Morgunblaðið - 05.02.2004, Page 44
KIRKJUSTARF
44 FIMMTUDAGUR 5. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Áskirkja. Hreyfi- og bænastund kl. 12.15 í
neðri safnaðarsal. Opið hús kl. 14–17 í
neðri safnaðarsal fyrir unga sem aldna.
Organisti Áskirkju leiðir söng. Allir vel-
komnir.
Bústaðakirkja. Foreldramorgunn kl. 10–
12.
Dómkirkjan. Opið hús fyrir alla aldurshópa
kl. 14–16 í safnaðarheimilinu Lækjargötu
14.
Hallgrímskirkja. Kyrrðarstund kl. 12. Org-
elleikur, íhugun. Léttur málsverður í safn-
aðarheimilinu eftir stundina.
Háteigskirkja. Taize-messa kl. 20.
Landspítali – háskólasjúkrahús. Grensás.
Guðsþjónusta kl. 20. Sr. Kjartan Örn Sig-
urbjörnsson.
Laugarneskirkja. Kyrrðarstund kl. 12.00
á hádegi. Gunnar Gunnarsson leikur á org-
elið frá kl. 12.00. Þjónustu annast Bjarni
Karlsson prestur og Sigurbjörn Þorkelsson
meðhjálpari. Kl. 12.30 er léttur málsverð-
ur í boði í safnaðarheimilinu. Samvera
eldri borgara kl. 14.00. Árni Johnsen tekur
lagið og spjallar um heima og geima. Sr.
Bjarni stýrir samverunni, en þjónustuhóp-
urinn og Sigríður kirkjuvörður annast und-
irbúning og velgerðir. Unglinga-Alfa kl.
19.00. Matur, fræðsla og samfélag fyrir
unglinga í 9. og 10. bekk Laugalækjar-
skóla og öll gömul fermingarbörn úr þeim
árgöngum, hvar sem þau annars búa.
Spennandi tækifæri, frjáls mæting og ein-
tóm ánægja.
Neskirkja. Krakkaklúbburinn kl. 14.30.
Starf fyrir 8 og 9 ára börn. Sögur, leikir,
föndur o.fl. Stúlknakór Neskirkju kl. 16.
Kór fyrir 8 og 9 ára stúlkur. Stjórnandi
Steingrímur Þórhallsson organisti. Uppl.
og skráning í síma 896 8192. NEDÓ ung-
lingaklúbburinn. 8. bekkur kl. 17. 9. bekk-
ur og eldri kl. 19.30. Umsjón Munda og
Hans.
Félagsstarf aldraðra laugardaginn 7. febr-
úar kl. 14.00. Pálmi og Vigfús Hjartarsynir
sýna litskyggnur frá fyrirhuguðum ferða-
slóðum á Snæfellsnes og Dali. Fram verð-
ur borinn létt máltíð. Þeir sem ætla að
neyta matarins þurfa að tilkynna þátttöku í
síma 511 1560 milli kl. 10 og 12 fram á
föstudag. Allir velkomnir. Sr. Frank M. Hall-
dórsson.
Seltjarnarneskirkja. Helgistund í íbúðum
aldraðra á Skólabraut kl. 13.30.
Óháði söfnuðurinn. Tólf sporin, andlegt
ferðalag í kvöld kl. 19.
Árbæjarkirkja. Kl. 15.15 STN – starf með
sjö til níu ára börnum í Selásskóla.
Breiðholtskirkja. Tilvist, trú og tilgangur II:
Biblíulestrar í samvinnu leikmannaskól-
ans og Reykjavíkurprófastsdæmis eystra
kl. 20–22. Kennari dr. Sigurbjörn Árni Eyj-
ólfsson héraðsprestur.
Digraneskirkja. Foreldramorgnar kl. 10.
Leikfimi ÍAK kl. 11.15. Bænastund kl.
