Morgunblaðið - 05.02.2004, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 05.02.2004, Blaðsíða 19
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. FEBRÚAR 2004 19 SEGJA má, að nokkur tímamót hafi orðið í samstarfi norrænna sam- keppnisyfirvalda en Svíar hafa nú undirritað samstarfssamninginn frá 2001. Snýst hann aðallega um sam- vinnu í baráttunni gegn hringa- myndunum. „Nú hafa Danir, Norðmenn, Ís- lendingar og Svíar undirritað samn- inginn en hann felur í sér, að skipst verður á upplýsingum um sam- keppnismál og sameiningu fyrir- tækja og er mjög öflugt tæki í bar- áttunni gegn hringamyndun og annarri starfsemi, sem er til þess fallin að draga úr samkeppni,“ sagði Finn Lauritzen hjá dönsku sam- keppnisstofnuninni. Lauritzen benti á, að eftir því sem fyrirtækin gerðust fjölþjóðlegri, væri nauðsynlegra en áður að fylgj- ast með þeim. Hingað til hefðu rann- sóknir hjá slíkum fyrirtækjum ekki verið samræmdar en það þyrfti þó að vera ef leiða ætti í ljós hvort um verðsamráð hefði verið að ræða. Norræn samkeppnisyfirvöld Samstarf í baráttu gegn hringamyndun BANDARÍSK yfirvöld hafa ákveðið að útmá eða hylja holuna, sem Sadd- am Hussein hafðist við í er hann var tekinn. Hefur verkfræðingum hers- ins verið falið að kanna hvernig best sé að standa að því. Joslyn Aberle majór í fjórðu fót- gönguliðssveitinni í Tikrit sagði, að líklega yrði holan ekki eyðilögð, heldur steypt yfir hana svo hægt væri að komast að henni aftur ef þörf þætti á því. Síðan Saddam var tekinn í holunni 13. desember, hafa hundruð banda- rískra hermanna og margir erlendir gestir komið til að skoða hana og mjög vinsælt er að stilla sér þar upp til myndatöku. Yfirvöld kæra sig hins vegar ekkert um, að holan verði að eftirsóttum áfangastað fyrir fólk, hvorki innlent né útlent. Reuters Fréttamaður fylgist með er kollegi hans skríður upp úr holu Saddams. Steypt yfir Saddamsholu Tikrit. AFP. EVRÓPSKIR vísindamenn greindu frá því á þriðjudaginn að þeir hygð- ust senda mannað geimfar til Mars á næstu þrjátíu árum. Líkt og fyrir- ætlanir Georges W. Bush Banda- ríkjaforseta um mannaða geimför til Rauðu plánetunnar hljóðar áætl- un Evrópsku geimvísindastofn- unarinnar (ESA) upp á að mark- miðinu verði náð í áföngum, þ. á m. að fyrst verði sent vélmenni til Mars og mannað far til tunglsins. ESA áætlar að senda tvö flagg- skip til Mars, ExoMars mun flytja þangað fjarstýrðan jeppa 2009, og Mars Sample Return á að sækja og koma með aftur til jarðar sýni úr jarðveginum á Mars 2011–14. Enn- fremur á að senda ómannað far, samskonar og það sem síðan mun flytja geimfarana, til Mars til að gera tilraunir með loftbremsur, nýtingu sólarorku til að knýja farið og leiðir til að lenda mjúklega. Áætlað er að kostnaður við verk- efnið á næstu fimm árum verði um 900 milljónir evra, eða 78,3 millj- arðar króna. Evrópumenn ætla til Mars London. AP. ♦♦♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.