Morgunblaðið - 05.02.2004, Síða 10

Morgunblaðið - 05.02.2004, Síða 10
FRÉTTIR 10 FIMMTUDAGUR 5. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ FRUMVARPI um breytingu á lögum um sparisjóði er ætlað að taka á mögulegum hagsmunaárekstrum milli stofnfjár- festa annars veg- ar og sjálfseignar- stofnunar spari- sjóða hins vegar, segir Valgerður Sverrisdóttir við- skiptaráðherra. Markmiðið er ekki að koma í veg fyrir hlutafélaga- væðingu spari- sjóða heldur laga veikleika á gildandi lögum. „Það er veikleiki í löggjöfinni, að þegar tilboð berst um yfirtöku getur sú hætta skapast að stofnfjáreigend- urnir, sem stjórna sjálfseignarstofn- uninni, taki ákvörðun sem þjónar þeirra hagsmunum en ekki hagsmun- um sjálfseignarstofnunarinnar,“ sagði Valgerður á Alþingi í gær þegar hún mælti fyrir frumvarpinu. „Sú breyting sem hér er lögð til af- tengir hagsmuni stofnfjáreigenda og sjálfseignarstofnunar. Þessi breyting hefur engin áhrif á stöðu stofnfjáreig- enda sem hlutahafa í sparisjóði.“ Valgerður sagði það vera sparisjóð- unum í landinu til framdráttar að stjórnun sjálfseignarstofnana væri breytt þannig að enginn velktist í vafa um hæfi stjórnarmanna til að taka ákvarðanir. Tíminn einn yrði svo að leiða í ljós hvaða áhrif frumvarpið hefði á sparisjóði. SPRON-málið hið þriðja „Sparisjóðirnir þurfa að hafa það í huga að hver er sinnar gæfu smiður. Hvort stofnfjáreigendur í sparisjóð- um kjósi að breyta rekstrarformi sparisjóða eftir þessa breytingu verð- ur að koma í ljós. Hvort SPRON-mál- ið hið þriðja muni koma upp á næstu misserum er einnig óvissu háð. En eitt er víst. Það verður ekkert eins og áður. Við getum ekki tryggt það að sparisjóðir verði alltaf til í óbreyttri mynd,“ sagði Valgerður. Hún galt varhug við því að gerðar yrðu breytingar á lögum um fjár- málafyrirtæki sem útilokuðu í reynd breytingar á rekstrarformi spari- sjóða. Það ætti líka við um breytingar sem óvissa væri um hvort stæðust stjórnarskrárvarin eignarréttindi og ákvæði samningsins um Evrópskt efnahagssvæði. Hvort hugmyndafræðin á bak við sparisjóðina lifði af í heimi stöðugra umbóta vildi Valgerður láta ósagt. „Það verður að koma í ljós. Sparisjóð- irnir sjálfir verða að taka sér taki og móta sína framtíð. Þeir mega ekki verða nátttröll sem daga uppi á fjár- málamarkaði. En þetta er undir sparisjóðunum sjálfum komið,“ sagði viðskiptaráðherra. Hagsmunir stofnfjárfesta og sjálfseignarstofnunar aftengdir í frumvarpinu Veikleiki í löggjöfinni Valgerður Sverrisdóttir Morgunblaðið/Golli Pétur Blöndal og Valgerður Sverrisdóttir fylgjast með umræðum. MÁLEFNI SPRON voru rædd á stjórnarfundi í gær í ljósi stjórn- arfrumvarps viðskiptaráðherra og var ákveðið að bíða með ákvarðanir í málinu. Árni Þór Sigurðsson, for- seti borgarstjórnar og stjórn- armaður í SPRON, taldi rétt að ákveða strax að hætta við áform um hlutafélagavæðingu SPRON. Árni Þór lagði fram eftirfarandi bókun á fundinum: „Með vísan til þess að viðskiptaráðherra hefur lagt fram á Alþingi stjórn- arfrumvarp sem í raun kemur í veg fyrir löglegan samning SPRON og KB-banka og þess, að SPRON hefur ætíð ætlað sér að vinna í samræmi við lög, tel ég rétt að stjórn SPRON ákveði nú þegar að leggja til hliðar áform um að breyta SPRON í hluta- félag.