12.10. Unglingakór Digraneskirkju kl.
16.30–19. Barnastarf 6–9 ára kl. 17.15 á
neðri hæð kirkjunnar. Kvöldvaka kirkju-
starfs aldraðra kl. 20.00. Tónlist frá Tól-
istaskóla Kópavogs, myndasýning frá
starfinu, kaffiveitingar. (Sjá nánar:
www.digraneskirkja.is)
Fella- og Hólakirkja. Fjölskyldustund
(mömmumorgnar) kl. 10–12. Biblíulestur
og helgistund í Gerðubergi kl. 10.30–12 í
umsjá Lilju djákna. Stúlknastarf 8–10 ára
kl. 16.30–17.30. Alfa-námskeið kl. 19.
Sjá nánar: www.kirkjan.is/fella-holakirkja.
Grafarvogskirkja. Foreldramorgnar kl. 10.
Dagskráin er fjölbreytt. Boðið er upp á
áhugaverða fyrirlestra og skemmtilegar og
fræðandi samverustundir. Kirkjukrakkar
fyrir börn á aldrinum 7–9 ára kl. 17.30–
18.30 í Grafarvogskirkju og einnig í Húsa-
skóla á sama tíma. Æskulýðsfélag fyrir
unglinga í 8. bekk í Grafarvogskirkju kl.
20.
Hjallakirkja. Kirkjuprakkarar, 7–9 ára
starf kl. 16.30.
Kópavogskirkja. Starf með eldra fólki kl.
14.30–16 í safnaðarheimilinu Borgum.
Umsjón Sigríður Baldursdóttir. Bæna- og
kyrrðarstund kl. 17. Fyrirbænaefnum má
koma til kirkjuvarðar eða presta.
Seljakirkja. KFUM 9–12 ára kl. 17.30.
Vídalínskirkja. Bæna- og kyrrðarstund í
kirkjunni kl. 22. Bænarefnum er hægt að
koma til prestsins fyrir stundina.
Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús fyrir 8–9 ára
börn í safnaðarheimilinu Strandbergi, Von-
arhöfn, frá kl. 17–18.30.
Víðistaðakirkja. Foreldrastund (sbr.
mömmumorgunn) í dag kl. 13. Kjörið tæki-
færi fyrir heimavinnandi foreldra til að
koma saman og eiga skemmtilega stund í
notalegu umhverfi. Kaffi og léttar veiting-
ar, spjall, föndur, fyrirlestrar, kynningar og
fleira.
Fríkirkjan í Hafnarfirði. TTT-starf fyrir 10–
12 ára krakka kl. 16.30–18.
Landakirkja Vestmannaeyjum. Kl.10
mömmumorgunn í Safnaðarheimilinu.
Kaffi, djús og gott samfélag. Sr. Þorvaldur
Víðisson. Nú fer að styttast í næstu heim-
sókn. Kl. 20 Tólf spora vinna heldur áfram
í KFUM&K heimilinu, nú erum við kannski
komin yfir erfiðasta hjallann. Umsjónar-
fólk, kl. 20 kóræfing kirkjukórs Landa-
kirkju.
Keflavíkurkirkja. Fermingarundirbúningur
í Kirkjulundi: Kl. 15.10–15.50 8. A í Holta-
skóla, kl. 15.55–16.35 8. B í Holtaskóla.
Þorlákskirkja. Bænastund kl. 9.30. For-
eldramorgnar kl. 10.
Kletturinn. Kl. 19 alfanámskeið. Allir vel-
komnir.
AD KFUM, Holtavegi 28. Fundur í kvöld kl.
20. „Fallnir stofnar – Árni Sigurjónsson“
efni og hugleiðing í höndum bræðranna
Bjarna menntaskólakennara, Guðlaugs
kerfisfræðings, sr. Ragnars skólaprests
og Sigurjóns Gunnarssonar bankastarfs-
manns. Allir karlmenn velkomnir.
Akureyrarkirkja. Kyrrðar- og fyrirbæna-
stund kl. 12. Léttur hádegisverður á vægu
verði í safnaðarheimili eftir stundina. Opið
hús fyrir eldri borgara kl. 15. Sverrir Páls-
son, fyrrverandi skólastjóri, les úr nýju
ljóðabókinni sinni. Laufvindum Sr. Svavar
A. Jónsson flytur bænarorð. Söngatriði:
Sönghópurinn Villurnar. Harmonikuleikur
og almennnur songur. Bíll fer frá Kjarna-
lundi kl. 14.15, Víðilundi kl. 14.30 og Hlíð
kl. 14.45.
