Morgunblaðið - 05.02.2004, Síða 4

Morgunblaðið - 05.02.2004, Síða 4
FRÉTTIR 4 FIMMTUDAGUR 5. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ JAKOBÍNA Guð- laugsdóttir, umboðs- maður Morgunblaðs- ins í Vestmannaeyj- um, lést á Heilbrigðis- stofnun Vestmanna- eyja að morgni 4. febrúar sl. 67 ára að aldri. Jakobína fæddist 30. mars 1936 í Vest- mannaeyjum. Foreldrar hennar voru Guðlaugur Gísla- son, bæjarstjóri og al- þingismaður í Vest- mannaeyjum, og kona hans, Sigurlaug Jónsdóttir. Jakob- ína var næstelst sex systkina. Jakobína var einn fremsti kven- kylfingur landsins um langt árabil. Hún hóf að leika golf 1968, þá 32 ára, og varð Íslandsmeistari í kvennaflokki aðeins tveim árum síð- ar sumarið 1970 og aftur 1972, 1973 og 1974. Síðar varð hún tvisvar sinnum Íslandsmeistari í öldungaflokki kvenna. Jakobína varð tuttugu og einu sinni meistari Golfklúbbs Vestmannaeyja (GV) í kvennaflokki. Einnig sat hún í stjórn GV um árabil. Hún var heiðr- uð fyrir íþrótta- og fé- lagsstörf með gull- merki GV, gullkrossi ÍBV og silfurmerki ÍSÍ. Jakobína starfaði frá árinu 1977 til 1988 á skrifstofu Vinnslu- stöðvarinnar í Vest- mannaeyjum. 1988 hóf hún störf á skrifstofu Hraðfrystistöðvar Vestmannaeyja og vann þar uns Hraðfrystistöðin og Ísfélag Vestmannaeyja samein- uðust árið 1992. Jakobína var um- boðsmaður Morgunblaðsins í Vest- mannaeyjum frá gosárinu 1973 til dauðadags. Eftirlifandi eiginmaður hennar er Sigurgeir Jónasson, ljósmyndari í Vestmannaeyjum, og lætur hún eft- ir sig þrjú uppkomin börn. Andlát JAKOBÍNA GUÐLAUGSDÓTTIR ÁKVEÐIÐ hefur verið að fela hópi skipuðum fulltrúum ráðuneyta og Landspítala að finna leiðir til að tryggja áframhaldandi þjónustu við fjölfatlaða einstaklinga á end- urhæfingardeild LSH í Kópavogi. Forsvarsmenn Landssamtak- anna Þroskahjálpar áttu í gær fund með Jóni Kristjánssyni heil- brigðisráðherra og fulltrúum ráðu- neytisins vegna þeirrar óvissu sem upp er komin um endurhæfing- arþjónustu við fjölfatlaða einstak- linga vegna fyrirhugaðrar lokunar endurhæfingardeildar LSH í Kópavogi. Friðrik Sigurðsson, fram- kvæmdastjóri Þroskahjálpar, sagði eftir fundinn að komið hefði fram að þessum vinnuhópi væri falið það verkefni að fara yfir stöðu mála fyrir þennan hóp fatlaðra einstaklinga. „Við lögðum áherslu á að þessi hópur ynni hratt og ítrekuðum að við tryðum ekki öðru en að allir myndu vinna að því að þessari þjónustu verði ekki hætt við þá einstaklinga sem þarna um ræðir,“ segir Friðrik. Leitast við að tryggja óbreytta þjónustu ÞRÍR sendifulltrúar Rauða kross Ís- lands, tveir hjúkrunarfræðingar og geislafræðingur, fóru áleiðis til Írans í gær til þess að aðstoða sjúka og slas- aða á skjálftasvæðum. Í tilkynningu Rauða krossins segir að hjúkrunarfræðingarnir Hólmfríð- ur Garðarsdóttir og Maríanna Csillag auk Elvars Arnar Birgissonar geisla- fræðings, muni starfa með finnskum, norskum og írönskum starfsbræðrum sínum á færanlegu sjúkrahúsi sem komið var upp í Bam á fyrstu dögum eftir skjálftann. Þau verða í fimm til átta vikur á staðnum en gert er ráð fyrir að tjaldsjúkrahúsið verði starf- rækt til ársloka en það er fullkomið sjúkrahús þar sem hægt er að annast 400 til 500 manns á dag. Þá munu sérfræðingar í áfallahjálp á vegum Rauða kross Íslands taka þátt í sameiginlegu verkefni með danska Rauða krossinum og íranska Rauða hálfmánanum sem miðar að því að draga úr áfallastreitu meðal þeirra