“ Vilja ekki tjá sig Talsmenn SPRON og Kaupþings Búnaðarbanka vilja ekki tjá sig um frumvarp viðskiptaráðherra. „Þessi mál eru til skoðunar hjá okkur,“ segir Guðmundur Hauksson, spari- sjóðsstjóri SPRON. „Við ætlum að sjá hvaða stefnu málin taka áður en við tjáum okkur,“ bætir hann við. Sigurður Einarsson, stjórn- arformaður Kaupþings Bún- aðarbanka, segir að hann skilji ekki hvað viðskiptaráðherra sé að gera með frumvarpinu en hann hafi ekk- ert um málið að segja og vilji ekki tjá sig um það. Stjórnarmaður í SPRON Tillaga um að hætt verði við söluna Í FRUMVARPI viðskiptaráðherra um breytingu á lögum um sparisjóði er lagt til að stofnfjáraðilum spari- sjóða verði ekki heimilt að sitja í stjórn sjálfseignarstofnunar, sem sett er á stofn við breytingu spari- sjóða í hlutafélag. „Í stjórn sjálfs- eignarstofnunar skv. 1. mgr. skulu eiga sæti tveir fulltrúar sveitarfélags þar sem sparisjóðurinn á heimilis- festi við breytingu í hlutafélag, tveir fulltrúar tilnefndir af ráðherra og einn fulltrúi tilnefndur af samtökum sparisjóða,“ segir í frumvarpi við- skiptaráðherra. Samkvæmt þessu verður fellt út úr núgildandi lögum að minnst fimm menn úr fulltrúaráði sparisjóðs skipi stjórn sjálfseignarstofnunarinnar. Fulltrúaráðið er skipað öllum stofn- fjáreigendum í viðkomandi spari- sjóði þegar honum var breytt í hluta- félag. Í greinargerð með frumvarpinu segir að meginreglan í gildandi lög- um sé sú að stofnfjáreigendur sitji í fulltrúaráði sparisjóða. „Reynslan hefur hins vegar sýnt að hagsmuna- árekstrar geta orðið á milli stofnfjár- eigenda annars vegar og sjálfseign- arstofnunarinnar hins vegar og að óheppilegt sé að stofnfjáreigendur taki bæði ákvörðun fyrir sína hönd og hönd sjálfseignarstofnunarinnar, t.d. um sölu á hlutabréfum stofnfjár- eigenda annars vegar og sjálfseign- arstofnunarinnar hins vegar. Frum- varp þetta er því lagt fram til að tryggja að stjórn sjálfseignarstofn- unarinnar verði óháð stofnfjáreig- endum í viðkomandi sparisjóði,“ seg- ir í greinargerðinni. Rökin fyrir því að sveitarfélög skipi tvo fulltrúa í stjórn sjálfseign- arstofnunar eru sögð þau að starf- semi sparisjóða sé staðbundin, þeir þjóni ekki síst dreifðum byggðum landins og eigi að stuðla að vexti á sínu starfssvæði. Lagt er til að við- skiptaráðherra tilnefni aðra tvo menn í stjórnina „í ljósi þeirra miklu fjármuna sem sjálfseignarstofnunin hefur mögulega forræði fyrir og til að tryggja eftirlit með starfrækslu stofnunarinnar,“ segir í greinargerð- inni. „Loks er lagt til að samtök sparisjóða tilnefni einn fulltrúa í stjórn sjálfseignarstofnunar til að tryggja tengsl sjálfseignarstofnun- arinnar við heildarsamstarf spari- sjóða í landinu.