Glerárkirkja. Opið hús fyrir foreldra og
börn kl. 10–12.
Hjálpræðisherinn á Akureyri. Kl. 20 ung-
lingaafundur fyrir 8. bekk og upp úr.
Safnaðarstarf
SUNNUDAGINN 8. febrúar að
lokinni guðsþjónustu í Vídal-
ínskirkju (kl.12:15), mun sr.
María Ágústdóttir héraðs-
prestur flytja stutt erindi um
biblíulega íhugun.
Biblían hefur verið undirstaða
og uppspretta kristins trúarlífs
frá upphafi. Lestur hennar vefst
þó stundum fyrir nútímafólki.
Ein leið til að nálgast þetta
mikla rit er biblíuleg íhugun. Á
undanförnum árum hefur Leik-
mannaskóli Þjóðkirkjunnar boð-
ið upp á námskeið í biblíulegri
íhugun sem byggist á smáritinu
Skóli Orðsins – Lectio Divina,
sem kom út fyrir nokkrum árum
í þýðingu sr. Maríu Ágústs-
dóttur, fyrirlesara okkar.
Að loknum flutningi gefst
tækifæri til spurninga og um-
ræðna.
Við sama tækifæri mun Kven-
félag Garðabæjar hafa léttan
málsverð fyrir kirkjugesti, í
boði sóknarnefndar Garðasókn-
ar.
Það er Fræðslunefnd Vídal-
ínskirkju sem stendur að und-
irbúningi þessa fræðsluerindis.
F.h. Útbreiðslu- og kynning-
arnefndar.
Jónína Sigurðardóttir.
Erindi um Bibl-
íulega íhugun í
Vídalínskirkju
Morgunblaðið/Árni Sæberg
FRÉTTIR
Bridsfélag SÁÁ
Annað spilakvöld ársins hjá Brids-
félagi SÁÁ var fimmtudagskvöldið
29. janúar. Mætingin var slök, aðeins
4 pör létu sjá sig. Spilaðir voru þrír
10 spila sveitakeppnisleikir. Þrjú
efstu pörin:
Reynir Grétarsson – Hákon Sverrisson 62
Jón V. Jónmundss. – Þorvaldur Pálmas. 44
Lilja Kristjánsdóttir – Jón Jóhannsson 35
Næsta fimmtudag, 5. febrúar,
verður reynt til þrautar! Þá mun
koma í ljós hvort rekstrargrundvöll-
ur félagsins er brostinn, ljóst er að
félagar þurfa að láta sjá sig, annars
verður að leggja starfsemina niður.
Spilamennskan hefst stundvíslega kl
19:30. Spilastaður er Sóltún 20,
Lionssalurinn. Kaffi verður frítt.
Umsjónarmaður er Matthías Þor-
valdsson og má skrá sig á staðnum
eða í síma 860-1003. Hjálpað er til við
myndun para ef óskað er. Nýliðum
er tekið fagnandi og fá yngri spilarar
helmingsafslátt af spilagjaldinu.
Loks er vakin sérstök athygli á
heimasíðu félagsins, slóðin er:
www.bridge.is/fel/saa
Bridsfélag Selfoss og nágrennis
Önnur umferðin í aðalsveita-
keppninni var spiluð 29. janúar sl.
Úrslit urðu þessi:
Anton og félagar – Gísli Þ. og félagar 8-22
Guðjón og félagar– Auðunn og félagar 24-6
Brynjólfur og fél. –Ríkharður og fél. 14-16
Gísli H. og félagar – Björn og félagar 25-5
Röð sveitanna er því:
Guðjón og félagar 64
Gísli H. og félagar 61
Gísli Þ. og félagar 56
Anton og félagar 48
Björn og félagar 39
Auðunn og félagar 32
Ríkharður og félagar 29
Brynjólfur og félagar 28
Staðan í butlerútreikningi að lokn-
um 3 leikjum er:
Gísli Þórarinsson – Sv. Gísla Þ. og fél. 1,42
Þórður Sigurðsson – Sv. Gísla Þ. og fél. 1,42
Gísli Hauksson – Sv. Gísla H. og félaga 1,20
Magnús Guðm. – Sv. Gísla H. og félaga 1,20
Stefán Short – Sv. Guðjóns og félaga 1,13
Fjórða umferð í aðalsveitakeppn-
inni verður spiluð fimmtudaginn 5.
febrúar nk. Nánar má finna um stöð-
una á heimasíðu félagsins
www.bridge.is/fel/selfoss.
