Morgunblaðið - 05.02.2004, Síða 16
ERLENT
16 FIMMTUDAGUR 5. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
PÓLITÍSK afstaða Johns Kerrys mótaðist á
dögum Víetnamstríðsins en þar hlaut hann
heiðursmerki fyrir framgöngu sína áður en
hann snerist gegn stríðsrekstrinum og gerðist
einn af leiðtogum friðarhreyfingarinnar í
Bandaríkjunum.
„Eftir að hafa barist í Víetnam öðlaðist ég
skilning á því að sérhver dagur sem okkur er
gefinn er sérstakur og að mönnum ber að gera
það sem rétt er,“ segir Kerry í einni af auglýs-
ingum sínum sem nú eru sýndar í sjónvarpi í
Bandaríkjunum. „Þess vegna gef ég kost á
mér í forsetakosningunum,“ bætir hann við.
Með fylgir gömul mynd af Kerry þar sem hann
heldur á M-16-riffli í frumskógum Víetnam.
Kerry lauk prófi frá Yale-háskóla árið 1966
og gekk í herinn. Líkt og þúsundir annarra
ungra manna í Bandaríkjunum var hann send-
ur til að berjast í Víetnam.
Reynslan þar átti eftir að setja mark sitt á
allt líf Kerrys sem nú er sextugur að aldri og
hefur náð góðri forustu í baráttunni um að
verða útnefndur frambjóðandi Demókrata-
flokksins í forsetakosningunum vestra í nóv-
ember. Og til þessarar reynslu vísar Kerry
þegar hann gerir grein fyrir hvers vegna hann
sækist eftir húsbóndavaldi í Hvíta húsinu í
Washington.
Aðdáandi JFK
John Forbes Kerry fæddist 11. desember
árið 1943 í Denver í Colorado. Hann gekk í
heimavistarskóla á Nýja-Englandi og í Sviss
þar sem faðir hans starfaði á vegum utanrík-
isþjónustunnar. Kerry var tæplega 17 ára þeg-
ar hann ákvað að styðja John F. Kennedy sem
þá var frambjóðandi Demókrataflokksins í for-
setakosningum. Kennedy sigraði líkt og al-
kunna er og Kerry vísar iðulega til þess að
fangamörk þeirra tveggja eru eins – JFK.
Eftir námið við Yale varð Kerry foringi á
fallbyssubát sem hélt uppi eftirliti á Mekong-
fljóti í Víetnam. Þau skyldustörf voru afar
hættuleg líkt og fjallað var um í kvikmynd
Francis Ford Coppola „Apocalypse Now“.
Kerry var sæmdur tveimur heiðurs-
merkjum fyrir að hafa sýnt hugrekki og þrem-
ur til viðbótar fyrir þá sök að hafa særst í bar-
dögum í Víetnam. Glæsilegur ferill Kerrys í
flotanum nýtist honum vel þessa dagana er
hann leitast við að ná til gamalla hermanna.
„Neyddur til að bera riffil“
Við komuna heim til Bandaríkjanna gerðist
Kerry einn af leiðtogum hreyfingarinnar sem
andmælti Víetnamstríðinu. Einhverjum af
heiðursmerkjum sínum mun hann hafa fleygt.
Hann gerðist helsti talsmaður samtaka upp-
gjafarhermanna frá Víetnam sem andvígir
voru stríðinu. „Ég var tæki í höndum utanrík-
isstefnu sem var öldungis galin. Ég var neydd-
ur til að bera M-16-riffil til að þjóna þeirri
stefnu,“ segir Kerry gjarnan á kosn-
ingafundum sínum.
Sökum baráttu sinnar gegn Víetnamstríðinu
komst Kerry á hinn illræmda „óvinalista“ sem
Richard Nixon, þáverandi Bandaríkjaforseti,
lét taka saman. 27 ára gamall vakti Kerry
mikla athygli er hann kom fyrir þingnefnd í
Washington, klæddur herbúningi sínum og
spurði viðstadda: „Hvernig er unnt að fara
þess á leit við mann að hann fórni lífi sínu fyrir
misskilning?“
Kerry sóttist eftir þingsæti 1972 en tapaði.
