Morgunblaðið - 05.02.2004, Síða 33

Morgunblaðið - 05.02.2004, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. FEBRÚAR 2004 33 hefðu tilheyrt. Síðan hef- urðu þá sem voru lægst í samfélagsstiganum. En fátækt var samt aldrei hérna eins og í Indlandi eða Afganistan.“ Við- skiptaþvinganir alþjóða- samfélagsins þennan síð- asta áratug hafi hins vegar haft skelfilegar af- leiðingar fyrir venjulegt fólk í Írak. Mona segir að mennt- unarstigið hafi skorið úr um það hvaða stétt þeir tilheyrðu. Hún segir þær tölur geta passað að rúm- lega 50% læsi sé meðal karla en aðeins 25% með- al kvenna. Læsi hafi hins vegar verið enn minna fyrir stjórnartíð Baath- flokks Saddams Huss- eins, móðir hennar sé til að mynda ólæs. Baath-flokkur- inn hafi upphaflega lagt áherslu á að auka menntunarstig þjóð- arinnar. Mona segist sjálf staðfastur múslími, hún fylgi boðorðum kóransins en þar sé ekkert sem banni henni sem konu að vinna eða mennta sig. Hún segir að í heildina séu aðstæður kvenna í Írak betri en víða í arabaheim- inum. „Margir feður hafa ekk- ert haft á móti því að dætur þeirra gengju í skóla,“ segir hún. „Á áttunda áratugnum var ókeypis að senda börn í skóla. Því skyldirðu ekki senda dætur þínar í skóla? Þetta hefur ekki verið samfélag öfga, þar sem konur mættu ekki ganga menntaveginn, yrðu að vera heima og þjóna körlunum,“ sagði Mona. Staða kvenna víða verri í múslímaheiminum Ég spyr Monu um aðstæður kvenna í Írak nútímans og hún segir þær einkum ráðast af því hvaða stétt þær tilheyri. „Ef þær tilheyra t.d. efri stéttinni, ef kona er af ríkum ættum þá nýtur hún meira frelsis og hefur meira sjálfræði í fjármálum. Þær geta farið til útlanda, þær geta sótt bestu skólana og átt góða bíla,“ segir hún. „Fyrir stríðið í Írak var yf- irstétt og síðan millistétt sem ég myndi segja að 80% íbúanna Ekki var allt neikvætt íÍrak undir stjórn Ba-ath-flokksins, flokksSaddams Husseins, fyrrverandi forseta Íraks. Gerð var tilraun til að útrýma ólæsi í landinu og öll menntun var ókeypis. Hlutskipti manna réðst þó oft af því hvaða stétt þeir tilheyrðu. Þetta segir Mona Mahmood mér en hún er blaðamaður í Bagdad. Mona er á fertugsaldri. Aðal- tekjur sínar hefur hún af því að starfa sem túlkur fyrir erlenda blaðamenn í Bagdad, mest er upp úr því að hafa. Hún lærði ensku við háskólann í Bagdad, segist hafa kunnað bókmennta- textana nokkuð vel en síðan komist að þeirri niðurstöðu að hún gæti lítið talað tungumálið, það vantaði alla þjálfun. „En ég fékk tækifæri til að vinna fyrir breskt fyrirtæki sem sá um rekstur spítala í Bagdad. Vinn- an þar veitti mér því frábært tækifæri til að umgangast út- lendinga, enskumælandi fólk,“ segir hún. „Áður fyrr var algengt hér í Írak að yfirvöld sendu útskrift- arnema úr heimspekideild eða ensku til Bretlands eða Skot- lands til frekari þjálfunar. Þetta var á áttunda áratugnum. Ég útskrifaðist hins vegar ekki fyrr en á níunda áratugnum og þá var þetta ekki lengur við lýði vegna ýmissa hafta er tengdust Íran-Írak-stríðinu.