Af Hreppamönnum
Nú er nýlega lokið við að spila
þriggja kvölda tvenndarkeppni en
allnokkrar konur eru áhugasamar
um brids hér um slóðir. Keppt er um
svokallaðan Önnubikar sem ber nafn
heiðurskonunnar Önnu Magnúsdótt-
ur. Hún er nú að nálgast nírætt, er
hætt að spila í hinni eiginlegu keppni
en tekur í spil með eldri borgurum á
þriðjudögum.
Úrslit keppninnar urðu á þennan
veg:
Helga Teitsdóttir – Karl Gunnlaugss. 214
Elín Kristmundsd. – Guðmundur Böðv. 205
Jóhanna Reynisd. – Jóhannes Sigm. 201
Þórdís Bjarnadóttir – Ari Einarsson 187
Margrét Óskarsd. – Loftur Þorsteinss. 182
Guðrún Hermannsd. – Magnús Gunnl. 179
Anna Ipsen – Pétur Skarphéðinsson 175
Margrét Runólfsd. – Bjarni H. Ansnes 169
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
ATVINNUHÚSNÆÐI
Hafnarfjörður atvinnuhúsn.
200 fm með innkeyrsludyrum, 3 m lofthæð,
hentar fyrir lager, snyrtilegt verkstæði eða
framleiðslu. 250 fm snyrtilegt skrifstofurými,
tölvulagnir. Leigist saman eða sitt í hvoru lagi.
Upplýsingar í síma 588 7050.
UPPBOÐ
Uppboð
Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins að Hörðuvöllum
1, Selfossi, þriðjudaginn 10. febrúar 2004 kl. 10:00 á eftir-
farandi eignum:
Hæðarbrún, Grímsnes- og Grafningshreppi, landnr. 187952, þingl.
eig. Birgir Sigurfinnsson og María Svava Andrésdóttir, gerðarbeið-
endur Íbúðalánasjóður, Loftmyndir ehf. og Og fjarskipti hf.
Jörðin Hæðarendi, Grímsnes- og Grafningshreppi, eignarhl. gerðarþ.,
þingl. eig. Birgir Sigurfinnsson, gerðarbeiðandi sýslumaðurinn
á Selfossi.
Sýslumaðurinn á Selfossi,
4. febrúar 2004.
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum sem hér segir:
Austurbrún 29, 0101, Reykjavík , þingl. eig. Elísabet Brynjólfsdóttir,
gerðarbeiðendur Búnaðarbanki Íslands og Lýsing hf., mánudaginn
9. febrúar 2004 kl. 14:00.
Depluhólar 10, 0101, Reykjavík, þingl. eig. þb.Burnham Int. á Íslandi
hf./Sigurmar K. Albertss. hrl., gerðarbeiðendur Jón I. Júlíusson
og Tollstjóraembættið, mánudaginn 9. febrúar 2004 kl. 11:00.
Dunhagi 18, 010202, Reykjavík, þingl. eig. Benedikt Andrésson, gerð-
arbeiðandi Lífeyrissjóðurinn Framsýn, mánudaginn 9. febrúar 2004
kl. 15:00.
Efstasund 65, 0101, 50% ehl., Reykjavík , þingl. eig. Unnar Garðars-
son, gerðarbeiðandi Tollstjóraembættið, mánudaginn 9. febrúar
2004 kl. 15:30.
Framnesvegur 11, 020101, Reykjavík, þingl. eig. Stefanía Stefánsdótt-
ir, gerðarbeiðendur Frjálsi fjárfestingarbankinn hf., Tollstjóra-
embættið og Vátryggingafélag Íslands hf., mánudaginn 9. febrúar
2004 kl. 13:30.
Gyðufell 14, 0403, Reykjavík, þingl. eig. Hjördís Björg Hjörleifsdóttir,
gerðarbeiðandi Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda, mánudaginn
9. febrúar 2004 kl. 10:30.
