Morgunblaðið - 05.02.2004, Síða 6
FRÉTTIR
6 FIMMTUDAGUR 5. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
UM tvö þúsund einstaklingum í
Malaví verður veitt sérstök aðstoð við
að brjótast úr örbirgð til bjargálna á
næstu þremur árum samkvæmt nýju
samstarfsverkefni Hjálparstarfs
kirkjunnar (HK) og Þróunarsam-
vinnustofnunar Íslands (ÞSSÍ).
Samningur um verkefnið var und-
irritaður í gær en hann lýtur að því að
styrkja sjálfsþurftarbúskap smá-
bænda með alhliða hætti og sérstöku
tilliti til vatnsöflunar og vatnsnotk-
unar.
Hjálparstarf kirkjunnar og ÞSSÍ
taka höndum saman um að fjár-
magna þetta starf næstu þrjú árin
með það að markmiði að tryggja
öryuggt og fjölbreyttara fæðufram-
boð, bæta heilsufar og auðvelda íbú-
um tekjuöflun. Verkefnisstjóri þróun-
arverkefnisins er dr. E.K. Meena
sem starfar á vegum Lútherska
heimssambandsins í Malaví.
Ætlað er að verkefnið nái til 600
fjölskyldna eða um 2.000 einstaklinga
í 30 þorpum. Hjálparstarf kirkjunnar
og ÞSSÍ fjármagna það með 4,3 millj-
óna króna sameiginlegu framlagi á
ári, á núverandi gengi.
Kostnaðaráætlun verkefnisins á
næstu þremur árum er um 186.000
þúsund bandaríkjadalir þ.e. 62.000
dollarar á ári. Kostnaði er skipt hlut-
fallslega þannig að ÞSSÍ greiði 60%
af þessari upphæð og HK 40%.
Hjálparstarf kirkjunnar hefur um-
sjón og eftirlit með verkefninu.
Þetta nýja samstarfsverkefni er
hluti af þróunarverkefni sem kirkju-
lega hjálparstofnunin Evangelical
Lutheran Development Programme,
ELDP, í Malaví vinnur, undir stjórn
Lútherska heimssambandsins sem
Hjálparstarf kirkjunnar er aðili að.
Íbúarnir leggja fram vinnu við verk-
efnið en sérfræðiþekking og tækniað-
stoð kemur frá ELDP. Verkefnið lýt-
ur að því að styrkja sjálfsþurftar-
búskap smábænda og er höfuð-
markmið á þessum tíma að ýta undir
sjálfbæran sjálfsþurftarbúskap með
því m.a. að auka fjölbreytni í ræktun,
ýta undir kvikfjár- og fiskirækt með
því að auka aðgang að vatni til slíks
og þar með skapa aðgang að fjöl-
breyttara fæði, þjálfa fólk til þess að
sýna nauðsynlega aðgæslu í öflun,
meðferð og ráðstöfun vatns, grafa
brunna og þjálfa fólk til að halda bún-
aði þeim tengdum við, auka hreinlæti
með fræðslu. Einar Karl Haraldsson,
stjórnarformaður HK, segir þetta í
annað sinn sem HK og ÞSSÍ semja
um samstarfsverkefni af þessu tagi
og það sé til marks um nýjar brautir í
samstarfi frjálsra félagasamtaka og
opinberrar stofnunar sem annast
þróunarsamvinnu. Hann segir að
Malaví sé fjölmennt ríki sem eigi við
landnauð að stríða og beinist hjálp-
arstarf Lútherska heimssambandsins
fyrst og fremst að því að hjálpa fólki
sem hefur hrakist undan stórrekstri í
landbúnaði og iðnaði út á ófrjósaman
jarðveg, þar sem það eigi við mikla
erfiðleika að stríða. „Það er þetta fólk
sem verið er að hjálpa með áveitu-
framkvæmdum, ræktunarfram-
kvæmdum, endurræktun skóga, að
koma upp fiskitjörnum og við að
koma hreinlætisaðstöðu í lag og bæta
vatnsbúskapinn,“ segir Einar.
Að sögn Jónasar Þóris Þórissonar,
framkvæmdastjóri HK, hófst hjálp-
arstarf kirkjunnar í Mósabík, ná-
grannaríki Malaví, fyrir tólf árum og
hefur verið unnið að samstarfsverk-
efni með ÞSSÍ í landinu á und-
anförnum árum. „Sameiginlega höf-
um við útvegað yfir 200 þúsund
manns hreint vatn í Norður-
Mósambík. Samstarfið hefur því
gengið mjög vel,“ segir hann.
Fram kom í máli Sighvats Björg-
vinssonar, framkvæmdastjóra ÞSSÍ,
að Malaví er eitt fátækasta land í
heimi og Malavar eiga við mörg al-
varleg vandamál að glíma. ÞSSÍ hef-
ur veitt Malaví þróunaraðstoð til
margra ára og hefur starfsemin að-
allega verið við Malavívatn en þar er
unnið að mörgum verkefnum.
DR. ELIAWONY K.
Meena er verkefn-
isstjóri þróunarverk-
efnisins í Malaví.
Meena er yfirmaður
þróunarverkefna
Lútherska heims-
sambandsins í Malaví
og hefur annast
framkvæmd neyðar-
og þróunaraðstoðar
á vegum sambands-
ins mörg undanfarin
ár. Meena segir að
markmiðið með nýja
samstarfsverkefninu
sé að efla og bæta
möguleika íbúa á
þremur landsvæðum
í Malaví til vatnsöflunar og við
ræktun og gert verður átak í
heilbrigðismálum. Að sögn hans
en alnæmi er mjög útbreitt í
landinu og er sjúkdómurinn far-
inn að ógna alvarlega þeim hluta
íbúa Malaví sem stendur fyrst og
fremst undir framleiðslunni.