“ Stétt ræður stöðu kvenna Morgunblaðið/Davíð Logi Sigurðsson Mona Mahmood, blaðamaður og túlkur í Bagdad. ’ Konur af ríkumættum njóta meira frelsis í Írak. ‘ Frá Davíð Loga Sigurðssyni, blaðamanni Morgunblaðsins í Írak. MAÐUR getur gerst kærulaus í háttum sínum á alveg ótrúlega skömmum tíma. Í Bagdad er hins vegar réttast að halda vöku sinni öllum stundum. Og hætti menn sér til borga eins og Fallujah, ekki fjarri írösku höfuðborginni, er eins gott að þeir eigi þangað erindi, þaðan geta Vesturlandabúar ekki treyst á að sleppa lifandi. Ég ferðaðist upp til Bagdad frá Suður-Írak á sunnudag og var ekki ýkja brattur þegar ég hafði skráð mig inn á hótel og kveikt á sjónvarpinu, þar sem sagði frá því að næstum sextíu manns hefðu farist í sprengjutilræði í Erbil í Norður-Írak. Aleinn í Bagdad, fjarri öllum vinum og vanda- mönnum. Er óeðlilegt að ugga um eigin hag við slíkar aðstæður? Er óeðlilegt að finna til ótta? Tveimur dögum síðar var mér sumpartinn farið að finnast að ég væri orðinn fær í flestan sjó, Írak- ar væru upp til hópa elskulegri en annað fólk og hættulegast væri sennilega að vera í námunda við bandaríska hermenn, sem alkunna væri að skytu fyrst en spyrðu svo. Íraskir uppreisnarmenn hafa nefnilega ekki viljandi gert erlenda blaðamenn að skotmarki, að minnsta kosti ekki ennþá. En það tekur meiri tíma en tvo daga að fá tilfinningu fyr- ir því hvað maður geti leyft sér að gera og hverju er best að sleppa, hvar er óhætt að vera berskjald- aður og hvar ekki. Ég lendi á tali við nokkra erlenda blaðamenn sem hafast við á Al Hamra-hótelinu í Bagdad og með okkur er einnig öryggisráðgjafi bandarískr- ar fréttastöðvar. Þau hafa áður gefið mér til kynna að í raun sé tiltölulega öruggt að fara út á meðal manna í Írak, þó að sumir staðir séu vita- skuld verri en aðrir. En ég heyri á máli þeirra að þau halda alltaf vöku sinni og kunna ýmis ráð handa þeim sem lendir í vanda. Fyrsta lexía er að halda sig fjarri öllum fjöldafundum, þeir geti fljótt breyst í blóðbað og á þeim sé hvort eð er lítið að græða fréttalega séð. Ljóst er að þetta fólk tal- ar af reynslu, ef ekki héðan þá úr fyrri stríðum; þetta fólk tilheyrir stétt svokallaðra stríðs- fréttaritara, hefur komist í hann krappann áður. Ég spyr þau hvað hafi farið úrskeiðis hjá CNN- teyminu sem ráðist var á fyrir réttri viku sunnan við Bagdad, með þeim afleiðingum að tveir biðu bana. Þau segja að CNN-fólkið hafi verið á ferð um veg sem menn eigi einfaldlega ekki að aka, þar sé ekki óhætt að fara um. „CNN er alltaf að tefla á tvær hættur,“ segir öryggisráðgjafinn. „Hér eiga menn ekki að tefla á tvær hættur.“ Það vekur eftirtekt mína hversu hlýlegt og vinalegt þetta fólk er, þessir stríðsfréttaritarar, jafnvel gagnvart blaðamanni frá Íslandi sem hér staldrar aðeins við í nokkra daga; flest hafa þau verið hér mánuðum saman og til þess þarf hug- rekki. Eða er það fífldirfska? Geri ráð fyrir að fólki í þessu fagi lærist að njóta hverrar stundar sem það deilir með vinum í örygginu heima á hót- eli. Ég velti því fyrir mér hvort þetta ágæta fólk, sem ræðir um skotbardaga og sprengjuárásir í næsta húsi sem daglegt brauð, sé kannski orðið háð adrenalíninu sem flæðir um æðar á stað sem þessum. Sjálfur er ég feginn að vera nú að yf- irgefa Bagdad. Það hefur verið áhugavert í meira lagi að koma til borgarinnar, sjá þar aðstæður, hitta venjulegt fólk og kynnast kollegum sem ég ber nú aukna virðingu fyrir og vonast til að hitta aftur síðar. En