hannes Hafstein skipaður ráð- herra. „Á afmælisdaginn kemur út framhaldsbindi af sögu Stjórnar- ráðs Íslands, sem er mikið verk og afar þýðingarmikið innlegg í sögu okkar. Síðar sama dag, eða kl. 15, mun Davíð Oddsson forsætisráð- herra leggja blómsveig að leiði Hannesar Hafstein og Ragnheiðar Hafstein í gamla kirkjugarðinum við Suðurgötu. Þar verða afkom- endur þeirra hjóna viðstaddir. Um kvöldið verður bein útsend- ing í Sjónvarpinu frá tæplega klukkustundarlangri athöfn þar sem tímamótanna verður minnst,“ segir Júlíus Hafstein, sem séð hefur um undirbúning framkvæmda og stýrt verkefnis- nefnd í tengslum við afmælið. Nokkur málþing sem snerta heimastjórnartímabilið verða á afmælisárinu. Meðal annars efna Akureyrarbær, Ísafjarðabær og Seyðisfjarðarbær til málþinga og sýninga. Þess má geta að Hannes Hafstein var fæddur á Möðruvöll- um í Hörgárdal og gegndi um tíma embætti sýslumanns á Ísa- firði. Þá kom síminn á land í Seyðisfirði. Símamálið var bar- áttumál Hannesar í fyrri ráðherra- tíð hans. „Eitt mikilvægasta skref- ið var að rjúfa einangrun þjóðarinnar og leggja símalínur um landið. Ísland komst í daglegt samband við umheiminn, fréttir bárust hratt og örugglega um landið. Þetta skapaði ný sóknar- færi, verslun dafnaði og færðist í hendur Íslendinga, í stað þess að vera stýrt frá Kaupmannahöfn. Þá reyndist síminn samgöngubót, því með símastaurum komu vega- slóðar hringinn um landið.“ Meðal annarra athyglisverðra atburða í afmælisdagskránni er ráðstefna í Kaupmannahöfn 5. mars nk. um samskipti Íslands og Danmerkur í 100 ár. Hafa Íslendingar og Danir týnt hvorir öðrum? „Við áttum frumkvæði að leggja til við forsætisráðuneytið í Dan- mörku og danska þjóðþingið, að Íslendingar og Danir ræði heima- stjórnartímann og samband þjóð- anna í fortíð og nútíð. Danir voru ánægðir með frumkvæði íslenskra stjórnvalda. Mér er ekki kunnugt um að forystumenn þjóðanna hafi áður sest niður með spek- ingum í lögum, mannfræði og sagnfræði og rætt áhrif heima- stjórnar á Íslandi og í Danmörku, sem var að sjá á eftir nýlendu sinni. Þeirri stóru spurningu verð- ur svo velt upp: Hafa Íslendingar og Danir týnt hvorir öðrum? Við megum ekki gleyma því að saga okkar er líka hluti af sögu Dana,“ segir Júlíus og heldur áfram. „Ís- lendingar fengu heimastjórn 1904. Það varð slíkur fjörkippur í þjóðfélaginu að allt fór á fleygi- ferð; þjóðin tók sín fyrstu skref í nútímann. Hér á landi hafði ríkt stöðnun og lítið gerst frá því við fengum stjórnarskrá 1874. Þótt Al- þingi hafi fengið fjárveitingavald og löggjafarvald 1874 þá réðum við ekki okkar málum. Við höfð- um landshöfðingja sem þurfti að leggja öll mál, smá og stór, fyrir ríkisstjórn Danmerkur.“ En hverjar verða helstu áherslur á afmælisári heimastjórnarinar? „Við erum auðvitað að minnast sögunnar, þeirra forvígismanna sem börðust fyrir því að skapa hér sjálfstætt ríki og sjálfstæða þjóð. Það er sjálfsagt og eðlilegt við slík tímamót, eins og 100 ára afmæli heimastjórnar þegar þingræði var fest í sessi og Stjórnarráð Íslands stofnað, að við minnumst þess myndarlega og komum sögunni á framfæri við þjóðina. Það þurfti baráttu til að endurreisa Alþingi, fá stjórnarskrá 1874, heimastjórn, fullveldi, sjálfstæði. Þjóðfrelsi er ekki sjálfgefinð. Við gripum ekki til vopna eða stóðum uppi sem sigurvegarar í orrustu heldur börðumst með rökum og lögðum málefni okkar af staðfestu fyrir dönsk stjórnvöld. Með óbilandi trú á landið og baráttu aldamóta- kynslóðarinnar var lagður grunn- ur að Íslandi nútímans. Það var mikil gæfa að skáldin stóðu í framvarðarsveit sjálfstæðisbarátt- unnar; blésu þjóðinni kjark í brjóst með kvæðum sínum,“ segir Júlíus Hafstein. Þess má geta að á föstudag í næstu viku fer fram málþing í há- tíðarsal Háskóla Íslands um heimastjórn og þingræði þar sem stjórnmálamenn og innlendir og erlendir fræðimenn fjalla um þingræði hér heima og í Dan- mörku. Júlíus bendir á að þar verði án efa athyglisverðar um- ræður í ljósi þess hve þingræð- isreglan sé rótgróin hluti lýðræðis á Íslandi. Hún eigi rætur að rekja til upphafs heimastjórnar þegar Hannes Hafstein, sem hafði meirihluta Alþingis á bak við sig, var valinn fyrsti íslenski ráð- herrann. Árið 1901 hafi Danir fest þingræði í sessi og Íslendingar fylgdu í kjölfarið aðeins þremur árum síðar. Á þriðja tug viðburða á afmælisárinu Hátíðarhöld | Hátíðardagskrá í tilefni af aldarafmæli heimastjórnar fer fram í kvöld, sunnudagskvöld, í sal Þjóðmenningarhússins, sem hér sést skreyttur fána Íslands og fálkamerkinu einhvern tímann á árunum 1908–1918. Húsið var reist 1905–1908 sem safnahús og var ein mesta framkvæmd heimastjórnarinnar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.