sem lifðu skjálftann af. Guð- björg Sveinsdóttir geðhjúkrunar- fræðingur, sem er nýkomin til Íslands frá Bam, segir að sex manna áfalla- hjálparteymi íranska Rauða hálfmán- ans fari um skjálftasvæðin og leggi áherslu á að sinna börnunum, sem sum hver þurfi mikinn sálrænan stuðning í kjölfar skjálftans og and- láts fjölskyldumeðlima, segir í til- kynningunni. Í söfnun hér á landi vegna skjálft- ans í Íran söfnuðust alls 15 milljónir króna frá almenningi, ríkisstjórn og deildum Rauða krossins um allt land. Hjúkrunarstarfsfólk Rauða kross Íslands á leið til Írans Miðbær | Húsið Aðalstræti 16 var í gærmorgun flutt aftur á uppruna- legan stað. Það mun nú standa á grunni nýs hótels á horni Að- alstrætis og Túngötu og verða hluti af húsaþyrpingu sem hýsa mun hót- elið. Í grunni hótelsins er gert ráð fyrir fornleifakjallara sem reistur verður yfir rústir af bæ sem þar stóð og talið er að hafi risið á 10. öld. Þar eru minjar um upphaf byggðar á Íslandi og í Reykjavík og var jafnvel talið að mögulegt væri að Ingólfur Arnarson landnáms- maður hefði búið í honum þótt nýrri rannsóknir hafi leitt líkur að því að það sé örlítið yngra en svo. Í húsinu, sem var upprunalega byggt árið 1774 og óx síðan í ár- anna rás, var meðal annars gripa- hús, barnaskóli, og samkomustaður menntamanna. Hans Andersen klæðskeri eignaðist húsið árið 1889 og bjó fjölskylda hans þar í rúma sjö áratugi. Hann stækkaði húsið til muna árið 1895 og aftur aldamóta- árið. Húsið er talið dæmigert fyrir stóru timburhúsin í miðbæ Reykja- víkur sem voru byggð í mörgum áföngum. Starfsmenn Minjaverndar munu gera húsið upp, skipta um klæðn- ingu og styrkja það. Telja borg- aryfirvöld það geta orðið hótelinu til mikils sóma að tengjast sögu Reykjavíkur á svo áhrifaríkan hátt. Morgunblaðið/Golli Aðalstræti 16 flutt á sinn stað STARFSMAÐUR á nætur- vakt á hjúkrunarheimilinu Víðinesi réðst að gamalli konu á heimilinu og barði hana þrisvar sinnum aðfaranótt sl. föstudags. Konan sem er há- öldruð er illa marin eftir höggin. Ekki er hins vegar talið eftir læknisskoðun að hún hafi hlotið mjög alvarlega áverka en konan á við heila- bilun að stríða og er ófær um að tjá sig um líðan sína, skv. upplýsingum Sveins H. Skúla- sonar, forstjóra Hrafnistu, sem annast rekstur heimilis- ins. Að sögn Sveins var mann- inum strax sagt upp störfum á föstudaginn og hans nærveru ekki óskað meir á heimilinu. Var landlæknisembættinu jafnframt tilkynnt um atburð- inn og í framhaldi af því var svo lögð fram kæra á hendur manninum fyrir ofbeldi. „Okkar hlutverk er að bera ábyrgð á öryggi og velferð þessa fólks. Okkur er treyst fyrir því og við áttum enga aðra kosti í stöðunni en að bregðast svona við,“ segir Sveinn. Gaf engar skýringar á hegðun sinni Tveir starfsmenn á heim- ilinu urðu vitni að því í fjar- lægð er maðurinn sló konuna í þremur lotum að því er segir í kærunni samkvæmt upplýs- ingum Sveins. Var maðurinn að fylgja konunni á salerni er hann lagði hendur á hana. Að sögn Sveins mun mað- urinn engar skýringar hafa gefið á hegðun sinni en hann hafi í samtölum við starfs- menn viðurkennt að hafa lagt hendur á konuna og ekki sagst vita hvað hefði gripið sig. 37 heimilismenn eru á hjúkrunarheimilinu Víðinesi. Starfsmaður á hjúkrunarheimili aldraðra kærður fyrir að beita heim- ilismann ofbeldi Réðst með barsmíðum að aldraðri konu

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.