mér líkar ekki alls kostar ótta- tilfinningin sem sífellt er fyrir hendi. Aldrei langt í óttatil- finninguna Reuters Mótmælafundir geta fyrirvaralaust breyst í blóðugan vígvöll og þá reyna erlendir frétta- menn að forðast. af handhöfum forsetavalds að taka mark á og virða þau skilaboð, sem ég fæ frá skrifstofu forseta Íslands um það, hvenær hann hverfi af landi brott eða hvenær hann hyggist snúa aftur heim. Varðandi 1. febrúar gátu skilaboðin ekki gleggri verið: „Dag- skrá í New York er frá 25.–30. janúar. Í framhaldinu verður forseti í einka- erindum og verður heimkoma til- kynnt síðar.“ Forseti ætlaði sér ekki að taka þátt í hátíðahöldunum hér heima. Það þurfti ekki að hringja vestur til að skilja það. En auðvitað á maður með reynslu Ólafs Ragnars Grímssonar að gera sér grein fyrir, að fundur í ríkisráðinu í tilefni af 100 ára afmæli stjórnarráðsins og fyrsta íslenska ráðherrans var í rauninni sjálfgefinn, nema venjulegur rík- isstjórnarfundur yrði látinn duga. Og þess vegna átti hann að geta verið ró- legur að hann vissi, að ríkisráðið yrði í góðum höndum handhafa forseta- valds og setti ekki niður við það. herrar, og nær 30 forsetum hæsta- réttar þennan tíma, sem liðinn er frá stofnun lýðveldis. Ólafi Ragnari Grímssyni er tíðrætt um, að ríkisráðið sé „æðsta stofnun lýðveldisins“. Þessa kenningu hef ég ekki heyrt áður en hún rekur sig aft- ur til danskra einvaldskonunga. Þess vegna má kannski segja, að ég kallist á við fyrri forseta Alþingis þegar ég svara: Alþingi er elsta, merkasta og æðsta stofnun lýðveldisins. Þess vegna var sú stund heilög í þjóðarvit- undinni, þegar 100 ára afmælis þing- ræðis á Íslandi var minnst. Mér finnst það sorglegt, að nokkrir þingmenn úr Samfylkingunni, sem áður voru raunar í Alþýðubandalag- inu, skuli nota ummæli forseta Ís- lands til að reyna að koma höggi á forsætisráðherra. Málflutningur þeirra er marklaus og yfirborðslegur, á meðan þeir skýra ekki, hvers vegna forseti Íslands vildi ekki þiggja boð forsætisráðherra um að sitja hátíð- arsamkomuna 1. febrúar. Að lokum þetta: Ég hlýt sem einn mvörp skuli ý lög frá Alþingi ði, sem oft hefur ga þeir inn í öll og bera sömu ur og hann. Þar kilið eins og son vill vera nn að koma því lgi meiri ábyrgð ndi en staðfesta yrra tilvikinu þá komi hann vél. Í síðara til- vera í friði og sér á skíðum! túlkun á störf- a ekki nokkurri avalds eru full- r sjálfir og eiga sins samkvæmt di í ríkisráðinu, egnt störfum n dvelst erlend- vegna skyldu- ndi ber einnig enjur og hefðir fa forsetavalds þrem lagapró- nediktssyni, g Gunnari Thor- u forsætisráð- lds fdrátt- r skilaboð ætli ekki ðarsam- brúar. ekstrar em gegn- orseta Ís- Höfundur er forseti Alþingis. Sérstakar stu við utanspít- ð felldar niður gert að starfa HÍ. Allir starfs- m viðveruskrán- sla á henni leitt dum. ndurskoðunar nn væru mun amanburð- sku. Nokkurrar sum sam- um er að kenna, tæður eru frá- vaða verk eru g einnig þess að t.d. að ræstingu u upplýsinga manna. Af hálfu firfarið og tekið firmanns- ð í samræmi við 52 ein- ssa hóps eða nnafjöldans. Hér hjúkrunardeild- jórar í öðrum ar og aðrir telj- ast 18, þ.m.t. framkvæmdastjórn, for- stjóri og verkstjórar í sérgreinum. Við sameininguna fækkaði yfirmönnum, þvert á það sem haldið er fram. Fellt var út lag yfirmanna sem voru for- stöðulæknar og hjúkrunarfram- kvæmdastjórar og yfirlæknum og deildarstjórun fækkaði eðli máls sam- kvæmt vegna sameiningar deilda og sérgreina. Þá fækkaði sviðsstjórum við stjórnun klínískrar þjónustu af sömu ástæðu. Hins vegar var tekið upp orðið sviðsstjóri meðal þeirra sem stýra fjármálum og rekstri og tækni- legum málum enda gagngert verið að styrkja rekstur stofnunarinnar. 