Morgunblaðið - 05.02.2004, Page 48
48 FIMMTUDAGUR 5. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Clifton - Kóbrukossinn
Svínið mitt
framhald ...
ALLT Í LAGI RÚNAR, ÞÚ
MÁTT NÚNA. ÞÚ DÝFIR
PÍPUNNI SVONA. GERÐU
SVO VEL
© DARGAUD
© DARGAUD
HARALDUR FRÆNDI!
HANN ER ÖFL-
UGUR KÓBRU-
KOSSINN,
EKKI SATT!
MÁ ÉG SJÁ UM
HANN?
NEI NEI
ÉG HEF Á TILFINNINGUNNI
AÐ ÞESSI ENGLENDINGUR SÉ
EINHVERS VIRÐI! VIÐ GETUM
HÆKKAÐ VERÐIÐ !
SARDET! HEYRIRÐU TIL MÍN?
NÚ HELD ÉG AÐ
OFURSTINN HAFI
LENT Í KLANDRI ...
HEPPNIN ER MEÐ MÉR Í
DAG! ... HAHAHA! ... ÉG VAR
AÐ FÁ VINNING! ...
... STÓRAN VINNING MEÐ YFIR-
VARASKEGG! ... HANN TEKUR SIG
VEL ÚT MEÐ FRÆNDA SÍNUM!...
SHIT!
HEYRÐU!! ÞÚ MÁTT
EKKI SJÚGA
ÞETTA ER EKKERT
SNIÐUGT. NÚ VERÐ ÉG AÐ
FÁ NÝTT SÁPUVATN
VESALINGS RÚNAR HANN SKILUR
ÞETTA EKKI HANN NÆR ALDREI AÐ
GERA SÁPUKÚLUR
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100
Símbréf 569 1329 Netfang bref@mbl.is
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
FYRST er að þakka Morgunblaðinu
umfjöllun um útbreiðslu kláms í frétt
blaðsins miðvikudaginn 21. janúar.
Þar var sagt frá
fyrirlestri Krist-
jáns Jósteinsson-
ar, sérfræðings
Jafnréttisstofu,
sem hann flutti
við Háskólann á
Akureyri. Kom
skýrt fram hve
skaðleg áhrif
kláms eru víðtæk
og mikil, s.s. niðurlægjandi sýn á
manneskjuna, einkum konur og að
drengir eru aldir upp í að líta á konur
sem viðfang fyrir óseðjandi þörf sína
fyrir kynlíf. Gott og biblíulegt orð yf-
ir slíkt er losti, en fræum hans er sáð
með kláminu. Hér með er tekið undir
mikilvægi þess að þessi mál séu
rannsökuð og rædd. Samfélagið ein-
kennist að miklu leyti af uppgjöf í
þessu máli. En hér hlýtur að vera
unnt að setja einhver mörk og keppa
eftir að framfylgja þeim.
Undirritaður er meðal þeirra sem
tengdir eru við breiðband símans og
hefur haft aðgang, í kynningarskyni,
í nokkrar vikur að þeim 40 stöðvum
sem í boði eru. Þar á meðal er stöðin
Adult Channel sem snýst um klám og
aftur klám. Sem betur fer er hægt að
læsa þessari dagskrá en engu að síð-
ur finnst undirrituðum það merkilegt
að fyrirtæki í eigu ríkisins skuli
standa fyrir dreifingu á þessu efni.
Við athugun á vefnum gat ég ekki
betur séð en þetta sé refsivert sam-
kvæmt lögum (Hegningarlög gr.
210). Þrjár ungar konur bentu á
þessa staðreynd fyrir stuttu meða
því að kæra sölu klámefnis í bóka-
verslunum. Hægri höndin segir eitt
og sú vinstri græðir á því að gera
þveröfugt. Spurning er hvort þetta
sé svo mikilvægt í sölu dagskrár-
dreifingar að Síminn telji sig knúinn
til að dreifa þessu meðal þjóðarinnar.
Ef svo er þá er þetta merka fyrir-
tæki, sem enn er í eigu ríkisins, með-
al þeirra sem velta samtals næstum
milljarði á ári og græða vel á klámi og
klámfengnu framferði. Ef svo er ekki
væri ráð að hætta þessu hið fyrsta.
Vonandi taka ráðamenn Símans
þetta til athugunar. Ég sendi athuga-
semd til Símans um miðjan janúar.
Mér var tjáð að henni hefði verið skil-
að til þeirra sem ábyrgðina bera, en
sjálfur hef ég ekkert frá þeim heyrt.
