Morgunblaðið - 05.02.2004, Síða 18

Morgunblaðið - 05.02.2004, Síða 18
ERLENT 18 FIMMTUDAGUR 5. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ Glæsileg 124,7 fm neðri hæð á þessum eftirsótta stað ásamt 41,1 fm innbyggð- um bílskúr. Hæðin skiptist í forstofu, hol, stofu, borðstofu, sjónvarpshol, þrjú her- bergi, eldhús, þvottahús og baðherbergi. Íbúðin er öll í sérflokki og með sérsmíð- aðri kirsuberjainnréttingu frá Brúnási, merbau-parketi og flísum. Íbúðinni fylgja tvennar flísalagðar svalir, samtals um 50 fm. Verðtilboð. 3878 HEIÐARHJALLI - EINSTAKT ÚTSÝNI Byltingarkennd uppgötvun: NEW SKIN með einstæðum krafti úr hreinu C-vítamíni. Djúpt niðri endurbyggir það húðtoturnar og yngir þannig innri uppbyggingu húðarinnar um allt að tíu ár. COLIN Powell, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, lýsti því yfir í gær að George W. Bush Bandaríkja- forseti hefði tekið rétta ákvörðun þegar hann ákvað að gera innrás í Írak. Þetta segir hann þrátt fyrir að hafa sagt í viðtali við dagblaðið Washington Post á þriðjudag að hann væri ekki viss um að hann hefði stutt árásina ef hann hefði vitað að ekki myndu finnast nein gereyðingarvopn í Írak. Margir telja að Powell hafi vilj- að draga úr þessum orðum sínum í viðtalinu í gær. Er blaðamaður Washington Post spurði hvort hann myndi hafa mælt með innrás ef hann hefði vitað að Írakar ættu engin gereyðingarvopn svaraði hann: „Ég veit það ekki, því vopnabirgðirnar voru endanlega það sem gerðu þetta að raunveru- legri og yfirvofandi hættu og ógn- un við svæðið og heiminn.“ Þá sagði hann einnig: „Það að vopna- birgðirnar eru ekki til staðar breytir stöðunni pólitískt, svarið sem þú færð er annað.“ „Ætlaði að framleiða gereyðingarvopn“ Í gær sagði Powell hins vegar við fréttamenn í utanríkisráðu- neytinu að rétt ákvörðun hefði verið tekin. „Það á ekki að vera neinn vafi í huga bandarísku þjóð- arinnar um að við gerðum rétt og sagan mun svo sannarlega dæma þar um,“ sagði hann. „Ef við hefðum haft aðrar upp- lýsingar veit ég ekki hvort það hefði breytt stöðunni. Þetta var nokkuð sem við samþykktum öll og myndum örugglega samþykkja aftur hverjar sem aðstæðurnar væru.“ Hann sagði einnig að stríðið væri réttlætanlegt þrátt fyrir að engin vopn hefðu fundist þar sem Saddam Hussein hefði viljað eiga slík vopn. „Það sem ég veit núna er að við áttum í höggi við einræð- isstjórn sem ætlaði að framleiða gereyðingarvopn, hafði átt gereyð- ingarvopn, notaði gereyðingarvopn og hafði aldrei hætt við þær áætl- anir að eignast slík vopn.“ Í dag er ár liðið frá því að Pow- ell hélt ræðu fyrir öryggisráði Sameinuðu þjóðanna þar sem hann kynnti leyniþjónustugögn um meinta gereyðingarvopnaeign Íraka og hvatti stofnunina til að taka þátt í innrásinni í Írak. Engin vopn hafa fundist og fyrir stuttu sagði fyrrverandi yfirmaður vopnaleitar Bandaríkjamanna í Írak, David Kay, að hann teldi að engin gereyðingarvopn myndu finnast. Nú hafa bæði George W. Bush Bandaríkjaforseti og Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, fyrir- skipað rannsókn á gögnum leyni- þjónustustofnana þar