Morgunblaðið - 05.02.2004, Qupperneq 40

Morgunblaðið - 05.02.2004, Qupperneq 40
MINNINGAR 40 FIMMTUDAGUR 5. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Aðalheiður Jóns-dóttir fæddist í Reykjavík 10. desem- ber 1925. Hún lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 27. jan- úar síðast liðinn. For- eldrar hennar voru Emelía Jóna Einars- dóttir, f. 16.3. 1904, d. 26.1. 1992, og Jón Sigurðsson, f. 12.5. 1902, d. 6.7. 1984. Systkini Aðalheiðar eru: Hulda f. 6.2. 1928, d. 10.10. 1972, Sigurður, f. 7.9. 1929, og Einar, f. 8.5. 1935, samfeðra Guðbjörg Snót, f. 17.10. 1951. Hinn 27. júní 1945 giftist Aðal- heiður eftirlifandi eiginmanni sín- um Guðmundi Dagbjartssyni, f. 29.12. 1918. Börn þeirra eru: Jón, f. 3.2. 1945, maki Súsanna Demus- dóttir, f. 9.5. 1946, eiga þau þrjú börn; Valur, f. 29.1. 1953, maki Jó- hanna A. Guðmunds- dóttir, f. 15.5. 1949, eiga þau fjögur börn; Brynja, f. 27.2. 1958, maki Ævar H. Ásgeirsson, f. 20.3. 1961, og eiga þau tvö börn. Aðalheiður starf- aði meðal annars á skrifstofu hjá Fiska- nesi hf. til margra ára, hún var gjald- keri Kvenfélags Grindavíkur, gjald- keri Skógræktar- félags Grindavíkur og formaður félags eldri borgara í Grindavík. Aðalheiður og Guðmundur bjuggu allan sinn búskap í Grinda- vík, lengst af í Ásgarði en síðustu 18 árin að Heiðarhrauni 51. Útför Aðalheiðar verður gerð frá Grindavíkurkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Í dag kveðjum við elskulega móð- ur og tengdamóður, Aðalheiði Jóns- dóttur. Nú hefur þú fundið friðinn eftir erfiða baráttu við veikindi þín. Við viljum minnast þín með þessum sálmi: Kallið er komið, komin er stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Það sem auðkenndi þig allt þitt líf var traust og tryggð. Guð blessi minningu þína alla tíð og tíma. Jón og Súsanna. Mig langar að minnast ynd- islegrar konu, Aðalheiðar Jóns- dóttur, í örfáum orðum, með kæru þakklæti fyrir samferðina og trygga vináttu í gegnum ár- Hin. Það var fyrir tæplega 30 árum að ég kynntist Brynju, dóttur Öllu og Gumma, í Reykholti og urðum við strax mjög góðar vin- konur og hefur sú vinátta haldist alla tíð síðan. Ekki vissi ég þá að ég ætti eftir að eiga mitt annað heimili hjá foreldrum hennar. Þegar ég 17 ára gömul flutti úr föðurhúsum, vestan frá Suðureyri og til Reykjavíkur. Þar sem for- eldrar mínir voru búsettir fyrir vestan og maður ekki mjög lífs- reyndur í höfuðborginni þá bauð Brynja mér að koma til þeirra til Grindavíkur um helgar og gista sem ég og þáði ósjaldan. Alveg frá fyrstu stundu var mér tekið opnum örmum og alla tíð var ég umvafin elskulegheitum frá þeim Öllu og Gumma. Það var mér mikils virði að finna að heimili þeirra stóð mér ávallt opið. Alla og Gummi voru vön að kalla mig heimaalninginn sinn og þótti mér afar vænt um þá nafngift. Við syni mína voru þau jafnan eins og um þeirra eigin barnabörn væri að ræða og við þann eldri, sem þau kynntust betur, sögðu þau gjarn- an: „Komdu nú, kallinn minn, og heilsaðu ömmu og afa í Grindavík. Mér er tamt að nefna þau bæði, Öllu og Gumma, í sömu andrá, enda hjón sem jafnan hafa verið samstiga og eiginlega ekki hægt að nefna annað, án þess að hitt komi upp í hugann líka. Ég minnist margra góðra stunda heima hjá þeim hjónum, fyrst í Ásgarði og svo í Heiðar- gerði. Alltaf var rausnarlega veitt af því sem þar var á borð borið og maður kvaddi þau vel haldinn á líkama og sál. Nú síðari árin hafa heimsóknirnar því miður orðið færri, en við hittumst þó núna í janúar og er gott að eiga minn- ingar um þá heimsókn og að hafa hitt Öllu og spjallað við hana, nokkuð bratta eftir erfið veikindi