Morgunblaðið - 05.02.2004, Page 12

Morgunblaðið - 05.02.2004, Page 12
FRÉTTIR 12 FIMMTUDAGUR 5. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ SAMFARA undirbúningi stórra verka við Hellisheiðarvirkjun eins og vélbúnaðar og byggingar stöðv- arhúss, þá er Orkuveita Reykjavík- ur nú og á næstu mánuðum með ýmis smærri verk í gangi. Eiríkur Bragason, staðarverkfræðingur virkjunarinnar fyrir OR, nefnir þar sem dæmi nýlegt útboð á tíu hljóð- deyfum, sem eru úr þykku stáli og eru notaðir við borholurnar þegar þær eru látnar blása. Einnig fara fram útboð á verkþáttum eins og holutoppum, rakaskiljum, gufu- skiljum, gufuveitulögnum og vega- gerð á virkjanasvæðinu. ,,Atvinnuástandið er kannski ekki eins gott og það gæti verið um þessar mundir og við finnum fyrir miklum áhuga hjá vélsmiðjum og minni fyrirtækjum á smærri verk- efnum hjá okkur. Þau skila sér vel inn á markaðinn og hafa jákvæðari áhrif ef framkvæmdin væri boðin út öll í einu, líkt og fyrir austan,“ segir Eiríkur. Spurður um valkostina sem fram koma í matsskýrslunni segir Eirík- ur margt benda til þess að virkjunin verði öll á neðra svæðinu, saman- ber kost 1, sem sé aðalvalkosturinn. Hinn kosturinn sé settur fram sem hliðarkostur og þó að efra virkj- unarsvæðið sé ódýrara í fram- kvæmd þá sé allur rekstur þar erf- iðari og dýrari. Að auki sé meira umhverfisrask eftir því sem starf- semin er dreifðari um svæðið. Mats- skýrslan taki hins vegar á báðum valkostum. Skipulagsstofnun skilar vænt-anlega frá sér úrskurði umumhverfisáhrif Hellisheið-arvirkjunar um miðjan febrúar en eins og fram hefur komið í Morgunblaðinu bárust stofnuninni þrjár athugasemdir við matsskýrslu Orkuveitu Reykjavíkur (OR), m.a. frá Landvernd. Að auki bárust um- sagnir frá nokkrum opinberum að- ilum. Er það meginniðurstaða mats- skýrslunnar að framkvæmdin muni ekki hafa umtalsverð umhverfis- áhrif. Telst virkjunin fýsilegur kost- ur með tilliti til hugsanlegra áhrifa á jarðhita og orkuforða jarðhitasvæð- isins. Áætlanir Orkuveitunnar miðast við að raforkuframleiðsla fullbyggðr- ar virkjunar á sunnanverðu Heng- ilssvæðinu á Hellisheiði verði 120 MW og varmaframleiðslan allt að 400 MW. Heita vatnið er ætlað til al- mennra nota á höfuðborgarsvæðinu en raforkan fer að mestu til stækk- unar Norðuráls á Grundartanga, um 80 MW. Nú þegar hafa átta rann- sóknarholur verið boraðar á svæðinu á allt að 2.800 metra dýpi og hafa þær allar skilað góðum árangri. Hef- ur hiti í holunum verið á bilinu 255- 275°C. Er talið að þær geti gefið af sér um 40 MW í rafmagni. Á þessu og næsta ári verða tíu holur boraðar til viðbótar og reiknar Orkuveitan með að umfang fjárfestinga í orku- verum á þessu ári verði að andvirði 4,7 milljarðar króna, þar af þrír millj- arðar vegna Hellisheiðarvirkjunar en afgangurinn er stækkun Nesja- vallavirkjunar. Við jarðvarmavirkj- anir sem þessar er borunin um 40% alls framkvæmdakostnaðar. Heild- arkostnaður OR vegna Hellisheiðar- virkjunar er áætlaður átta milljarðar króna og ef stækkun Nesja- vallavirkjunar er talin með, sem ætl- að er að styrkja orkuafhendingu til Norðuráls í tæka tíð, gæti kostnað- urinn farið upp í 12 milljarða króna. Bygging stöðvarhúss og vegagerð mun að mestu fara fram á næsta ári en virkjunin á að vera tilbúin vorið 2006. Tveir valkostir En hvernig hugsar Orkuveitan sér Hellisheiðarvirkjun? Í