6. Rekstrarkostnaður aðeins hækkað um 3% sl. fjögur ár Útgjöld spítalans eru sögð hafa aukist um 6 milljarða króna frá 2000 og 2003 og gert tortryggilegt. Þegar kostnaður við reksturinn (án útgjalda til viðhalds eigna og tækjakaupa) er skoðaður á verðlagi hvers árs, þ.e. laun og önnur rekstrargjöld að frá- dregnum sértekjum og S-merktum lyfjum (greiðsla fyrir þau var færð til spítalans árið 2001), þá var hann rúm- ir 17,8 milljarðar króna árið 2000, rúmir 19,0 milljarðar 2001, rúmir 20,9 milljarðar 2002 og skv. útkomuspá 2003 um 22,9 milljarðar. Þannig hefur rekstrarkostnaður á verðlagi hvers árs aukist um 5 milljarða króna á fjór- um árum. Þegar kostnaðurinn er verðleiðréttur (laun með launavísitölu opinberra starfsmanna og rekstr- argjöld með neysluverðsvísitölu) er kostnaðarbreytingin frá 2000 til 2003 um 800 m.kr. eða rúm 3%, sem skýrist að miklu leyti af aukinni starfsemi, hækkun launaútgjalda vegna sér- eignalífeyrissjóða, samræmingu á launum starfsmanna við sameiningu og hækkun lækninga- og hjúkr- unarvara umfram vísitölur. Á sama tíma fjölgar íbúum á höfuðborg- arsvæðinu um 4,1% og öldruðum um 4,5%. Að auki gera tækniframfarir mögulegt að veita sífellt meiri þjón- ustu sem skilar sér m.a. í hækkandi meðalaldri þjóðarinnar. Allt kostar þetta. 7. Óhjákvæmilegar aðgerðir til sparnaðar Framlag á fjárlögum 2004 til rekstrar er 24 milljarðar króna, að meðtöldum S-merktum lyfjum, að þeim frátöldum 22,3 milljarðar króna. Að t.t.t. verðbreytinga þarf að lækka kostnað við rekstur LSH um 1,4 millj- arða króna frá árinu 2003. Stjórnvöld hafa heimilað að sú lækkun megi taka tvö ár. Samtímis er krafist góðrar þjónustu og að sparnaðaraðgerðirnar valdi sem minnstri röskun. Fram- kvæmdastjórn LSH hefur með sviðs- stjórum leitað sparnaðarleiða. Að- gerðir sem nú eru ákveðnar miðast að því að lækka rekstrarkostnaðinn um 700–800 milljónir króna á ári. Það hef- ur óhjákvæmilega áhrif á starfsemina þótt reynt sé að láta aðgerðirnar snerta sem minnst beina þjónustu við sjúklinga. Bráðahlutverk spítalans hefur verið varið eins og kostur er en reynt að láta sparnaðinn koma niður á stoðþjónustu og þeirri þjónustu sem ætti að sinna af öðrum í þjóðfélaginu. Engan þarf samt að undra að sparnað- araðgerðirnar hafa áhrif á starfsemi spítalans, enda stjórnendur hans aldr- ei haldið öðru fram. Skipun nefndar til að fjalla um hlutverk spítalans var ánægjuleg. Full ástæða er til þess að binda vonir við starf hennar og að frekari sparnaðaraðgerðir í rekstri spítalans verði látnar bíða niðurstaðna af nefndarstarfinu. réttri braut Magnús Pétursson er forstjóri Landspít- ala – háskólasjúkrahúss og Anna Lilja Gunnarsdóttir er framkvæmdastjóri fjár- reiðna og upplýsinga sjúkrahússins. Gunnarsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.