undanfarið. Það er nú einu sinni svo, að enginn veit sína ævina fyrr en öll er og þau erfiðu veikindi sem Alla átti við að etja, tóku eðli- lega sinn toll, bæði af henni og hennar nánustu. Alla var kona með mikla reisn og sérstaklega fallega framkomu. Hún hafði lag á að láta fólki líða vel í návist sinni og hafði auga fyr- ir fallegum hlutum eins og heimili þeirra ber vitni um. Fyrir mér er það mikils virði að hafa fengið að kynnast svona mætri og ljúfri manneskju á lífsleiðinni. Við Steinþór og synir okkar sendum Gumma, Brynju og að- standendum öllum samúðarkveðj- ur, en minningin um einstaklega ljúfa og elskulega konu mun lifa áfram í hugum okkar. Blessuð sé minning hennar. Hildur Guðbjörnsdóttir. AÐALHEIÐUR JÓNSDÓTTIR ✝ Aðalbjörn Guð-mundsson, kaup- maður í Verslun Björns Guðmunds- sonar á Ísafirði, fæddist á Ísafirði 21. ágúst 1919. Hann lést á Fjórðungssjúkra- húsinu á Ísafirði 28. janúar síðastliðinn. Hann var ókvæntur og barnlaus. Foreldr- ar hans voru Guð- mundur Björnsson, kaupmaður á Ísa- firði, f. á Ísafirði 21. mars 1888, d. 23. febrúar 1971, og Aðalheiður Guð- mundsdóttir, f. á Ísafirði 17. júní 1888, d. 10. október 1975. Systkini Aðalbjörns voru Björn Kristinn, f. 1911, d. 1979, Gunnar Bachmann Guðmundsson, f. 1913, d. 1959, Guð- mundur Elís Guð- mundsson (Mummi), f. 1914, d. 1994, El- ísabet, f. 1915, d. 1941, Sigríður Hulda Guðmundsdóttir, f. 1916, Guðrún María (Gurra), f. 1917, Kristján Guðmunds- son (Diddi), f. 1921, d. 1994, Kjartan Guðmundsson, f. 1922, d. 1973, Garð- ar, f. 1924, Aðalheið- ur (Heiða), f. 1925, d. 2001, Kristjana (Didda), f. 1927, d. 1997, og Sigurður (Siggi), f. 1928. Útför Aðalbjörns verður gerð frá Ísafjarðarkirkju í dag, og hefst athöfnin klukkan 14. Alli í Björnsbúð. Hann var aldrei kallaður annað og allir þekktu hann með því nafni, því það er það sem hann var, hann var Alli í Björnsbúð. Hann var alla tíð kaupmaður í litlu búðinni okkar á Silfurgötuhorninu, búðinni sem afi hans, langafi okkar bræða, Björn Guðmundsson frá Broddanesi á Ströndum hafði sett á stofn seint á nítjándu öld, örlitlu neðar á eyrinni við Skutulsfjörð, við Smiðjugötu númer tíu. Litla búðin okkar var eins og við sögðum svo oft, fastur punktur í til- verunni, og það var hún svo sannar- lega í lífi Alla. Hann vann alla sína tíð í Björnsbúð, byrjaði ungur að hjálpa til, líkt og svo margir aðrir afkomend- ur Björns Guðmundssonar, en smátt og smátt var Alli orðinn einn af þeim bræðrum sem reksturinn hvíldi á. Alli og Gunnar bróðir hans voru um mið- bik síðustu aldar komnir með rekst- urinn svo að segja alfarið í sínar hend- ur. Það er svo nokkru eftir að Gunnar fellur frá, langt um aldur fram árið 1959, að Garðar kemur að rekstrinum með Alla. Standa þeir bræður saman í verslunarrekstrinum þar til Alli fer að minnka við sig vinnu sökum aldurs og flyst á Hlíf, dvalarheimili aldraðra á Ísafirði, seint á níunda áratugnum. En ekki gat hann þó hugsað sér að hætta alveg að vinna. Hann hélt áfram að mæta í búðina á hverjum degi, og gerði það í raun þar til rekst- urinn var seldur árið 1997. Við bræðurnir ólumst upp undir sama þaki og Alli, í sitthvorri íbúðinni fyrir ofan búðina. Þannig vorum við í raun ein og sama fjölskyldan og Alli alltaf með í okkar daglega lífi og upp- vexti. Og það var gaman og gott að eiga frænda eins og Alla. Ósjaldan fór Alli í ferðalög til útlanda. Þá voru það spenntir bræður sem biðu heimkomu frænda sem iðulega kom færandi hendi með góðar gjafir. Og ekki voru þeir síðri bíltúrarnir, en Alli hafði mikið yndi af því að fara í sunnudags- bíltúra með okkur bræður, hvort heldur sem var fram í Arnardal eða