Hann fór í laganám og gerðist að því loknu
saksóknari í Massachusetts-ríki. Hann stofn-
aði síðan lögmannsstofu en var kjörinn vara-
ríkisstjóri Massachusetts árið 1982. Tveimur
árum síðar var hann kjörinn til setu í öld-
ungadeild Bandaríkjaþings. Hann hefur þrí-
vegis verið endurkjörinn og verið nánasti sam-
starfsmaður Edwards Kennedys, sem einnig
situr í öldungadeildinni fyrir Massachusetts.
Vel stæð eiginkona
Kerry gekkst undir uppskurð sökum
krabbameins í blöðruhálskirtli í fyrra. Sú að-
gerð mun hafa tekist mjög vel. Hann á tvær
uppkomnar dætur, Alexöndru sem er 29 ára
og Vanessu sem er 26. Fyrra hjónabandi Ker-
rys lauk með skilnaði árið 1988.
Hann kvæntist á ný árið 1995. Eiginkona
hans er Teresa Heinz. Hún er ekkja Johns
Heinz, sem var öldungadeildarþingmaður fyrir
Repúblíkanaflokkinn. Hann fórst í flugslysi.
Teresa Heinz er talin hafa erft um 500 millj-
ónir Bandaríkjadala eftir eiginmann sinn sem
tilheyrði Heinz-tómatsósuveldinu.
Studdi innrásina
Kerry er hávaxinn, 193 sentímetrar, og
löngum hefur verið sagt um hann að hann sé
„forsetalegur“. Aðrir hafa haldið því fram að
han sé óhóflega stífur og formlegur í fram-
göngu til að ná að höfða til alþýðu manna
vestra. Kerry studdi innrás Bandaríkjamanna
í Írak en hefur að undanförnu gagnrýnt fram-
göngu Bush-stjórnarinnar og forsendur her-
fararinnar harðlega. Á vettvangi félagsmála er
Kerry talinn frjálslyndur.
Afkvæmi Víetnamstríðsins
Washington. AFP.
John Kerry (t.v.) og tónlistarmaðurinn John
Lennon á dögum Víetnam-stríðsins.
’ Hvernig er unnt að faraþess á leit við mann að
hann fórni lífi sínu fyrir
misskilning? ‘
John F. Kerry, öldungadeildarþing-
maður fyrir Massachusetts, styrkti
stöðu sína sem sigurstranglegasti
frambjóðandinn í forkosningum
demókrata þegar hann sigraði í fimm
ríkjum af sjö í fyrradag. Hann sýndi
að hann stendur vel að vígi í öllum
landshlutum með sigri í Delaware í
austurhlutanum, Norður-Dakóta í
norðri, Missouri í miðvesturhlutan-
um og Arizona og Nýju-Mexíkó í
suðvestri.
John Edwards, öldungadeildar-
þingmaður fyrir Norður-Karólínu,
sigraði örugglega í ríkinu sem hann
fæddist í, Suður-Karólínu. Hann
vonaðist einnig eftir sigri í Oklahoma
og verða þar með álitinn helsti keppi-
nautur Kerrys í forkosningunum,
þannig að kosningabaráttan yrði að
keppni á milli þeirra tveggja. Það
tókst þó ekki alveg því að hann beið
ósigur í Oklahoma fyrir Wesley
Clark, fyrrverandi hershöfðingja,
þótt munurinn á fylgi þeirra væri
ekki mikill. Var það fyrsti sigur hers-
höfðingjans fyrrverandi í kosninga-
baráttunni.
Lieberman hættur en
Dean heldur áfram
Joe Lieberman, öldungadeildar-
þingmaður fyrir Connecticut og
fyrrverandi varaforsetaefni demó-
krata, heltist hins vegar úr lestinni
og neyddist til að draga sig í hlé.
