Morgunblaðið - 05.02.2004, Page 20

Morgunblaðið - 05.02.2004, Page 20
Vestmannaeyjar | Narfi VE kom með risastóran karfa að landi í Vestmannaeyjum í vik- unni. Karfi er venjulega 30 til 40 sentímetra langur og eitt til tvö kíló að þyngd. Þessi var aftur á móti 84 cm að lengd og tíu kíló að þyngd. Það er Árni Karl Ingason starfsmaður Fiskmarkaðs Vest- mannaeyja sem heldur á fisk- unum. Risakarfi á land Happafengur Það var svo sann-arlega glatt áhjalla í Hlégarði á laugardag, þegar heim- ilismenn, starfsmenn og aðrir velunnarar Skála- túnsheimilisins héldu veglega veislu í tilefni fimmtíu ára afmælis Skálatúns. Opið hús var í vinnu- stofum í Skálatúni og al- menningi boðið að skoða handverk heimilisfólks og kaupa. Í Hlégarði var síðan boðið upp á kaffi og frábær skemmti- atriði. Þar á meðal döns- uðu heimilismenn og sungu lag úr Grease með vini sínum Jóa dans- kennara. Afmælisfögnuður Skálatúns Úrval-Úts‡n Lágmúla 4: 585 4000 • Hlí›asmára: 585 4100 Keflavík: 420 6000 • Akureyri: 460 0600 Selfossi: 482 1666 www.urvalutsyn.is ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S U RV 2 34 42 01 /2 00 4 Í hjarta Mi›-Ameríku liggur Panamaskur›urinn sem er ein stórkostlegasta siglingalei› í heimi. fia› tekur a›eins 1 dag a› sigla í gegnum skur›inn en minningin endist alla ævi. Á›ur en hápunkti fer›arinnar er ná› í Panamaskur›inum eru sko›a›ar perlur á lei›inni eins og Grand Cayman og Aruba. Sigmundur Andrésson fararstjóri kynnir fer›ina í Skálanum á Hótel Sögu í kvöld kl. 20:00. Nánari uppl‡singar um fer›ina á www.urvalutsyn.is og á skrifstofu okkar a› Lágmúla 4. Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Austurland | Landið Minnstaður Höfuðborgarsvæðið Svavar Knútur Kristinsson, svavar@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 897-9706. Akureyri Skapti Hallgrímsson, skapti@mbl.is, Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898- 5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 862-1169. Árborg- arsvæðið og Landið Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Mínstund frett@mbl.is Veiða krabba | Grænlenski togarinn Arct- ic Wolf frá Ilulssat hefur verið við til- raunaveiðar á krabba undanfarnar vikur á nokkrum stöðum við landið. Hafa skipverjar meðal annars reynt fyrir sér við Breiða- fjörðinn. Skipið er í höfn á Skagaströnd þessa dagana, segir á vefnum Skaga- strond.is. Búið er að leggja krabbagildur í Húnaflóa og beðið er eftir heppilegu veðri til að vitja um aflann. Skipið var leigt til veiða fyrir E. Ólafsson, íslenska útgerð, en áhöfnin mun vera að hluta til erlend. Arctic Wolf hefur verið við krabbaveiðar við Grænland á liðnum árum og náð góðum árangri við þær veiðar, segir á vefnum Úr bæjarlífinu HÉÐAN OG ÞAÐAN Vefir um hamfarir | Nemendur í sjöunda til tíunda bekk Grunnskóla Bolungarvíkur hafa að undanförnu verið að vinna að gerð vefsíðna um eldgos, snjóflóð og jarðskjálfta. Nemendur sjöunda bekkjar hafa unnið að gerð síðu um eldgos og tíundubekkingar sett upp síðu um jarð- skjálfta. Aftur á móti eru þrír hópar að vinna að jafn- mörgum vefsíðum um snjóflóð sem er vá sem snertir íbúa Vestfjarða meira en jarðskjálfar og eldgos. Strákarnir og stelpurnar í áttunda bekk vinna að sitt hvorri snjóflóðasíðunni og nemendur úr níunda bekk setja upp þá þriðju. Síðurnar má finna á vef skólans, www.bol- ungarvik.is/skoli. Milli 40 og 50manns sóttuíbúaþing sem haldið var á Tálknafirði síðastliðinn sunnudag. Fjöldi fyrirspurna barst, bæði skriflegar fyrir