út í Vík. Síðar, þegar við bræðurnir kom- umst á bílprófsaldurinn, var ekki hægt að hugsa sér hugulsamlegri frænda þegar kom að því að fá lánaðn bíl til þess að fara á rúntinn. Alltaf var Alli til í að lána okkur bílinn, og alltaf sá hann til þess að tankurinn væri fullur. Það má með sanni segja að við eig- um margar og góðar minningar frá nánu sambýli við föðurbróður okkar. Og það er með allar þær góðu minn- ingar í farteskinu sem við kveðjum nú okkar kæra frænda. Hann hlaut frið- sælt andlát á sjúkrahúsinu á Ísafirði eftir stutta sjúkdómslegu, og við vit- um fyrir víst að hann yfirgaf okkur með frið og ró í hjarta. Það erum við þakklátir fyrir. Hvíl í friði, kæri frændi. Björn, Jakob Falur og Atli. AÐALBJÖRN GUÐMUNDSSON Afmælis- og minningargreinum má skila í tölvupósti (netfangið er minning@mbl.is, svar er sent sjálfkrafa um leið og grein hefur borist) eða á disklingi. Ef greinin er á disklingi þarf út- prentun að fylgja. Nauðsynlegt er að tilgreina símanúmer höfundar og/eða sendanda (vinnu- síma og heimasíma). Þar sem pláss er takmarkað getur þurft að fresta birtingu greina, enda þótt þær berist innan hins tiltekna frests. Nánari upplýsingar eru á mbl.is. Um hvern látinn einstakling birtist formáli og ein aðalgrein af hæfilegri lengd á útfarardegi, en aðrar greinar skulu ekki vera lengri en 300 orð, u.þ.b. 1.500 slög (með bilum) eða um 50 línur í blaðinu (17 dálksentimetrar). Tilvitnanir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til þrjú erindi. Elskuleg eiginkona mín, móðir, dóttir, systir og frænka, INGUNN LÁRUSDÓTTIR, Funafold 4, lést á Landspítalanum Fossvogi laugardaginn 31. janúar sl. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Logi Guðjónsson, Gylfi Logason, Oddný Logadóttir, Lárus Þorvaldsson, Sveinbjörg Eíríksdóttir, Sigríður Lárusdóttir, Þorsteinn Alexandersson, Guðjón Sigurðsson. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, BENEDIKT HAFLIÐASON, Njörvasundi 6, Reykjavík, andaðist á öldrunardeild Landspítala Landa- koti mánudaginn 2. febrúar. Jarðarförin auglýst síðar. Þorsteina Sigurðardóttir, Hafliði Benediktsson, Ingibjörg Skarphéðinsdóttir, Helga Benediktsdóttir, Jónas R. Jónsson, Ingibjörg Benediktsdóttir, Haukur Hauksson, Erna Benediktsdóttir, Steindór Gunnarsson, Birna Benediktsdóttir, Daníel Guðbrandsson, barnabörn og barnabarnabörn. Eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, JAKOBÍNA GUÐLAUGSDÓTTIR, Skuld, Vestmannaeyjum, lést á Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja mið- vikudaginn 4. febrúar. Útförin fer fram frá Landakirkju laugardaginn 14. febrúar kl. 14.00. Sigurgeir Jónasson, Sigrún Inga Sigurgeirsdóttir, Gunnar K. Gunnarsson, Guðlaugur Sigurgeirsson, Sædís M. Hilmarsdóttir, Guðrún Kristín Sigurgeirsdóttir, Börkur Grímsson, barnabörn og langömmubörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, afi og langafi, VILBERG DANÍELSSON, lést á Hrafnistu í Hafnarfirði mánudaginn 2. febrúar. Jarðarförin auglýst síðar. Steinunn Magnúsdóttir, Kolbrún Vilbergsdóttir, Fanney Eva Vilbergsdóttir, Gísli Haraldsson, Þóra Vilbergsdóttir, Júlíus Karlsson, barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför móður okkar, fósturmóður, tengdamóður, öm- mu, langömmu og langalangömmu, TORFHILDAR GUÐLAUGAR JÓHANNESDÓTTUR, Hlíf 1, Ísafirði. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Fjórðungssjúrahúss Ísafjarðar fyrir hlýhug og góða umönnun. Guðrún Ásgeirsdóttir, Guðmunda Ásgeirsdóttir, Sigurður Þorleifsson, Sigrún Ásgeirsdóttir, Hafsteinn Oddsson, Ásgeir Jónsson, Guðlaug Guðjónsdóttir, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.