Meena segir að flóð og þurrk-
ar hafi oft valdið miklum vanda í
landinu sem m.a. hefur leitt til
uppskerubrests og fæðuskorts.
„Meginmarkmið með þessu verk-
efni er að hjálpa einstaklingum
til sjálfsbjargar. Þegar við höf-
um fylgt verkefninu eftir í a.m.k.
þrjú ár ættu þeir að vera í stakk
búnir til að taka við verkefn-
unum sjálfir og halda þeim
áfram upp á eigin spýtur.“
Meena bendir á að Malaví er
118 þúsund ferkílómetrar að
stærð en þar búi 11,5 milljónir
íbúa. „Meðallífslíkur
karla voru lengi um
45 ár og lífslíkur
kvenna 47 ár. Nú
hefur útbreiðsla al-
næmis leitt til þess
að lífslíkur í Malaví
eru komnar niður í
35 ár.
Við leggjum
áherslu á að aðstoða
þá fátækustu meðal
íbúanna í hér-
uðunum þar sem
þróunaraðstoðin er
veitt. Markmiðið er
að þegar starfi okk-
ar lýkur verði íbú-
arnir færir um að
afla sér nægrar fæðu, annast
sjálfir vatnsöflun og viðhald við
veiðiræktartjarnirnar, rækta sitt
grænmeti sjálfir o.s.frv. Þetta á
okkur að takast innan fárra ára.“
Dr. Meena lýsti mikilli ánægju
með samkomulagið við undirrit-
unina í gær. Fram kom í máli
hans að meðal þess sem gera á í
þremur héruðum Malaví á næstu
þremur árum er að grafnir verða
27 brunnar, 6 litlum áveitum
verður komið á fót, byggðir
verða 450 kamrar, gera á 12
fiskiræktartjarnir, komið verður
á fót 27 skógræktarstöðvum til
að festa vatn í jarðvegi og til að
nýta trén í smíði, komið verður
af stað kvikfjár- og alifuglarækt
á 30 stöðum, 9 görðum með fót-
stignum vatnsdælum fyrir mat-
vælarækt og loks verða haldin 9
námskeið um vatn sem auðlind.
2.000 einstaklingum hjálp-
að frá örbirgð til bjargálna
Malavar við áveituframkvæmdir í Malavíu. Með samstarfsverkefninu verð-
ur m.a. sex litlum áveitum komið á fót í þremur héruðum landsins.
Samkomulag
um nýtt sam-
starfsverkefni
Hjálparstarfs
kirkjunnar og
ÞSSÍ í Malaví
Dr. Eliawony
K. Meena.
Aðstoða fátækustu
íbúa til sjálfsbjargar
RIÐA hefur verið staðfest í einni kind á bænum Vegatungu í Biskupstungum.
Farga þarf öllu fé á bænum, um 120 kindum, en ekki liggur fyrir hvort grípa
þurfi til aðgerða á nærliggjandi bæjum. Dýralæknar funda með bændum í fé-
lagsheimilinu Aratungu um málið í dag. Þetta er fyrsta riðutilfellið á landinu
á þessu ári en í fyrra kom riða upp á fimm bæjum.
Sigurður Sigurðarson, dýralæknir
á Keldum, segir mikilvægt að finna
út úr því hvernig riðan hafi smitast
að þessu sinni. Upplýsinga verði afl-
að um það á fundinum í dag og svo
næstu daga.
Síðast kom sjúkdómurinn upp á
þessu svæði, vestan Hvítár, fyrir
nærri tveimur áratugum, en styttra
er síðan riða greindist austan árinn-
ar í Hrunamannahreppi, eða á síð-
asta ári.
„Riðan gæti hafa borist með ýmsu
móti. Hún gæti hafa komið úr fé í
Hrunamannahreppnum því sam-
gangur er á afrétti og féð hefur verið
tekið heim úr réttum. Það er stutt á
milli bæja á þessu nýja riðusvæði en
hvergi eru sauðfjárbúin stór. Mér
skilst hins vegar að talsvert hafi ver-
ið verslað með fé og það verið hýst
milli bæja. Menn hafa sennilega ver-
ið orðnir nokkuð öruggir með sig og
ljóst að taka þarf algjörlega fyrir all-
an fjárflutning milli staða. Líklega
verður að lýsa Árnessýsluna alla
sem riðusvæði, eins og Ölfusið og
suðurhluta landnáms Ingólfs. Eftir
að riða hefur fundist er bannað að
flytja fé milli bæja í tuttugu ár.
Menn verða að fara að hlýða slíkum
fyrirmælum,“ segir Sigurður.
Hann vill brýna fyrir sauðfjár-
bændum eða þeim sem umgangast fé
að tilkynna strax til dýralækna ef
grunur um riðu er uppi, svo afstýra
megi útbreiðslu sjúkdómsins. Helstu
einkenni riðu séu þrálátur kláði,
einkum á haus og afturenda kinda,
slettingur í gangi eða einhvers konar
lömun og svo vanþrif. Sigurður segir
það vilja villa fyrir mönnum að ein-
kennin geti verið breytileg, stundum
geti þau öll verið til staðar á lokastigi
sjúkdómsins.
Bændur á Vegatungu vildu ekki
tjá sig er haft var samband við þá en
á bænum hefur verið stundaður
sauðfjárbúskapur til fjölda ára. Í dag
er féð ekki eina viðurværi bændanna
heldur starfa þeir einnig utan heim-
ilis eins og víða tíðkast til sveita.
Riða staðfest á bæ
í Biskupstungum
Um 120 kindum þarf að farga
á bænum en óvíst með næstu bæi