Howard Dean, fyrrverandi ríkis-
stjóri Vermont, var hvergi í tveimur
efstu sætunum í forkosningunum í
fyrradag. Hann sagðist þó ætla að
halda baráttunni áfram og benti á að
aðeins tíundi hluti kjörmannanna,
sem velja forsetaefnið formlega í
sumar, hefur verið kosinn.
Stjórnmálaskýrendur sögðu að
Kerry væri í góðri aðstöðu til að leiða
í raun kosningabaráttuna til lykta
fyrir lok mánaðarins.
„Þetta var mikilvægur dagur fyrir
John Kerry. Hann virðist svo sann-
arlega vera á góðri leið með að
tryggja sér sigur í forkosningunum,“
sagði Steve Murphy, en hann var
kosningastjóri Dicks Gephards, sem
ákvað að draga sig í hlé eftir forkosn-
ingarnar í Iowa. „Eina spurningin er
hver stendur uppi sem síðasti keppi-
nautur Kerrys.“
John D. Podesta, skrifstofustjóri
Hvíta hússins í forsetatíð Bills Clin-
tons, sagði að fátt benti til þess
keppinautar Kerrys gætu unnið upp
forskotið nema honum yrðu á mjög
slæm mistök í kosningabaráttunni.
Merle Black, stjórnmálafræðipró-
fessor við Emory-háskóla í Georgíu,
tók í sama streng. „Kerry hefur
fengið langflesta kjörmenn og svo
virðist sem enginn keppinautanna
geti stöðvað hann.“
Edwards þarf að sanna sig
utan suðurríkjanna
Skoðanakönnun fyrir utan kjör-
staði bendir til þess að Kerry hafi
haft hag af því að hann er nú talinn
líklegastur frambjóðendanna til að
geta sigrað George W. Bush forseta.
Hann fékk atkvæði að minnsta kosti
tveggja þriðju af þeim kjósendum í
Missouri, Arizona og Delaware sem
sögðu það mikilvægast að velja for-
setaefni sem gæti sigrað Bush.
Larry Sabato, forstöðumaður
stjórnmálafræðistofnunar Virginíu-
háskóla, sagði það athyglisverðast
við úrslitin í fyrradag að Kerry
skyldi hafa sigrað í öllum landshlut-
um. „John Edwards hefur aðeins
sigrað í suðrinu. Hann hefur ekki
sýnt að hann njóti verulegs stuðn-
ings annars staðar.“
Stjórnmálaskýrendur sögðu að
Edwards þyrfti nú að bæta úr þessu
til að eiga raunhæfa möguleika á að
verða fyrir valinu sem forsetaefni
demókrata.
„Ef Edwards vill veita Kerry
mikla keppni þarf hann að sýna að
hann geti sigrað fyrir utan bakgarð-
inn sinn og treysta ekki aðeins á
ímynd sína sem suðurríkjadrengs-
ins,“ sagði Bruce Ransom, stjórn-
málafræðiprófessor við Clemson-há-
skóla í Suður-Karólína. Hið sama er
að segja um Clark, sem ólst upp í
Arkansas, og hefur aðeins sigrað í
grannríkinu Oklahoma.
Síðasta tækifæri
Deans um helgina?
Ólíkt Kerry hafa Edwards, Clark
og Dean einbeitt sér að einstökum
ríkjum, þar sem þeir telja möguleika
sína mesta, í von um að þeir verði
ekki uppiskroppa með peninga áður
en þeir missa alla von um sigur. Þeir
vonast til þess að halda velli að
minnsta kosti til 2. mars þegar kosið
verður í tíu ríkjum. Þá verður keppt
um helming þeirra 2.162 kjörmanna
sem þarf til að verða forsetaefni
demókrata.