matsskýrslu eru lagðir fram til athugunar og úr- skurðar tveir kostir. Samkvæmt kosti 1 er gert ráð fyrir að stöðv- arhús fullbyggðrar virkjunar verði reist í Hellisskarði í nágrenni við Kolviðarhól. Skiljustöðvar, þar sem jarðvökvinn úr holunum er skilinn að í hreina gufu og vatn, verða ofan Hellisskarðs og vestan Þverfells. Kostur 2 gerir ráð fyrir að 80 MW rafstöð og allt að 400 MW varmastöð verði reist á sama stað og að 40 MW rafstöð verði að auki reist suðaustan við Gígahnúk. Í öllum aðalatriðum eru mannvirkin þau sömu í báðum kostum, þ.e. vegir, borholur, gufu- veita, stöðvarhús, kæliturn, vatns- veita, vatnsból, fráveita, hitaveituæð, tenging við rafveitukerfi, vinnubúðir og náma. Framkvæmdasvæði Hellisheiðar- virkjunar er sem fyrr segir á sunn- anverðu Hengilssvæðinu. Sjálft Hengilssvæðið er í miðju vestara gosbeltinu, sem nær frá Reykjanesi og norður í Langjökul. Á síðustu 11 þúsund árum eru þekkt þrjú eldgos í Hengilskerfinu svonefnda, það síð- asta fyrir tvö þúsund árum. Hengilssvæðið er eitt mesta há- hitasvæði landsins. Það þekur um 110 ferkílómetra og vinnslugetan er talin vera 5.500 gígawattstundir á ári. Uppsetjanlegt afl er talið 690 MW, eða svipað og Kárahnjúkavirkj- unar, og mögulegir virkjunarstaðir allt að sjö talsins. Svæðið sem OR hefur beint sjónum að nær frá Kol- viðarhóli, Sleggjubeinsdal og Bola- völlum við Húsmúla í vestri um sunn- anvert Stóra-Skarðsmýrarfjall austur að Litla-Skarðsmýrarfjalli. Markast það af Stóra-Reykjafelli að suðvestan og nær suður fyrir Gíga- hnjúk. Skiptist svæðið í efra virkj- unarsvæði ofan Hellisskarðs og neðra virkjunarsvæði neðan skarðs- ins. Rannsóknir sem gerðar hafa verið í tengslum við mat á umhverfis- áhrifum virkjunarinnar ná þó yfir stærra svæði, einkum grunnvatns- rannsóknir, en athafnasvæðið sést nánar á meðfylgjandi korti. Í matsskýrslunni segir að einnig verði lögð vatnsveita að stöðvarhúsi við Kolviðarhól frá fyrirhuguðu vatnsbóli vestan við Húsmúla og hitaveituæð verður lögð frá virkjun- arsvæðinu til Reykjavíkur. Þá verð- ur lögn fyrir affallsvatn frá virkjun- inni að niðurrennslissvæði í Þrengslum. Reiknað er með að raf- stöð Hellisheiðarvirkjunar verði tengd flutningskerfi Landsvirkjunar á 132 kV spennu á Búrfellslínu 2 sem liggur um framkvæmdasvæðið. Að- koma að neðra virkjunarsvæðinu á að vera um Hamragilsveg, upp að skíðasvæðum íþróttafélaganna, en nýr vegur á að koma að efra svæðinu frá Suðurlandsvegi, tveimur kíló- metrum austan við Skíðaskálann í Hveradölum. Helsta hættan vegna ofanflóða Áhættuþættir virkjunar á Hellis- heiði eru samkvæmt matsskýrslunni ekki sagðir þeir sömu á efra og neðra virkjunarsvæðinu. Viss hætta er tal- in steðja að mannvirkjum vegna of- anflóða í Sleggjubeinsdal, en ekki annars staðar. Harðir jarðskjálftar, sprunguhreyfingar og eldgos eru sögð fátíðari en ofanflóð og á mann- virkjum að stafa minni hætta af slík- um atburðum. Borholur geta skemmst við sprunguhreyfingar og eldgos, en tæpast við jarðskjálfta að mati sérfræðinga OR. Telja þeir litla hættu á að holurnar verði fyrir skakkaföllum við innflæði kvikugusa í jarðhitakerfið við kvikuhlaup. Í matsskýrslunni eru borin saman umhverfisáhrif beggja kosta, 1 og 2, og þau talin vera svipuð. Munu mannvirkin bæði á efra og neðra svæði sjást frá Suðurlandsvegi um Svínahraun og Hellisheiði. Fram- kvæmdir