sem fram kom að Írakar ættu slík vopn. Powell segir stríð- ið réttlætanlegt Sagðist daginn áður ekki vita hvort hann hefði stutt stríðið hefði verið ljóst að gereyðingarvopn myndu ekki finnast Washington. AP. AFP. AP Colin Powell talar við fréttamenn við utanríkisráðuneytið í gær. AÐ minnsta kosti 26 manns hafa fundist látnir í rústum bygging- arinnar sem hrundi í borginni Konya í Tyrklandi á mánudags- kvöld. Lögreglan hefur handtekið tvo verktaka sem unnu að bygg- ingu hússins en talið er að slysið megi rekja til sviksamlegra vinnu- bragða. Leit að fólki stóð enn yfir í gær en óttast er að um 40–100 manns séu enn fastir í brakinu. Líkurnar á að finna fleiri á lífi eru ekki tald- ar miklar, 31 hefur þegar verið bjargað, hinum síðasta á þriðju- dagskvöld, nærri 20 klukkustund- um eftir að byggingin hrundi. Forsætisráðherra landsins, Rec- ep Tayyip Erdogan, kenndi bygg- ingarmistökum um og hvatti til þess að reglur um byggingarstaðla yrðu hertar. „Svo lengi sem refs- ingar fyrir hluti af þessu tagi eru ekki harðar munu borgarar gjalda fyrir þá með lífi sínu.“ Ekki er ljóst hvað kæran á hendur verktökunum mun fela í sér ef hún verður þá lögð fram en lögregla rannsakar hvort bygging- arstöðlum hafi ekki verið fylgt. Fólk sem beið frétta af ættingjum sínum sem var saknað krafðist þess að þeir sem byggðu húsið yrðu dregnir til ábyrgðar. Fólks leitað í rústum húss í Tyrklandi Tveir handteknir Konya. AP. ABDUL Qadeer Khan, sem stjórn- aði kjarnorkuáætlun Pakistans um árabil, flutti í gær sjónvarpsávarp þar sem hann bað þjóðina afsökunar á því að hafa miðlað upplýsingum um kjarnorkutækni til Írana, Líbýu- manna og Norður-Kóreu. Pakistanska stjórnin segir að Khan hafi einnig beðið Pervez Mush- arraf, forseta Pakistans, afsökunar og óskað eftir að sér yrðu gefnar upp sakir. Khan segist axla ábyrgð á því að kjarnorkuleyndarmálum var komið til annarra ríkja þegar hann stjórnaði kjarnorkurannsóknar- stofnun í Pakistan. Hann settist í helgan stein 2001. Í yfirlýsingu frá stjórninni sagði að öll pakistanska þjóðin hefði orðið fyrir miklu áfalli við að frétta af því að kjarnorkuleyndarmálum hefði verið lekið til annarra ríkja. Bað pakistönsku þjóðina afsökunar Islamabad. AFP. AJATOLLANN Ali Khamenei, æðsti leiðtogi Írans, flutti ræðu á opnum fundi í Teheran í gær þar sem hann sagði m.a. að það væri skylda stjórnvalda að halda þing- kosningar 20. febrúar, eins og lög gerðu ráð fyrir, þrátt fyrir að kreppa ríkti í stjórnmálum landsins eftir að eftirlitsnefnd meinaði rúm- lega tvö þúsund manns, þ. á m. mörgum umbótasinnuðum þing- mönnum, að bjóða sig fram. Forseti landsins, Mohamed Khat- ami, hefur gefið í skyn að vegna bannsins komi til greina að fresta kosningunum. Í ræðunni, sem Khamenei flutti sitjandi undir mynd af ajatollanum Ruhollah Khomeini, leiðtoga íslömsku bylt- ingarinnar í Íran fyrir aldarfjórð- ungi, kvaðst hann vona að hægt yrði að finna lausn á deilunni, sem hann rakti til „undirróðurs óvina íslamska lýðveldisins“. AP Khamenei vonast til að lausn finnist

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.