“ Fulltrúaráð lagt niður Fulltrúaráð sjálfseignarstofnun- arinnar verður lagt niður samkvæmt frumvarpinu. „Ekki er talin þörf á að fulltrúaráð starfi í sjálfseignarstofn- un þegar skilið hefur verið á milli stofnfjáreigenda og stjórnar sjálfs- eignarstofnunar og þegar leiðir við- skiptaráðherra til að hafa eftirlit með stofnuninni hafa verið efldar með því að hann tilnefni tvo fulltrúa í stjórn sjálfseignarstofnunarinnar,“ segir í greinargerð með frumvarpi viðskiptaráðherra. Stofnfjáreigendur sitji ekki í stjórn sjálfseignarstofnunar HALLGRÍMUR Jónsson, spari- sjóðsstjóri Sparisjóðs vélstjóra, segir að verði frumvarp við- skiptaráðherra varðandi breyt- ingar á lögum um fjármálafyr- irtæki samþykkt leiði það til þess að óvissu verði eytt og starfsfólk, sem hafi haft áhyggjur af gangi mála, geti einbeitt sér að því að vinna við að auka markaðs- hlutdeild sparisjóðanna. Að sögn Hallgríms Jónssonar hafa Landsbanki og Íslandsbanki sýnt áhuga á að kaupa SPV og sent erindi þess efnis auk þess sem fram hafi farið lauslegar og óformlegar viðræður um málið. Hins vegar hafi verið beðið úrslita í SPRON-málinu varðandi fram- haldið. „Verði frumvarp við- skiptaráðherra samþykkt hef ég ekki trú á að sami áhugi á kaup- um ríki,“ segir hann. „Þá lýkur þessu ástandi, sem hefur ríkt að undanförnu, þar sem sparisjóð- irnir hafa verið í hálfgerðri úlfa- kreppu, og þeir geta farið að sækja fram enn á ný.“ Sparisjóður vélstjóra Hafa fengið erindi frá bönkunum ÞINGMENN þurftu að samþykkja sérstakt afbrigði í gær til að taka frumvarp viðskiptaráðherra um breytingar á lögum sparisjóða til fyrstu umræðu á Alþingi. „Eigi má, nema með samþykki þingsins, taka frumvarp til umræðu fyrr en liðnar eru að minnsta kosti tvær nætur frá því er því var útbýtt,“ segir í þing- sköpum. Pétur Blöndal, þingmaður Sjálf- stæðisflokksins, spurði af hverju væri verið að flýta málinu svo í gegn. Vildi hann fá að vita hvort það væri gert vegna fyrirhugaðs fundar stofnfjáreigenda SPRON 10. febrúar nk. Davíð Oddsson forsætisráðherra sagði málinu flýtt í þeim tilgangi að eyða óvissu í málefnum sparisjóð- anna. Í kjölfarið sögðu fulltrúar allra flokka að þeir myndu styðja að mál- inu yrði flýtt í gegnum þingið. Var afbrigðið því samþykkt með 54 samhljóða atkvæðum en Pétur Blöndal sat hjá. Frumvarpinu flýtt í gegnum Alþingi „FRUMVARPIÐ sem fyrir liggur, frú forseti, er ríkisvæðing sparisjóð- anna,“ sagði Pétur Blöndal, þing- maður Sjálfstæð- isflokksins, í umræðu um breytingar á lög- um um sparisjóði á Alþingi í gær. „Þó hæstvirtur ráðherra hafi sagt eitthvað ann- að þá þýðir þetta að engum spari- sjóði verður breytt í hlutafélag. Stofnfjáreigend- ur fara ekki að breyta sparisjóðun- um í hlutafélag og afhenda einhverju fólki, sem ekkert hefur komið nálægt sparisjóðunum, öll völd í fyrirtæk- inu.“ Pétur spurði hvort þetta frumvarp væri nú lagt fram til höfuðs samningi milli SPRON og KB banka og stefnt væri að því að afgreiða það fyrir 10. febrúar nk. Þá munu stofnfjáreig- endur SPRON ákveða hvort spari- sjóðinum verði breytt í hlutafélag og sjálfseignarstofnun, sem mun eiga rúm 80% hlutafjár, seld KB banka samkvæmt gerðum samningum. Valgerður Sverrisdóttir viðskipta- ráðherra sagði ekki sitt að kveða upp úr um það hvenær frumvarpið yrði að lögum. Það væri á valdi Alþingis. Lúðvík Bergvinsson, þingmaður Samfylkingarinnar, sagði það hljóta að vera að frumvarpið væri lagt fram nú í því skyni að það verði að lögum fyrir 10. febrúar. Sagði hann eðlilegt að viðskiptaráðherra lýsti því yfir. Öðruvísi