Stjórnmálaskýrendur segja þó að
óbreyttum félögum í Demókrata-
flokknum sé mjög í mun að fylkja sér
sem fyrst um eitt forsetaefni og hefja
baráttuna um Hvíta húsið fyrir al-
vöru. „Demókratar vilja ljúka þessu
og einbeita sér að Bush,“ sagði Sa-
bato. „Þeir verða ekki mjög þolin-
móðir við frambjóðendur sem streit-
ast við að halda baráttunni áfram.“
Samkvæmt skoðanakönnunum
var Howard Dean með mest fylgi
fyrir forkosningarnar en hann hefur
nú beðið ósigur í níu ríkjum. Sabato
telur að Dean fái síðasta tækifærið
um helgina þegar kosið verður í mið-
vesturríkinu Michigan og norðvest-
urríkinu Washington. „Dean þarf að
draga sig í hlé ef hann tapar í báðum
ríkjunum um helgina. Hann getur
ekki haldið áfram.“
Verður Edwards
varaforsetaefni?
Edwards hefur oft sagt að hann
myndi ekki sækjast eftir því að verða
varaforsetaefni demókrata en
stjórnmálaskýrendur segja að
frammistaða hans í fyrradag sýni að
það myndi auka sigurlíkur Kerrys í
forsetakosningunum ef Edwards
yrði varaforsetaefni hans.
„Ég tel að Kerry sé ekki óánægð-
ur með að Edwards skyldi hafa sigr-
að,“ sagði Sabato. „Kerry vill að
Edwards sigri í nokkrum suðurríkj-
um til að geta sagt að hann sniðgangi
ekki suðrið og hafi þess vegna valið
suðurríkjamann.“
Charles Jones, við Brookings-
stofnunina, telur hins vegar að þótt
Edwards hafi staðið sig vel í kosn-
ingabaráttunni og sé mikill ræðu-
maður hafi hann ekki enn öðlast
næga reynslu til að verða öflugt
varaforsetaefni. „Edwards er ekki
þekktur út um allt landið. Hann hef-
ur aðeins verið í fimm ár í öldunga-
deildinni,“ sagði Jones.
Hann bætti við að þótt Edwards
væri ungur og myndarlegur skipti
það varla sköpum. „Eins og einhver
hefur sagt, þá er hann sætur en það
eru líka margir aðrir.“
Kerry sýndi
styrk sinn
í öllum
landshlutum
Reuters
John Kerry öldungadeildarþingmaður fagnar sigrum sínum í forkosn-
ingum demókrata í fyrradag á kosningafundi í borginni Seattle í gær.
John Kerry öldungadeildarþingmaður þykir nú á
góðri leið með að tryggja að hann verði forsetaefni
bandarískra demókrata eftir að hafa sigrað í for-
kosningum í fimm ríkjum af sjö í fyrradag. John
Edwards og Wesley Clark héldu velli en Kerry var
sá eini sem sýndi styrk í öllum landshlutum.
Washington. AP, AFP, The Washington Post, Los Angeles Times.
-!%).
) ) ) )#)/)
)
))
)!
0
) )/#)
) $
)#)
# )#)
0
$1))-!%)203
0
!$)4
)5
) $)#))#
%!)!$)$
)) '$
67.89:6 ;76
-!%).
$
)#) )#
.' ) <)==>
4
)5
$
)#))#
.' ) <)??
-!%)203
0
$
)#))#
.' ) <)@=
A.*
6)2
.B*:)86
6C!
)(6D+
E
3
)(E2+
!)(B+
)F# )(+
!E
)(E+
B
%!
)(B.+
.
#
)(5+
!"#
$%"#
& "# '()*
,"-
.#"#
&&"&
&&"#
'()*
'/) 01 &#"#
-".
.&"#
$."#
-"# '()*
"#
$"!
$#",
&," '()*
&&"!
$-"-
$-".
$,"2
.&"#
$ "#
&$"# '()*
&#"#
."#
!#"#
&#"# ' 34) %"#
/) /)
*
5 '
’ Kerry hefur fengið langflesta
kjörmenn og svo
virðist sem enginn
keppinautanna geti
stöðvað hann. ‘