þingið og munnlegar á þinginu sjálfu. Taldist fundarstjóra til að 41 fyr- irspurn hafi borist frá 16 aðilum á íbúaþinginu. Fengust svör við flestum ef ekki öllum spurningum sem komu fram, segir á vef sveitarfélagsins. Helst var rætt um sameiningarmál sveitarfé- laga og horfur í þeim efn- um, fjárhagslega stöðu sveitarfélagsins og breyt- ingar á tekjum þess, breytingar á framlögum Jöfnunarsjóðs og fram- setningu fundargerða sveitarstjórnar. Einnig komu fyrirspurnir um framkvæmdir og ástand slökkviliðs og bruna- varna. Mikið spurt Kristján Eiríksson hlýddi á hádegisfréttir um fjarveru Ólafs Ragnars frá ríkis- ráðsfundi og orti: Frægan þeir héldu í fjarveru fund og hátíð. Nú er spurn eftir nærveru næsta fátíð. Hjálmar Freysteinsson legg- ur til að afmælis heima- stjórnar verði framvegis minnst með almennu skíða- fríi: Heiðrum minni Hannesar hratt þó tíminn líði, fyrsta dag í febrúar förum öll á skíði. Hér áður var 1. febrúar raunar haldinn hátíðlegur sem bindindisdagur í skól- um. Rósberg Snædal orti ár- ið 1964: Oft til þrautar þjórað var, þar fórst margur slyngur, þú ert fyrsti febrúar flöskuandstæðingur. Að lokum má rifja upp vísu Teits Hartmanns úr Aust- firskum skemmtiljóðum: Flaskan hún er fótakefli flestra, sem að hana tæma. Hún er mannsins ofurefli eftir sjálfum mér að dæma. Hannes heiðraður Á FUNDI í stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga nýlega var samkvæmt venju rætt um ýmis mál; svo sem erindi frá Alþingi þar sem óskað er umsagna um þingmál, erindi frá ráðuneytum, sveitarfélögum og fleiri aðilum. Fjallað var um fráveitumál og mikinn kostnað sveitarfélaga við að uppfylla kröfur í þeim efnum. Stjórn sambands- ins telur augljóst að ekki muni öll sveit- arfélög á landinu ljúka fráveitufram- kvæmdum á þeim tíma sem tilskipun EES segir til um. Því hvetur stjórnin umhverfisráðherra til að beita sér fyrir því að fjárstuðningur ríkisins við sveit- arfélög vegna fráveituframkvæmda verði framlengdur um a.m.k. fimm ár í þeim tilgangi að tryggja jafnræði sveitarfé- laga gagnvart styrkveitingum ríkisins og auka líkur á því að sveitarfélög geti lokið fráveituframkvæmdum í samræmi við kröfur þar að lútandi. Brýnt að stunda refa- og minkaveiðar af krafti Þá lágu fyrir fundinum bréf frá nokkr- um sveitarfélögum þar sem fjallað var um sífellt lækkandi hlutdeild ríkissjóðs í kostnaði sveitarfélaga af refa- og minka- veiðum. Eftirfarandi samþykkt var gerð: Stjórn sambandsins tekur undir þau sjónarmið sem fram koma í erindum sveitarfélaga varðandi sífellt lækkandi greiðsluhlutfall ríkissjóðs í kostnaði sveitar- félaga af refa- og minkaveiði og hvetur umhverf- isráðherra til þess að vinna að leiðréttingu á greiðsluhlutfall- inu þegar í stað. Afar brýnt er að refa- og minka- veiðar séu stundaðar af krafti um allt land svo fjölgun refa og minka verði ekki til stór- skaða fyrir náttúru og umhverfi lands- ins. Vilja stuðn- ing vegna vinnu við fráveitu pebl@mbl.is       Tölfræði | Hvert heimili sem á barn í Grunnskólanum á Ísafirði er með liðlega eitt og hálft barn í skólanum að meðaltali. Kem- ur þessi tölfræði fram á heimasíðu skólans. Í haust voru nemendur Grunnskólans á Ísafirði 535 talsins. Á dögunum töldu stjórn- endur skólans heimilin sem börn eiga í skól- anum og reyndust þau vera 348 talsins. Samkvæmt þessu er sem stendur nákvæm- lega 1,54 barn á heimili. Ótalinn er fjöldi heimila sem ekki er með börn á skóla- skyldualdri.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.