verði sparisjóðirnir í land- inu ekki varðir. Kjarninn í þessu máli sé sá að ef SPRON gangi út úr sparisjóðasamstarfinu verði það svo veikt að erfitt sé að halda því áfram. Stefni viðskiptaráðherra ekki að því að samþykkja lögin fyrir 10. febrúar sé augljóst að þingmenn verði að beita sér fyrir því. Ögmundur Jónasson, þingmaður Vinstri grænna, sagði þingflokk hans styðja frumvarp viðskiptaráð- herra eins og langt og það næði. Inn í þessa umræðu hefðu fléttast vanga- veltur um framtíð sparisjóðanna í landinu og sagði hann það mikla ein- földun af Pétri Blöndal að segja ein- hug ríkja um þetta mál. Skoða yrði hvaða forsendur lægju þar að baki. Í hópi stofnfjárfesta væru einstakling- ar sem hefðu lagt mikið kapp á að gera sem mest úr sínum hlut. Því sé almannahagur ekki hafður að leið- arljósi við sölu stofnfjárbréfa heldur hagnaðarvon stofnfjáreigenda. Stöðva á hlutafjárvæðingu Guðjón A. Kristjánsson, þingmað- ur Frjálslynda flokksins, sagðist vera þeirrar skoðunar að stöðva ætti hlutafjárvæðingu sparisjóðanna um sinn. Hefur hann lagt fram frumvarp þess efnis að þessum áformum verði frestað til 1. janúar 2006. Hann sagði þingmenn Frjálslynda flokksins ekki ætla að leggja stein í götu frumvarps viðskiptaráðherra en sé hlutafjár- væðingu frestað gefist ráðrúm til að skoða allt þetta mál betur. Kristinn H. Gunnarsson, þing- maður Framsóknarflokksins, sagði atburði síðustu vikna hafa dregið það fram mjög skýrt að stofnfjáreigend- ur líti fyrst og fremst til eigin hags- muna við ákvarðanatöku á fjármagni sjálfseignarstofnunarinnar. Í máli SPRON sé það alveg ljóst að verið sé að gera samninga við KB banka með þeim hætti að nota eigið fé sjálfs- eignarstofnunarinnar til þess að auka virði bréfa stofnfjáreigenda. Pétur Blöndal spurði hvort þing- menn héldu virkilega að þetta frum- varp fari í gegn hikstalaust og breyti gerðum samningum svo margir tapi milljónum. Verði þetta að lögum muni það örugglega verða til þess að samningi SPRON og KB banka verði rift. Benti hann á að búið væri að tilkynna til sænska verðbréfa- markaðarins, þar sem KB banki starfar, að bankinn væri búinn að kaupa stærsta sparisjóð Íslands. „Síðan kemur lýðveldið Ísland og breytir lögunum; breytir forsendum samningsins sem gerður var. Hvað halda menn að útlendingar segi við slíku?“ spurði Pétur. „Hvað halda menn að útlendingar segi þegar með lögum er kaupsamningi rift? Hvurs lags álit halda menn að útlendingar hafi á íslensku atvinnulífi og lagaum- gjörð ef þetta hefst?“ Krafa um skaðabætur Hann ákallaði réttarríkið. „Hvar er vernd borgarans fyrir inngripi löggjafans ef gerðir samningar eru gerðir ógildir með lögum,“ spurði Pétur og sagði að þessir samningar væru í fullu samræmi við gildandi lög því annars færi viðskiptaráð- herra varla fram með þetta frum- varp. Búið væri að leggja margar milljónir í að meta verðmæti SPRON og í samningagerð. Því verði örugglega gerð krafa um skaðabætur. „Auðvitað á að endur- greiða SPRON þetta af ríkinu,“ sagði Pétur. Pétur Blöndal stóð einn andspænis þingmönnum allra flokka Verið að ríkisvæða sjóðina Pétur Blöndal ♦♦♦ ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.