Morgunblaðið - 05.02.2004, Síða 23
SUÐURNES
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. FEBRÚAR 2004 23
Kæfisvefn, dagsyfja og hrotur!
Í þættinum verður fjallað um kæfisvefn sem hrjáir hóp miðaldra karla og kvenna á Íslandi.
Helstu einkenni eru dagsyfja og öndunartruflanir í svefni sem valda hrotum og lélegum svefni.
Rætt verður við sérfræðinga á þessu sviði og einstaklinga sem hafa reynslu af kæfisvefni.
Á Útvarpi Sögu, 99,4 í dag, fimmtudag, kl. 17:00 - 18.00
Þátturinn er endurtekinn á laugardögum kl. 13:00 á Útvarpi Sögu 99,4
Star Bronzer vörurnar gera húðina geislandi, gyllta og fallega - samstundis.
Flash bronzer sjálfbrúnandi vörurnar sjá húðinni fyrir fallegum og eðlilegum lit.
ER HÚÐLITURINN ORÐINN DAUFUR?
Notaðu þá tækifærið því nú er fáanleg* GLÆSILEG TILOÐSPAKKNING
sem inniheldur sjálfbrúnandi krem fyrir andlit, sólarpúður
og fallegt LANCÔME handklæði.
Útsölustaðir LANCÔME um allt land.
Gylltur sólarkoss
STAR BRONZER
SÓLARFÖRÐUNARVÖRUR
Þú getur haft fallegan, gylltan húðlit
þegar þér dettur í hug!
TRÚÐU Á FEGURÐ
www.lancome.com
*m
eð
an
bi
rg
ði
r e
nd
as
t
Garður | Nemendur sjötta til tí-
unda bekkjar Gerðaskóla voru við-
staddir afhendingu viðurkenningar
fyrir reyklausan skóla á dögunum.
Þorgrímur Þráinsson verkefnis-
stjóri hjá Lýðheilsustöð afhenti
Ernu M. Sveinbjarnardóttur skóla-
stjóra viðurkenninguna.
Börn og unglingar í Gerðaskóla
nota ekki tóbak og hefur svo verið
árum saman. Þannig hafa börnin
sem ljúka námi í tíundabekk í vor
myndað reyklausan bekk frá upp-
hafi. Þeir fáu starfsmenn skólans
sem reykja bíða allir með það þar
til heim er komið.
„Þetta er eitt af því sem mér
finnst mikilvægast í skólastarfinu.
Þeir sem ekki reykja byrja síður
að misnota fíkniefni og áfengi,“
segir Erna í samtali við Morgun-
blaðið.
Í lífsleiknitímum í skólanum er
farið í forvarnir gegn reykingum
og vímuefnanotkun og Erna segist
nota hvert tækifæri sem gefist til
að lýsa ánægju sinni með stöðu
mála. Þá segist hún telja mikil-
vægt að foreldrarnir styðji börn
sín í þessu sem öðru.
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Reyklaus skóli: Nemendur í Gerðaskóla hafa ekki notað tóbak í fjölda ára og fengu viðurkenningu fyrir það.
Reyklaus skóli árum saman
Reykjanesbær | Þrír af fjórum
bæjarfulltrúum Samfylkingarinnar
lögðu fram bókun á fundi bæjar-
stjórnar Reykjanesbæjar í fyrra-
dag þar sem því er haldið fram að
fjölskyldu- og félagsmálaráð bæj-
arins sé að vísa frá sér ábyrgð á
vanda atvinnulausra.
Á bæjarstjórnarfundinum var til
afgreiðslu fundargerð fjölskyldu-
og félagsmálaráðs þar sem lýst er
áhyggjum af langvarandi atvinnu-
leysi og stéttarfélög hvött til að
auka markvissan stuðning við at-
vinnulausa félagsmenn sína í formi
sálgæslu og stuðnings.
Guðbrandur Einarsson, bæjar-
fulltrúi Samfylkingarinnar, gagn-
rýndi þessi ummæli á bæjarstjórn-
arfundinum. Í bókun hans og
tveggja annarra fulltrúa Samfylk-
ingarinnar er rifjuð upp margskon-
ar aðstoð stéttarfélaga við atvinnu-
lausa félagsmenn en jafnframt sagt
að vandanum verði ekki með neinu
réttlæti varpað yfir til þeirra. Ríki
og sveitarfélög hafi brugðist í því
verkefni sínu að búa þannig að at-
vinnulífinu að ekki sé stórfellt at-
vinnuleysi. Öryggiskerfið sé jafn-
framt endanlega á ábyrgð sveitar-
stjórna. „Bókun FFR ber því vitni
því slæma ástandi sem er í atvinnu-
málum í okkar sveitarfélagi. Hún
ber því jafnframt vitni að þeir sem
stjórna velferðarþjónustunni í
sveitarfélaginu standa ráðþrota
frammi fyrir vandanum, enda
þröngur stakkur skorinn í fjárveit-
ingum, eins og meirihlutanum var
bent á við afgreiðslu fjárhagsáætl-
unar. Vandi atvinnulausra verður
ekki leystur með því að ábyrgðinni
sé varpað út í bæ,“ segja full-
trúarnir. Jafnframt er hvatt til
þess að fjölskyldu- og félagsmála-
ráð leiti eftir aðstoð annarra aðila
til að takast á við vandann og er
vinnumiðlunin þar nefnd ásamt
Miðstöð símenntunar, stéttarfélög-
um, samtökum atvinnurekenda og
prestum.
Sveindís Valdimarsdóttir skrif-
aði ekki undir bókunina en hún sit-
ur í fjölskyldu- og félagsmálaráði
fyrir Samfylkinguna og stóð að
samþykkt þess.
Ekki neikvæð bókun
Í bókun meirihluta sjálfstæðis-
manna er vakin athygli á því að
þrír af fjórum fulltrúum Samfylk-
ingarinnar standi að þessari bókun
og tveir fulltrúar Samfylkingarinn-
ar í félagsmálaráði hefðu staðið að
bókuninni þar.
„Sjálfstæðismenn telja að á eng-
an hátt sé þessi bókun neikvæð í
garð stéttarfélaga og lýsa sig
reiðubúna að starfa með þeim nú
sem fyrr,“ segir í bókun sjálfstæð-
ismanna.
Ekki hægt að varpa
ábyrgðinni út í bæ
Reykjanesbær | Sparisjóðurinn í
Keflavík hefur lýst áhuga á að nýta
húsnæði bæjarskrifstofunnar að
Tjarnargötu 12, ef hagkvæmt reyn-
ist fyrir bæinn að sameina starfsemi
sína á einum stað.
Bærinn leigir nú húsnæði undir
skrifstofur í Kjarna við Hafnargötu
þar sem jafnframt er bókasafn að
Tjarnargötu 12. Síðarnefnda húsið
er í eigu eignarhaldsfélags sem
sparisjóðurinn á meirihlutann í og er
sjóðurinn með starfsemi sína á ann-
arri hæð þess og í kjallara.
Árni Sigfússon bæjarstjóri segir
að nú verði farið yfir málið og athug-
að hvað hagkvæmast sé að gera.
Hann efast ekki um hagkvæmni þess
að flytja starfsemina á einn stað en
einnig verði að líta til húsnæðis-
kostnaðar.
Hann vill ekkert segja um hvað
helst komi til greina, til dæmis hvort
til komi að bærinn flytji allar skrif-
stofur í nýtt ráðhús. Ákvarðanir
verði teknar þegar niðurstöður at-
hugunar á vegum Eignarhalds-
félagsins Fasteignar hf. liggja fyrir.
Athuga nýtt húsnæði