Hrafnhólar 6, 0705, Reykjavík, þingl. eig. Anna Ragna Siggeirsdóttir,
gerðarbeiðandi Tollstjóraembættið, mánudaginn 9. febrúar 2004
kl. 11:30.
Óðinsgata 4, 0202, Reykjavík, þingl. eig. Pétur Sigurðsson, gerðar-
beiðendur Íbúðalánasjóður, Sýslumaðurinn í Hafnarfirði og Toll-
stjóraembættið, mánudaginn 9. febrúar 2004 kl. 14:30.
Sýslumaðurinn í Reykjavík,
4. febrúar 2004.
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum, sem hér segir:
Álftarimi 3, Selfossi, fastanr. 218-5250, þingl. eig. Sigríður Ólína
Marinósdóttir, gerðarbeiðandi Lífeyrissjóður Suðurlands, fimmtudag-
inn 12. febrúar 2004 kl. 10:30.
Heiðmörk 2, Sveitarfélaginu Árborg, fastanr. 218-6351, þingl. eig.
Georgína Björg Jónsdóttir, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður, Lands-
sími Íslands hf., innheimta, Sveitarfélagið Árborg og Vátryggingafé-
lag Íslands hf., fimmtudaginn 12. febrúar 2004 kl. 10:00.
Heiðmörk 64, Hveragerði, fastanr. 221-0466 og 221-0468, þingl.
eig. Blómaver ehf., gerðarbeiðandi Lánasjóður landbúnaðarins,
fimmtudaginn 12. febrúar 2004 kl. 11:15.
Hvítárbraut 5, Grímsnes- og Grafningshreppi, fastanr. 220-8359,
þingl. eig. Svavar Kristinsson, gerðarbeiðendur Grímsnes- og
Grafningshreppur og Vátryggingafélag Íslands hf., fimmtudaginn
12. febrúar 2004 kl. 13:30.
Sýslumaðurinn á Selfossi,
4. febrúar 2004.
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eign verður háð á henni sjálfri
sem hér segir:
Hvolsvegur 19a, Rangárþingi eystra, þingl. eig. Magnús Bjarnason,
gerðarbeiðandi Rakel Sif Guðmundsdóttir, þriðjudaginn 10. febrúar
2004 kl. 10:30.
Sýslumaðurinn á Hvolsvelli,
4. febrúar 2004.
FRÆÐAÞING landbúnaðarins
hefst í Reykjavík í dag með dagskrá
sem lýkur á morgun. Um er að ræða
framhald eða arftaka árlegra ráðu-
nautafunda sem haldnir hafa verið í
febrúarmánuði ár hvert allt frá árinu
1958.
Yfirskrift fyrri dags Fræðaþings
2004 er ,,Búskapur á breyttum tím-
um“ og síðari daginn verða tvær
samhliða dagskrár, annars vegar
,,Landbúnaður og varðveisla land-
gæða“ og hins vegar ,,Nýting jarð-
argróða“ og ,,Ný tækni í búfjárkyn-
bótum“.
Fjölmörg erindi verða flutt á
fræðaþinginu. Á fyrri degi þingsins
má m.a. nefna erindi um áhrif hugs-
anlegra loftslagsbreytinga á land-
búnaðinn, ræktunaröryggi í skóg- og
jarðrækt, nýja skaðvalda í ræktun,
ný og breytt viðhorf til landnýtingar
og síðast en ekki síst verður fjallað
um hver verði staða einstakra bú-
greina á þeim breytingatímum sem
framundan eru.
Sem dæmi um erindi síðari dags
þingsins má nefna hringrás næring-
arefna og afrennsli af ræktarlandi,
innlendar tegundir í landgræðslu,
nýtingu belgjurta og íslenska birkið.
Undir liðnum nýting jarðargróða
verður fjallað um nýjungar í fóður-
mati og notkun hermilíkana við fóð-
urmat og að spá um afurðir, fóður-
verkunartækni, grænfóður og
sáðskipti í byggrækt.
Dagskrá Fræðaþings landbúnað-
arins er á vefnum www.landbunad-
ur.is
Fræðaþing landbún-
aðarins hefst í dag