samkvæmt kosti 1 þurfa um 825 þúsund fermetra lands, þar af 590 þúsund fermetra undir mann- virki. Kostur 2 kallar á framkvæmdir á 845 þúsund fermetra svæði, þar af 610 þúsund fermetra undir mann- virki. Talsverður hluti þessa lands er sagður þegar raskaður og heitir Orkuveitan því að laga það og snyrta. Munur áhrifa kosta 1 og 2 á gróð- urfar og jarðmyndanir stafar af raski á mosaþembu og nútímahrauni á byggingarreitnum á efra svæðinu suðaustan Gígahnúks, segir í skýrsl- unni. Áhrif á jarðhita og orkuforða, vatnafar, loftgæði, dýralíf, lífríki hvera, menningarminjar, hljóðvist, byggð og íbúaþróun, ferðaþjónustu og samgöngur eru sambærileg fyrir báða kostina. Hvorki er gert ráð fyr- ir gistiaðstöðu á verkstað né fastri búsetu við sjálfa virkjunina þegar hún verður komin í gagnið. Segir ennfremur í skýrslunni að á fram- kvæmdatíma verði fjöldi starfs- manna mestur um 100 manns en með stækkun Nesjavallavirkjunar gæti þessi fjöldi tvöfaldast. Önnur leyfi í vinnslu Um leið og Skipulagsstofnun er að fjalla um matsskýrsluna er Orkuveit- an með öll önnur leyfi í vinnslu, s.s. endanlega samþykkt á aðalskipulagi og deiliskipulagi virkjunarsvæðisins, sem kemur til kasta sveitarfélagsins Ölfuss, byggingarleyfi, starfsleyfi og virkjanaleyfi. Eru forráðamenn OR vongóðir um að mikilvægustu leyfin verði fengin um miðjan febrúarmán- uð, þ.e. umhverfismatið og aðal- skipulagið. Þá eru viðræður langt komnar við Hitaveitu Suðurnesja og Norðurál um raforkuverð vegna stækkunar álverins. Viljayfirlýsing þessara aðila var undirrituð í lok síð- asta árs og þá reiknað með að samn- ingum lyki í febrúar. Hefur ekkert komið upp í ferlinu sem gæti tafið það, samkvæmt upplýsingum Morg- unblaðsins. Úrskurðar Skipulagsstofnunar að vænta um Hellisheiðarvirkjun Orkuveitu Reykjavíkur Fjárfesting upp á þrjá milljarða á þessu ári Átta holur hafa skilað góðum ár- angri en bora þarf tíu til viðbótar Morgunblaðið/Eggert Borhola 7 á efra virkjunarsvæðinu upp af Hellisskarði er nú látin blása af fullum krafti en hún er talin geta gefið af sér allt að 8 MW í rafmagni. Borun til þessa á svæðinu hefur gengið vel. Í bakgrunni sést í skíðasvæði ÍR. bjb@mbl.is                                       !  "  !           !            !   "#$ %& $%! ' % (! )*)!$)**+     ')(! )**+     #   %! ,&)!   ,&) $           )$) )  Mikill áhugi á smærri verkum Morgunblaðið/Eggert Eiríkur Bragason, staðarverkfræðingur OR vegna Hellisheiðarvirkjunar, með Hellisskarðið í baksýn þar sem stöðvarhús á að koma. ÁÆTLANIR OR gera ráð fyrir að á næstu þremur árum aukist velta fyrirtækisins um 2,5 millj- arða króna og nemi 14,5 millj- örðum árið 2006 þegar taka á Hellisheiðarvirkjun í notkun. Á síðasta ári var velta OR tæpir 12 milljarðar. Útgjöldin námu þá 7,5 milljörðum kr. og áætlað er að þau verði orðin 8,3 millj- arðar árið 2006. Samkvæmt upplýsingum frá OR námu fjárfestingar fyrir- tækisins á árunum 1990-2003 alls 53,4 milljörðum króna, mið- að við verðlag í mars 2003. Helmingurinn var vegna dreifi- kerfisins, 16,7 milljarðar fóru í virkjanir og rannsóknir, 5 millj- arðar í fasteignakaup og bygg- ingar og 2,2 milljarðar í hluta- bréf og fyrirtæki. Aðrar fjár- festingar námu 3,2 milljörðum á tímabilinu. Hjá OR starfa nú tæplega 500 manns. 14,5 milljarða velta árið 2006

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.