Margt af því efni sem í boði er á
breiðbandinu er áhugavert, fræðandi
og gott efni. Ekki á að vera þörf á að
krydda áskriftina með klámi. Aumt
er ef ríkisfyrirtæki þurfa að auka
hagnað sinn með þeim hætti sem að
ofan greinir.
RAGNAR GUNNARSSON,
Aflagranda 1, 107 Reykjavík.
Ríkisfyrirtæki
í klámdreifingu
Frá Ragnari Gunnarssyni
skólapresti og starfsmaðnni
Kristilegu skólahreyfingarinnar
UM síðustu jól komu að sögn út fleiri
bækur en nokkru sinni fyrr. Í Bóka-
tíðindum 2003 segir að þar séu kynnt-
ir 515 titlar og jafnframt tekið fram að
þar með sé ekki öll sagan sögð því að í
Bókatíðindum eru auðvitað ekki allar
bækur sem komu út á árinu 2003.
Í auglýsingum og ritdómum, svo og
ýmiss konar bókakynningum sem ná
til lesenda þegar jólasöluslagurinn
stendur sem hæst, koma nokkrar af
þessum bókum fyrir augu væntan-
legra kaupenda. Valið á þeim bókum
sem mest eru kynntar er því miður
ekki alltaf í samræmi við það hve mik-
ið erindi bókin á við landsmenn. Þeg-
ar kemur að því hvaða bækur fái
kynningu og umfjöllun ráða ýmiss
konar sjónarmið sem ekki verður
fjallað um hér, en þar er fleira á ferð-
inni en bókmenntaástin ein eða um-
hyggja fyrir andlegri velferð lesenda.
Sumar bækur hverfa gjörsamlega í
öllu þessu flóði. Stundum eru það góð-
ar bækur, kannski bestu bækurnar.
Hver veit hvað er góð bók? Sá sem
hér skrifar ætlar a.m.k. ekki að setja
fram skilgreiningu á því.
Mig langar hins vegar til að segja
frá bók sem út kom fyrir síðustu jól og
mér fannst öðrum bókum yndislegri.
Þetta er bók Erlu Stefánsdóttur:
Lífssýn mín.
Hér ætla ég ekki að rekja efni bók-
arinnar að öðru leyti en því að hún
segir frá sýnum höfundarins. Erla
Stefánsdóttir hefur augu sem sjá
gegnum það sem við köllum í daglegu
tali efnisheiminn. Hún sér yfir í aðra
heima með aðrar víddir, hún sér liti
kringum fólk, verur á öðrum tíðni-
sviðum og útgeislun frá lifandi verum
og „dauðum“ hlutum. Um allt þetta
og margt fleira fjallar bókin. Þegar
Erla var spurð hvers vegna hún hefði
skrifað hana svaraði hún að guð hefði
gefið henni fullan poka af fræjum og
nú væri hún að sá þeim.
Ég ætla heldur ekki að leggja dóm
á bókina að öðru leyti en því að þegar
ég hafði lesið hana fannst mér eins og
fyrir mér hefðu opnast dyr. Ég sá inn
í nýjan heim, ævintýralegan furðu-
heim en samt á einhvern óútskýran-
legan hátt svo rökréttan og ótrúlega
fallegan. Og það gladdi líka hjartað í
gamalreyndum íslenskukennara að
sjá hve þessi kona, sem lifir ekki
nema að hálfu leyti í okkar heimi, fer
vel með íslenskt mál.
Ég er Erlu Stefánsdóttur þakklát-
ur fyrir þessa bók. Allir þeir sem
leggja á sig vinnu til að bæta og fegra
líf okkar eiga aðdáun mína og virð-
ingu. Og ég veit að til er hópur fólks
sem hefði gagn af að lesa það sem
þarna stendur. Hópurinn sem hefur
áhuga á andlegum málefnum er ef til
vill ekki stór, en til þess hóps þurfa að
rata þær bækur sem fyrir hann eru
skrifaðar. Í jólabókaflóðinu ber meira
á annars konar bókum og mig grunar
að bók Erlu hafi horfið í skuggann af
öðru sem náði að vera meira áber-
andi. Þess vegna ákvað ég að senda
þessar línur í blaðið með kærri kveðju
til allra þeirra sem leita að sömu hlut-
um og ég.
RAGNAR INGI
AÐALSTEINSSON,
Fannafold 103, 112 Reykjavík.
Lífssýn Erlu
Frá Ragnari Inga Aðalsteinssyni